Norðurland - 13.04.1978, Síða 4
Bœýtur.
q/QtéshAhm
Útibú Búnaðarbankans,
iðnaðarbankans og
Útvegsbankans
á Akureyri tilkynna breyttan
afgreiðsiutíma frá 1 maí n.k.
sem hér greinir:
Mánudaga til föstudaga
frá kl. 9.15 til 12.00 og
kl. 13.00 til 15.30.
Síðdegisafgreiðsla
aðeins á föstudögum
frá kl. 17.00 til 18.00.
Akureyri, 7. apríl.
Búnaðarbankinn
(Ö>-lðnaðarbankinn
Útvegsbankinn.
Samtökin
Fundur verður haldinn í Samtökum vinstri manna á
Akureyri að Þingvallastræti 14, fimmtud. 13. apríl,
kl. 20.30.
FUNDAREFNI:
1. Ákvörðun tekin um framboðslista flokksins
við komandi bæjarstjórnarkosningar.
2. Önnur mál.
STJÓRNIN.
Tilkynning
Þann 22. mars sl. var kveðinn upp lögtaksúrskurður
um gjaldfallna fyrirframgreiðslu þinggjalda ársins
1978.
Skattþegum skal hér með bent á, að nú er öll fyrir-
framgreiðslan eindöguð og er hér með skorað á gjald-
endur að gera skil á ógreiddum gjöldum sínum nú
þegar, svo þeir firri sig óþægindum er af lögtökum og
dráttarvöxtum leiðir.
Ólafsfirði, 6. apríl 1978.
Bæjarfógetinn í Ólafsfirði.
á öllum skíðavörum
Sport og hljóðfærsverslun
Akurevrar
«✓
Sími 23510
Viðtal - Jill
Framhald af bls. 6
Bertold Brecht, þe. að leik-
ararnir fara andartak út úr
atburðarásinni og ávarpa
áhorfendur, spyrja þá álits á
gangi mála. Þetta var gert í
fyrstu uppfærslu verksins og
ég held að Johan Littlewood
hafi bætt því inn í.
- Að síðustu, Jill, hvernig
hefur samstarfið gengið við
starfslið LA ?
- Það hefur gengið vel. Þau
hafa verið þolinmóð því ís-
lenskan mín er ekki góð - ekki
enn. Við höfum hjálpasj að við
að skilja hvort annað og það
hefur allt blessast. - ÞH
Akureyrarkirkja
Messað í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 16. apríl kl. 2 e.h.
Sálmar nr. 18,45,48,460, 518.
■ - P. S.
Hjálpræðisherinn
Sunnudaginn 16. apríl kl.
13.30: Sunnudagaskóli. Kl.
17.00: Almenn samkoma. -
Mánud. kl. 16.00: Heimilis-
sambandið. Þriðjud. kl. 20.30:
Hjálparflokkurinn. Allir vel-
komnir.
Kristniboðshúsið Zíon:
Sunnudaginn 16. apríl. Sunnu
dagaskóli kl. 11. Samkoma kl.
20.30. Ræðumaður Benedikt
Arnkelsson. Allir velkomnir.
íbúðir til sölu
Byggjum í sumar 18 íbúða fjölbýlishús við Borg-
arhlíð 1-3-5.
2ja herb. íbúð er 57 ferm. nettó og 85 ferm. með
geymslum og sameign.
3ja herb. íbúð er 72.2 ferm. nettó og 100.8 ferm.
með geymslum og sameign.
4ra herb. íbúð er 86.6 ferm. nettó og 11 5.2 ferm.
með geymslum og sameign.
ATH. að seljandi tekur 2/3 hluta húsnæðis-
málastjórnarláns, sem nú hefur hækkað úr
2.700.000 í 3.600.000.
fbúðirnar afhendast um mitt árið 1979.
FJÖLNISGÖTU 3a
••fi1 (96)23248 - Pósthólf 536 • Akureyrl 602
Starfsfólk óskast
á gæsluvelli bæjarins frá 15. maí til næsta hausts.
Skriflegar umsóknir sendist leikvallanefnd, skrif-
stofum Akureyrarbæjar, fyrir 22. apríl.
Umsækjendur verða að vera fullra 18 ára og fúsir að
sækja 20-30 tíma kvöldnámskeið í vor.
Nánari upplýsingar gefur Einar Hallgrímsson í síma
12894 eftir kl. 18 á daginn.
LEIKVALLANEFND.
Skoðunargjald á Mæðradeild fyrir konur utan Akur-
eyrar og Eyjafjarðarsýslu verður sem hér segirfrá 1.
apríl 1978:
Blóðflokkun, fyrsta skipti Kr. 2000,-
í hvert sinn þar á eftir Kr. 600,-
HEILSUVERNDARSTÖÐ AKUREYRAR
MÆÐRADEILD
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
KRISTNESHÆLIÐ.
YFIRLÆKNIR. Staða yfirlæknis við Krisfnes-
hælið er laus til umsóknar.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf
ber að senda Stjórnanefnd ríkisspítalanna, Eiríks
götu 5, fyrir 2. maí n.k.
Reykjavík, 2. apríl 1978.
SKRIFSTOFA
RlKISSPlTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5. - SÍMI 29000
Ferðafélag Akureyrar
Gönguferð á Háurinda laug-
ardaginn 15. apríl kl. 1. Þátt-
taka tilkynnist í síma 23692,
föstudag kl. 19-21.
Ffladelfía, Lundargötu 12.
Almenn samkoma sunnudag-
inn 16. apríl kl. 20.30. Ræðu-
maður: Hinrik Þorsteinsson.
Fimmtudag 13. apríl, almenn-
ur biblíulestur kl. 20.30. Allir
hjartanlega velkomnir á sam-
komur þessar. - Sunnudaga-
skóli hvern sunnudag kl. 11
f.h. öll börn hjartanlega vel-
komin. - Fíladelfía.
Kökubasar
Sjálfsbjörg og íþróttafélag
fatlaðra halda sameiginlegan
kökubasar sunnudaginn 16.
apríl kl. 15.00, að Laxagötu 5.
Verið dugleg að baka. Vin-
samlega beðin að koma kök-
unum í Laxagötu5 milli 12 og
14 sama dag. - Nefndin.
Konur takið eftir
Þriðjudaginn 18. apríl hefir
Kristnildoðsfélag kvenna fund
í Zíon kl. 20.30 með kristni-
boðunum Ingunni Gísladóttur
Kjelrun og Skúla Svavars-
syni. Þar verður kristniboðið
kynnt í máli og myndum.
Kvenfélagi Akureyrarkirkju
sérstaklega boðið. Fjölmenn-
ið nú og kynnist störfum
kristniboðanna.
1. maí
Framhald af bls. 1.
tími til stefnu, liðlega hálfur
mánuður. Ekki er heldur annað
sæmandi í miðjum harðvítug-
um stéttaátökum en að 1. maí
verði gerður að gildum þætti í
kjarabaráttunni, þar gefst stétt-
inni kjörið tækifæri til að sýna
mátt sinn.
Söngsveit
Framhald af bls. 3
manna að það hafi að nokkru
leyti tekist. Sveitin er blönduð
og telur hátt í 30 manns sem
hafa stundað æfingar tvisvar í
viku í vetur.
Fyrir nokkru efndi söngsveit-
in til söng- og dansskemmtun-
ar í Hlíðarbæ í fjáröflunar-
skyni. Var þar fluttur hluti
þeirrar efnisskrár sem nú er
boðið upp á og voru móttökur
áheyrenda góðar. Eftir skemt-
unina í Hlíðarbæ er það ætlun-
in að fara með dagskrána á vit
Þingeyinga og syngja fyrir þá í
Stóru-Tjarnarskóla.
Tónleikarnir á laugardaginn
verða kl. 21 um kvöldið.
Hótelið
í Úlafsfirði
(Stofnað 1970)
Aðalgötu 15
Símar (96)62315 og
(96)62384
Nafnnúmer: 8932-2413
Starfssvið:
Ferðamannaþjónusta
allt árið.
Gisting í eins, tveggja
eða þriggja manna
herbergjum.
Allar almennar veitingar.
Hótelið
J Úlafsfirði ^
4 > NORÐURLAND