Norðurland


Norðurland - 13.04.1978, Blaðsíða 5

Norðurland - 13.04.1978, Blaðsíða 5
Að leiðrétta lýðræðið Framhald af baksíðu. stjórn og flokknum. Nú hefur hann safnað ym sig hópi fallkandidata og von- leysingja úr öðrum flokk- um og hyggst bjóða fram. Meðal þeirra sem orðaðir eru við lista Sigurðar eru þeir Jón Ármann Héðins- son alþingismaður sem ekki hlaut náð fyrir augum kjósenda í prófkjöri Al- þýðuflokksins, Björn Ein- arsson úr Framsóknar- flokknum og Sigurður Ingi Hillaríusson sem situr í bæjarstjórn fyrir Samtökin en þykir sennilega væn- legra til árangurs að rjúfa tengslin við þá sundruðu hjörð. Já, Bárður minn, það eru víðar til vonsviknir fall- kandidatar en hér á Akur- eyri. Leikfélag Akureyrar Hunangsilmur eftir Shelagh Delaney Þýðing: Ásgeir Hjartarson Búnirjgar: Freygerður Magnúsdóttir Leikmynd: Hallmundur Kristinsson Leikstjóri: Jill Brooke Árnason Frumsýning föstudag 1 4. aprí/ kl. 8.30 2. sýning laugardag 3. sýning sunnudag Galdraland sunnudag kl. 2. Miðasala frá og með mið- vikudegi frá kl. 5-7. Sími11073. „Tungan í tímans straumi" Eftir Einar Kristjánsson Þáttur sjónvarpsins síðastliðið mánudagskvöld, um „tunguna í tímans straumi", var að mörgu leyti ágæt viðleitni í þá átt að hugleiða og ræða vandamál, sem hefuralltaf verið, og verður aðkallandi. Tungumál smá- þjóðar á alltaf í vök að verjast. Til dæmis má íslensk tunga biðja góðan guð að varðveita sig fyrir þeim vinum sínum, sem ákafast biðja um endurreisn Kefla- víkursjónvarpsins, og einnig hinum, sem vilja að út- varpsrekstur og sjónvarpssendingar megi hvaða ang- urgapi sem er, hafa með höndum, ef áhugi og fjármagn er til staðar. í þessum pistli er ekki rúm til að ræða í löngu máli. En mér finnst vert að minnast á einn þátt móðurmáls- kennslunnar, sem ekki hefur verið sinnt sem skyldi, en það er kennsla í framsögn. Slík tilsögn fer yfirleitt ekki fram í skólunum, að undanteknum leiklistarskólum og námskeiðum. Ekki virðistástæða til að ætla aðfólk læri þá list að tala svo vel sé, án tilsagnar, enda er tafs, þvoglumæli, áhersluskekkjur og latmæli alltof algengt f tali fólks, jafnvel þó að skólagengið sé, og hafi bæði greind og getu til að gera miklu betur. Því hefur aðeins aldrei komið til hugar, að í þessu efni væri þörf úrbóta. Þokkaleg framkoma og marinasiðir eru heldur ekki á neinni námsskrá, og ber margur þess merki. Margir fá að vísu slíka tilsögn í foreldrahúsum, en miklu fleiri alls ekki, heldur hið gagnstæða, því uppal- endurnir eru oftfjarri þvíað vera súfyrirmynd, sem þeir ættu að vera. Lærifeðurnir, sem komu fram í þessum sjónvarpsþætti, báru nemendum fremur vel söguna. En þess er að gæta, að segja má að nemendur mennta- skólakennara, eins og Gísla Jónssonar, séu raunar úr- val. Þeir eru fólk, sem reynist hæft til langskólanáms og vill læra, og vitanlega eru þetta góðir nemendur. Þrautin er þyngri í grunnskólunum, þar sem verið er að stríða við að fræða nemendur, sem eiga örðugt með nám, og vilja beinlínis ekki læra. í hverjum grunnskóla er alltaf töluverður hópur því marki brenndur, og þegar heil bekkjardeild samanstendur af einstaklingum af því tæi, verður vandamálið óviðráðanlegt, einsog margur kennarinn þekkir af eigin raun. Eitt er það sem glæða mætti bjartsýni þeirra, sem bera ugg í brjósti vegna hnignunar tungunnar í mæltu máli. Oft ber það við í sjónvarps- og útvarpsþáttum, að sjómaður, iðnaðar- maður, bóndi eða annað fólk úr verkalýðsstétt, ertekið tali óvænt, þegar það á sér einskis ills von. Og það er ótrúlega oft, að þarna koma fram prýði- legir viðmælendur, greinagóðir, hispurslausir og svo vel máli farnir, að hvaða þjóðhöfðingi sem væri, mætti teljast fullsæmdur af. Og þessi frammistaða mun oft ekki, nema að litlu leyti, vera að þakka málfræðikunn- áttu frá skólakerfinu, heldur ættgengum eiginleikum, og sambúð við hugsandi og iesandi kjarnafólk. Að loknum þessum sjónvarpsþætti fór ég að skyggnast um æskubyggð mína. Þar voru liðlega þrjátíu heimili, þegar ég var að alast upp, og maður sem hafði verið í skóla, var alger undantekning. Þetta fólk talaði yfirleitt málfræðilega rétt, en þekkti þó engan orðflokk með nafni. Þágufallssýki brá fyrirá einum þremur bæjum, og var nokkuð skopast að. Og ég er viss um, að á meira en helmingi þessara heimila, var að finna einn eða fleiri, sem ritaði lýtalausa réttrit- un, og hefði getað orðið sómasamlegur blaðamaðurá örskömmum tíma. Einnig voru þarna nokkrir einstaklingar, sem kunnu naumlega að draga til stafs, en höfðu frásagnargáfu eins og hún gerist best, og bjuggu yfir margvíslegum þjóðlegum fróðleik. Ekki harma ég annað meir en að lítið sem ekkert skyldi varðveitast af því, sem með þessu fólki bjó. * Móðurmálið átti gott athvarf á þessum slóðum, og svo mun hafa verið í sveitum yfirleitt, þó að skólamenntun væri af skornum skammti, eða engin. Vonandi verður þessi móðurmálsþáttur sjónvarpsins upphaf að miklu og góðu starfi. Umræður þátttakenda voru prúðmannlegar og málefnalegar, nema hvað Sverrir Hermannsson fór allt í einu að ræða um ein- hvern ,,hóp manna", sem teldi sig sjálfkjörinn til að yrkja og skrifa fyrir alla þjóðina, án þess að hafa nokkurn rétt til þess. Þessari fáránlegu fullyrðingu fylgdu engar skynsamlegar röksemdir, svo sem vænta mátti. I-------------------- Snerpa og skaphiti I Strokkvartettinn Reykjavík- I Ensemble skipa Guðný Guð- | mundsdóttir 1. fiðla, Ásdís I Þorsteinsdóttir Stross, 2. fiðla, Mark Reedman, lágfiðla og Nina G. Flyer, selló. Reykjavík-Ensemble var stofnað árið 1975 og hefur margsinnis leikið þar syðra I fyrir félaga Kammermúsikk- I klúbbsins og farið tónleika- | ferðir íjórum sinnum til Þýzka lands. Nú er hópurinn á förum I til Frakklands til þess að taka I þar þátt í tóniistarkeppni fyrir I strokkvartetta. I Tónlistarfélag Akureyrar lætur skammt stórra högga I milli um þessar mundir. í I dymbilviku lék hér á vegum | félagsins Martin Berkofsky píanóleikari, sem er mikill | sniildarmaður og eftir því I fjölhæfur. Tónlistarskólinn i naut góðs af fágætum eigin- leikum hans sem kennara, er | hann hafði hóptíma fyrir nem- endur og kennara skólans sl. Isunnudag. 9. apríl var svo á ferðinni Reykjavík-Ensemble I sem lék í Ákureyrarkirkju strokkvartetta eftir Mozart, Beethoven og Béla Bartok. Voru þetta fimmtu tónleikar Tónlistarfélags Akureyrar á þessu starfsári. Eitt og annað stendur til hjá félaginu, og eru Soffía Guðmundsdóttir fjallar um tónleika Reykjavík Ensemble árlegir tónlistardagar í undir- búningi. Passíukórinn lætur til skar- ar skríða innan tíðar og flytur Requiem, Sálumessu eftir Mozart og Kantötu nr. 23 eftir J.S. Bach, og tónleikar nem- enda Tónlistarskólans fara senn að hefjast. Efnisskrá umræddra tón- leika í Akureyrarkirkju var hin veglegasta og ekki ráðizt á garðinn þar sem hann er lægst- ur. Þar var farið um vítt svið allt frá klassik til nútímans, og ber þeim fjórmenningum heið- ur og þökk fyrir að flytja okkur svo mikið.efni og merki legt. Allur flutningur þeirraer einstaklega vandaður og ein- kennist af snerpu ogskaphita. Þeim er töluvert niðri fyrir og fara enga erindisleysu á' tón- leikapallinn. Áheyrendur voru reyndar ekki fjölmargir, en ég hygg, að allir hafi þeir fylgst af óskiptri athygli með því, sem var að gerast á þessum tón- heyrt leikum. Þarna náðu flytjendur til áheyrenda. Það skal játað, að sístur þótti mér flutningur á strok- kvartett eftir Mozart, og var hann þó einkar fallega leikinn á köflum og stílhreint. Þetta er gamla sagan, að örðugt er að festa hönd á tónhugsun klass- íska tímans og gera þau áhuga verð og nærtæk nútímafólki. Á þetta í ríkum mæli við um snilldarverk Mozarts, en þau er um hartnær tveggja alda skeið búið að leika svo oft og svo vel að mörgum kann að virðast sem þar sé litlu við að bæta og örðugt að finna sinn eigin tón andspænis öðrum eins sögulegum staðreyndum. Þar að auki eru viðhorf áheyrenda meira og minna fyrirfram fastbundin og mót- uð. Hér kemur fjölmargt til, sem of langt mál væri að fara nánar út í, þótt freistandi sé, en Mozart er ekki bara leik- andi léttur, glæsilegur og and- ríkur formsins meistari. Hann hafði mikilvægan boðskap að flytja um sína daga, en það er ærinn vandi að koma honum til skila á okkar dögum. Það má ekki gera hann of þægi- legan. Með strokkvartett Beet hovens fór svo um munaði að draga til tíðinda, enda er þar ekkert smáræði á ferð að inni- haldi og öllu umfangi. Hátindur þessara tónleika var tvímælalaust strokkvartett eftir Béla Bartok bæði hvað verk og flutning áhrærði. Er síst ofmælt, að það er merkis- viðburður að fá að heyra annað eins. Helst hefðu þau íjórmenningar átt að flytja þetta verk í tvígang með hléi á milli en það er vísast til of mikils mælzt. Þau fengu vissu- lega undir því risið að færast annað eins verkefni í fang. ------------------------------1 I Béla Bartok samdi þetta ógnþrungna verk rétt í þann mund, er heimsstyrjöldin síð- ari var að hefjast og hann sjálfur að flýja land sitt | Ungverjaland. Állir kaflarnir I byrja með sorgarstefi, mesto, . er myndar vissa einingu innan verksins, sem annars er svo margbreytilegt sem verða má I að allri framsetningu og notk- un á möguleikum strokhljóð- færanna. Þarna er komin tónlist í öllu veldi, sem er tímabær og aðkallandi, á erindi við nútímafólk, ef það vildi ljá henni eyra. Að lokum I var flutt sem aukalag Scherzo úr strokkvartett eftir Schu- mann. Það kann að virðast nöld- ur, en mér kemur í hug hvort þessi ágæti hópur geti ekki I fundið sér skikkanlegt nafn, I sem fari vel að íslensku máli. Ég get vel fellt mig við Reykja- vík-Ensemble (án eignarfalls) | fyrir erlendan markað, en til heimabrúks væri fengur að skaplegra heiti, sem léti skár í eyrum. Hljómeyki er til, væri sameyki eða því um líkt fjar- I stæða? Þetta skiptir þó ekki meginmáli, heldur sú ánægju- I lega staðreynd, að með okkur I hefur uppvakist hópur tónlist- arfólks, sem af alvöru og list- rænni hæfni iðkar Iist sam- | leiksins, kammermúsíkina. I Þeim eru hérmeð fluttar ein- lægar þakkir fyrir komuna og árnað heilla. S.G. NORÐURLAND- 5

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.