Norðurland - 19.04.1978, Page 7
flstut vuíwmar
Gleðilegt
sumar
Þökkum viðskiptin
á vetrinum.
Iðnaðarbanki
fslands
Akureyri
Bestu óskir um
gleðilegt
sumar
nonðun
mynd
LJÓIMYNPASTOFA
Slmi 96-22807 • Pósthólf 464
Glerárgötu 20 602 Akureyr
Framboðslistinn okkar allra
Nú er búið að birta framboðslista allra þjóðhollra íslend
inga sem búa á Akureyri. Flokkurallra stétta hefur birt
nöfn og heimilisföng alls þess heiðursfólks sem skipar
framboðslistann góða. Aftur á móti láðist alveg að geta
um starfsheiti frambjóðendanna þegar nöfnin voru
birt. Ekki svo að skilja að það skipti nokkru einasta máli
í flokki allra stétta hvaða atvinnu menn stunda. Það er
nefnilega þannig eins og allir vita að verkafólk er síst
betur statt í efnalegu tilliti en forstjórar. Það er meira
að segja búið að sýna fram á það nýlega með lagasetn-
ingu að það er óhófseyðsla sem þjóðin hefur alls ekki
efni á að veita sér að borga verkafólki drjúgar hundrað
þúsund krónur á mánuði í laun. Getur raunar hver séð í
hendi sér að það hlýtur að vera hverri fjölskyldu
beinlínis óhollt að éta og drekka á mánuði hverjum fyrir
þvílíka geypi upphæð. Ekki stendur betur á fyrir
atvinnurekendum og forstjórum. Enginn skal halda að
það sé einhver leikur að halda uppi fullri atvinnu fyrir
blessað fólkið í landinu. Það vita allir menn jafn vel og
að dagur kemur á eftir nótt, að engin leið er að reka
fyrirtæki öðruvísi en með tapi. Það hefur aldrei verið
hægt, og allra síst núorðið þegar verkalýðsforystan er
ekkj meðal hinna þjóðhollu íslendinga. Það er því engin
furða þó ýmsir komist við af meðaumkun með sumum
f'ölskyldum í þessu landi sem mann fram af manni
eyða öllum aurunum sínum í að borga tapið á fyrirtækj-
unum sem þær reka fyrir hina vanþakklátu íslensku
þjóð. Haldið þið að það sé ekki sárgrætilegt, til dæmis,
að hugsa sér hvernig komið er fyrir því hugsjónastarfi
sem Thorsararnir unnu fyrir íbúa Hjalteyrar um árabil.
Þeir voru sko vakandi og sofandi í því að tryggja velferð
íbúa hreppsins, sjá þeim fyrir atvinnu í síldarbræðsl-
unni og við söltunina og borga þeim lífvænlegt kaup.
Um þetta mikla hugsjónastarf geta vissulega mörg
önnur byggðarlög einnig verið til vitnis, en því er Arnar-
neshreppur með sína Hjalteyri tilfærður hér að sú
byggð stendur okkur öllum í svo fersku minni þessa
dagana. Nú er svo komið að hreppurinn hefur eignast
allt heila góssið sem Thorsararnir hafa haldið svd vel
við á Hjalteyri í áratugi, þannig að til stórrar prýði fyrir
hugsjónir þeirra má kallast það framtak allt.
Menn skulu þess vegna ekki vera að agnúast út í það
þó að á framboðslista allra stétta séu forstjórar í fimm
af sex efstu sætunum. Slíkt ergelsi er ástæðulaust því
að flokkur allra stétta hefur undanfarin ár margsinnis
sýnt það og sannað að hann ber fyrst og fremst velferð
alþýðunnar fyrir brjósti. Séu einhverjir í vafa þá er vert
að nefna örfá dæmi: Síðustu fjögur árin hefur
flokkurinn til dæmis barist hatrammlega gegn verð-
bólgunni með þeim eftirtektarverða árangri að hún
hefur aldrei í íslandssögunni verið meiri. Flokkurinn
hefur svo lengi sem elstu menn muna barist hetjulegri
baráttu fyrir því að halda uppi fullri atvinnu handa öllu
fólkinu. Hann náði þeim glæsilega árangri eftir tólf ára
viðreisnarstjórn að atvinnuleysingjar urðu nærri sex
þúsund talsins eða um það bil áttundi hver félags-
maður Alþýðusambands íslands. En dýrmætust allra
hugsjóna flokksins er samt sú sem birtist í baráttunni
fyrir háum kaupmætti launa og skaplegum vinnutíma,
og árangurinn hefur sannarlega ekki látið á sér standa.
Þrátt fyrir margvíslegt múður verkalýðssamtakanna
um árabil hefur tekist að tryggja launafólki um það bil
helmingi lægri laun en greidd eru að meðaltali í
nágrannalöndunum fyrir sömu störf. Þá hefur einnig
tekist, þrátt fyrir skilningsleysi launþegasamtakanna,
að tryggja verkafólki þrjátíu til fimmtíu prósent lengri
vinnutíma en víðast hvar annarsstaðar er mögulegt að
fá í Evrópu. Hefur þannig tekist að leysa farsællega
þann vanda hvernig fólk eigi að verja frítíma sínum.
Það er svo allt annað mál og er bara til marks um
ótrúlegt vanþakklæti kjósenda, ef satt reynist sem
ýmsir eru að spá, að einungis tveir af hinu föngulega
forstjóraliði geti búist við að komast í bæjarstjórn
Akureyrar. Hinn þriðji eigi örlitla von og sá fjórði enga,
þrátt fyrir ómælda baráttugleði.
En meðal annarra orða: Það er annars skrítin tilviljun
að í flokki allra stétta skuli ekki finnast frambærilegur
kvenkyns forstjóri. Já, skrítnar eru tilviljanirnar, - eða
hvað?
Klói.
Aðalfundur
Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri
og nágrenni
verður haldinn laugardaginn 22. apríl kl. 2 e.h. í
Sjálfstæðishúsinu (litla sal).
FUNDAREFNI:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Björn Þórhallsson, Magnús L. Sveinsson og
Helgi Guðbrandsson mæta á fundinum.
STJÓRNIN.
Trésmiðafélag Akureyrar
óskar félagsmönnum sínum
sumars
V
r
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegs sumars!
I I Jn I lii I
mm
slippstödin
H.F.
PÓSTHÓLF 246 . SÍMI (96)21300 . AKUREYRI
Sendum öllum félagsmönnum
og öðrum landsmönnum
bestu óskir um
gleðilegt sumar
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
SÍMI 2-14-00 -AKUREYRI
NORÐURLAND - 7