Norðurland - 22.02.1979, Page 1
NORÐURIAND
4. árgangur Fímmtudagur 22. febrúar 1979 6. tölublað
Olafsíjörður:
BÁTUR FÓRST
Einn maður drukknaði
Ólafsfjörður 20 /2. Tuttugu og
fimm lesta bátur frá Ólafsfirði,
Guðmundur Ólafsson ÓF 40,
fórst í netjavitjun sl. mánudag.
Gerðist þetta um íjórar sjómílur
norðaustur af Héðinsfirði. Sex
manna áhöfn var á bátnum og
björguðust fimm þeirra en einn,
Þórir Guðlaugsson drukknaði.
Skipið fékk á sig sjó og lagð-
ist á hliðina. Féllu allir skipverj-
ar í sjóinn. Tveir björgunarbát-
ar voru um borð, en þeir náðu
ekki nema öðrum áður en skip-
ið sökk. Skipbrotsmenn voru
við illan kost í björgunarbátn-
um, þar sem hann var hálfur af
sjó og hvolfdi einu sinni. Vél-
báturinn Arnar ÓF 3 kom á vett
vang og bjargaði þeim um þrjú-
leytið. Voru þeir þá orðnir
nokkuð þjakaðir. Var komið
með skipbrotsmennina heim til
Ólafsfjarðar á fimmta tíman-
um. Skipstjóri á Guðmundi
Ólafssyni var Garðar Guð-
mundsson og með honum um
borð voru Agúst Sigurlaugs-
son, Halldór Guðmundsson,
Barði Jakobsson og Óskar
Finnsson auk Þóris.
Þórir Guðlaugsson lætur eftir
sig konu og fjögur börn. Norð-
urland vottar þeim og Ólafsfirð-
ingum öllum samúð sína.Agnar
Fjör á skíðum
Ólafsfjörður 20 jl. Ólafur
Bekkur landaði hér fyrir helgi
90 tonnum . Sólberg kom í dag
með um 200 tonn til löndunar.
Hér hefur verið mikil blíða
undanfarið og jafnvel snjó tekið
upp. Tregt hefur verið hjá neta-
bátunum eins og áður hefur
komið fram í Norðurlandi..
Ný togbraut var nýlega tekin í
notkun og er flutningsgeta
hennar 400 manns á klukku-
stund. Hún mun kosta fullbúin
um 26 miljónir króna. Landslið-
ið í skíðagöngu, sem skipað er 4
Ólafsfirðingum fór fyrir
skömmu héðan til æfinga í Sví-
þjóð. Agnar
GEGN BRASKI
Tillaga þar að lútandi var
samþykkt síðla fundar svo-
hljóðandi:
„Félagsfundur í Alþýðu-
bandalaginu á Akureyri, nald-
inn 15. feb. 1979þakkarSvavari
Gestssyni viðskiptaráðherra fyr
ir viðleitni hans til að koma á
bættum viðskiptaháttum. Þá
vill fundurinn koma á framfæri
því áliti sínu að fráleitt sé að láta
þá einstaklinga og fyrirtæki,
sem uppvís verða að misferli í
meðferð gjaldeyris, annast inn-
kaup og innflutning á vörum til
landsins og viðskipti við banda-
ríska setuliðið.
Fundurinn skorar á yfirvöld
dómsmála að láta reyna á það
hvort ekki sé hægt að svifta
þessa innflytjendur leyfi til
verslunar við útlönd. Ef svo
reynist ekki telur fundurinn
brýnt að Alþingi setji hið bráð-
asta lög sem geri slíkt kleyft og
veiti þeim sem annast viðskipti
til landsins við útlönd strangt
aðhald.“
Félagi Svavar Gestsson, full-
trúi sósíalista í ríkisstjórn.
Á fundinum hjá Alþýðubanda-
laginu á Akureyri sl. fimmtu-
dagskvöld var rætt um að senda
félaga Svavari Gestssyni brýn-
ingu um að herja á hermangara
og annan braskaralýð hér eftir
sem hingað til.
Húsvíkingar kaupa
NÝJANBÁT
Húsavík 19 feb. Svo sem fram
hefur komið áður í NORÐUR-
LANDI þá hefur verkefna-
skortur hrjáð starfsemi Fisk-
iðjusamlagsins undanfarið.
Raddir hafa verið uppi um kaup
á nýjum togara. En leyfi til
slíkra kaupa fæst ekki nema
skip sé selt úr landi í staðinn.
Útgerðarfélagið Höfði fékk
heimild til að kaupa bát milli
100 og 200 tonn. Bæjarstjórn
samþykkti nauðsynlega hluta-
Qáraukningu til að gera kaupin
möguleg. I Höfða á Fiskiðju-
samlagið meirihluta en auk þess
eiga Húsavíkurbær og Kaupfé-
lag Þingeyinga verulegan hlut í
félaginu. Margir bátar eru nú á
sölulista, en kaupin verða að
gerast fljótt, bæði vegna at-
vinnuástandsins hér og svo
vegna þess að hætt er við að
betri bátar af sölulista lendi á
veiðum í næsta mánuði.
Fjárhagsáætlunin var lögð
fram til fyrri umræðu í bæjar-
stjórn 15. feb. sl. Heildarvelta
bæjarins og fyrirtækja hans er
áætluð einn miljarður fjögur
hundruð tuttugu og níu miljónir
og fjögur hundruð þúsund krón
ur. Tekjur bæjarsjóðs eru áætl-
aðar 625 miljónir, en tekjuaf-
gangur til framkvæmda 145
miljónir. Rekstrargjöld eru
áætluð 476 miljónir. Arið 1970
var hlutfall framkvæmdarfjár
46% en árið 1979 áætlað um
23%.
Stærstu framkvæmdaliðirnir
á áætluninni er bygging barna-
dagheimilis um 70 milj. og til
leigu- og söluíbúða 135 milj. kr.
Til fróðleiks um þankaganginn
hér í bæ má geta þess að skóla-
tannlækningar lenda undir liðn-
um fræðslumál á áætlun! Ný-
lega voru afhentar ein leiguíbúð
og 4 söluíbúðir á vegum bæjar-
félagsins.
HaFist er handa um fram-
kvæmdir við „Framtíðina“, -
nýbyggingu við Fiskiðjusam-
lagið. Hér er um að ræða
stækkun á vinnslusal, nýjan
vélasal og aðstöðu fyrir hand-
flökun. Nýbyggingin mun vænt
anlega verða tekin í notkun á ár-
inu. Ben.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Stjórnarfundur
mánudag 26. febrúar kl. 20.00 í Lárusarhúsi.
Bæjarmálaráðsfundur
mánudaginn 26. febrúar kl. 20.30 í Lárusarhúsi.
FUNDAREFNI:
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar o.fl.
Mikilvægt að nefndamenn félagsins komi.
ATH. Allir félagar ABA eiga rétt á setu i bæjar-
mðlaráði.
Neyðarás tand
í neysluvatnsmálum
Raufarhöfn 19.2. Mjög slæmt
ástand er í neysluvatnsmálum
þorpsins. 2/3 hluti íbúanna
búa við neysluvatn, sem dæmt
hefur verið óhæft til drykkjar.
Vatnið er mengað af ýmsum
óæskilegum efnum eins og
klórsamböndum, kísil, brenni-
steini og saltsamböndum.
Það bragðast oft eins og lítið
eitt þynntur sjór. Heimilistæki
skemmast vegna þessa,- og
vatnið stingur einnig í augu
vegna þess hve brúnt það er.
Fólk er farið að bera vatn á milli
húsa í vatnsnauðinni.
Lítil von er um að úr rætist á
næstunni. Borholurnar eru að
tæmast og ekki eftir meira vatni
að bora hér í þorpinu. Mennfrá
Orkustofnun komu hingað sl.
sumar og rannsökuðu vatnsból
í næsta nágrenni Raufarhafnar.
Leist þeim best á lindir nálægt
Ormarsá en þaðan þarf að leiða
vatnið um 8 km. leið. Áætlaður
kostnaður við lagningu vatns-
leiðslu þaðan er um 100 milj.
Líney
Fundarhöld 30. mars
Samtök herstöðvaandstæðinga
héldu fund sl. laugardag í Lár-
usarhúsi á Akureyri. Ásmundur
Ásmundsson formaður mið-
nefnar samtakanna skýrði frá
verkefnum herstöðvaandstæð-
inga upp á síðkastið.
Þá sagði Ásmundur frá 30.
mars undirbúningi í Reykjavík.
í tilefni þrjátíu ára aðildar ís-
lands að hernaðarbandalaginu
NATO verða herstöðvaand-
stæðingar með víðtækar að-
gerðir, menningarlegar og
pólitískar fyrir og eftir 30. mars
nk. Þar má nefna myndlistar-
sýningar, ljósmyndasýningu,
kvikmyndarsýningar, tónlistar-
hátíð og þannig mætti lengi telja.
Herstöðvaandstæðingar á Akur
eyri, sem hafa verið í nokkurri
einangrun vilja nú margeflast
með víðtæku starfi á næstunni.
Til að byrja með verður starfið
einskorðað við undirbúning að
fundarhaldi með menningar-
legu ívafi 30. mars. Starfshópar
munu starfa um einstaka dag-
skrárlið 30. marsfundarins. Nk.
sunnudag verður haldinn fund-
ur um undirbúninginn og skip-
að í starfshópana svo sem um
leiklist, tónlist o. fl. Fundurinn
verður eins og áður sagði nk.
sunnudag kl. 14.30 í litla saln-
um á Hótel KEA.
HERINN BURT
Grein Glúms er um alda-
mótapólitíkina.
Bls. 3
Kennarar úr Hafnarfirði
vara við keldum í skóla-
kerfinu, bls. 2
* Fróði hinn rauði landnáms-
maður óskalandsins heldur
innreið sína á síðu 2