Norðurland - 22.02.1979, Síða 3
Glúmur Hólmgeirsson Vallakoti skrifar:
1 tilefni 75 ára afmælis
Glúmur Hólmgeirsson.
Það komst í barnshuga minn,
að árin upp úr síðustu aldamót-
um hefðu verið ár vakningar og
framfara. Þá skiftust menn í
flokka eftir afstöðunni til Dana-
veldis. Tveirflokkar voru þávið
lýði; Valtýingar og Heima-
stjórnarmenn. Nafngiftirnar
áttu rætur aftur fyrir aldamót.
Þá átti sæti á alþingi, sem
aðeins kom saman annað hvert
ár, Valtýr Guðmundsson kenn-
ari við Háskólann í Kaup-
mannahöfn og búsettur þar.
Hann hafði lagt fram á alþingi
1897, frumvarp til breytingar á
stjórnarskrá Islands. Þar var
gert ráð fyrir að sérstakur ráð-
gjafi yrði skipaður fyrir ísland.
Ætti hann að skilja íslensku,
þótt ekki væri gert að skilyrði
að hann væri íslenskur, hann
ætti að mæta á alþingi, en sitja í
ríkisráði Dana og vera búsettur
í Danmörku.
Á alþingi myndaðist hörð
andstaða gegn þessu frumvarpi.
Þar munu hafa verið fremstir í
andstöðuflokki gamla kempan
Benedikt eldri Sveinsson og
Hannes Hafstein. Vildu þeir að
ráðgjafinn væri íslenskur og bú-
settur í landinu og bæri ábyrgð
fyrir alþingi. Því voru þeir
nefndir heimastjórnarmenn, en
þeir er fylgdu Valtý fengu nafn
af honum. Á þessu þingi féll
frumv. Valtýs með talsverðum
mun. Á alþingi 1899 leggur
Valtýr svo aftur fram frumvarp
- I skíðaferðir fer ekki þriðj-
ungur nemenda. Afgang-
urinn lætur þó ekki sjá sig
í tímum á meðan.
Á kennarastofunni er áhug-
inn svipaður. Samstaða meðal
kennara næst frekast þegar þeir
þurfa að hóta öllu illu til að fá
laun sín greidd löngu eftir
gjalddaga.
A llt á sömu torfunni
Norðlendingar! Þið njótið þess
kannski framyfir Hafnfirðinga
að sameiginlegum fjármunum
ykkar sé ráðstafað af fólki sem
hefur nokkurn skilning á félags-
legum þörfum og umbótum.
Því ættuð þið ef til vill að geta
komið á áfangakerfi í þeirri
mynd að kostir kerfisins blóm-
stri - ekki ókostir. Þar fyrir utan
er sú aðstaða sem Akureyringar
hafa góð, miklu betri en sú sem
Hafnfirðingar búa við. Á Akur-
eyri eru allir skólar sem að
áfangakerfinu munu falla á
sömu torfunni. Þar eru og
sundlaug og íþróttahús. Það
sem tryggja þarf er góð aðstaða
miðsvæðis á þessari torfu til
vinnu og hvíldar fyrir nemendur
og kennara. Gamli húsmæðra-
skólinn væri kjörinn til þessa.
Þar ætti að vera bókasafn allra
skólanna, vinnuaðstaða fyrir
nemendur og kennara, félags-
aðstaða nemenda, aðsetur náms
ráðgjafa og félagsráðgjafa auk
annarrar stjórnunar skólanna.
Svona aðsetur er líka nauð-
sitt óbreytt. Því er enn veitt
hörð andstaða, - en Heima-
stjórnarmenn urðu fyrir því
áfalli að harðasti baráttumaður
þeirra Benedikt Sveinsson and-
aðist meðan alþingi var að
störfum. Þá mun Hannes Haf-
stein hafa orðið forystumaður
flokksins. Lauk svo þessu þingi,
að frumvarpið féll meðjöfnum
atkvæðum.
Þá er komið fram yfir alda-
mót og ég farinn að fylgjast
nokkuð með gangi mála. Finnst
mér að þá hafi verið barist all
hart, - og síst deigar en nú ger-
ist. Nú líður að alþingi 1901.
Hvað gerist þá, - nær Valtýrað
fá frumvarp sitt samþykkt? Já,
það varð. Frumvarpið varsam-
þykkt á þinginu 1901, - og tók
nú að loga í kolunum. Heima-
stjórnarmenn undu illa sínum
hlut og gripu nú til þess ráðs, að
senda mann á konungsfund og
freista þess hvort ekki væri hægt
að fá betri boð í sjálfstæðismál-
inu en væri fólgið i frumvarpi
Valtýs. Nú væri komin frjáls-
lyndari stjórn í valdastólana í
Danmörku.
Valtýr hafði haldið því fram,
að hægt væri að fá því fram-
gengt, sem í hans frumvarpi
væri og ekki meira. Því væri
skynsamlegra, að taka því,
heldur en halda áfram deilu,
sem engan árangur bæri. Sum-
ir miður góðgjarnir höfðu á orði
að Valtýr væri að berjast fyrir
því að búa sér til embætti við
hirð Dana. Það var Hannes
Hafstein sem hafði verið sendur
á konungsfund af Heimastjórn-
armönnum. Lítið heyrðist um
árangur af þeirri för, svo beðið
var í ofvæni. Snemma árs 1902
kom boðskapur'konungs: hann
rýfur þing og fyrirskipar kosn-
ingar til alþingis snemma í júní.
Síðan skyldi hið nýkjörna þing
koma saman 26. júní. Þar yrði
Framhald af bls. 2.
synlegt til að vega upp á móti
sundrungunni sem skapast
meðal nemenda í áfangakerfi.
Ákveðnar einingar gætu líka
komið í stað. félagsheildarinnar
sem bekkirnir voru áður, t.d. í
tengslum við umsjónarkennara,
áhugasvið nemenda, markmið
o.fl. Mötuneyti væri örugglega
best að hafa áfram í heimavist
M.A. en það þyrfti að opna það
öllum nemendum skólanna.
Þá erum við nánast búin að
ljúka okkur af. Við tökum ekki
afstöðu til þess hvort þið hafið
skólann einn eða fleiri. Náið
samstarf á að gefa sömu raun og
sameining. Hins vegar viljum
við biðja ykkur um að leggja frá
upphafi jafna áherslu á hinn fé-
lagslega þátt skólastarfsins og
hinn námslega. Okkar mistök
voru fyrst og fremst fólgin í því
að við fórum af stað með
kennslu og nám án þess að fé-
lagsleg aðstaða væri fyrir hendi.
Og lagfæringar reynast okkur
torsóttar. En meðan við reynum
að krafsa okkur upp úr keld-
unni, treystum vi ð ykkur til að
taka krókinn!
Bergljót Soffía Kristjánsdóttir.
Hallgrímur Hróðmarsson.
Jóhann Guðjónsson.
NORÐURLAND þakkar
þeim Göflurum skrifin og tekur
undir hvatningu þeirra um
nauðsyn þess að félagslegi þátt-
urinn njóti forgangs.
lagt fram stjórnarfrumvarp um
breytingu á stjórnarskránni,
sem uppfyllti óskir íslendinga
um ráðgjafa íslenskan búsettan
í Reykjavík og bæri hann
ábyrgð á gerðum sínum fyrir
alþingi.
Risu Valtýingar öndverðir
gegn þessu frumvarpi og fundu
því sérstaklega til foráttu, að
ráðgjafi ætti að leggja fram lög
fyrir konung í ríkisráði Dana.
Þetta var reyndar sama ákvæði
og var í frumvarpi Valtýs. Hófst
nú hin harðvítugasta kosninga-
barátta, sem endaði með því að
Heimastjórnarflokkurinn fékk
17 þingmenn en Valtýingar 10.
Utanflokka voru 3. Þau tíðindi
gerðust í kosningunum sem fá-
tíð munu teljast að foringjar
beggja flokkanna féllu. Hannes
Hafstein í ísafjarðarsýslu fyrir
Valtýr Guðmundsson.
sr. Sigurði Stefánssyni og Val-
týr í Vestmannaeyjum fyrir Jóni
bæjarfógeta Magnússyni. Áttu
þeir báðir langa þingsetu fyrir
höndum.
Til gamans má geta þess, að í
orrahríðinni þetta ár komu út
alþingisrímur Valdimars Ás-
mundssonar um þingin 1899 og
1901. Þar er skýrt frá störfum
þeirra á gamansaman hátt og
svo hnyttinn, að almenna kát-
ínu vakti. Má þó vera að þar
hafi verið hnýflar, sem sviðið
hafi undan.
Að afloknum kosningum
fjallaði alþingi um stjórnar-
skrárbreytingarnar en lauk þó
eigi afgreiðslu. Að venjulegum
þingstörfum loknum var þing
rofið og ákveðið að efna til
kosninga næsta ár, og það kall-
að saman til að taka loka-
ákvörðun um stjórnarskrár-
málið.
Við þessar kosningar 1903
komu fram tveir flokkar:
Heimastjórnarflokkur og Fram
sóknarflokkur, - en þar voru
gömlu Valtýingarnir skipulagð-
ir. Ætla ég það vera í eina
skiptið sem þeir komu fram
með því nafni. í kosningunum
hlaut Heimastjórnarflokkurinn
14 þingmenn, Framsóknar-
flokkurinn 13 og þrírvoru utan-
flokka.
Á hinu nýkjörna alþingi var
stjórnarskrárbreytingin svo
endanlega samþykkt þrátt fyrir
ákvæðið: „í ríkisráði Dana“,
sem á þessu þingi og lengi síðan
var heitt deilumál flokka hér á
landi. Ég hygg þó að þetta
ákvæði hafi ekki orðið okkurtil
baga í reynd.
I sambandi við þessa stjórn-
arskrárbreytingu var ákveðið,
að nýja stjórnskipunin takigildi
1. febrúar 1904. Þá átti fyrsti
íslenski ráðgjafinn að taka til
starfa og vera búið að koma á
laggirnar vísi að stjórnarráði í
Reykjavík.
Konungi bar að tilnefna ráð-
gjafann í samráði við ráðandi
flokk á alþingi, sem var Heima-
stjórnarflokkurinn. Val kon-
ungs á ráðherra bendir ein-
dregið til að svo hafi verið.
Þá var enginn sími kominn,
svo beðið var í ofvæni frétta um
hver hlyti sætið. Það var fyrst
25/11 1903, að konungsbréf
kemur með skipi, þarsem
Hannes Hafstein er skipaður
fyrsti íslenski ráðherrann með
aðsetur í Reykjavík. Mun Val-
týingum hafa sviðið það sárt.
Áreiðanlega mun þó hávaði
þjóðarinnar hafa heilshugar
fagnað þessari breytingu á
stjórnskipun landsins og talið
hana merkan áfanga í sjálf-
stæðisbaráttunni. Nú væri mik-
ilsverður þáttur í stjórnkerfinu
fluttur inn í landið, sem áður
hefði verið í höndum Dana og
við þar með orðnir sjálfstæðari í
eigin málum. Einnig fögnuðu
menn almennt vali ráðgjafans.
Þjóðin dáði Hannes Hafstein
sem eitt sitt dáðasta og besta
skáld.
Þó fannst mér gæta tómlætis
hjá Valtýingum með stjórnar-
skiptin, persónulegs metings við
val ráðherrans og sárinda að
hafa komið sínu frumvarpi í
höfn og ráðið ráðgjafavali.
Stjórnarandstaða þeirra virtist
mér bera mestan svip persónu-
legrar óvildar á Hannesi Haf-
stein. Voru þeir á móti flestum
málum sem hann bar fram.
Má þar til nefna tvö mál, sem
Hannes fór að vinna að þegar á
fyrsta starfsári sínu. Það voru
túngirðingalög, þarsem bænd-
um átti að vera tryggð lán til 42
ára til kaupa á girðingaefni og
gekkst stjórnin fyrir útvegun
efnis, - gaddavírs og staura, sem
þá voru svo til óþekkt hér á
landi. Á þeim tíma hefði ekki
verið hægt að gera neitt, sem
kom bændum betur. Þeir voru
búnir að standa í þúsund ára
baráttu við að verja túnskekla
sína. Enda tóku bændur þessum
lögum með fögnuði. En Valtý-
ingar börðust hatrammlega
gegn þeim og linntu ekki látum
fyrr en þeir gátu spillt þeim
nokkrum árum síðar.
Hitt var símamálið. Móti því
var reist svo glórulaust mold-
viðri æsinga og ofstækis að
einsdæmi er. Svo langt gengu
æsingarnar, að jafnvel bændur
á Suðurlandi og Suðaustur-
landi fleygðu um hásláttinn orf-
um sínum í slægjuna og fóru
hundruðum saman til Reykja-
víkur til að mótmæla því að sími
yrði lagður til þeirra og ann-
arra landsmanna. En þeir höfðu
ekki árangur sem erfiði. Sím-
inn kom, - og símalínan var
lögð frá Seyðisfirði til Reykja-
víkur 1906. En svo einsýnt
ofstæki var búið að vekja í mál-
inu að heilar sveitir þar sem
Valtýingar réðu og síminn var
lagður um, neituðu að taka við
símstöð. En þrátt fyrir þessa
einsýnu og óbilgjörnu stjórnar-
andstöðu fylgdu þó þessum
tímamótum meiri bjartsýni og
framfarir í landinu en áður
þekktust. Fór svo að sumir
vildu minnast þessa merka
áfanga í sjálfstæðisbaráttu okk-
ar. Því varð það siður Reykdæl-
inga um árabil að hafa skemmti
fund 1. feb. til að minnast þessa
atburðar.
Það var alltaf lítið um Valtý-
inga hér í héraði og líklega hafa
þeir litið heimastjórnarmenn
hornauga. Að minnsta kosti
sendu þeir eitt sinn þetta vísu-
korn:
Rennur yfir Reykjadal
rauða frelsisþráin.
Heilög þegar halda skal
Heimastjórnar-jólin.
Hannes Hafstein.
Heimastjórnarmenn þökk-
uðu sendinguna þannig:
Raunir eru í Reykjadal
reynist lítt um skjólin.
Hafið er því harmatal
um Hafnarstjórnar-jólin.
Aðrir segja hana þannig:
Ríkir sorg í Reykjadal
reis ei frægðar sólin.
Hafið er nú harmatal
horfin Valtýs-jólin.
Með þessu lýkur rabbi um
hin merku tímamót, þegarfyrsti
íslenski ráðherrann varð bú-
settur í landinu. Er hér byggt á
þeim áhrifum, er ég varð fyrir
meðan á átökunum stóð, - og
sérstaklega þeim breytingum er
urðu á stöðu okkar gagnvart
Dönum. Ég ætla að það sé 1904
og 1944, sem þjóðin finnur
gleggst fyrir, að stærstu sporin
eru stigin í sjálfstæðisbarátt-
unni.
(Sett saman í jan. 1979 vegna
hugsanlegra Heimastjórnar-
jóla, sem koma þó ekki.)
Glúmur Hólmgeirsson.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ EINING:
AÐALFUNDUR
félagsins verður haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri
sunnudaginn 25. febrúar og hefst kl. 14.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða kjaramálin á
dagskrá, og mun hagfræðingur ASÍ mæta á fundinum.
Félagar eru vinsamlegast beðnir að sýna félagsskír-
teini við innganginn.
Stjórn Verkalýðsfélagsins Einingar.
Betri er krókur en...
NORÐURLAND - 3