Norðurland - 01.03.1979, Side 5
IÞRÓTTIR
Þór-UMFN í Skemmunni
Rótslitnir Þórsarar
LJUF SPENNA
Staðan í annarri deildinni verð-
ur æ óljósari með hverjum leik
sem fram fer. Á föstudagskvöld
ið áttust við KA-menn og KR-
ingar hér norðan fjalla. Þessa
leiks var beðið með mikilli
óþreyju enda langt um liðið frá
því að hann átti upphaflega að
fara fram.
KA menn komu ákveðnir til
leiks og auðséð var á öllu að þeir
ætluðu ekki að gefa sig fyrr en í
fulla hnefana. Það sem var sér-
staklega einkennandi í fyrri hálf
leik var slakur varnaleikur
beggja liða. Til marks um það
má nefna að eftir 10 mín. leik
var staðan 6-5 fyrir KA. Eins og
á þessum tölum sést var mikil
markasúpa í leiknum.
KA-menn höfðu ávallt frum-
kvæðið í fyrri hálfleik og áttu
þeir þá nokkrar ágætar sóknar-
lotur. Þegar blásið var til leik-
hlés höfðu KA-menn skorað 14
mörk en KR-ingar 12.
KR-ingar settu fljótlega
mann til höfuðs A.lla Gísla og
naut hann sín ekki sem skyldi í
leiknum. Þess í stað blómstraði
Jón Árni Rúnarsson og er þetta
eflaust besti leikur hans með
KA-liðinu til þessa. Sérstaklega
nutu KA-menn liðstyrks hans í
fyrri hluta seinni hálfleiks en á
fyrstu tíu mín. hálfleiksins skor-
aði hann 5 mörk.
Á síðustu 5 mín. leiksins leið
ljúfur spennuhríslingur um
áhorfendahópinn. Fram að því
hafði lýðurinn verið frekar sljór
en þá fyrst var sigur KA í ein-
hverri hættu. Þegar staðan var
25-23 fyrir KA áttu KR-ingar
tækifæri á að minnka muninn í
eitt mark en þá var dæmd töf á
liðið í sókninni. KA-menn þökk-
uðu fyrir sig me ð því að bæta
við 26. markinu en KR-ingar
svöruðu strax í sömu mynt.
Þegar ein og hálf mín. var eftir
varði Gauti markvörður KA
víti frá Símoni Unndórssyni og
var það geysilega afdrifaríkt.
Á síðustu mín. tókst KR-ing-
um að pota marki en engu að
síður stóðu KA-menn uppi sem
sigurverar í leiknum enda höfðu
þeir skorað fleiri mörk eða 26 en
KR 25. Bestu menn KA í þess-
um leik voru þeir Jón Árni og
Jóhann Einarsson sem hefði
m átt vera meira nýttur í leikn-
um.
Mörk KA: Jón 8 (2v), Þor-
leifur og Alfreð 5 hvor, Jóhann
4, Gunnar Gíslason 3 og Guð-
björn 1.
Flest mörk KR: Björn Péturs
son og Símon 8 hvor, Ólafur
Lárusson4, aðrir minna.
Hínn knái leikmaður Þórs,
Eiríkur Sigurðsson, Iék fyrir
skömmu sinn 100. mfl.leik í
körfuknattleik. Af því tilefni
var hann blómum prýddur fyrir
leikinn.
JUDO
Sunnudaginn 25 þessa mánaðar
kepptu fjórir akureyskir judo-
menn á móti höldnu í Reykja-
vík, glímdu þeir allir í drengja-
flokki.
Skipt var í tvo þungavigtar-
flokka. Léttari flokkinn vann
Bjarni Stefánsson IBA í öðru
sæti varð Broddi Magnússon.
Þyngri flokkinn vann Þorsteinn
Hjaltason og Kristján Friðriks-
son varð þriðji.
Þeir Bjarni og Þorsteinn
unnu allar sínar glímur á Ippon,
sem þýðir fullkominn sigur, 10
stig.
Síðari heimaleikur Þórs í Úr-
valsdeildinni gegn U.M. F.N.
var leikinn síðastliðinn laugar-
dag.
í fyrri leik liðanna var um
auðveldan sigur Njarðvikinga
að ræða og horfðu menn því
síður en svo björtum augum til
þessa leiks. Þó að u.þ.b. 250
ásjónur í Skemmunni beindu
allri hugarorku sinni í þágu
Þórsliðsins og vonuðu heitt og
innilega að hið ólíklega mundi
gerast kom allt fyrir ekki.
Liðin tvö inni á vellinum
höfðu ekki fyrr skorað sina
hvora körfuna en Njarðvíking-
ar ruddust með miklu offorsi
upp stigatöfluna. Ekki varlangt
liðið af leik er þeir höfðu náð 20
stiga forysu.
í þessu tilliti munaði mest um
varnartaktik sunnanmanna.
Um leið og þórsarar hófu leið
sína upp völlinn með knöttinn
pressuðu Njarðvíkingar svo
stíft „maður á mann“ að þórs-
arar virtust eiga ákaflega lítið
svar við þessari leikaðferð. Jafn
framt þessu hóf U.M.F.N.
mikla skothríð að körfu Þórs.
Einkum og sér í lagi skoruðu
þeir mörg stig úr hraðaupp-
hlaupum og hirtu nær öll frá-
köst sem um var að ræða.
Þrátt fyrir auman leik Þórs-
liðsins í heild stóð hin bjargfasta
eik Þórsliðsins þar sem Mark
Christiansen var upp úr hríslu-
kjarrinu. Hann hélt að vanda
uppi heiðri ogsóma Þórsliðsins.
En því miður voru Njarðvík-
ingar mun sterkari á svellinu og
aldrei var spurning um hvort
liðið færi með sigur af hólmi.
Ásamt Mark spratt Jón Indriða
öðru hvoru úr spori en Þórsarar
máttu sín lítils gegn ágætu liði
U.M.F.N. sem sigraði með 103
stigum gegn 83.
Stig Þórs gerðu: Mark 38,
Jón Indriða 16, Eiríkur 12, Karl
6, Hjörtur 6, Birgir , Sigurgeir,
Ómar og Alfreð Tulinius 2 stig
hver.
Flest stig U.M.F.N. gerðu
Ted Bee 21, Gunnar Þorvarðar-
son 14, Geir Þorsteinsson 13, og
Stefán Bjarkarson 10.
Holl hreyfing
X.
antar .
erbergi
i
Ungur menntaskóla-
kennari óskar eftir
herbergi sem næst
Menntaskólanum.
Uppl. í síma 24316.
Eins og öllum á að vera kunn-
ugt, gengust ýmsir aðilar, sem
starfa á sviði íþrótta og útivist-
ar fyrir svokölluðum útivistar-
degi þann 18. febrúar síðastlið-
inn. Þátttaka var víðast góð,
þrátt fyrir að veðurguðirnir
væru trimmurum ekki hliðholl-
ir.
Að sögn Hermanns Sig-
tryggssonar, íþróttafulltrúa,
þótti mjög vel til takast á fsa-
firði, Siglufirði, Ólafsfirði og
Dalvík. Austanlands var veður
slæmt og sömuleiðis á Reykja-
víkursvæðinu, svo þátttaka var
ekki sem skyldi. Hér á Akureyri
var þátttaka all sæmileg, þrátt
fyrir leiðinlegt veður. T.d. var
þó nokkuð um að menn væru
með í gönguferðum þeim sem
farnar voru um Kjarnaland og
n ágrenni.
í framhaldi af útivistardegin-
um verður reynt að halda á lofti
áróðri fyrir útivist og hollri
hreyfingu. Með hækkandi sól
og betri tíð er kjörið að tengja
saman gönguferðir og náttúru-
skoðun, en víða eru mjög góðar
aðstæður til slíks, eins og td. hér
á Akureyri. Því miður hefur
snjóleysi hrjáð skíðaunnendur
svo enn meiri ástæða er því til
að hyggja að annarskonar
trimmi.
1 því sambandi má
minnaáað nú feríhöndsátími
er ferðafélög og fleiri klúbbar
fara að hugsa sér til hreyfings og
ættu menn að huga að því.
NORÐURLAND mun gera
grein fyrir ferðaáætlunum
ferðafélaganna þegar þær ber-
ast.
Karlaleikur
Á eftir blaklandsleik íslensku
stúlknanna gegn færeyskum
stallsystrum fer fram landsleik-
ur karla sömu þjóða. Þeir eru
hinir vörpulegustu, - svo ekki er
útilokað að leikur þeirra verði
jafn spennandi og leikur stúlkn-
anna (sjá baksíðu). Karlaleikur-
inn hefst kl. 20.00.
Leikfélag
Akureyrar
Skugga-Sveinn
Sýning fimmtudag kl. 20.30
Sunnudag kl. 16.00.
Síðasta sinn.
Stalín er ekki hér
Sýning laugardag kl. 20.30
vegna fjölda áskorana.
Allra síðasta sýning.
Miðasala daglega frá 17-19
og sýningardagana frá 17-
20.30.
Aðgöngumiðasalap er opin
frá kl. 17.00.
Sími 2-40-73.
PISTILL
VIKUNNAR
Okkar þreytta
Þalía
Hrörnar þöll
sú er stendur þorpi á,
hlýr-at henni börkur né barr.
Svo er maður
sá er mangi ann.
Hvað skal hann lengi lifa?
Geysast nú skriffinnar miklir fram á ritvöllinn í blaðinu
mínu, vopnaðir stóryrðum í hvors annars garð. Tilefnið
er leikhúsið okkar. Vitaskuld er vert að ræða leikhús-
mál í þessum bæ, og það í fullri alvöru.
Hver er staða atvinnuleikhússins í bæjarfélaginu og
hver er staða leikaranna innan leikhússins? Er leikfé-
lagið stefnulaust og þar með atvinnuleikhúsið eða nær
stefnan aðeins til fárra?
Er ekki tímabærara að ræða þetta en það, hvort börn-
in okkar skuli fermast upp á Skugga-Svein eða hvort
leikarar og aðrir bæjarbúar standi gleiðir og hoknir í
hnjánum?
Viljum við þetta leikhús eins og það er og vilja að-
standendur þess það svona? Ég fyrir mitt leyti á bágt
með að trúa því, og verð að segja að oft hefur mér
gramist það sem gert hefur verið og fundist það eiga
lítt skylt við atvinnumennsku.
Verkefnaval hvers leikárs virðist til dæmis á skjön við
veruleikann. Okkur er líka sárasjaldan boðið uppá það
nýjasta í heimsleiklistinni bæði hvað leikrit og tækni
snertir. Það er ekki einu sinni verið að bjóða okkur
klassískar perlur. Ástæður fyrir þessu eru ýmsar, m.a.
þær hversu fáliðaður leikarahópurinn er og eins að úr
litlu er að spila.
Hefur þá atvinnuleikhúsið einhvern tilverurétt? Sér
bæjarfólagið fyrir þörfum þess. Því hver rekur leikhús
án peninga og áhorfenda, og hvaða leikhúsi dugar, að
fleygt sé í það einhverjum upphæðum, sem varla duga
til lágmarksrekstrar og áhorfendur, sem ekkert vilja
annað en Skugga-Svein?
Hvaða leikara líkar til lengdar að vinna við slík skil-
yrði, takast aldrei á við neitt nema misgóð kassastykki?
Hafa þeirengin áhrif eða var réttilega minnstá virðing-
una um daginn?
Ég heyrði eitt sinn mann halda því fram, að þarsem
svo margir væru svo óánægðir með leikhúsið okkar og
starfsemi þess, væri réttast að láta nýútskrifaðan bekk
úr Leiklistarskóianum hafa það til lengri eða skemmri
tíma. Og ég hreifst af hugmyndinni.
NORÐURLAND - 5