Norðurland - 01.03.1979, Síða 6
NORÐURLAND
Fimmtudagur 1. mars 1979.
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
I' NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Síminn er 2-18-75 -
AUGLÝSIÐ.I
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75
Tónlistarfólkið, sem er frá
Noregi eins og áður hefur verið
gefið í skyn, hefur verið búsett á
Akureyri um nokkurt skeið
seljandi vinnuafl sitt á hinum
ýmsu stöðum. Þar sem þau búa
sex saman í Áshlíðinni, má
heyra ómþýða tónlist út um
glugga er þau tóna sér til yndis á
aftni hverjum. Þau munu einnig
fara nokkrum orðum um list-
kryddað brauðstrit sitt og heim-
ilislíf hér í bæ.
Á boðstólum verða sem
endranær lútsterkt kaffi og vel
útlítandi kökur. Þess má geta að
nýtt forkunnarfagurt bolla-
stell með austrænum boga-
línum eins og Kremlarmúr í
morgunroða og blómaskrúða
Bjarmalands, verður brúkað í
fyrsta sinn á sunnudaginn. Allir
sem vettlingi geta valdið og
hjarta slær í vinstri síðu, ættu að , Sprungin jörð frá Krummaskarði í Námafjalli er afleiðing kvikuhlaupa í suður frá Leirhnjúk.
SOLARKAFFI
Aðalfundur Vestfirðingafélags-
ins á Akureyri var haldinn að
Hótel Varðborg sunnudaginn
18. febrúar sl. A fundinum var
ákveðið að efna til Sólarkaffis,
sem um mörg undanfarin ár
hefur verið árviss viðburður
meðal Vestfirðinga hér í bæ,
enda þótt það félli niður í fyrra.
Sólarkaffi verður nú með
seinna móti eða laugardaginn 3.
mars í Alþýðuhúsinu og hefst
skemmtunin kl. 20.30. Húsið
verður opnað kl. 20 og miðar
seldir við innganginn.
Arnfinnur Arnfinnsson,
hótelstjóri, sem verið hefur
formaður félagsins undanfarin
ár baðst undan endurkjöri. í
stjórn voru kjörin: Sigrún Hall-
dórsdóttir, formaður, Gyða
Zamla
rokk - djass
Nk. laugardag 3. mars mun
sænska hljómsveitin Zamla
heimsækja Akureyri og leika
fyrir bæjarbúa. Hljómleikarn-
ir verða haldnir í Sjálfstæðis-
húsinu kl. 3 áðurnefndan dag.
Hljómsveitin leikur svokall-
aðan rokk-djass og hefur getið
sér gott orð á Norðurlöndum
undanfarið. Hljómsveitina
skipa fjórir valinkunnir tón-
listarlistamenn og leika þeir
á hin fjölbreytilegustu hljóð-
færi. Er vonandi að þetta lífgi
upp á flutning lifandi tónlistar
hér í bæ. Hljómsveitin kemur
hingað fyrir atbeina Tónlistar-
félags Menntaskólans á Akur-
eyri.
Guðmundsdóttir, Bárður Hall-
dórsson, Guðfinnur Magnús-
son og Hjörleifur Hafliðason,
og í varastjórn Ólafía Halldórs-
dóttir, Fríða Sæmundsdóttir og
Ása Helgadóttir.
Stjórnin.
Frumherji
Esperanto
hreyfing-
arinnar
á íslandi
látinn
Sl. miðvikudag þ. 21. feb.
andaðist Þorsteinn Þorsteins-
son fyrrverandi hagstofustjóri á
99. aldursári.
Hann fæddist að Brú í
Biskupstungum þann 5. apríl
1880, lauk hagfræðiprófi frá
Háskólanum í Kaupmanna-
höfn vorið 1908 og réðist þá
þegar til starfa hjá íslenskum
stjórnv öldum.
Hann samdi og gaf út hina
fyrstu íslensku kennslubók í
Esperanto árið 1909 aðeins 22
árum eftir að Zamenhof gaf ut
fyrstu bókina um það tungu-
mál. Hann var alla tíð áhuga-
samur baráttumaður í Esper-
antohreyfingunni á íslandi og
hafði nú alllengi verið heiðurs-
félagi í samtökum íslenskra
Esperantista. Hann var heiðurs-
gestur á 62. Heimsþingi Esper-
antista, sem haldið var í Reykja-
vík fyrir hálfu öðru ári.
Tæki afhent til
Magashoðunar
Krabbameinsfélag Suður-þing-
eyinga afhenti sjúkrahúsinu ný-
lega að gjöf, mjög fullkomið
tæki til magaskoðunar, (Gas-
trointestinal Fiberskop), sem er
að verðmæti kr. 3.2 milljónir án
innflutningsgjalda og sölu-
skatts en fjármálaráðuneytið
gaf þessi gjöld eftir.
Krabbameinsfélagið stóð
fyrir söfnun innan héraðsins til
þessara kauj'a. Öll kvenfélögá
svæðinu styrktn Krabbameins-
félagið til kaupanna svo og
Lionsklúbbur Húsavíkur og
Sig. Lúther, Kiwanisklúbbur-
ihn Herðubreið og Skjálfandi,
Rotaryklúbbur Húsavíkur
Kaupfélag Þingeyinga og Bún-
aðarsamband S-Þingeyinga.
Krabbameinsfélag S-Þingey-
inga var stofnað að Breiðumýri
í Reykjadal 29. ágúst 1968.
Formaður félagsins frá upp-
hafi hefur verið Kolbrún Bjarna
dóttir, Yztafelli.
Sjúkrahúsið þakkar af alhug
þessa höfðinglegu gjöf. Krabba-
meinsfélag Suður- Þingeyinga
hefur á undanförnum árum fært
sjúkrahúsinu margar stórgjafir.
Meðfylgjandi mynd er tekin
við afhendingu gjafarinnar.
OPIÐ HUS
Góðir gestir í heimsókn
Nk. sunnudag 4. mars verður
hið stöðugt vinsælla „opna hús
að Eiðsvallagötu 18, Lárusar-
húsi“. Þar gerist það stór-
tíðinda, að Norska blokkilautu-
sveitin Ieikur danslög og önnur
Ijúflingslög frá endurreisnar-
tímanum.
koma á opið hús, - börnin
hlakka líka til að komast á
allaball í Lárusarhúsi á sunnu-
daginn kl. 3.
Ves tfirð ingafélagið
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Málfundafélag ABA
heldur fund fimmtudaginn 1. mars kl. 20.30.
UMRÆÐUEFNI: Karlaklúbbar o.fi.
Guðjón E. Jónsson er framsögumaður um karlaklúbbana.
Enn geta félagar bæst í hópinn.
Undirbúningsnefnd Verkalýðsmálaráðs ABA
heldur sinn fýrsta fund fimmtudaginm 1. mars kl. 20.30.
Stjórnarfundur veröur mánud. 5. mars kl. 20.30.
- Og síöast en ekki síst minnum við á Opna húsið
á sunnudaginn (Sjá hér að ofanj.
Stjðrnin og nefndirnar.
LANDRIS
Enn er Krafla komin af stað.
Landris þar náði fyrir skömmu
sömu hæð og verið hafði fyrir
síðustu umbrot. Síðastliðna
þrjá daga hefur svo skipst á
landris og landsig og hafa það
verið meiri sveiflur en áður er
dæmi til. Eysteinn Tryggvason
jarðeðlisfræðingur sagði í við-
tali við NORÐURLAND í
morgun, að lítið hefði gerst í
nótt.
Þó hefur orðið áframhald-
andi hægfara landris, með
tilheyrandi gliðnun á sprungum
við Leirhnjúk. Engin skjálfta-
virkni hefur komið fram við
þessi umbrot. Þessar hræringar
þykja benda til einhverrar kviku-
hreyfingar, þar sem kvikan
leitar sér rúms í jarðskorpunni.
Ekki kvaðst Eysteinn geta séð
hvert kvikan leitaði og of
snemmt er að spá nokkru um
framvindu mála í nágrenni
hinnar birtu-og ylgæfu Kröflu-
virkjunar.
Verslunar-
barlómur
Ekkert lát er á barlómi
kaupmanna þessa dag-
ana. Telja þeir sig ekki
ríða feitum hrossum frá
viðskiptum sínum við ríkis-
stjórnina. Ekki verður
almenningur í landinu þó
var við minnkandi umsvif
mangara og höndlunar-
fólks. Enda man enginn
aðra tíð en nöldurs úr
þessari átt.
Hitt er lakara þegar
samvinnuhreyfingin tekur
undir sífursöng kaup-
manna eins og landsmenn
hafa mátt þola nú undan-
farið.KEÁ-Fregnir herma í
þessum líka harmatón frá
þvi að sameining Kjör-
markaðarins í Glerárgötu
og stórverslunar félagsins
að Hrísarlundi 5 standi
fyrir dyrum. Þrátt fyrir
nöldrið um „brostinn
rekstursgrundvöll“ smá-
söluverslunar, - þá fylgir
fyrirhugaðri sameiningu
„hagræðing og sparnaður
í rekstri, auk þess sem
verslunarkjör fólks á Eyja-
fjarðarsvæðinu myndu enn
batna þar sem aðfluttar
vörur í dagvörubúð Hrísa-
lundar 5 yrðu þá á kjör-
markaðsverði, en kjör-
markaðsverð KEA hefur
samkvæmt athugunum
reynst vera með því
hagstæðasta, sem þekkist í
landinu“. Hvernig vilja
menn hafa það öðruvísi??
Helgi
formaður
Bygginganefnd Akureyrar-
bæjar kaus á fundi sínum
fyrir skemmstu, HelgaGuð
mundsson sósíalista, for-
mann bygginganefndar.
Landsleikur
kvenna
í blaki
Nk. föstudag verður háður
landsleikur í blaki í íþrótta-
skemmunni á Akureyri.
Landslið kvenna frá Fær-
eyjum og íslandi munu þar
eigast við kl. 6.
íslenska liðið er að
stærstum hluta skipað
stúlkum úr Völsungi á
Húsavík og ÍMA. Leikur
þessi var nýlega fastákveð-
inn og er þetta fyrsti
kvennalandsleikur íslend-
inga í blaki. Áhangendur
keppnisíþrótta eiga því
kost á sögulegum atburði á
föstudaginn.
í Þokkabót
Söngsveitin rauða Þokka-
bót kemur til Akureyrar og
heldur hljómleika í Möðru-
vallakjallara nk. miðviku-
dagskvöld kl. 20.00. Þokka
bót skipa þeir Ingólfur
Steinsson, Halldór Gunn-
arsson og Lárus Grímsson.
Tónlistarfélag Menntaskól
ans stendur fyrir hingað-
komu þeirra félaga. Hljóm-
leikarnir eru öllum opnir.