Norðurland - 08.03.1979, Side 1
NORÐURIAND
4. árgangur Fimmtudagur 8. mars 1979 8. tölublað
Misklíð og gagnrýni
A Einingarfundi
Aðalfundur verkalýðsfélagsins Einingar var haldinn sl. sunnudag.
Um sjötíu manns sóttu fundinn, sem segir sína sögu um ástandið í
verkalýðshreyfingunni. Félagar í Einingu eru nú 2840 talsins.
Samkv. upplýsingum Jóns Helgasonar var ætlunin að fá rútu til
fólksflutninga frá þorpunum í kring, þar sem deildir Einingar
starfa, - en vegna áhugaleysis og ófærðar um Ólafsíjarðarmúla,
varð ekki af því. Ályktun um stjórnina var samþykkt á fundinum.
Annars gerðist þar markverðast að gagnrýni var töluverð á stjórn-
ina og mikið málþóf um aðild Sævars Frímannssonar starfsmanns
Einingar að félaginu. Þorsteinn Jónatansson lagði til að honum
væri ekki heimiluð innganga í verkalýðsfélagið. Lauk sennunni
með því að Þorsteinn sagði sig úr félaginu, en hann hefur verið þar
forystumaður um árabil. Jón Helgason stóð í orðastappi við Þor-
stein vegna þessa máls.
Blaðið hafði samband við
málsaðila á þriðjudaginn og
spurði fyrst Þorstein Jónatans-
son fregna. Þorsteinn kannaðist
ekki við það að hefðu verið átök
á fundinum. Sagði aðeins hafa
verið smávegis gagnrýni, og
spurningar og svör. Sagðist
hann ekkert vilja tjá sig frekar
um mál þetta.
NORÐURLAND spurði Jón
Helgason fyrst um kaup
stjórnar Einingar á orlofhúsi
vestur á Barðaströnd. Jón
Þorsteinn Jónatansson.
sagði, „að þau kaup hefðu
komið fram í skýrslu stjórnar
eins og annað sem hún hefði
gert á árinu. Stjórnin ákvað
aupin til viðbótar því sem gert
ar í Fnjóskadalnum, þar voru
tekin tvö hús í notkun á árinu og
fullgerð. Síðan tókum við
ákvörðun um það rétt fyrir
áramótin, að taka það hús sem
var óselt á Barðaströndinni, án
þess náttúrulega að leggja það
fyrir félagsfund. Við höfum nú
áður gert það, þegar að einróma
samþykktir liggja fyrir og það
var áður búið að ræða það að
komast inn í þá mynd , svoleiðis
að stjórnin tók það á sig, og
komu engin andmæli út á það.
Nema menn voru að reyna að
segja um það, að svona stórar
ákvarðanir ætti að leggja fyrir
félagsfund. Það er alveg rétt en
þarna var verið að berjast um
þetta hús, - og það var kannski
vegna þess að við höfðum
fjármagn til þess að láta í það,
að við hrepptum það með því að
taka ákvörðun þarna strax. Og
ég vildi ekki verða til þess að við
Framhald á bls. 4.
a KópaskeH jnfofr bjartsýni
Kópasker 6/3. Rækjuveiðar
gengu vel fyrri hluta síðustu
viku, en þá voru Húsavíkur-
bátar ekki með á veiðum. Það
virðist koma í ljós, að of margir
bátar eru að veiðum á þessum
miðum. Það munu vera tíu bát-
ar frá Húsavík og 6 frá Kópa-
skeri sem stunda þessar veiðar,
- en aflinn skiptist jafnt á milli
staðanna. Kemur því minna í
hlut hvers Húsavíkurbáts.
Rækjuveiðasjómenn munu vera
óánægðir með hve lítið þeir
mega veiða.
Um tíu hús munu hafa verið í
smíðum sl. ár á Kópaskeri. Ný-
verið var flutt í fyrsta húsið og
fleiri munu fylgja fljótlega í
kjölfarið. Atvinnuástand er
nokkuð gott. Fólk flyst hingað í
þó nokkrum mæli til dæmis af
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Það
er töluverð eftirspurn eftir hús-
næði, þrátt fyrir allar nýbygg-
ingarnar. Ogmannfólkið virðist
ekkert hræðast sprungusvæðið
hérna. Jarðfræðingar eru að spá
umbrotum núna, en ekki er
alveg laust við að fólk hér kími
svolítið að þeim, - það virðist
nú ekki fara eftir öllu sem þeir
spá blessaðir. Svo slíkt er nú
frekar til að létta skapið í fólki
frekar heldur en hitt.
Tíð hefur annars verið risjótt
í vetur og slæmar gæftir fram
eftir öllum vetri. Þó hafa komið
góðir dagar, og þá ganga rækju-
veiðar ágætlega, nema þegar
allir bátarnir eru að veiðum eins
og áður er sagt. Óhætt er að
segja að hér séu menn annars
bjartsýnir. Ragnar/óg
Dalvíkurhöfn
í Norðurlandi hefur áður verið
sagt frá slæmu ástandi Daivík-
urhafnar og tillögum hafnar-
nefndar Dalvíkur til Vita- og
Hafnarmálaskrifstofunnar um
niðurröðun framkvæmda við
höfnina.
Þar var lögð áhersla á að
byrjað skyldi á að setja niður
stálþil á norðurgarðinn ásamt
steyptri þekju og dýpkun. Því
næst skyldi byggja smábáta-
höfn. Starfsmenn Vita- og
Hafnarmálaskrst., sem í haust
unnu að módelrannsóknum á
Dalvíkurhöfn töldu ráðlegra að
byrja á smábátahöfninni og
lögðu til við fjárveitinganefnd
Alþingis að veitt yrði fé til þess.
Heimamenn ákváðu að andæfa
því eigi frekar svo íjárveiting til
hafnarframkvæmda drægist
ekki lengur en orðið er.
Á fjárlögum fyrir 1979 ætlar
ríkið 30.5 milljónir til smá-
bátahafnarinnar, sem auðvitað
er hvergi nærri nóg, en hálfnað
er verk þá hafið er. Brynja.
BLÁSARAR
Islenski Blásarakvintettinn leik-
ur í Akureyrarkirkju n.k. laug-
ardag 10. mars kl. 17. Blásara-
kvintettinn er skipaður kunnum
hljóðfæraleikurum, þeim:
Manúelu Wiesler á flautu,
Kristjáni Stephensen á óbó,
Sigurði I. Snorrasyni á klar-
inett, Stefáni Stephensen á horn
og Hafsteini Guðmundssyni á
fagott.
Blásarakvintettinn var stofn-
aður sumarið 1976, og hefur
haldið tónleika í Reykjavík og
víðar. Hann hefur flutt alla
kvintetta sem til eru eftir íslensk
tónskáld. Blásarakvintettinn
tekur þátt í þekktri alþjóðlegri
tónlistarkeppni í Colmar í
Frakklandi eftir mánuð, einnig
er fyrirhuguð hljómplötuútgáfa
á næstunni. Efnisskráin er mjög
fjölbreytt, og á henni eru verk
eftir Ibert, Carl Nielsen, Ross-
ini, Leif Þórarinsson og Villa
Lobos. Kvintettinn leikur á
föstudagskvöldið fyrir Tónlist-
arfélag og Tónlistarskólann á
Sauðárkróki, en tónleikarnir á
Akureyri eru 4. tónleikar Tón-
listarfélags Akureyrar á þessum
vetri. Aðgöngumiðasala á Ak-
ureyri fer fram í Bókabúðinni
Huld, og við innganginn 1 klst.
fyrir tónleikæ
Bátakaup í bið
Húsavík 6/3. í janúar voru
skráðir atvinnuleysisdagar hér
1663 og greiddar atvinnuleysis-
bætur á félagssvæði Verkalýðs-
félags Húsavíkur voru 8 milj.
165 þús. Flestir atvinnuleysis-
daganna koma til af því að 9
vinnudagar féllu niður hjá Fisk-
iðjusamlaginu og Rækjuvinnsl-
unni.
Um þessar mundir er nóg
vinna í Fiskiðjuverinu. Ísíðustu
viku var landað 50 tonnum úr
Júlíusi Hafstein og 150 tonn-
um úr Sólbak. Auk þess er báta-
aflinn heldur að glæðast. Þeir
eru allir nema einn komnir á
net. Höfði hefur því sett fyrjr-
huguð bátakaup sín í bið, -
meðan verið er að athuga fram-
vinduna um hríð. Verkalýðsfé-
lagið sendi frá sér ályktun um
atvinnumál til bæjarstjórnar á
aðalfundi sínum, sem haldinn
var nú nýverið. Bæjarstjórn og
atvinnumálanefnd eru nú að at-
huga möguleika á nýstofnun
atvinnugreina hér á staðnum, -
þá fyrst og fremst með tilliti til
íúllnýtingar sjávarafla. Bæjar-
ráð er að vinna að breytingar-
tillögum á fjárhagsáætlun fyrir
1979 fyrir aðra umræðu og af-
greiðslu, sem trúlega verður
annan fimmtudag. ^
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Undirbúningsnefnd verkalýðsmálaráðs
heldur annan fund sinn föstudaginn 9. mars kl. 20.30.
Stjörnarfundur ABA
mánudaginn 12. mars kl. 20.00.
Bæjarmálaráðsfundur
mánudaginn 12. mars ki. 20.30.
Fjallað verður um dagskrá bæjarstjórnarfundar 13. mars o.fl.
Ath. að allir félagar ABA eiga rétt á setu í ráðinu.
Fulltrúar í nefndum eru sérstaklega hvattir til að koma á fundinn.
Allir fundirnir eru í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18.
ASKRIFENDUR
Nú er að Ijúka útsendingu gíró-
seðla til innheimtu á vangoldn-
um áskriftargjöldum NORÐ-
URLANDS fyrir síðasta ár.
Það er engum ofsögum sagt af
bágum hag blaðsins um þessar
mundir. Og því er hér með
heitið á hvern þann er slíka
skuldheimtu hefur fengið heim,
að senda blaðinu um hæl þær
krónur sem um er beðið. Við
álítum að flest ykkar muni Iítið
um það tveggja eða þriggja
klukkustunda kaup sem um er
beðið fyrir blaðið í hálft ár.
Hins vegar munar blaðið mikið
um hvert og eitt framlag
Blaðið mun áfram berjast í
bökkum, en það mun lifa. Líkt
og það er takmörkuð tillitssemi
hjá okkur sem að rekstri þess
stöndum að standa illa ískilum,
er það líka takmörkuð tillits-
semi hjá allmörgum áskrifend-
um að draga blaðið á áskriftar-
gjaldinu. En hér leiðir eitt af
öðru. Stöðugar Ijárhagsáhyggj-
ur leggjast þungt á blað - það
lætur fljótt á sjá ef ekki er hægt
að hafa efni á neinu. Því hvetj-
um við ykkur enn á ný til að
gera skil bæði fljótt og vel.
Útgáfustjórn.
Akureyrarlúsinni er gerð
vísindaleg og þjóðleg skil á
bls. 2
^ Stórvirkjunarkálfur mogga
til umfjöllunar í pistli - Sjá
bls. 5
$£ Mystik og málaralist Úlfs
Ragnarssonar er reifuð á
baksíðu
---------- ^