Norðurland - 08.03.1979, Blaðsíða 2
NORÐURLAND
I Málgagn sósíalista í Norðurlandskjördæmi eystra
Ritnefnd: Erlingur Siguröarson, Páll Hlöövesson, Katrin Jónsdóttlr
Guörún Aöalsteinsdóttir og Kristin Á. Ólafsdóttir.
Ritstjóri: Óskar Guömundsson (ábm.).
Dreifina og auglýsingar: Tryggvi Jakobsson.
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Eiösvallagata 18, sími 21875.
Póstfang: Box 492, 602 Akureyri.
Offsetprentun: Prentsmiöja Björns Jónssonar.
Gefið út af kjördæmisráði Alþýðubandalagsins.
Batnar
þeim
aldrei?
Þá er hún liðin sú tíð að kratarnir séu einir í stjórnarand-
stöðu. Nú er íhaldið að staulast upp að hlið þeirra, að vísu
fatlað bæði andlega og líkamlega eftir hjaðningavíg innan
flokksins, og hefur ekki enn sleikt allan sviða úr sárum kosn-
ingaósigursins á liðnu sumri. En loksins höfðu þeir sig þó til
þess greyin að sameinast um það út á við að flytja endemis-
tillögu um þingrof og nýjar kosningar. Þar gripu þeir bolta
kratanna á lofti, en leiðin í borg mun verða þeim síst auð-
farnari en hún reyndist í fyrrasumar. Það er hætt við að ein-
hverjir þeirra verði skotnir úr leik með þeim sama bolta og
þeir nú halda á, ef þeir áræða að sleppa honum.
Annars þarf ekki að hafa áhyggjur af sýndarmennsku-
upphlaupum af þessu tagi eða því sem birtist í hinni vitlaus-
ustu tillögu af öllum vitlausum sem Bragi Sigurjónsson flutti
til breytingar á þingrofstillögu íhaldsins. Hún sannar það eitt
að elliglöp Braga eru farin að ganga sömu braut og sýndar-
mennska þeirra Aragötufeðga.
En það er ekki furða þótt ýmis ókyrrð rísi eftir að hin
furðulegu frumvarpsdrög Ólafs Jóhannessonar komu fram.
Nú hafa þau helst áorkað því að sameina íhaldið í sýndar-
mennskunni út á við, auk þess sem Vilmundur hefur átt hálfs-
mánaðar hveitibrauðsdaga með forsætisráðherra. En hvað
olli því að pólitískur refur á borð við Ólaf Jóhannesson lagði
slíkt frumvarp fram í upphafi? Skaust honum þar svo
alvarlega sem raun hefur borið vitni þegar hann nú er búinn
að gjörbreyta sínum upphaflegu tillögum? Vissi hann
kannski tæpast hvað í þessu uppsópi embættismannagreina
stóð þegar hann gaf þeim frumvarpsnafn? Eða svo litjð sé á
niálin með hliðsjón af pókerandliti Ólafs Jóhannessonar:
Vissi hann kannski allt frá upphafi að hann var að leiða
kratana enn eina hringferðina - og sjálfan sig og sinn flokk að
vísu með. Sé sú raunin sannar það enn einu sinni pólitískt
stefnuleysi framsóknar. Þeirra spilamennska byggist öll á
því, hvað þeir halda að andstæðingarnir séu með á hendi. En
jafnvel bestu spilamönnum geta orðið á mistök.
Alþýðubandalagið og verkalýðshreyfingin sem er guð-
faðir þessarar ríkisstjórnar hafa unnið þessa fyrstu lotu og
kveðið niður drauginn sem gekk Ijósum logum í frumvarpi
forsætisráðherra. Þá er að spyrja hve langt muni þess að
bíða að hann verði uppvakinn á ný af hávaðaliði kratanna.
Það er sama hve oft því liði er kennd sín lexía, aldrei skilur
það hana - alltaf rís það upp á ný áður en það hefur rankað
við sér eftir eigin klámhögg.
Þeir sem enn halda í þær fölsku hugmyndir sem stundum er
hampað innan raða íslenskra sósíalista, að flokkur þeirra eigi
eitthvað sameiginlegt með krötum - flokkarnir séu
„bræðraflokkar alþýðunnar“ í þessu landi - ættu að vera
farnir að skilja að þeir eiga ekkert sameiginlegt nema fyrri
hluta nafnsins - þann sem kenndur er við alþýðuna. Því betur
er ekki svo hörmulega komið enn fyrir Alþýðubandalaginu
að það standi nærri krötum í allri þeirra vitleysu og fjand-
skap við þá alþýðu þessa lands sem þeir kenna sig svo fagur-
lega við. Hafi einhver sósíalisti hingað til efast hlýtur nú að
vera komin sú skíma á sálargluggann hjá honum að hann
skynji að kratarnir hvar sem þeir sýna sig eru kaþólskari en
páfinn - afturhaldssamari en íhaldið.
Það er dapurlegt hlutskipti að þurfa að brúka þvílíkt liðtil
fylgilags sér til að freista þess að fá komið fram hagsbótum
íslensks alþýðufólks og þreytandi fyrir þá sem í því standa.
En „batnar honum aldrei?“ spurði barnið forðum er það leit
reifabarnið í bleyju sinni. Svipað má álykta um þann
Alþýðuflokk sem við höfum kynni af. Hve lengi og til hvers
eiga menn að hafa þann djöful að draga? Flýtur á meðan ekki
sekkur og meðan kratarnir ekki missa lystina á að éta það
ofan í sig sem frá þeim hefur komið. En missi þeir lystina -
megi þeir þá hvíla í náðarfaðmi íhaldsins - og korríró.
Erl.
Héraðslœknir
Oddsson Lús á Akureyri
Nýlega hefur orðið vart við
höfuðlús á Akureyri. Vitneskja
um þetta barst siðastliðinn
mánudag til lækna á Lækna-
miðstöðinni og hjúkrunar-
kvenna tveggja skóla. Við
nánari leit fannst lús hjá um það
bil fimmtán einstaklingum,
börnum og fullorðnum.
Daginn eftir fór fram lúsaleit
í öllum barnaskólum bæjarins
og síðastliðinn föstudag í hluta
af Menntaskólanum. Engin lús
fannst við þessa leit. Virðist hún
þess vegna ekki hafa breiðst út.
Höfuðlúsin er 2-3 mm. langt
gráleitt skordýr. Hún heldursig
venjulega í hársverðinum og
festir egg sín, nitina, á höfuð-
hárin. Nitin, sem er egglaga,
situr föst við hár ef strokið er
eftir því með þumal og vísi-
fingri, en flasa dettur aftur á
móti af. Höfuðlús veldur kláða
og stundum koma sár á hnakka
ef viðkomandi hefur klórað sér
mikið.
Lúsin hefur frá ómuna tíð
lifað með þjóðinni. Síðustu
áratugi hefur lítið borið á henni.
Enda þótt lús hafi komið upp
nú þá er engin ástæða til að
örvænta. Með árvekni á að vera
hægt að uppræta hana.
Það þarf enginn að skammast
sín fyrir að fá lús. Með þeim
almenna þrifnaði sem nú er
ríkjandi á það ekkert skylt við
sóðaskap að fá á sig lús. Lúsin
getur borist hratt á milli fólks,
einkum á mannmörgum heim-
ilum og í skólum.
Rétt er að vera hreinskilinn
og láta nágranna eða bekkjar-
systkini vita ef lús hefur komið
upp á heimili. Þannig getur fólk
leitað að lús hvert hjá öðru og
fljótt komist að raun um hvort
hún hefur breiðst út. Meðslíkri
röggsemi eru mestar líkur á að
hægt verði að útrýma henni
fljótt og örugglega.
Meðferð: 1. möguleiki:
Þvoið hárið og þerrið á
venjulegan hátt. Gegnvætið
hárið í klófenótan spritti:
Kembið hárið með þéttum
kambi á meðan það er vott.
Þannig næst nitin best úr.
Þvoið sprittið ekki úr, heldur
látið það sitja í hárinu í 5-6
daga. Endurtakið þá sömu
meðferð.
2. möguleiki:
Gegnvætið hárið með volgu
vatni. Hellið 2 matskeiðum af
quellada hársápu í hárið og
látið freyða. Nuddið allan hár-
svörðinn vel að minnsta kosti í 4
mínútur. Skolið vandlega og
þerrið með handklæði. Kembið
hárið vandlega til þess að
fjarlægja nit. Endurtakið með-
ferðina eftir 5-6 daga.
Bæði efnin fást í lyfjabúðum
án lyfseðils. Geymið þau þar
sem börn ná ekki til.
Tilkynna ber heimilislækni
eða skólahjúkrunarkonu ef vart
verður lúsar. Héraðslæknir.
Að gefnu tilefni skal það
tekið fram, að lúsar hefur ekki
orðið vart í Sundlaug Akur-
eyrar.. Það er því beinlínis
rangt, að meina börnum að fara
í sund af þeim sökum.
Frjósöm kykvendi
Með fréttatilkynningu frá
héraðslækninum fylgdi Ijós-
rit úr læknabók ásamt mynd
af höfuðlús. Vegna rúmleysis
getum við ekki birt alla lús-
arumsögnina né fagurlega
dregna mynd af skepnunni,
en til fróðleiks (og gamans)
er hér glefsa úr frásögninni:
„Viðkoman er geysimikil.
Höfuðlúsin verpir þannig 50
eggjum á 6 dögum. Ungarnir
skríða úr eggjunum eftir 8
daga. Þeir verða kynþroska
á fáum dögum og eftir 2-3
vikur hafa þeir aftur eignast
afkvæmi. Talið er, að af-
komendur einnar lúsar geti á
4 vikum numið 170 þúsund-
um, þ.e. langt til álíka fjöldi
og allir íslendingar.“
„Saursœll maður er jafnan
auðsœll“.
Það fer vart hjá því, að
nokkur ótti hafi gripið um
sig hér á Akureyri vegna lús-
argangsins nú undanfarið.
Sú var tíð að lúsin þótti
mikill aufúsugestur á hverj-
um skrokki. f íslenskum
Þjóðháttum eftir Jónas Jón-
asson frá Hrafnagili segir
svo: „Flær og lýs voru al-
gengir gestir á flestum bæj-
um og virðist svo sem sumir
væru á því, að þær væru
heldur til hollustu og heilsu-
bótar, drægju illa vessa úr
líkainanum.“ f lækningum
sanikvæmt þjóðtrú segir frá
því hvernig gula var læknuð
á fjölmarga vísu. Algengasta
læknisráðið var að éta lif-
andi marflær, sem áttu að
skriða úr maganum í lifrina
og eta það spillta burt. „Þá
er og gott að sjóða seyði af
heimulnjóla og helluhnoðra,
láta 3,5 eða 7 lýs af sjúklingi í
seyðið og láta hann drekka
það.“ Meðal þeirra þjóðráða
sem Islendingar höfðu gegn
lús voru að leggja lúsalyng
undir rúmfötin í rúmiðelleg-
ar að bera á sér bein úr dauð-
um manni. NORÐUR-
LAND vonar að lesendur
séu nokkru fróðari um höf-
uðskepnuna, sem Akureyr-
ingar verjast hetjulega þessa
dagana. óg
NÝR SPARISJÓÐSSTJÓRI
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í blaðinu sagði Sveinn Jó-
hannsson upp starfi sínu sem
sparisjóðsstjóri við Sparisjóð
Svarfdæla sl. haust. Nýr maður
hefur verið ráðinn til starfsins,
Gunnar Hjartarson, en hann er
Akureyringur. Hefur hann ver-
ið útibússtjóri Búnaðarbankans
á Hellu síðan 1971, en áður
starfaði hann á skrifstofu KEA
á Akureyri og síðar við Búnað-
arbankann þar.
Sveinn Jóhannsson hefur
verið sparisjóðsstjóri í 20 ár, eða
frá 1959. Það ár nam heildar-
velta sjóðsins 10 milljónum og
varasjóður var kr. 215.000. Skv.
reikningum sjóðsins fyrir 1978
var heildarveltan 7.7 milljarðar
og varsjóður er nú tæpar 90
milljónir. Sparisjóðurinn er í
raun eign byggðarlagsins, og
segir svo í samþykkt hans:
„Leggist sparisjóðurinn niður,
skal varasjóður hans og aðrar
Starfsmenn Sparisjóðs Svarfdæla talið frá vinstri: Tryggvi Jónsson,
Sveinn Jóhannsson, Friðrik Friðriksson og Gunnar Hjartarson.
(Ljósm. Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson)
eignir verða eign Dalvíkur-
kaupstaðar og Svarfaðardals-
hrepps ..."
Sjóðnum hefur vaxið fiskur
um hrygg í traustum höndum
Sveins og er vonandi að svo
verði enn undir forystu hins
nýja sparisjóðsstjóra.
Brynja.
rórti raudi
Höfuðandstœður auðvalds-
skipulagsins eru einkum
þrenns konar:
1. Mótsögnin milli félags-
legrar vinnu verkalýðsstéttar-
innar annars vegar og hins
vegar skipulagshútta þeirra og
' eignarhalds sem tengd eru
einkaeignaréttinum og gætir
jafnt við framleiðslu. dreif-
ingu og neyslu afurðanna.
2. Mótsögnin milli þeirra
t vegg/a þjóðfélagshópa sem
auðvaldsframleiðsla fyrst og
fremst er reist ú - það er að
segja: annars vegar eigenda
aðal framleiðslutækjanna og
hins vegar launavinnufólks
sem myndar verkalýðsstéttina
i víðasta skilningi þess orðs.
3. Mótsögnin milli nýtingar
auðvaldsins ú tœkninni ann-
ars vegar og svo hins vegar
þeirra möguleika sem hún
felur í sér til alhliða uppfyll-
ingar mannlegra þarfa. stór-
felldrar styttingar vinnutim-
ans og breytingar ú allri stöðu
mannsins í heiminum.
Stefnuskrá Alþýðubanda-
lagsins I Sósíalisminn.
2 - NORÐURLAND