Norðurland - 08.03.1979, Blaðsíða 5
ÍÞRÖTTIR
Umsjón:
Einar
Björns-
son J
Alþjóðlegt blak
Leifur spilar upp og stuttu síðar skall boltinn frá Böðvari í gólfið hjá Færeyingum.
Langþráður sigur vannst
Eftir mörg súr epli á alþjóð-
legum vettvangi vaknaði dauf
ljósskíma í hjörtum ísienskra
blakunnenda um helgina. Is-
lenska karlalandsliðið stóð uppi
sem sigurvegari í leik við erlent
lið.
Að vísu hafði þetta átt sér
stað í nokkrum leikjum við
sama aðila Þ.e.a.s. Færeyinga.
Leikur þessi var lítt merkilegur
frá íþróttalegu sjónarmiði en á
stundum sýndu íslensku pilt-
arnir ágæt tilþrif. Hins vegar
KA í kennslustund
STJÖRNUSTRÍÐ
KA menn fengu Stjörnuna úr
Garðabæ í heimsókn á fimmtu-
daginn. Var nú komið að leik
þessara aðila í bikarkeppninni í
handknattleik sem hafði staðið
til lengi. Stjörnuliðið (að
sunnan) hefur komið geysilega
á óvart að undanförnu og lagt
mörg sterk lið að velli.
Því var fyrirfram búist við
spennandi viðureign og áhorf-
endur biðu með mikilli eftir-
væntingu eftir því að utanbæjar
mennirnir yrðu kaffærðir.
Stjörnurnar voru hins vegar
ekki á þeim buxunum. Þær
sýndu frá byrjun mikla festu og
náðu undirtökunum í leiknum.
Fátt markvert gerðist í fyrri
hálfleik ef frá er talið dulítið
broslegt atvik sem ef til vill
hefur stafað af taugaspennu. Þá
lentu þeir Hörður Hilmarsson
fyrrum KA maður og Þorleifur í
handalögmálum og var báðum
vikið af leikvelli. Staðan í
hálfleik var 12-10 fyrir sunnan-
menn og höfðu m.a. tvö víti
farið forgörðum hjá KA.
Sóknarnýtng KA liðsins í fyrri
hálfleik var með eindæmum
léleg. Mikið var um mis-
heppnaðar sendingar og yfir-
vegun í sókninni í lágmarki.
Alli Gísla var undir ströngu
eftirliti og naut hann alls ekki
nógu mikillar aðstoðar sam-
herja sinna.Stjörnuliðið hafði
yfirhöndina allan seinni hálf-
leikinn og munurinn oftast 2-3
mörk.
Þegar staðan var 22-20 fyrir
Stjörnuna blésu dómararnir í
ílautur sínar til marks um að
þessum leik væri lokið. Áhorf-
endur sátu eftir með sárt ennið
og vonandi tekst betur til hjá
KA liðinu í næstu leikjum.
Mörk KA: Alfreð, Jóhann og
Þorleifur 5 hver, Haraldur 2,
Magnús Birgisson, Guðbjörn
og Guðmundur 1 hver.
Flest mörk Stjörnunnar:
Magnús Teitsson 8 og Hörður
Hilmarsson 4.
PISTILL
VIKUNNAR
var munurinn á getu liðanna of
mikill til þess að einhver stemm-
ing myndaðist.
Leikmenn íslenska landsliðs-
ins voru fremur áþekkir en
Haraldur Geir vakti athygli
fyrir góðan leik og dúndur
smöss. Það má telja nær öruggt
að uppgangur blakíþróttar-
innar verður að vera mikill ef
íslendingar ætla sér að ná
einhverjum árangri í keppni við
útlendinga.
Mikið íþróttabrölt átti sér stað
hér fyrir norðan um helgina.
Akureyringum veittist sá mikli
heiður að verða fyrstir fs-
lendinga að sjá blakkonur
okkar etja kappi við erlenda
þjóð.
Þar sem þetta var nú söguleg
stund voru forráðamenn B.L.I
einkar forsjálir og völdu keppi-
nauta við hæfi. Það voru sem sé
vinir okkar og frændur Færey-
ingar sem urðu fyrir valinu. Það
er síður en svo ætlunin að gera
lítið úr Færeyingum með því að
reifa þetta mál. Hins vegar
verðum við að sætta okkur við
þá beisku staðreynd að Færey-
ingar eru nánast eina þjóðin á
hnattkúlunni sem íslendingar
geta unnið sigur á í þessari
íþróttagrein.
En eftir miklar fánahyllingar
og óheyrilegar serimoníur hófst
leikurinn. Uppistaðan í ísl.
liðinu voru stúlkur úr ný-
bökuðu meistaraliði Völsungs
og f.S. liðinu. Auk þess áttu
Akureyringar sína fulltrúa
þ.e.a.s. tvær stúlkur úr Í.M.A.
liðinu. Það voru þær Erna
Þórarinsdóttir og Margrét Jóns*
dóttir.
En skemmst er fá því að segja
að íslenska liðið gjörsigraði það
færeyska.
Bestan leik íslensku stúlkn-
anna áttu þær stöllur Helga
Jónsdóttir og Anna Guðný
Tiríksdóttir sem að sjálfsögðu
litu fyrstu blakskónum í M.A.
í hópi færeysku stúlknanna var
það einkum Anna Gásadal sem
sýndi tilþrif.
Lúnir Þórsarar
Til sölu:
Notað sófasett og á sama
stað baðborð.
Upplýsingar í síma 21740
Heldur er nú farið að syrta í
álinn hjá hinum ágætu drengj-
um í Þórsliðinu í Úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik. Einn
ósigur enn var staðreynd á
sunnudaginn. Með tapi í þeim
leik sem var gegn Í.S. minnkuðu
mjög svo líkur á því að
Þórsliðið haldi sér uppi í
deildinni.
Þórsliðið var ekki svipur hjá
sjón ef miðað er við þeirra bestu
leiki í vetur. Mjög lítil sam-
heldni virtist ríkja í herbúðum
Þórsara og svo fór sem fór.
Boltinn fékk hverfandi lítið að
ganga á milli manna heldur
reyndi hver og einn að gera allt á
eigin spýtur. Þessar fálm-
kenndu tilraunir báru lítinn
árangur eins og gefur að skilja.
Stúdentar hafa sótt í sig
veðrið upp á síðkastið og eru
nú komnir með 10 stig en
Þórsarar aðeins 4. Þórsarar
þurfa því að vinna þessa leiki
sem eftir eru til þess að komast
upp fyrir Í.S. Stúdentar voru
yfir allan tímann og í hálfleik
var staðan 47-40 fyrir þá.
Þegar upp var staðið vantaði
Í.S. aðeins eitt stig í hundrað en
Þórsarar höfðu gert 85.
Óneitanlega blasir við fall hjá
Þórsliðinu en allt getur gerst á
íþróttasviðinu eins og marg oft
hefur sýnt sig. Það verður því
látið ógert að spá nokkru um
framvindu mála í Úrvajsdeild-
inni en við norðanmenn vonum
hið besta.
ATHYGU
SKAL AUGLÝSING VEKJA !
TEIKNISTOFAN
■ r .KUREVR,
ÍMÍ S'mi: 23688
Tomma fram
í tímann
Þær eru stórkostlegar áætlanirnar, sem orkusérfræð-
ingar okkar hafa á prjónunum þessa dagana. Tillögur að
austurlandsvirkjun hafa litið dagsins Ijós og þær eru
ekkert sior ef marka má marglitan uppdrátt, sem birtist i
mogga fyrir helgina.
Þegar ég las um þessa eftilvill fyrirhuguðu virkjun tók
svart/rauða transistorviðtækið í brjósti mínu kipp og ég
hentist heljarstökk út á hlið og annað áfram og upp fyrir
mig af einskærri kæti. Og nú þegar ég depla augunum
bregður fyrir geislumböðuð mynd Einars Ben og sfkvikt
dollararegn með glás af kókakóla sem sagt er að bæti
baslið.
Þegar þessum tillögum hefur verið hrint f framkvæmd
og hvítir múrar stærstu stfflu i Evrópu utan Sovétríkj-
anna ber fyrir augu, þá verður nú margt breytt til
ánægjulegri hluta. Hugsið ykkur, i stað hversdagsgrárra
og þaðanaf verrá hversdagsgrænna hlíða allra fjarða og
voga frá Axarfirði til Hornafjarðar rísa marglitir
reykháfar og upp frá þeim munu rísa mislitir og
vissulega misþykkir reykjarmekkir. Á hálendinu, þar
sem nú er auðn hin mesta munu túristar bejja augum
úr loftunum heilmikið stöðuvatn með tilbúnum hólm-
um, gaggandi plastöndum og gúmmísvönum þýskum,
kvakandi angurværa Blessuðsértusöngva.
í stað hvítrar auðnar, sem er Vatnajökull, munu
augum mæta grösugir dalir og fell, hólar og ásar, allt
yfirfullt af sóleyjabreiðum og liljum. E.t.v. þykir
nauðsynlegt að bræða jökulinn til að fullnægja
vatnsmagnsþörfinni í þessa virkjun. Bræðsla hjarn-
breiðunnar yrði sjálfsagt framkvæmd á þann hátt að
speglaneti yrði komið fyrir á háum fjöllum viðsvegar um
landið, sem síðan endurvarpa sólargeislum í risastór
safngler fyrir ofan jökulinn. Ef til þess kæmi að skortur
yrði á vatni, væri hægt að stefna mestum hluta þeirra
regnskýja sem til landsins viliast norður fyrir hinn
fyrrverandi jökul og gleddust þá bændur jafnt sunnan-,
vestan- og norðanlands við það.
Jökulsá á Fjöllum mun þurrkast upp. Nakið og þurrt
bergið gefur þá landslagsmálurum okkar gullið
tækifæri tíl að spreyta sig á að mála fossverk á steininn.
Tónlistarmenn þyrfti til að likja sem nákvæmlegast eftir
dunum og dynkjum móðunnar fyrrverandi, til að
fyrirbyggja þá skömm að skáldin hætti að fá hríðir við
niðinn í náinni eða allri framtíð.
Við þetta aukast auðsjáanlega gjaldeyristekjur
þjóðarinnar til mikilla muna. Túristar munu sækja heim
land hinnar miklu listrænu sameiningar og mun hróður
íslenska þjóðarhjartans aukast stórlega um allan hinn
Civiliseraða heim. Skilyrðum um viðunandi klósett-
skálar þyrfti að fullnægja, svo við töpum ekki af
dýrmætum dollurum, mörkum og yenum, eins og lengi
hefur viljað brenna við vegna skammsýni og alræmds
sauðsháttar ráðamanna.
Til að landið fyllist nú ekki af tartaralýð og
mislitungum er verðugt verkefni ffyrir verkfræðingafjöld
þjóðarinnar að koma á sem víðtækastri sjálfvirkni í þeim
járn, stál og álbræðslum, sem rísa munu í hverju
krummaskuði austanlands. Þjóðinni stendur jú stöðug
ógn af ruslaralýð frá þeim löndum, þar sem sólin skin
lengur og skærar en hér á norðurhjara.
Það er von min og trú að stjórnmálamenn og
verktakar bindist nú einingarböndum og drffi í
framkvæmd allt það, sem í virkjunartillögunum kemur
fram.
Þó nokkrir bæir fari í eyði og hreindýr hætti að naga
gróður, þá er það minni skaði en sá að missa af því að
komast á spjöld heimsmetabókar Guinness.
NORÐURLAND - 5