Norðurland - 08.03.1979, Page 6
NORÐURLAND
Fimmtudagur 8. mars 1979
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
í NORÐURLANDSKJÖR
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Síminn er 2-18-75
AUGLYSIÐ I
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75
Listbræður á samtalssessi með Úlfskúnst á milli sín.
ÚLFUR AÐ OPNA
NORÐURLAND fékk góða
gesti í kaffi sl. manudag. I>ar
voru á ferð tveir bræður í
kúnstinni, -þeir Steingrímur
Sigurðsson og Úlfur Ragnars-
son. Slíkir menn hafa alltaf
eitthvað á prjónunum, - og sjá
mannlífið af annars konar
innsæi en vér aðrir breyskir, -
svo það er alltaf upplvfting
andanum að hlvða á þá. Þeir
töluðu tæpitungulaust um úni-
versalinn á meðan þeir siitruðu
kaffið á kontórnum hjá okkur.
Stcingrímur símaði inter-
messo suður á land og seldi
fcitum bánkastjóra málverk að
óscnu. og blcsu allir vindar í
segl listagyðjunnar. Annars var
heimsókn þeirra í tilefni þcss, að
Úlfur opnar 2. sýningu sína að
Gallery Háhóli nk. laugardag
kl. 3. Úlfur er danskur að
móðerni en af Arnardalsætt í
hina (galdramenn í fyrndinni).
Steingrímur sem cr mun skól-
aðri í kynningum á kúnstinni og
þekkir bransann út í hörgul
hafði aðallega orð fyrir þcim
félögum. Listin hefur ólgað í
Úlfi frá því á menntaskólaárum,
en þann sautjánda júní árið
1977 fór Úlfur að mála. Fyrir
honum cr málaralistin ekkert
aukaatriði, hann hefur frá
þcim dcgi tckið köllunina alvar-
lega, og málar af innri ástríðu.
Annars er hann yfirlæknir á
Kristnesi. Hann hefur gegnt
héraðslæknisstörfum víðs vegar
um landið, og verið í fram-
haldsnámi í geðlækningum og
sálarfræði. Verkin bera mann-
inum vitni, reynslu hans ok
leitun. Úlfur Itefur þó ekki ráðið
heimsgátuna frckar cn Stein-
grímur kollega hans. Hefur þó
gcfið sér mikinn tíma til að
kanna myrk djúp mannssálar-
innar. Völdin spilla manninum,
segir Úlfur. og þrúgun um-
hverfisins á manninum þarf að
upprætá. Á sýningunni eru um
50 verk byggð á mannlegri
reynslu. og Stcingrímur
skýtur inn í að þrátt fyrir að
kcnna megi áhugamál Úlfs in
primo í verkunum. þá séu þau
líka náttúrumikil. cn liann fari
pcnt með náttúruna.
Alyktun Einingar
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Einingar, haldinn 4. mars
1979, fagnar því að það tókst að mynda vinstri stjórn með fé-
lagsleg markmið að leiðarljósi. En um leið harmar funthirinn
þó þann seinagang og þá sundrung, sem uppi virðist vera inn-
an stjórnarflokkanna, og tefur fyrir því að mótuð sé sú lang-
tímastefna í þjóðarbúskapnum, er geri land þetta byggilegra
en nú er, m.a. með því að hamla gegn verðbólgu og siðspill-
andi fylgifiskum hennar.
Fundurinn bendir á, að það var fyrir þrýsting frá laun-
þegasamtökunum í landinu, og þá sérstaklcga Verkamanna-
sambandi fslands, að þessi stjórn var mynduð.
Það hefði því verið eðlilegt framhald af stjórnarmyndun-
inni að stefnumótunar Verkamannasambandsins hefði gætt
meira við lausn kjaramálanna en raun ber vitni, þ.e. að lægstu
launin hefðu verið verðbætt að fullu upp að ákveðnu marki,
en þar fyrir ofan hefði verið greidd sama krónutala, saman-
ber samþykkt 33. þings ASf, en þar segir í kjaramálaályktun
þingsins: „Fullar vísitölubætur komi á lágmarkslaunin, en
sama krónutala á þau laun, sem hærri eru.“
Fundurinn bendir á það, að ef sú leið hefði verið valin,
hefði ekki þurft að grípa til jafn róttækrar skattheimtu af
launafólki og í reynd hefur orðið, sem síðan kallar á aukna
spennu og kröfur til að standa undir þeirri skattpíningu, sem
þegar er orðin á framleiðslustéttunum.
Kröfur fundarins eru því þessar:
1. Kastið sundurlyndisfjanda og persónumetingi fyrir borð.
2. Komið ykkur umsvifalaust saman um langtíma-stefnu-
mörkun, er miði að aukinni framleiðni og auknum kaup-
mætti launafólks.
3. Tryggið öllum vinnu við arðbær störf, er skapa aukinn
þjóðarauð til skipta.
4. Upprætið spillinguna í innflutningsversluninni neytend-
um til hagsbóta, og styrkið með því kaupmáttinn.
5. Og að síðustu, gleymið því ekki, að það var launafólkið,
sem veitti ykkur umboð í síðustu kosningum til að ger-
breyta því þjóðfélagi, sem við búum í. Þeir, sem standa í
vegi fyrir því, að þeim breytingum verði náð, geta ekki
eftir það vænst stuðnings frá launafólki í náinni framtíð.
Það er og hefur verið skoðun a.m.k. lægst launaða
fólksins, að kaupmátturinn felist ekki alltaf í auknum
krónutöluhækkunum, heldur því hvað fæst fyrir þær
krónur, sem í umslaginu eru hverju sinni. Þar um veltur
mest á virkri fjármálastjórn og nýtingu fjármagns til
verðmætasköpunar.
Á aðalfundi Einingar voru
eftirfarandi ákvarðanir
teknar um ráðstöfun tekju-
afgangs frá árinu 1978:
Af tekjuafgangi félags-
sjóðs leggjast 8 milljónir
króna í Byggingasjóð félags
ins og 2 milljónir í Vinnu-
deilusjóð.
Sjúkrasjóður félagsins
leggur fram 5 milljónir
króna til styrktar bygg-
ingu Endurhæfingarstöðv-
ar Sjálfsbjargar, og 500
þúsund til styrktar Sam-
tökum áhugafólks um
áfengisvandamálið.
Þá var samþykkt, að fé-
lagssjóður kaupi hlutabréf i
Listaskála alþýðu í Reykja-
vík fyrir kr. 200 þúsund.
Fréttabréf
Ur
Reykja-
dal
8/2 Ekki er hægt að segja annað
en veturinn hafi verið góður það
sem af er og óvenju snjóléttur.
Þó setti niður nokkurn snjó í
síðari hluta janúar og fyrri hluta
febrúar, - en síðari hluti mán-
aðarins hefur verið góðviðra-
samur og góð hláka 23.-25. Tók
þá mikið snjó, svo nú eru allir
vegir færir. f gamla daga hefði
verið talið, að komin væri góð
beitarjörð, en nú á dögum er
hún lítið nýtt þó menn lofi fé að
viðra sig.
Það er fremur fátt tíðinda
héðan, lítið um samkomur.
Þorrablót var þó fjölmennt og
þótti góð skemmtun, - öll
heimafengin. Bridsspilarar
hafa starfað af fjöri í vetur. Nú
stendur yfir bridskeppni í sýsl-
unni og er ein lota eftir. Tvær
sveitir héðan úr dalnum taka
þátt í henni. Þá er rétt lokið
skákkeppni sem fram fór í
öllum barna og unglingaskólum
héraðsins. Ber þeim þakkir sem
unnið hafa að því að koma
þessari keppni á, í íþrótt sem er
þroskandi og holl fyrir ung-
linga
Félagsstarfsemi er nú fremur
lítil virðist mér, nema hjá
kvenfélaginu. Það starfar af
miklum dugnaði í vetur. Leik-
starfsemi hefur ekki komist á í
vetur, þó nokkuð hafi verið um
það rætt. Ýmis ljón hafa orðið
þar á vegi, svo ekki hefur orðið
af framkvæmdum enn sem
komið er. Tannlæknir er búinn
að flytja heimilisfang sitt til
okkar, en hann hefur ekki verið
hér stöðugt enn. Vonandi
verður vera hans hér til góðs,
ekki síst ef hann sinnti því sem
ætti að vera skylda tannlæknis,
- að kenna mönnum að lifa svo
þeir haldi sínum tönnum, en
ekki að vera bara handverks-
maður, sem lappar í það, sem
við spillum.
Hernámsanstæðingar eru nú
í miklum önnum við undir-
búning 30. mars baráttuhátíðar
að Breiðumýri. Vonast er til að
þar geti mætt einn þeirra, sem
dæmdur var sem glæpamaður
eftir uppþotið á Austurvelli
30. mars 1949, sem fylgjendur
herstöðva áttu höfuðsök á.
G.H.
Mikil fjölgun
áskrifenda
NORÐURLANDI berast stöð-
ugt nýir áskrifendur, - og blað-
ið er í góðri sókn. En hagurinn
er bágur og betur má ef duga
skðl •
NORÐURLAND hefur nú
ákveðið að tvöfalda tölu áskrif-
enda sinna. I því sambandi mun
blaðið ekki bjóða til sólarlanda-
ferðar eins og vinsælt er í slíkum
tilvikum. Þess í stað heitir það á
alla sína áskrifendur að leggja
því lið í þessari viðleitni og færa
því einn nýjan áskrifanda hver.
Mættu þeir þar taka dæmi af
elsta heimilisiðnaði sem sögur
fara af, þar sem unnið er að við-
haldi mannkynsins. En þar hef-
ur líka stundum borið við að
tvíburar fæddust og jafnvel þrí-
burar, og hét ekki kvikmyndin
forðum: „Átta börn á einu ári“?
Það er því vel þegið að menn séu
frjósamir í þessum efnum og
uppskeri margfalt. Takmarkið
er hátt - einn nýr áskrifandi á
mann sem fær blaðið nú þegar.
En það er auðveldara að ná því
en margur hyggur, eða átt þú
annars ekki kunningja sem
mætti bjóða blaðið? Væri þá
ekki ráð að ganga til hans í
kvöld eða á morgun og gera
það? Er ekki blaðið þess virði að
vera lesið víðar? Svari hver fyr-
ir sig - við höldum að svo sé og í
trausti þess óskum við ykkur
góðs gengis.
Útgáfustjórn.
Annir í
Hrísey
Hrísey 6/3. í síðustu viku
landaði Snæfell 156 tonn-
um. Afli netabáta er góður
um þessar mundir og því
mjög mikil vinna þessa
dagana við fiskvinnslu. Þá
jók á annríki síðustu viku,
að á meðan var að landa úr
Snæfelli lestaði Jökulfell
freðFisk og á meðan á því
stóð landaði Drangur
vörum í venjulegri á-
ætlanaferð. Var nú farið
að þrengjast við bryggju en
Drangur lagðist þar að,
sem Hríseyingar í daglegu
tali nefna Ferjustiga
Daginn eftir var svo Suður-
land á ferðinni með salt og
á meðan var að afferma
það lestaði Drangur Fisk,
sem fluttur var til Siglu-
fjarðar. Það ber nýrra við
að sjá 3 skip í einu við
bryggju í Hrísey, ekki síst
þegar það gerist dag eftir
dag. Guðjón.
Heilsu-
gœslustöð
Nokkrir fjármunir eru enn
til í sjóði Heilsugæslu-
stöðvar á Dalvik af Qár-
veitingu 1978. Fram-
kvæmdir við bygginguna
hafa taFist óeðlilega og
veldur endurskoðun á loft-
ræstikerFi eins og hér hefur
áður verið sagt frá. Nú eru
40 milljónir króna á íjár-
veitingu Alþingis til heilsu-
gæslustöðvarinnar fyrir
árið 1979. Vonir manna
standa nú til að Innkaupa-
stofnunin fari að koma
hreyFingu á framkvæmdir
með því að bjóða út hin
ýmsu verk sem eftir eru, en
byggingin er nú fokheld og
sannarlega ekki vanþörf á
að hún fari að komast í
gagnið. Brynja.
Eldur í
radíovita
Raufarhöfn 5/3 Það er
helst tíðinda hcðan. að það
kviknaði í radíovitanum.
sem staðsettur er á ásnum
l'yrir ofan bæinn. Skcmmd-
ist hann töluvert af cldi,
eldsupptök eru trúlega af
völdum rafmagns. Veldur
þetta sé'rstökum erfiðleik-
um vegna hlindllugs. Þann-
ig \æri ekki luegt að fljúga
sjúkrallug við crfiðar að-
stæður vegna þcssa. Flogið
er til Riiufarhafnar 4 sinn-
um í viku að vetrarlagi en 5
sinnum á sumrin. Grá-
sleppuvertíöin bvrjar 10.
mars og erumenn farnir að
huga að netum fyrir hana.
Engin loðnubræðsla hefur
verið undanfariö en at-
vinnuástand samt ekkert
slæmt. - Líney.
Aðalfundur
Sjálfs-
bjargar
Sjálfsbjörg félag fatlaðra
og lamaðra á Akureyri
heldur aðalfund sinn að
Bjargi laugardaginn 10.
mars nk. kl. 14.00. Dag-
skrá fundarins verður sam-
kvæmt lögum félagsins.