Norðurland - 15.03.1979, Síða 1
NORÐURLAND
Neytendasamtökin
Stofnfundur
á
Akureyri
Neytendasamtökin boða tii
stofnfundar deildar fyrir Akur-
eyri og nágrenni laugardaginn
17. mars nk. Verður fundurinn
að Hótel Varðborg kl. 2 e.h.
Markmiðið með stofnun
deildarinnar er að gæta að hags-
munum neytenda á verslunar-
svæði Akureyrar með því m.a.
að veita félagsmönnum leið-
beiningar og fyrirgreiðslu ef
þeir verða fyrir tjóni vegna
kaupa á vörum eða þjónustu.
Enn fremur er rekin á vegum
Neytendasamtakanna útgáfu-
og fræðslustarfsemi. Á fundinn
mun m.a. koma Jóhannes
Gunnarsson formaður deildar-
innar í Borgarnesi. í stuttu sam-
tali við NORÐURLAND sagði
Jóhannes að það hefði tekist vel
í Borgarnesi að veita verslun-
inni aðhald út frá félagslegum
forsendum. Sagði Jóhannes að
meginverkefni Borgarfjarðar-
deildarinnar hafi verið útgáfa
dreifibréfs í öll hús á félags-
svæðinu. Þar væri að finna
ýmsar hagnýtar upplýsingar
fyrir neytendur, s.s. verðkann-
anir.
Hins vegar væri um kvört-
unarþjónustu að ræða. Þegar
neytendur telja sig hafa verið
hlunnfarna í kaupum á vöru eða
þjónustu,- þá taka Neytenda-
samtökin á viðkomandi stað
málið upp og reka með lög-
fræðilegri aðstoð ef ekki vill
betur. I Borgarnesi hafa 8 slík
mál verið að vinnast á síðustu
mánuðum fyrir neytendur,
sagði Jóhannes að lokum.
NORÐURLAND skorar á
lesendur sína að fjölmenna á
stofnfundinn nk. laugardag. Sjá
leiðara bls.2.
- ■~íw —
p-ass^,- ' “
Þórshöfn 13/3 Togarinn Dagný
landaði hér í dag 150 tonnum.
6 bátar stunda nú netaveiðar
héðan. Frá áramótum hafa
veiðst yfir 600 tonn þegar afli
togarans er talinn með.
Tið hefur verið fremur risjótt
og bátarnir nú flúið undan ísn-
um. Verið er að setja bónuskerfi
á laggirnar í frystihúsinu. Eftir
helgina hefjast svo grásleppu-
veiðarnar og er mikill hugur í
veiðimönnum. Mikil árshátíð-
aröld ríkir hér um slóðir. Um
næstu helgi heldur Hraðfrysti-
stöðin árshátíð, - og þar næstu
helgi mun kaupfélagið hafa árs-
hátíð á prjónunum. Pöntunar-
félagið hefur fengið sína fyrstu
sendingu, - aðallega sekkja-
vöru. Þar sem atvinnuástandið
er orðið gott er hljóðið í okkur
orðið betra.
Arnþór
Sitt af hverju
Úr Mývatnssveit
NORÐURLAND hafði sam-
band við Þorgrím Starra Björg-
vinsson að Garði í Mývatnssveit
og spurði hann tíðinda úr
Þorgrímur Starri í Garði
héraði. Þorgrímur varómyrkur
í máli að vanda:
Herstöðvaandstæðingar, sem
eru mjög fjölmennir hér í sveit-
um hafa undanfarin tvö ár
minnst aðildarinnar að NATO
30. mars að Breiðumýri. Nú
ætlum við enn að efna til dag-
skrár og vanda sérstaklega til
efnisins sem er bæði héðan og
aðfengið. Við höfum verið að
undirbúa dagskrána nú undan-
farið og vonumst til að hún
verði fjölsótt enda tilefnið ærið,
30 ára aðild íslands að NATO.
Dagskráin verður eins og áður
sagði að Breiðumýri 30. mars að
kveldi, hamli veður og færi
Síðustu fréttir
Stjómin völt
4. árgangur Fimmtudagur 15. mars 1979 9. tölublað
Skjótt skipast veður í lofti í
stjórnarbúðunum. Sú ríkis-
stjórn sem mynduð var fyrir til-
stuðlan launþegasamtakanna í
landinu og með samráð við þau
sem grundvallarforsendu stjórn
arsamstarfs, stendur nú klofin
frammi fyrir skapendum sínum.
Alþýðubandalagið stendur nú
eitt með launþegasamtökunum
í andófi gegn svívirðilegum að-
förum meirihluta ríkisstjórnar-
innar að kjörum almennings.
Ráðherrar krata og framsókn-;
ar hundsa nú vilja launþega-
samtakanna í landinu.
Ráðherrar Alþýðubandalags
ins hafa ekki gert aðra kröfu en
þá, að farið verði að samstarfs-
samningi ríkisstjórnarinnar um
samráð við verkalýðshreyfing-
una. Launþegasamtökin hafa
ásamt Alþýðubandalaginu
krafist endurskoðunar á verð-
bótakaflanum ífrumvarpi Ólafs
Jóhannessonar. Tillögur Fram-
sóknarmanna og krata fela í sér
6-7% kauplækkun, sem engir
verkalýðssinnar geta náttúru-
lega sætt sig við. Ólafur Jó-
hannesson leggur afturhalds-
ráðafrumvarp sitt fram á þingi í
dag. Á næstu dögum mun fram-
tíð ríkisstjórnarinnar ráðast í
meðferð frumvarpsins á alþingi.
Svavar Gestsson og Stefán
Jónsson munu segja gerr frá
spennandi gangi mála á opna
fundinum í Alþýðuhúsinu á
föstudaginn. (Sjá augl. hér á
síðunni.)
Þórshöfn:
GÓÐUR TÓNN
Nýlega afhenti Kvennasamband Akureyrar Fæðingardeild F.S.A. tæki
til að auðvelda eftirlit og auka á öryggi fyrir konur í fæðingu. Verðmæti
þessa tækis er rúmlega 3 milj. án innflutningsgjalda og söluskatts.
Myndin er frá afliendingu gjafarinnar.
ekki, - en við höfum verið
óheppin með veður undanfar-
in ár.
Lítill snjór, -mikill kuldi.
Veturinn hefur verið óvenju
snjóléttur en mikil frost. Við
höfum t.d. sloppið núna upp á
síðkastið betur en margir aðrir
landsmenn, aldrei komið veru-
legur hvellur, - eina nótt sem var
hvasst og vont veður en aldrei
mikill snjór. Það hefur verið
óvenju greitt um samgöngur og
getum við hrósað happi af þeim
sökum.
Æðruleysi í Kröflumálum
En fyrst Kröfíu ber á góma,
þá má geta þess hvað við kemur
virkjuninni, þá eru menn
hneykslaðir á að eigi að gefa
framkvæmdir nú á bátinn.
Okkur finnst það dálítið skrítin
búmennska að vera búið að
eyða þarna tugum miljarða og
það sýnt sig að þarna hefur
náðst vald yfir nokkurri orku.
Þarna er framleitt rafmagn og
vélakostur virðist vera í lagi, -
en þá er ekki þrautseigjan meiri
en svo, að það á ekki að að-
hafast neitt. Hvert megavatt
sem Krafla framleiðir er þó í átt-
ina, - svo menn eru ákaflega
undrandi á þessari pólitík. Hins
vegar veit ég ekki hvað kann að
breytast í þessu efni. Það hefur
verið boðað af einum þing-
manni hér úr kjördæmi, -
Ingvari Gíslasyni, að hann ætli
Framhald á bls. 3.
- ftF HVER3U i TENDURÐU
SVONA CdLEIÐUR . SlMMI
-ECd ÆTLft ftÐSÆKJA UM
HLUTVERK HJftLElKFÉL-
fthlNU >
Sólveig Brynja Grétars-
dóttir skrifar um innræt-
inguna í pistli á bls. 5
*
Hvemig var frumvarpi
Ólafs breytt?
OPINN FUNDUR
í Alþýðuhúsinu fostudaginn 16. mars kl. 21.00.
Ræðumaður: Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra.
Fundarstjórar: Stefán Jónsson, alþingismaður, og
Soffía Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi.
Almennar umraeður - Svavar og Stefán svara spurningum
fundarmanna.
• Vísitalan og kjaramálin • Heildsalarnir • Þjóðnýting
• Alþýðubandalagið og herinn - o.fl. til umrœðu á fundinum.
Akureyringar - Nærsveitamenn - Fjölmennið á fundinn
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Á AKUREYRI.
íþróttaþættinum er farið
ofsamlegum orðum um
rammistöðu KA í Rvík
Á baksíðu eru viðtöl við
fólk í fjallinu og ljósmyndir
þaðan