Norðurland - 15.03.1979, Blaðsíða 5
KA mærir
bœinn
SUÐURí
SIGURFÖR
Það má með sanni segja að Þor-
leifur hafi verið í þrumustuði
Ananíason sl. sunnudagskvöld.
Hann skoraði 16 mörk fyrir
KA, þegar þeir KA piltar burst-
uðu Þróttara í handknattleik
með 29 mörkum gegn 25. Sam-
herjarnir hófu hann hátt í loft í
fagnaðarskyni.
KA klifrar nú með glæsileg-
um hætti upp stigatöfluna í
annari deildinni í haridknatt-
leik. Á laugardagskvöldið knús-
uðu KA strákar og jörðuðu
lipurð sneidda Leiknismenn
með 33 mörkum gegn 20. Ef K A
heldur þessari hrynjandi í fram-
tíðinni er ekki að efa að þeirra
bíða glæstir sigrar, - jafnvel
gegn erlendum stórliðum. Víst
er að einhverjum hefur heyrst
hvíslað í huga: KA menn tóku
sunnlendinga í kennslustund
um sl. helgi.
ÍBÚÐ
óskast til leigu sem fyrst.
Upplýsingar í síma 25725
eða 22325.
Sjálfstætt fólk
eftir
HALLDÓR LAXNESS
Leikgerð
Baldvin Halldórsson.
Leikstjóri
Baldvin Halldórsson
Leikmynd
Gunnar Bjarnason
Frumsýnin: Föstudaginn 23.
mars kl. 8.30.
2. sýning: Laugard. 24. mars
kl. 8.30. Gul kort gilda.
3. sýning: Sunnud. 25. mars
kl. 8.30. Græn kort gilda.
Aðgöngumiðasala frá og
með þriðjud. 20. mars. Opin
kl. 17-19 og 17-20.30 sýn-
ingardagana.
Sími 24073.
ATHVGU
SKAL AUGLÝSING VEKJA !
TEIKNISTOFAN
Fundist í fjalli
Framhaíd af baksíðu.
Hann er líka öryggistœki? Já,
við erum með inni í honum
sjúkrabörur, sjúkrakassa, spelk
ur, teppi og fleira. Á honum eru
útbúnar festingar fyrir sjúkra-
börur, - þannig að það er mikið
öryggi af þessu tæki.
Hvernig fmnst þér aðstaðan
hérna? Ég er kannski ekki dóm-
bær á það. Ég er fæddur hérna
og þekki ekki neitt annað.
Hvað finnst þér um klœðnað
fólks, finnst þér fólk ekki vera í
dýrum úlbúnaði? Þetta verður
náttúrulega tískufyrirbæri, það
verður hver að klæða sig eftir
eigin geðþótta. Aftur á móti
erum við strangir með það að
fólk sé ekki með flagsandi fatn-
að eða trefla. Það hefur stór-
hættu í för með sér.
Guðmundur Pétursson lyftu-
vörður var að aðstoða barn við
að lyfta öryggisslánni af stóln-
um þegar við komum að. Hann
Ragnar Sverrisson segir skíðaút-
búnaðinn alltof dýran, - en fötin
séu ekki númer eitt. Aðstaðan að
öðru leyti_góð en því að hér vant-
ar snjó. Ur því á að bæta með
nýrri lyftu næsta ár, breyti bæjar-
stjórn ekki til.
kvað það ekki algengt að fólk
ætti í erfileikum með það,
-helst þeir litlu. Guðmundur
kvað það algengt að fólk væri í
dýrindis útbúnaði, þótt þaðviti
ekki hvað snýr fram og aftur á
skíðum. Guðmundur sagði að-
stöðuna til skíðaiðkana frábæra
í Fjallinu nema snjóleysið í
vetur. Hins vegar kvað Guð-
mundur fólk ekki nýta sér
leiðirna nógu vel. Væri t.d.
alltof sjaldgæft að fólk færi
Hjaltyrarleiðina svo kölluðu.
Að lokum sagði Guðmundur
vilja brýna fyrir fólki að vera
ekki með flagsandi fatnað í
lyftunni.
IÞRÖTTIR
Þór-ÍR 88-83
REKA AF SÉR
SLYÐRUORÐIÐ
Þórsdrengirnir í körfuboltan-
um ráku af sér slyðruorðið að
nokkru leyti um helgina. Þá
komu ÍR-ingar til leiks við þá
öðru sinni hér í höfuðstað
norðurlands.
í þessari viðureign brá öðru
hvoru fyrir ágætum leikköflum
og ánægjulegt var að sjá að
Þórsararnir höfðu hrist af sér
slenið og sýndu gott baráttu-
þrek. Einkum og sér í lagi voru
þeir ákveðnir í fráköstunum og
hirtu þau af mikilli áfergju und-
ir körfunni. Þetta hefur verið
ákaflega veikur hlekkur hjá lið-
inu og getur auðveldlega ráðið
úrslitum. Menntaskólasvein-
arnir ungu BirgÍr og Karl gengu
hvað lengst fram í þessu og
gerðu báðir mikið gagn. Kalli
Ólafs átti góðan dag og leik-
maður eins og hann þ.e. jafn
yfirvegaður er nauðsynlegur
hverju liði.
Mikið áhugaleysi var ríkjandi
hjá ÍR-ingum og getur það
hugsanlega stafað af því að þeir
eygja ekki möguleika á titlinum
en hafa jafnframt gulltryggt sig í
deildinni. Nema hvað Þórsarar
voru allan tímann ívið sterkari
og maður hafði á tilfinningunni
allan tímann að þeir færu með
sigur af hólmi. Þegar 10 sek
voru til leiksloka fiskaði Birgir
Rafn 3 vítaskot. Staðan þá var
85-83 fyrir Þór og með tveimur
hnitmiðuðum skotum Birgis
var sigurinn í höfn. Jón Indriða
átti síðasta orðið í leiknum
þegar hann bætti við 88. stigi
Þórs einnig úr víti. Með sigri í
þessum leik hafa Þórsarar
möguleika á að halda sér uppi
en það er þó aðalega á fræðileg-
um grundvelli. Þrír síðustu leik-
irnir eru gegn Stúdentum, Völs-
urum og KR. Þetta verðaerfiðir
hjallar en öllu máli skiftir það
að láta ekki deigan síga. Rífum
upp móralinn Þórsarar.
Flest stig Þórs: Mark 26, Jón
og Eiríkur I6, Karl 14, ogBirgir
12.
Flest stig ÍR: Stewart 21, Ste-
fán Kristjánsson 18 og Kristinn
Jörundsson 12.
PRSTIL.I.
VIKUNNAR
Brynja
Grétars
dóttir
Pólitísk innræting
Þungt slá hjörtun í „frjálsum" brjóstum íhaldsmanna
um þessar mundir vegna nokkurs sem þeir kalla póli-
tíska innrætingu í skólum. Engin furða þar sem yngstu
kjósendurnir hafa undanfarið sýnt að hugsjónir sjálf-
stæðisflokksins og afleiðingar stjórnar hans eru þeim
ekki meira en svo hugleiknar. Ungt fólk rís upp nú ívet-
ur í hverjum framhaldsskólanum af öðrum og sýnir
óspart áhuga á stefnum sósíalískra hreyfinga. Vegna
hvers? Já, spyrji nú hver sjálfan sig. Svar Sjálfstæðis-
manna er það, að hér sé um að ræða svívirðilega inn-
rætingu frá sósíalískt hugsandi kennurum. Aldrei fyrr
hefur íhaldið útblásið sig svo um þetta fyrirbæri, enda
ekki ástæða til meðan ungir, uppvaxandi Sjálfstæðis-
menn réðu lögum og lofum I allflestum skólafélögum
sem eitthvað kvað að, s.s. H.í. (alltfram til 1970-'71).
Hefur einhverjum dottið í hug að þar hafi verið um inn-
rætingu að ræða? Neisussunei, engin er synd nema
sósíalísk. Það voru bara „frjálsir" menn með „frjáls-
ar" hugsjónir.
Það var ekki laust við að manni stykki bros í haust er
sjálfur Geir lýsti því yfir á „Beinni línu" í útvarpinu að
hann hefði ungur fengið áhuga á pólitík. Og að skóla-
félagar hans hefðu gjarnan kvartað undan því hve
mikið hann talaði um pólitík í skóla! Ætli kennarar á
íhaldslínu hafi verið aðalhvatar þess eldmóðs? Á mað-
ur að trúa því, þegar allir helstu boðberar „frelsis og
sannleika" í landinu, s.s. Geir, Birgir Ísleifur og nú
síðast Ragnhildur, eru búnir að margsegja okkur að
innrætingin í skólunum sé einhlít og af hinu illa fædd?
Nei, ungt fólk er sem betur fer yfirleitt hreinskilið við
sjálft sig og aðra og breytir eftir sannfæringu sinni.
A.m.k. vona ég að svo hafi verið með áðurnefnda
þremenninga. Að þau hafi ekki orðið helstu pólitísku
leiðtogar þjóðarinnar eingöngu fyrir innrætingu eða
fjarstýringu frá öðrum.
Eftir Ragnhildarfrumvarp hið snjalla sem fjallar mjög
um þessi mál, hafa bæði hún og aðrir þráttað mikinn í
blöðum um „frjálsa", óhlutbundna kennslu. Þar virðist
mér styrinn helst standa um það hvort í skólunum sé
gengið í berhögg við lífsskoðanir foreldra eður ei.
Getum við foreldrar ætlast til þess, að afkvæmi okkar
(jafnvel þótt frjálsborin séu) heyri aldrei né læri neitt
annað en það sem okkur best líkar?
Ragnhildur o.fl. telja óæskilegt að ræða ágreinings-
og álitamál þjóðfélagsins í grunnskóium. Hvers vegna
mér er spurn? Heldur þetta fólk að nemendur í grunn-
skólum séu andlega náttúrulausir aumingjar sem
ekkert skilji nema steindauðar staðreyndir? Ég fæ held-
ur ekki séð hvernig verður komist hjá slíkum umræð-
um í ýmsum námsgreinum, s.s. sögu og samfélags-
fræði. Hvers konar stofnun á skólinn að vera? Lifandi
uppeldisstofnun eða leiðinda geymslustaður?
Ragnhildarfrumvarp og öll umræða um hina svoköll-
uðu innrætingu eru reyndar ekki annað en staðfesting á
þeim aldagamla veikleika fullorðins fólks að geta aldrei
rætt málefni barna og unglinga nema út frá sínum eigin
hagsmunum og sjónarmiðum. Ergo: börnin, ungling-
arnir og hagsmunir þeirra týnast í þrasinu.
í fjögur ár stundaði ég kennslu við grunnskóla. Þar
varð mér einn hlutur Ijós: Nemendur vilja umræðurum
hvert það mál sem ber á góma og með staðreynda-
staglinu einu saman vekur maður lítinn áhuga hjá
þeim. Fæstir þeirra sætta sig við valdníðslu af nokkru
tagi, eigi að beita henni í skólanum, og mér segir svo
hugur að svo muni einnig verða er þeir ganga út í þjóð-
félagið sem virkir þegnar. Mér er minnisstætt er nem-
endur báðu mig að skýra fyrir þeim hvers vegna ég og
fleiri ætluðum ekki að kenna þeim í vinnustöðvuninni í
mars '78. Mér fannst þeir eiga fulla heimtingu á því og
sagði bekknum frá ákvörðun þáv. ríkisstjórnar um brot
á kjarasamningum. Síðan sagði ég þeim að vinnu-
stöðvun væri einkamál hvers og eins. Ég legði niður
vinnu til að mótmæla því að stjórnvöld, hvaða nafni
sem þau nefndust, gætu hvenær sem væri farið með
launafólk hvernig sem væri. Þá sagði einn nemenda:
„Er þessi valdbeiting stjórnarinnar ekki hliðstæð því
sem við þurfum oft að þola af skólayfirvöldum? Ekki
spyrjið þið okkur álits á því sem þið ákveðið í skóla-
málum."
Við erum hætt að berja börn og unglinga til hlýðni.
Þau eru því sem betur fer flest óhrædd við að láta álit
sitt í Ijós og mótmæla hvers kyns órétti. Hver sá sem
eitthvað hefur umgengist unglinga ætti að vita það
betur en svo að ástæða sé til að æpa á torgum um inn-
rætingu. Minnkandi fylgi ungs fólks við sjálfstæðis-
flokkinn segir sína sögu, þótt sá flokkur hafi allra hæst
tónað boðskap frelsis og réttlætis. Sennilega mun
íhaldið enn um sinn klína sökinni á kommahelvítin í
skólunum. Það er eftir öðrum þeirra vinnubrögðum.
Svo er líka alltaf hægt að nota þá afsökun sem mis-
heppnaðir stjórnarherrar hafa gjarnan beitt fyrir mis-
heppnuðum stjórnaraðgerðum: Að alþýðan í landinu
(þ.m.t. skólaæskan) hafi misskilið ... Hvað? Þá kapítal-
ísku frelsishugsjón að frelsi einstaklingsins nái aðeins
lengra en að nefinu á næsta manni og eins dauði sé
annars brauð? Að f orði séum við öll jöfn, en í verki séu
sumir jafnari en aðrir?
NORÐURLAND - 5