Norðurland - 22.03.1979, Blaðsíða 1
NORÐURIAND
4. árgangur Fimmtudagur 22. mars 1979 10. tölublað
Svavar og Stefán með Marx á milli sín á fundinum í Alþyðuhúsinu.
Ljósm. Sig. Rúnar.
ABA
Opni fundurinn
Þeir morgunhanar hlutlausa fjölmiðilsins, Ríkisútvarps, Sigmar B.
Hauksson og Páll Heiðar Jónsson hafa enn á nv komið til Akureyrar að
útvarpa hinum ólíku viðhorfum norðanmanna. Á mánudaginn brugðu
þeir á létt hjal með ritstjórum íslendings auglýsingabláa og Dags, þar
sem grasið grænkar og grær. Sérstaklega var ljörgandi að hlusta á þá
kollega segja félaga, bróður og þjóð á launfyndinn máta af létta um
pólitík norðanblaðanna. Ljósm. Leifur.
Raufarhafnarbúar
VERJAST ÍS
Alþýðubandalagið á Akureyri
stóð fyrir opnum fundi um
stjórnmálaástandið sl. föstu-
dag. Á fundinn komu þeir
Svavar Gestsson og Stefán
Jónsson frá aiþingi. Fundar-
stjórar voru Soffía Guðmunds-
dóttir og Stefán Jónsson, sem
jafnframt svaraði fyrirspurnum
með Svavari.
Svavar útskýrði og rakti hið
fræga af endemum efnahags-
frumvarp, sem nú um stundir er
kennt við Ólaf Jóhannesson.
Fjölmargir tóku til máls auk
framsögumanna. Vildu flestir
ræðumanna, að allt, sem mögu-
legt væri, yrði gert til að halda
lífi í ríkisstjórninni. Minna var
fjallað um aðra möguleika í
stéttabaráttunni, - og vofa
hægri stjórnar lagðist þungt á
hugi. Svavar lagði ríka áherslu
á, að almenningur gerði sér
ljóst, að nú væri komið að öðr-
um en launþegum að taka á sig
kreppu kapitalismans. Fundur-
inn var fjölmennur og þótti
mjög upplýsandi.
04
FORNI
FJANDI
Ólafsfjörður 20/3. Landsins
forni fjandi, sem hefur verið á
hægri leið inn fjörðinn, er nú
kominn hingað inn. fsinn er
samfelldur endanna á milli nú í
kvöld.
Þótt ekki séu þetta stórir
jakar er ísinn samfelldur og því
skeinuhættur bátum. Vír var
strengdur fyrir hafnarmynnið
nú í kvöld, - og netabátar hafa
tekið upp net sín. Grásleppu-
netin, sem áttu að leggjast á
þriðjudag voru ekki lögð fyrir
vikið, svo nærri má geta hvers
konar ástand gæti orðið hér
uppi í útgerðinni og atvinnumál
um, haldi sem horfir. Togarinn
Ölafur Bekkur landaði ídag 110
tonnum og átti að fara út í fyrra-
málið ef hann kemst þá út vegna
íssins.
Næg vinna er enn í fiskverk-
unarhúsum, og ætti að verða ef
togararnir komast ásjó. Annars
hefur tíð verið risjótt og ekki
mega Ólafsfirðingar við skakka-
föllum af völdum íssins í viðbót.
Skemmdir af völdum eldsins í
félagsheimilinu Tjarnarborg,
sem sagt hefur verið frá í fjöl-
miðlum, munu sem betur fer
ekki hafa orðið svo miklarsem í
fyrstu var álitið. Agnar/óg
Raufarhöfn 20/3 - Næg atvinna
hefur verið í frystihúsinu að
undanförnu. Togarinn Rauði-
núpur landaði þann 15. sl. 158
tonnum eftir ljögurra daga veiði-
ferð. En þá var ekki búið að
vinna allan aflann sem komið
hafði á land þar áður.
Mikill skortur hefur verið
á fólki í vinnu í frystihúsinu og
voru því unglingar úr tveim
elstu bekkjum grunnskólans
fengnir í frystihúsið í nokkra
daga. í Saltfiskverkun Guð-
mundar Friðrikssonar hafa ver-
ið söltuð um 130 tonn frá ára-
mótum. Einn bátur hefur lagt
þar upp í vetur, Hrönnin, sem
er 29 tonn.
í gær og nótt var norðan 8 til
9 vindstig og dimm stórhríð. í
morgun mátti sjá litlar ísspangir
og töluvert jakahrafl á hraðri
leið í suðvestur átt. Töluverður
ís er kominn inn í Hólsvík en
þar hafa bátanir verið með
þorskanetin að undanförnu. í
morgun var eitthvað tekið upp
af netunum. Grásleppunetin
liggja mun dýpra ennþá,en erfitt
getur verið að stunda grásleppu
veiðar ef mikill ís kemur. í morg
un var strengdur vír fyrir hafn-
armynnið og kemur hann í veg
fyrir að höfnin fyllist af ís og
bryggjur og bátar brotni.
Líney.
Dalvíhurfrétt
Góð og stöðug vinna hefur ver-
ið hjá Frystihúsi ÚKE á Dalvík
frá áramótum að undanskyldu
því þegar togarinn Björgúlfur
sigldi til Bretlands í byrjun
janúar. Þá þurfti að halda uppi
atvinnubótavinnu í tvo daga og
loka húsinu í aðra tvo. Þar sem
Útgerðarfélag Dalvíkinga er að
jöfnu eign Dalvíkurbæjar og
ÚKED að frádregnum 3% sem
eru í einkaeign, má deila um
hvort réttmætt er að sigla með
fiskinn úr landi þegar ekki er
hægt að halda uppi fullri at-
vinnu heima fyrir.
Þorskurinn er nú mjog
skammt undan, liggur við ís-
röndina nærri Kolbeinsey, og
þar var Björgvin á veiðum.
Kom hann inn á fimmtudag
með 160 tonn. ísinn hefur lítil-
lega hamlað veiðum togarans.
Björgúlfur landaði 110 tn. af
góðum fiski á þriðjudag.
Aðsögn Árna
Óskarssonar frystihússtjóra hef
ur alltaf verið unnið til kl. sjö
eftir að netavertíðin hófst og
síðustu þrjá laugardaga var
einnig vinna í húsinu. í salthúsi
hefur verið unnið fram eftir
kvöldum og mikið um helgar
einnig.
Árni sagði að bónusinn gengi
'el og stæði til að verkafólk
greiddi endanlega atkvæði um
framhald hans nú á næstunni.
Brynja.
’AV/V
JÆM - Þ9Z ÞOIDI
SJ/9U//VA/ £M/
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
BÆJARMALARÁD ABA
Fundur laugardaginn 24. mars kl. 2.00 í Lárusarhúsi, Eiðs-
vallagötu 18.
FUNDAREFNI:
Börn á Akureyri. Undirbúningur fyrir bæjarstjórnarfund
í tilefni barnaárs. Starfshópur skilar áliti. Umræður.
Félagar ABA eru hvattir til að sækja fundinn.
„Af hverju ertu að gráta?“ Svanhildur Jóhannesdóttir og Benedikt
Helgason í hlutvcrkum Ástu Sóllilju og Nonna. Sjálfstætt Fólk I.axness
í leikgerð Baldvins Halldórssonar (í samv.við höfund),verður frumsýnt
á föstudagskvöldið í Samkomuhúsinu.Baldvin leikstýrir verkinu en
leikmynd er eftir Gunnar Bjarnason.Leikfélagið hefur æft Bjart af
kappi undanfarið og væntir góðs árangurs af erfiðinu.Mikil
eftirvænting ríkir meðal þeirra sem unna skáldverkinu,-og víst er
aungum aukvisa ætlandi að snúa verkinu til heillandi leikgerðar.
(I.jósm.st. Páls)
Steingrímur Eggertsson Helgi Ólafsson skrifar um Könnun verðlagsskrifstof-
segir sögu úr umferðinni á Skákmót Norðurlands á unnar á Akureyri er birt
bls. 2 bls. 4 á bls. 3