Norðurland - 29.03.1979, Blaðsíða 6
NORÐURLAND
Fimmtudagur 29. mars 1979.
MÁLGAGN SÓSÍALISTA GERIST
í NORÐURLANDSKJÖR- ÁSKRIFENDUR
DÆMI EYSTRA - Sítninn er 2-18-75 -
AUGL^ÝSIÐ I
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
x -• ' •
Þrjátíu ára þjóðarsmán
Herstöðvaandstæðingar um allt land efna nú um mán-
aðamótin til baráttufunda og annarra menningarvið-
burða í tilefni 30 ára íveru Islands í hernaðarbanda-
laginu NATÓ og amerískrar hersetu í landinu. Þjóð-
frelsisöflin vilja nú enn á ný leggja áherslu á menningar-
pólitíska andófíð gegn varnarvæpni kapitalismans í
vestri. Margir sakna nú verkalýðshreyfíngar úr breið-
fylkingu herstöðvaandstæðinga, en 1949 reis hún önd-
verð gegn hernaðarbröltinu. Vonandi að hún vakni nú
til vitundar um mikilvægi herlauss lands, sem og flestir
til landvinninga fyrir sósíalismann.
A ð Breiðumýri
Svo sem fram hefur komið áður
í blaðinu, þá efna herstöðva-
andstæðingar í Mývatnssveit og
Reykjadal til baráttusamkomu
föstudaginn 30. mars kl. 21.00
að Breiðumýri.
Þar verður minnst 30 ára veru
íslands í NATO og hers í landi.
Ýmislegt verður á dagskrá;
laugur les úr óbirtri skáldsögu.
Kristján Hjartarson syngur og
spilar á gítar en hann mun
einnig verða með í sönghópi
þeim, sem aðstoðar við flutning
söguyfirlitsins.
Á Akureyri.
Hér á Akureyri hafa samtökin
einnig í hyggju að minnast 30
dagskrá í tali og tónum um inn-
gönguna og veruna í því myrka
bandalagi NATÓ.
Aðal ræðumaður samkom-
unnar verður Tryggvi Gíslason
skólameistari og ennfremur
mun Jakobína Sigurðardóttir
skáldkona flytja samantekt um
inngönguna í bandalagið. Þá
mun Hilmar Hauksson frá
Húsavík syngja nokkra slynga
söngva um her og NATO.
Hákon Leifsson og félagar
ílytja samkomugestum magn-
aða tónlist við texta eftir akur-
eyrsk ungskáld og ennfremur
verða fluttir leikþættir og sam-
lestur, sem nokkrir úr hinu róm-
aða leikaraliði bæjarins hafa
umsjón með.
Ekki er að efast um að dag-
skráin verður í senn fróðleg,
skemmtileg og mikil efling bar-
áttunni gegn NATO og hernum
á Miðnesheiði, sem og hernað-
arbrölti yfirleitt.
Myndlistarsýning.
sýningin væntanlega formlega
opnuð 7. apríl. Einnig verður í
kjallara Möðruvalla sett upp
ljósmyndasýning sama efnis,
sem nú um skeið hefur verið
fyrir augum reykvískra her-
stöðvaandstæðinga.
NORÐURLAND mun gera
þessum menningarviðburðum
nánari skil í næsta blaði.
Mikil ástæða er til að hvetja
alla ærlega herstöðvaandstæð-
inga hvar i flokki sem þeir
kunna að leynast til að fjöl-
menna á baráttusamkomuna í
Sjallanum á sunnudaginn kem-
ur, kl. 15.00, svo hún geti orðið
upphaf að öflugu starfí SHA
hér á Akureyri.
Er rússneskir dónar með rassaköst skeiöa
og ræna og drepa og nauðga og meiða
Þá bjargast hin íslenzka alþýðupíka
því ameríski herinn mun vernda hana líka
- ö hó. aldrei að yíkja!
ræðu kvöldsins flytur Sigurður
Blöndal skógræktarstjóri, Reyk
dælir flytja leikþáttinn Gústi
Jónu Jóns eftir Véstein Lúð-
víksson, Jakobína Sigurðar-
dóttir segir frá 30. mars atburð-
unum á Austurvelli 1949, Ketill
Þórisson flytur ljóð, þá verður
sungið o.rn.il. Fram koma auk
heimamanna Jónas Árnason,
Stefán Jónsson og örn Bjarna-
son.
ára NATÓ-veru okkar á verð-
ugan hátt. Mikil baráttusam-
koma verður í Sjálfstæðishús-
inu, nk. sunnudag 1. apríl kl.
15.00. Þar verður flutt fjölbreytt
Þá mun skólafélagið Huginn
í M.A. í samvinnu við SHA
gangast fyrir sýningu í kjallara
Möðruvalla á myndlist, sem
tengist verunni í NATO og bar-
áttunni gegn hernum. Verður
Ísland úr Nató
- Herinn burt
AÖalfundur Iðju
Herða töh á hátehjumönnum
Dalvík.
Undirbúningur dagskrárinnar í
tilefni 30. mars hefur gengið
sæmilega. En horfið hefur verið
frá því að flytja baráttudag-
skrána 30. mars, því Leikfélag
Dalvíkur verður með frumsýn-
ingu það kvöld. Hestamanna-
félagið er svo með árshátíð sína
á laugardagskvöldið, svo ákveð
ið hefur verið að fresta baráttu-
dagskránni til 4. apríl. Fer held-
ur ekki illa á því, því sá dagur er
cinmitt stofndagur NATO.
Dágskráin mun verða eitt-
hvað á þessa leið: Að loknu
setningarávarpi verður farið
yfir sögu hersetu á íslandi, grip-
ið á helstu atriðunum og ofið í
með leik og söng. Þá flytur
Valdimar Bragason erindi og
síðan munu skáldin Birgir Sig-
urðsson og Guðlaugur Arason
lesa upp úrverkumsínum. Birg-
ir hyggst flytja nokkur ljóð í
anda samkomunnar og Guð-
HERINN BURT
Aðalfundur Iðju, félags verk-
smiðjufólks á Ákureyri, var
haldinn sl. sunnudag. NÓRÐ-
URLAND innti Jón Ingimars-
son formann Iðju eftir helstu
tíðindum af fundinum.
- Það er helst að við erum að
efla verkfallssjóðinn hjá okkur
og leggjum 2 miljónir kr. í hann
núna. Eins er um húsbyggingar-
sjóðinn, - við lögðum einnig 2
milj. í hann. Áður höfðum við
samþykkt 600 þúsund króna
veitingu í sundlaugarbyggingu
Sjálfsbjargar. Við höfum gert
mikið fyrir félagsheimilið okk-
ar að Brekkugötu 34; létum
breyta því í vor, mála það utan
og innan. Kostnaður nam tæp-
um 1 milj. og 700 þús. Rekstrar-
hagnaður allra sjóða félagsins
var yfir 28 miljónir króna, sagði
Jón að lokum.
Á aðalfundinum voru tvær
ályktanir samþykktar svohljóð-
andi:
„Aðalfundur Iðju félags verk
smiðjufólks á Akureyri haldinn
25. mars 1979 skorar á Alþingi
það er nú situr, að samþykkja
frumvarp til laga um breytingar
á tollskrá og fl. sem þingmenn-
irnir Friðrik Sóphusson, Árni
Gunnarsson, Ingvar Gíslason
og Kjartan Ólafsson flytja nú á
Alþingi. Telur fundurinn, að í
frumvarpinu felist mikil réttar-
bót fyrir iðnaðarframleiðsluna
í landinu, í þeirri hörðu sam-
keppni, sem ísienskur iðnaður
er i við innfluttar iðnaðar-
vörur.“ Seinni ályktunin um
stjórnmálaástandið: „Aðalfund
ur Iðju skorar eindregið á
stjórnarflokkana að jafna
ágreining sinn varðandi frum-
varp til laga um efnahagsráð-
stafanir, sem nú liggur fyrir
alþingi. Telur fundurinn að
Jón Ingimarsson.
engum launþega í landinu sé
greiði gerður með því að rjúfa
stjórnarsamstarfið og velta öllu
út í óvissuna. Að takast á við
verðbólguna með öllum raun-
hæfum aðgerðum, og með þeim
mætti, sem stjórnvöld ráða yfir,
það er besta kjarabótin fyrir
launafólkið í landinu. Hins veg-
ar telur fundurinn, að herða
beri tökin á hátekju- og stór-
eignamönnum, en hlífa í sama
mæli lægst launuðu stéttum
þjóðfélagsins við kjaraskerð-
ingu. Þegar sú staðreynd blasir
við, að opinber gjöld stórlega
hækka, þjónustugjöld marg-
faldast o.fl.,-sem ekki kemur
fram í vísitöluútreikningi, gefur
það auga leið, að þessar verð-
hækkanir koma lang þyngst
niður á láglaunafólki. Þetta
verður að stöðva. Þess vegna er
það skoðun fundarins, að halda
beri áfram stjórnarsamstarfinu
og vinna heils hugar að því að
tryggja fulla atvinnu og skapa
bærileg lífskjör verkafólks, ör-
yrkja og aldraðra á komandi
árum.“
í stjórn voru kosin:
Formaður: Jón Ingimarsson.
Varaform.: Hallgrímur Jónsson
Ritari: Höskuldur Stefánsson.
Gjaldkeri: Geirlaug Sigurjónsd.
Meðstj.: Ingiberg Jóhannesson.
Varastjórn:
Brynleifur Hallsson,
Barbara Ármans,
Hekla Geirdal,
Anton Jónsson.
Trúnaðarmannaráð:
Jón Laxdal,
Kjartan Sumarliðason,
Indriði Hannesson,
Bragi Sigurgeirsson,
Margrét Jónsdóttir,
Reginn Jóhannesson.
Varatrúnaðarmannaráð:
Áslaug Jónasdóttir,
Jóhann Sigurðsson,
Konráð Aðalsteinsson,
Herborg Herbjörnsdóttir.
LeihhúsráÖ
Komið hafa fram tillögur
hjá Leikfélagi Akureyrar
um að skipað verði leikhús-
ráð. Verða þessar tillögur
væntanlega lagðar fram á
aðalfundi félagsins sem
haldinn verður á næstunni.
Ef leikhúsráði verður kom-
ið á laggirnar ættu ítök
fastra starfsmanna leikhús-
sins í stjórnun og ákvarð-
anatöku að aukast. Gert er
ráð fyrir að ráðið verði
skipað 7 mönnum, þar af
einum fulltrúa frá Akur-
eyrarbæ.
Bæjarstjórn hefur sam-
þykt fyrir sitt leyti stofnun
leikhúsráðs og fallist á að
skipa fulltrúa í það.
BarnaáriÖ
Svo sem sagt var frá í síð-
asta NORÐURLANDI þá
var bæjarstjórnarfundur
haldinn sl. þriðjudag í til-
efni alþjóðaárs barnsins,
tileinkaður málefnum
barna hér í byggðarlaginu.
Hópur áheyrenda fylgdist
með fundinum. Bæjarfull-
trúar skiftu með sér verk-
um um framsögu á álits-
gerðum 8 starfsnefnda bæj-
arins um efnið. í lok fund-
arins var samþykkt ályktun
í 7 liðum.
Sjálfsbjörg
Efnt verður til hópferðartil
Harstad í Norður-Noregi
dagana 15.-24. júní á veg-
um Sjálfsbjargar Lands-
sambands fatlaðra. Áætl-
aður kostnaður er nú 110
þúsund. Eru þaðílugferðir,
flugvallaskattur, gisting í
skóla og ein máltíð á dag.
Nánari upplýsingar í félags
blaði sem er að koma út og
á skrifstofu félagsins í síma
21557.
Góður söngur
Gígjanna
Um síðastliðna helgi efndu
Gígjurnar til sinna árlegu
söngleika í Borgarbíói. Á
efnisskránni voru innlend
og erlend sönglög, eins-
konar sýnishorn af verk-
efnum kórsins á síðastliðn-
um árum. Áheyrendur
tóku söng Gígjanna með
kostum og kynjum, enda
margt snoturlega gert. Fyr-
irhuguð er plötuútgáfa með
söng Gígjanna nú í vor og
er óhætt að fullyrða, að
raddir þeirra eiga meira er-
indi á skífu en margra ann-
arra sem út í slíkt hafa far-
ið. Söngstjóri Gígjanna er
sem fyrr Jakob Tryggva-
son.
Rauði
Krossinn
Aðalfundur Akureyrar-
deildar Rauða Krossins
verður haldinn 5. apríl á
Hótel KEA. Fundurinn
hefst kl. 20.00. Stjórnin.
Feröafélag
Akureyrar
Gönguferð um Bíldsár-
skarð. Skíðaganga laugar-
daginn 31. mars kl. 13.00.
Einnig er völ á léttari
gönguferð. Upplýsingar á
skrifstofunni kl. 18.00 til
19.00 á föstudagskvöld. -
Sími 22720.