Norðurland - 05.04.1979, Side 5
Á Páskamótinu var keppt í hástökki. Hér er Gunnhildur á fullri ferð.
Frá Páshamóti Eíkar
Fáir vita að 16. maí í fyrra var
stofnað íþróttafélagið Eik,
íþróttafélag fyrir þroskahefta
hér á Akureyri. Margrét Rögn-
valdsdóttir íþróttakennari hef-
ur kennt íþróttir fyrir þroska-
hefta í íþróttahúsinu í Glerár-
hverfi.
í viðtali við NORÐUR-
LAND sagði Margrét, að hún
kenndi leikfimi þrjá daga í viku.
íþróttafélagið hefur staðið fyrir
því að haldið var jólamót og nú
síðast páskamót sl. helgi. Keppt
var í langstökki, hástökki og
knattkasti. Um fimmtíu manns
kepptu á mótinu, sem meðfylgj-
andi myndir eru frá. ÍSÍ sendi í
fyrravetur Styrktarfélagi van-
gefinna, og Foreldrafélagi
barna með sérþarfir bréf um
íþróttafélag þroskaheftra og
varð það kveikjan að stofnun
Eikar. Þetta er þriðji veturinn.
Keppendur voru íklæddir samlitum
íþróttabúningum merktum íþrótta-
félaginu.
sem kennt er í íþróttum við Sól-
borg.
Tilgangur íþróttafélagsins er
að efla útivist og íþróttaiðkanir
fyrir þroskahefta meðæfingum,
námskeiðum og keppni. Allir
sem þess óska geta orðið félagar
í Eik.
Keppendur á Páskamótinu
voru frá 9 ára fram á sextugs-
aidur. Allir keppendur fengu
verðlaunaspjöld, sem vöktu
mikla hrifningu. Stofnendur
íþróttafélagsins Eikar voru 85
taisins en félagarnir eru nú
orðnir um 100.
Rœkjutogari
Framhald af baksíðu.
um við bjartsýnir á góða lausn
uns kom til kasta pólitíkusanna.
Urðum við mjög undrandi á
ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
skipakaup."
Hvert verður svo framhaldið?
„Við munum ekki sætta okk-
ur við þessar niðurstöður fyrr
en í fulla hnefana þar sem atkv.
greiðslan stóð mjög glöggt.
Okkur skilst reyndar að málinu
hafi aftur verið vísað til sama
starfshóps og áður fjallaði um
það á vegum ríkisstjórnarinnar.
Við teljum mikla nauðsyn fyrir
áframhaldandi þróun í þessari
nýbreytni í íslenskum sjávar-
útvegi að stíga þetta skref,
þannig að gleggri mynd fáist af
þessum möguleikum sem hing-
að til hafa gefið góðar vísbend-
ingar. Því varðar það fleiri en
þetta fyrirtæki og hag þess að fá
þessum niðurstöðum breytt.“
Brynja.
Leikfímiæfingar í Glerárskólaíþróttahúsinu eftir tónlist.
IÞRÓTTIR!
Umsión:
Einar
Björns-
son
Fábrotið líf
Heldur var fábrotið iþrottalífið
hér á Akureyri um helgina. Einn
leikur fór fram í 1. deild kvenna
í Skemmunni. Þar áttu að sjálf-
sögðu í hlut Þórsstúlkurnar og
voru keppinautar þeirra stúlkur
úr Breiðabliki í Kópavogi.
En skemmst er frá því að
segja að Þórsliðið gjörsigraði
Breiðablik. í hálfleik voru Þórs-
stúlkurnar með 2 mörk yfir og í
seinni hálfleik rústuðu þær
stöllur sínar frá Kópavogi.
Lokatölurnar 17-8 Þórívilsýna
yfirburðina. Hanna Rúna Jó-
hannsdóttir var markahæst í
liði Þórs með 8 mörk. Þórsliðið
hefur með miklum baráttuviija
þokað sér af mesta hættusvæð-
inu á botninum og munu þær
örugglega verjast falli og er það
vel.
Ekki tókst eins vel til hjá
karlaliði Þórs um helgina.Þeir
biðu mikinn og þungan ósigur
fyrir KR í Reykjavík en alls
skoruðu KR-ingar 28 mörk
gegn 15 mörkum Þórsara. Með
sigri þessum gulltryggði Vest-
urbæjarliðið sér sigur í 2. deild.
Einnig er það nú fullljóst að
hvorugt Akureyrarliðið kemst
upp úr annari deildinni. En með
ósigri Þórs í Reykjavík voru
möguleikar KA algjörlega fyrir
bí. Þór VM fær hins vegartæki-
færi á aukaleik um 1. deildar-
sæti viðannaðhvort HK eða ÍR.
Leikhúsferð
Iðja félag verksmiðjufólks, hefur ákveðið að fara
ieikhúsferð til Reykjavíkur 20. apríl.
Fargjöld'og gisting ítvær nætur kr. 19.000.
Þeir sem iaka vilja þátt í þessari ferð hafi samband
við skrifstofuna, sími 23621 fyrir 10. apríl.
Stjórn Iðju
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Barnagæsla
Nokkur gæslukonustörf við barnaleikvelli Akureyr-
ar á komandi sumri eru laus til umsóknar.
Dmsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og sótt
námskeið í uppeldisfræðum eða hafa haldgóða
reynslu í barnauppeldi.
Skriflegar umsóknir skulu sendar til leikvalla-
nefndar, skrifstofum Akureyrarbæjar, fyrir 26. apríl
næstkomandi.
Nánari upplýsingar um störfin gefur Jón B. Arason í
sfma 21464. Leikvatlanefnd
PISTILL
VIKUNNAR
Karlremba eða
sósíalismi
Þreytubros færist yfir andlitið. Andvarp. „Æ, byrjar
hún enn!" Þetta eru viðbrögð sem margar konurkann-
ast við. Þau birtast gjarnan þegar jafnréttismál kynj-
anna eru viðruð við menn af karlkyni. Sérstaklega er
ankannarlegt þegar sósíalísk eyru reynast dumb gagn-
vart slíkri umræðu. Sósíalistar berjast fyrir jafnrétti
manna á meðal. Þar með hlýtur að teljast að menn af
andstæðu kyni skuli njóta sama réttará öllum sviðum.
Eru einhverjir sem halda því fram að svo sé? Hafa for-
dómar og ævagamlar hefðir blindað menn fyrir fárán-
leika þeirrar hlutverkaskiptingar sem kynferðið er látið
ráða? Sér fólk ekki hvernig auglýsingar og aðrir þjónar
peningaguðsins greypa menn í tvenns konar mót: karl
vill þetta - kerling hitt!
Erfitt er að setja samasemmerki milli sósíalista og
þess sem vill viðhalda kynjamisrétti. Jafn erfitt er að
ímynda sér sósíalista sem þátttakendur í hinum megt-
ugu karlaklúbbum þjóðfélagsins, Rotary, Lions og
hvað þeir nú allir heita. Líklega er hvergi jafn rækilega
og opinskátt undirstrikað að konur séu ekki af sama
sauðahúsi og karlar.
Svo er að skilja að klúbbar þessireigi aðfullnægjafé-
lagslegum þörfum. Menn hittast til að ræða spaklega
um hin merkustu þjóðþrifamál. Og slíkt er karla en eigi
kvenna. Form þessara klúbba er þó svo haganlega
sniðið að ekki er fyrir hvaða aukvisa sem er að gerast
þar gildur limur, þótt karlkyns sé. Vasapeningar verða
t.d. að hrökkva til reglubundinna hótelmáltíða, og ein-
hver tími verður að finnast frá vinnustreðinu.
Og hvar koma svo „betri helmingar" klúbbfélaga inn
í myndina? Auðvitað eru þær með í málverkinu. Sam-
eiginleg staða þeirra sem eiginkonur meðlimanna skal
tengja þær systraböndum. ,,lnnra hjólið", „Sinawik"
og aðrir fylgifískar karlaklúbbanna eru einhvers konar
sambland af skrautfjöðrum, þjónustuliði og samvisku-
yfirklóri. Þátttaka kvenna í klúbbastarfseminni ræðst
ekki af persónulegum áhuga þeirra eða þörf fyrir ein-
mitt þennan félagsskap. Þær eru þarna staddar sem
áhangendur eiginmanna sinna. Sem slíkar skulu þær
rabba um skrautblómarækt, snyrtingu og önnur
„kvenleg" viðfangsefni. Þegar karlarnir hvíla sig frá
umfjöllun „alvarlegra" málefna, fá eiginkvennaklúbb-
arnir þeirra að taka þátt í dansiböllum og öðru hoppi
og híi.
Engum ætti að dyljast að uppbygging þessara klúbba
flokkar menn eftir kynferði sem tvenns konar félags-
verur. Sú flokkun viðheldur og ýtir undir rótgróna hlut-
verkaskiptingu kynjanna í borgaralegu samfélagi.
Hlutverkaskiptingu sem sósíalistar og aðrir jafnréttis-
menn geta ekki viðurkennt. Þó ekki væri nema þessi
eini þáttur í eðli karlaklúbbanna, ætti hann að nægja til
að halda jafnréttiskörlum frá þátttöku í slíkri starfsemi.
Ósagt skal hér um menningarlegt gildi klúbbanna að
öðru leyti. Þar gætu þó sósíalísk augu örugglega greint
ýmsa vafasama þætti. Augun þau mættu reyndar vera
fránni þegar horft er yfir þá menningu sem við hrær-
umst í og tökum þátt í að móta.
Alþýðu-
leikhúsið
sýnir
Vatnsberana
eftir
Herdísi Egilsdóttur
Leikstjóri:
Þórhildur Þorleifsdóttir
Á Ólafsfirði laugardaginn
7. apríl kl. 15.00.
Á Akureyri sunnudaginn
8. apríl kl. 14.00og 1 6.00
Leikfélag
Akureyrar
Sjálfstætt fólk
eftir
HALLDÓR LAXNESS
Leikgerð og leikstjórn:
Baldvin Halldórsson.
Sýningar:
Föstudag, laugardag og
sunnudag kl. 20.30.
Aðgöngumiðasala opin dag-
lega frá 17.00-19.00 og til
kl. 20.30 sýningardagana.
Sími24073.
L. A.
NORÐURLAND - 5