Norðurland - 05.04.1979, Blaðsíða 6
NORÐURIAND
Fimmtudagur 5. aprfl 1979
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
í NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Síminn er 2-18-75 -
AUGLÝSIÐ I
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
- 1949 - 1979 -
Fundað gegn NATO
Um sl. helgi efndu herstöðva-
andstæðingar um allt iand til
baráttufunda í tilefni þrjátíu ára
áþjánar í NATÓ. Hér nyrðra
voru baráttufundir haldnir að
Breiðumýri og á Akureyri. Dal-
víkingar brugðu á það ráð að
fresta fundi til nk. sunnudags.
Samkomuna að Breiðumýri
sóttu hátt á annað hundrað
manns.þrátt fyrir erfiðar sam-
göngur víða í nágrenninu. Sig-
urður Blöndal skógræktarstjóri
flutti snjalla ræðu og Jakobína
Sigurðardóttir rakti í stórum
dráttum sögu andófsins gegn
herstöðvum og NATÓ hér á
landi. Jónas Árnason vakti upp
söng og las auk þess upp mar.g-
fræga sögu sína af „hattinum“
góða. Herstöðvaandstæðingar
úr Reykjadal sýndu leikþáttinn
Gústi Jónu Jóns, eða vandinn
að vera sjálfum sér samkvæm-
ur, grátt gaman í einum þætti
eftir Véstein Lúðvíksson. Ketill
Þórisson las ljóð og Hilmar
Hauksson söng baráttusöngva.
Auk þess var svo almennur
söngur undir stjórn Jónasar
Árnasonar. Stefán Jónsson
stjórnaði baráttufundinum af
röggsemi. Samkoman heppn-
aðist í alla staði mjög vel og bar
því glöggt vitni, að andstaðan
gegn hernum og NATÓ er víð-
tæk um Þingeyjarþing. Þetta er
í þriðja sinn sem herstöðvaand-
stæðingar í Mývatnssveit og
Reykjadal halda baráttusam-
komu 20. mars og hefur þátt-
takan aukist ár frá ári. Hafa
menn þar um slóðir á því fullan
hug að halda slíkar samkomur
svo lengi sem her er í landinu og
þjóðin bundin á klafa hernaðar-
bandalagsins.
Á Akureyri
Herstöðvaandstæðingar á Ak-
ureyri komu saman til baráttu-
samkomu í Sjálfstæðishúsinu
sl. sunnudag. Böðvar Guð-
mundsson, sem stjórnaði fund-
inum, setti samkomuna með
beinskeyttu ávarpi. Þá var sam-
erindi bæði að Breiðumýri og á
Akureyri um helgina.
Miðbæjarskipulagið
Skipulagsnefnd Akureyrarbæj-
ar hefur nú gengið frá tillögum
að miðbæjarskipulaginu. Nefnd
in varð sammála um að Hafnar-
stræti og Ráðhústorg verði
göngusvæði.
í tillögunni er gert ráð fyrir
gönguleiðum úr öllum íbúðar-
hverfum bæjarins til miðbæjar-
ins og þar gert ráð fyrir útivist-
arsvæðum. Ráðgert er að gjör-
breyta nokkrum svæðum,
þannig að gömul hús þurfa að
hverfa og ný að rísa. Nefndin
varð ekki sammála um 2 atriði
þ.e. um legu aðalumferðaræð-
arinnar Glerárgötu yfir Torfu-
nefsbryggjurnar á uppfyllingum
yfir á Drottningabraut. Minni
hlutinn, Tryggvi Gíslason og
Pétur Valdimarsson, vill halda í
bryggjurnar og sveigja götuna
lengra vestur. Einnig er ágrein-
ingur um hvort varðveita skuli
hluta húsalengjunnar frá Baut-
anum til óg með Böglageymslu
KEA. Verndunarmenn eru þar í
minnihluta, Helgi Guðmunds-
son og Tryggvi Gíslason. Til-
lögur skipulagsnefndar og val-
kostir minnihluta verða teknir
til 1. umræðu á bæjarstjórnar-
fundi nk. þriðjudag sem hefst
kl. 4 og er öllum opinn.
Agreiningur í ríkisstjórninni
Um rœkjutogara
Eins og kunnugt er af skrifum
Reykjavíkurblaðanna var sam-
þykkt í ríkisstjórn sl. fimmtu-
dag að leyfa kaup á tveimur
þorskveiðiskipum til landsins.
Á annað að fara til Suðurnesja.
Um leið var fellt (á jöfnum at-
kvæðum) að leyfa Söltunarfé-
lagi-Dalvíkur að kaupa rækju-
togara. Féllu atkv. þannig að
allir ráðherrar Alþ.bandalags
ásamt Steingrími Hermanns-
syni voru með tiltögunni en
aðrir á móti, þ.á.m. sjávarút-
vegsráðherra sjálfur. Benedikt
Gröndal var ekki á fundinum.
Blm. hafði samband við Jó-
hann Antonsson frkvstj. Sölt-
unarfél. Dalv. og spurði hann
um aðdraganda málsins. Sagði
Jóhann að þeir hjá Söltunar-
félaginu hefðu farið að athuga
kaup á rækjutogara sl. haust.
Þeir hefðu kynnt sér marga
togara og ýmsar leiðir í málinu.
„Það skip sem varð svo fyrir
valinu virtist okkur henta mjög
vel, sér í lagi með tilliti til fram-
leiðslu á Japansmarkað. Auk
þess bauðst skipið á hagstæðu
verði.“
Hvað er þetía stórt skip?
„Þetta er 436 tn togari sem
við hefðum keypt erlendis frá og
þarf ekkert að breyta. Við
Jóhann Antonsson.
hugsuðum okkur að láta Arnar-
borgina upp í kaupin, og var þar
tvennt sem okkur fannst mundi
mæla með að kaupin yrðu leyfð.
í fyrsta lagi hefur Arnarborgin
verið okkur erfið í rekstri,
annað það að fullyrða má að
hún færi til þorskveiða ef hún
yrði seld innanlands. Auk þess
hefur að undanförnu helst ekki
verið keypt skip til landsins
nema annað gengi upp í.
Við fengum meðmæli frá
starfshóp sem fjallaði um málið
á vegum ríkisstjórnarinnar.
Einnig var viðskiptabanki okk-
ar, L.Í., mjög jákvæður. Segja
má að embættismannakerfið
hafi því verið búið að leggja
blessun sína yfir kaupin, og vor-
Framhald á bls. 5.
Samlestur á fundinum á Akureyri.
lestur úr sögu og bókmenntum um það sem reynt var að gera.
flutt af Erlingi Sigurðarsyni, Þá skaust upp á yfirborðið út-
Svanhildi Jóhannesdóttur, Að- varpsmaður í Hafnarstræti og
alsteini Bergdal, Nönnu Jóns- spurði vegfarendur álits á her-
dóttur, Ingu Aradóttur og setu og kannaði hernám hugar-
Theódór Júlíussyni. Hilmar farsins, - þáttur í flutningi Ás-
Hauksson frá Húsavík flutti geirs Friðgeirssonar, Jóns
baráttusöngva. Ræðu dagsins Magnússonar, Auðar Odd-
flutti Tryggvi Gíslason skóla- geirsdóttur, Nönnu Jónsdótcur
meistari á glæsilegan hátt. Þór- Þormars Stefánssonar.
arinn Böðvar Leifsson, Guð- Kommagrýlan, leikþáttur í
brandur Siglaugsson og Hákon flutningi Birnu Gunnlaugsdótt-
Leifsson fluttu ljóð til amerískr- ur og Arnheiðar . Ingimundar-
ar menningar, sem lauk á tákn- dóttur varsíðastidagskrárliður.
rænan hátt með fórn til Tyggi- Samkomunnjvar svo slitið með
guðsins. Jakobína Sigurðar- fjöldasöng. Á annað hundrað
dóttir skáld frá Garði flutti manns sóttu fundinn.
minningar um 30 ára stríðið,
Andófið í list
Skólafélagið Huginn og Her-
stöðvaandstæðingar munu opna
myndlistasýningu laugardaginn
7. apríl í kjallara Möðruvalla.
Myndirnar eru tileinkaðar
þjóðfrelsisbaráttunni og gegn
hernaðarbrölti yfirleitt. Lista-
mennirnir eru flestir Akureyr-
ingar en þrír að sunnan. Ein
mynd er eftir Elísabetu Geir-
mundsdóttur listkonu, sem lést
árið 1959. Aðrir listamenn eru:
Helgi Vilberg, Guðmundur
Ármann Sigurjónsson, Hall-
mundur Kristinsson, Bryndís
Kondrup, Guðbrandur Sig-
laugsson, Sigurður Þórir
Sigurðsson, Kristján Kristjáns-
son og Friðrik Þór Friðriksson.
í Dimbilviku er svo Ijósmynda-
sýning úr sögu hernámsins og
Natóaðildar væntanleg til
Akureyrar. Sú sýning vakti
mikla athygli á dögunum á
Kjarvalsstöðum og á ísafirði.
Afengisvandamálið
Hafin er starfsemi ráðgjafamið-
stöðvar á vegum Samtaka
áhugafólks um áfengisvanda-
málið. Með þessari starfsemi
hyggjast SÁÁ efla starf á vett-
vangi áDngisvarnarmála á
Norðurlandi og auðvelda íbú-
um þessa landshluta að fá upp-
lýsingar auk þess að aðstoða
áfengissjúklinga og aðstand-
endur þeirra, sem vilja notfæra
sér meðferðarkerfi þeirra stofn-
ana er fást við áfengisvanda-
málið.
Að öðru leyti yrðu verkefni
fyrirhugaðrar ráðgjafamið-
stöðvar á Akureyri þau, að lögð
yrði megináhersla á beina ráð-
gjöf við áfengissjúklinginn og
aðstandendur hans, útvegun
vistrýmis á meðferðarstofnun-
um, móttaka sjúklinga er sneru
til baka af slíkum stofnunum og
kynning á starfi AA deilda
þeim til handa. Enfremurerfyr-
irhugað að efna til námskeiðs
fyrir fjölskyldur áfengissjúkl-
inga, sinna fræðslu - og fyrir-
byggjandi starfi m.a. með
fræðslu í skólum og á vinnu-
stöðum.
Skrifstofan verður starfrækt í
samvinnu við Félagsmálastofn-
un Akureyrar, en bæjaryfirvöld
á Akureyri hafa sýnt þessu máli
sérstakan áhuga og skilning.
Ráðgjafamiðstöðin verður í
húsnæði Félagsmálastofnunar
Akureyrar Geislagötu 5, 3. hæð,
og verður opin mánud., mið-
vikud. og föstud. frá kl. 16-18.
Síminn er 25880. Magnús Jóns-
son klæðskeri mun veita skrif-
stofunni forstöðu.
Vatnsberamir
Sunnandeild Alþýðuleikhúss-
ins hefur verið á leikferðalagi
síðustu vikur, um Vesturland,
Vestfirði og nú um Norðurland.
Leikritið, sem landsmenn eiga
nú kost á að sjá og upplifa í
dreifbýlinu, er Vatnsberarnir
eftir Herdísi Egilsdóttur.
Það er ætlað börnum, þótt
allir megi hafa ánægju af. Leik-
stjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir en leikmynd og búningar
eru eftir Þórunni Sigríði Þor-
grímsdóttur. Leikendur eru
Anna S. Einarsdóttir, Ása H.
Ragnarsdóttir, Þröstur Guð-
bjartsson, Emil Guðmundsson
og Einar Einarsson. Sýnt var á
Siglufirði á miðvikud., en í
kvöld er áformað að sýna í
Hrafnagilsskóla, á Ólafsfirði á
laugardag, en á sunnudaginn
verða sýningar kl. 2 og 4 á Ak-
ureyri. Leikritið hefur verið
Anna S. Einarsd. og Þröstur Guð-
bjartsson í hlutverkum sínum.
sýnt við frábærar undirtektir í
fjölmörgum skólum á höfuð-
borgarsvæðinu. Sýningarnar á
Akureyri verða 102. og 103.
sýning á Vatnsberunum.
Ólafur brást
Dagur á Akureyri segir frá
því sl. fimmtudag, að
Reykjavíkurblöðin haldi
því fram, að formanna-
skipti verði í Framsóknar-
flokknum. Um það segir
Dagur: „Hvergi sýnist
þetta þó staðfest og ekki er
það líkt Ólafi Jóhannes-
syni, að ganga frá borði frá
óleystum verkefnum." Nú
hefur það samt sem áður
gerst að Steingrímur
Hermannsson er orðinn
formaður þess, sem leyfir
af Framsóknarflokknum..
Þannig hefur Óli Jóh.
brugðist Degi og sjálfsagt
Dagur flokknum.
AB Húsavíh
Alþýðubandalagið á Húsa-
vík hélt félagsfund sl. laug-
ardag. Á fundinn komu
Stefán Jónsson og Jónas
Árnason, en þeir höfðu ver-
ið á baráttusamkomu her-
stöðvaandstæðinga að
Breiðumýri kvöldið áður.
Fjallað var almennt um
stjórnmálaástandið í land-
inu. Efnahagsmálafrum-
varpið var þeim Stefáni og
Jónasi ofarlega í huga.
Sögðu þeir frá tildrögum
þess og samkomulagsins,
sem nú hefur náðst. Fund-
urinn, sem boðaður var
með skömmum fyrirvara
var nokkuð fjölmennur.
Samningar
tóhust
Svo sem sagt var frá í síð-
asta NORÐURLANDI
stóð fyrir dyrum verkfall
röntgentækna á Fjórðungs
sjúkrahúsinu á Akureyri sl.
sunnudag. Ensamkomulag
tókst á laugardaginn sl.
Röngentæknar miðuðu
kröfur sínar við launakjör
meinatækna, sem taldireru
vinna hliðstæð störf. Kjara
samninganefndin, sem
skipuð er fulltrúum bæjar-
ins og STAK, Starfsmanna
félagi Akureyrarbæjar, var
sammála að leiðrétta laun
röntgentækna til samræmis
við fyrrnefnd launakjör
meinatækna. Samkomu-
lagið gildir frá 1. janúar
1978 tii 30. júní nk.'
„Grísirnir“
suður
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri bregður undir sig
betri fætinpm um næstu
helgi. Þrjátíu manna hópur
ekur til Reykjavíkur á föstu
daginn til að bjóða sunn-
lendingum að skoða norð-
lenska leiklist.
L.M.A. sýnir nýjasta
verk Böðvars Guðmunds-
sonar „Grísir gjalda, gömul
svín valda“ í áttunda og
síðasta sinn á Akureyri í
kvöld. Aðsókn hefur verið
ágæt og hljóð í áhorfendum
gott.
Grísirnir verða á fjölum
Félagsheimilis Kópavogs
nk. laugardags-, sunnu-
dags- og mánudagskvöld.
Ferðafélag
Ahureyrar
Húsavík, vetrarferð með
viðkomu í leikhús. Brott-
för laugardag 7. 4. kl. 2.
Aukaferð Glerárdalur -
Skíðaganga - sunnudag
8.4. kl. 10 fh. Þátttökutil-
kynningar föstudag kl. 6-7.