Norðurland - 10.05.1979, Síða 4
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Skólagarðar
Skólagarðar Akureyrar verða starfræktir í sumar fyrir
börn á aldrinum 10-12 ára.
Garðarnir eru staðsettir í Glerárhverfi og í gömlu
Gróðrarstöðinni.
Innritun fer fram a Vinnumiðlunarskrifstofu Akur-
eyrar í síma 24169.
GARÐYRKJUSTJÓRI.
AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR ■
Vinnuskóli
Vinnuskóli Akureyrar verður strafræktur í sumar.
Unglingar á aldrinum 13-15 ára, sem áhuga hafa á
vinnu eru beðnir að láta skrá sig fyrir 15. þ.m.
Skráning fer fram á Vinnumiðlunarskrifstofu Akur-
eyrar að Brekkugötu 4.
GARÐYRKJUSTJÓRI.
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Olíustyrkur
Greiðsla olíustyrks fyrir mánuðina janúar-mars 1979
hefst á bæjarskrifstofunni mánudaginn 7. maí og lýk-
ur þriðjudaginn 15. maí næstkomandi.
Bæjarskrifstofan er opin frá kl. 10.00 til 15.00 dag-
lega frá mánudegi til föstudags.
Akureyri, 2. maí 1979.
Bæjarritari.
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Garðlönd
Þeir aðilar, sem hafa haft garðlönd til leigu, eru
beðnir að borga leigugjald fyrir 16. maí. Að öðrum
kosti verða garðlöndin leigð öðrum.
Greiðslu veitt móttaka á skrifstofu bæjargjaldkera.
GARÐYRKJUSTJÓRI.
Læknaritari
óskast á Handlækningadeild F.S.A. frá 1. júní 1979.
Góð vélritunar- og móðurmálskunnátta eru skilyrði.
Æskilegt að umsækjandi geti skrifaðeftirsegulbandi
eitt Norðurlandamál og Ensku eða Þýzku, auk ís-
lenzku.
Skriflegar umsóknir ásamt meðmælum og upplýs-
jngum um fyrri störf sendist til læknafulltrúa Hand-
ækningadeildar, Handlækningadeild F.S.A., 600
• Ur^y„ri’ sem e'nni9 veitir upplýsingar um starfið í
sima 96-22100.
ORÐSENDING
til Iðjufélaga
Orlofshús verða leigð í sumar frá 8. maí.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
STJÓRNIN.
ORLOFSHÚS
Frá og með mánudeginum 14. maí hefst útleiga á
orlofshúsum neðanskráðra félaga vegnasumarmán-
aðanna. Húsin eru leigð til viku í senn og ber að
greiða vikuleiguna við pöntun á húsunum. Til 19. maí
hafa þeir félagsmenn, sem ekki hafa áður fengið
orlofshús á leigu, forgangsrétt til leigu á þeim í
sumar.
Sjómannafélag Eyjafjarðar, Skipagötu 12, Akureyri.
Félag verslunar- og skrifstofufólks, Brekkugötu 4.
Sveinafélag járniðnaðarmanna, Brekkugötu 4.
Verkalýðsfélagið Eining, Skipagötu 12,
og skrifstofur deilda.
Ljósameistari
Staða Ijósameistara hjá Leikfélagi Akureyrar er laustil
umsóknar. Hluti af vinnuskyldu fælist jafn framt í
öðrum störfum. Til greina kæmi ráðning í hlutastarf.
Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Upplýsingar í síma 24073 og 22668.
LEIKFÉLAG AKUREYRAR.
* .............. .........
ÚTSALA
Útsala verður í Saumastofu Magnúsar, Kaup-
angi, efri hæð, 15., 16., 17. og 18. maí.
Seldar verða eldri framleiðsluvörur.
Góðar vörur, gott verð.
Saumastofa Magnúsar
Kaupangi
Lífeyrissjóður
trésmiða
auglýsir eftir umsóknum sjóðsfélaga um fasteigna-
veðslán úr sjóðnum, sem veitt verða í sumar.
Umsóknum þarf að skila fyrir 22. maí.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrif-
stofu sjóðsins, Hafnarstræti 107, mánud.-föstud. kl.
11.00-12.00.
Stjórn lífeyrissjóðs trésmiða.
----------- ......................................
Sement í
Krossanesi
Skipulagsnefnd hefur sam-
þykkt fyrir sitt leyti að Sements-
verksmiðja ríkisins fái lóð í
Krossanesi til að byggja á
móttökustöðvar fyrir laust
sement. Verður þar um að ræða
sementsgeyma, pökkunarstöð,
sementsleiðslu frá skipi o.fl.
Samþykkt skipulagsnefndar er
því háð að hreinsi- og öryggis-
útbúnaður verði nægilegur til
að koma í veg fyrir mengun.
Á fundi forsvarsmanna
Krossanesverksmiðjunnar,
hafnarstjórnar o.fl. embættis-
manna var búið að fjalla um
þessar umsókn Sementsverk-
smiðjunnar. Niðurstaða fund-
arins var sú að í Krossanesi væri
eini núverandi möguleikinn fyr-
ir þessa starfsemi ef ekki ættu að
koma til stórfelld fjárútlát af
hálfu bæjarins.
Er þess vænst að þessi
aðstaða fyrir sementsflutninga
hafi veruleg áhrif til lækkunar
kostnaðar í byggingariðnaði
bæjarins. Eða réttara væri e.t.v.
að segja að hún muni draga úr
hækkunum.
Teikningum
synjað
Bæjarstjórn Akureyrar staðfesti
á síðasta fundi sínum synjanir
bygginarnefndar á tveimur til-
löguteikningum af raðhúsum.
Er þessi afgreiðsla athyglis-
verð að því leyti að þarna fá að
ráða fegurðarsjónamið í sam-
bandi við útlit íbúðarhúsa-
hverfa
Fyrr í vetur voru samþykktir
byggingarskilmálar þar sem viss
ákvæði eiga að stuðla að meiri
fjölbreytni í gerð raðhúsa í þeim
tilgangi að skapa fegurra um-
hverfi í bænum. í ofangreindum
teikningum var sumum þessara
ákvæða ekki fullnægt. Átti t.d.
annað raðhúsið að verða milli
70 og 80 m. húsalengja. Er erfitt
að ímynda sér að slíkt fyrirbæri
auki mönnum augnayndi.
r "" ' ' " '"
Sýning i
Möðru-
valla-
kjallara
Félag áhugaljósmyndara í
MA (FÁLMA) stendur
fyrir ljósmyndasýningu að
Möðruvallakjallara, sem
opnuð verður nk. föstu-
dag. Hér er á ferðinni
sýning samtaka fréttaljós-
myndara, sem var í Nor-
ræna Húsinu nú á dögun-
um. Sýningin er opin um
heigina frá 1-10 laugard.
og sunnudag, en til mið-
vikudagskvölds frá 20.00 til
22.00.
L
Tumi skrifar
Framhald af baksíðu.
efni verið meira spennandi en
þetta, en ekki verður annað sagt
en að aðstandendur hafi staðið
sig mjög vel, miðað við efni og
ástæður. Tónleikarnir voru
langir og oft á tíðum leiðin-
legir, og náttúrulega alls ekki
nógu vandaðir, þótt fyrir kæmu
falleg móment öðru hvoru.
Mikið vantaði á að þessir tón-
leikar stæðust einhverja sam-
keppni við hina tvo. En æfing-
artíminn var stuttur, svo við
skulum fara varlega í allar sak-
fellingar Tumi minn.
Með von um eilíft sumar í
tónlist Akureyringa.
4 - norðurland
Tumi.