Norðurland - 10.05.1979, Page 6
NORÐURIAND
Fimmtudagur 10. maí 1979
Tumi Leifs
skrifar
Það er að verða einskonar hefð
á íslandi, að fagna hækkandi
sólu og komandi sumri með ein-
hverju menningarafreki, fylleríi
eða tilhuganalífi. Síðast nefnd-
ur faktor hefur all lengi verið
iðkaður. Eitt menningaruppá-
tækið í þessum tilgangi voru
Tónlistardagarnir hér í bænum
27.-29. apríl. En dagarnir voru
því miður of snemma í því, rétt
einsog lóan, sem sást fyrir sunn-
an um daginn, alein, skælandi á
öðrum fæti í túninu fyrir utan
Stjórnarráðið.
Framkvæmd daganna var
góð, og var flest reynt til þess að
tæla fram vorið, en norðan
skafrenningurinn kyrrsetti and-
skoti marga heima við skjáinn,
svo maður varð þeirra „hvergi“
var.
Fyrsta dag Tónlistardaganna
kom Sinfóníjuhljómsveit fs-
lands að sunnan með vel unnið
og skemmtilegt prógramm.
Dagskrána prýddu verk eftir þá
parrukkkallana Handel og
Mozart (og enn einn þýsku-
mælandi) Kapelmeistarann
Gustav Mahler, sem var uppi á
öndverðri síðustu öld og lifði
rétt fram á þessa.
Siegfried Kahlmann, söng
einsöng með hljómsveitinni, í
Exultate Iubilate eftir Mozart
og þá fjórðu symfóníju Mahl-
ers. Hún stóð sig með mikilli
prýði, miðað við það að hún átti
við þrælerfitt prógramm að
etja. Stjórnandinn, Soudant,
var mjög athyglisverður. Laust
hann sprotanum svo fagmann-
lega á hljómsveitinni, að hann
töfraði fram glitrandi og marg-
lit augnablik svo að ég þessi
leiðslulausa bæjarmús varð
hreint uppnuminn.
Töfrabrögð stjórnandans virt
ust fyrst og fremst felast í ótrú-
lega næmum og skýrum hraða-
breytingum, sem drógu fram
hina ólíku tónheima sem Mahl-
er fjallar um. Mahler kemur
víða við. Hann slær fram göml-
um þýskum bændaslögurum,
(alþýðutónlist), fer útí geggjað
drama, og bregður fyrir sig
í fiskvinnu
Yfirvinnu-
bann
Að undanförnu hefur Verka-
lýðsfélagið Eining látíð fara
fram könnun á því á stærri
vinnustöðum á félagssvæðinu,
hver hugur verkafólks væri til
þess, að sett yrði á helgarvinnu-
bann í sumar, mánuðina júní,
júlí og ágúst.
Niðurstöður könnunarinnar
urðu þær, að í fiskiðnaði, en þar
hefur yfirvinna verið langmest
að undanförnu, reyndist yfir-
gnæfandi meirihluti verkafólks-
ins fylgjandi yfirvinnubanni og
á mörgum vinnustöðum allt
starfsfólkið. Á öðrUm vinnu-
stöðum en í fiskiðnaðinum
reyndust skoðanir mun skiptari
og sumsstaðar flestir eða allir
mójfallnir helgarvinnubanni.
Á fundi trúnaðarmannaráðs
Einingar, sem haldinn var 5.
þ.m. var svo í framhaldi af
könnun þessarri ákveðið að
setja á helgarvinnubann í fisk-
vinnslu mánuðina júní, júlí og
ágúst, en samkvæmt því skal
ekki unnið í fiskvinnslunni á
laugardögum né sunnudögum
þessa mánuði. Óákveðið erenn,
hvað verður á öðrum vinnu-
stöðum.
MÁLGAGN SÓSÍALISTA GERIST
INORÐURLANDSKJÖR- ÁSKRIFENDUR
DÆMI EYSTRA - Síminn er 2-18-75 -
AUGLYSIÐ I
NORtiURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
Vorboðinn Ijúfi
- umsögn um tónlistardagana
Vínar klassísku yfirbragði, eins-
og skrattinn úr sauðarleggi, svo
ekki verð ég hissa þótt Akur-
eyringum þyki tónlistin æðis-
gengin við fyrstu áheyrn.
Soudant, prikhaldaranum tókst
frábærlega að halda þessum
ólíku tónheimum hreinum og
tærum, hverjum fyrir sig, án
þess að samhengið brenglaðist.
Mahler var fullkomlega ljóst
um þessar miklu sviðsskipting-
ar í tónlist sinni, og má því segja
að viss samhljómur hafi verið
með Soudant og Mahler þetta
kvöld. I concerto grossó fyrir
strengi, eftir Handel tókst
stjórnandanum að gera tónlist-
ina blæbrigðaríka og að spenn-
andi heimi, en ekki að einhverri
trumpurumpurumprump múss-
ík, sem barokk verður svo
gjarnan ef sköpunargleðin er í
lágmarki.
Á laugardaginn, talsvert upp-
úr hádegi, svona þegar all flest-
ar fyllibyttur bæjarins voru
skriðnar fram úr, þá spiluðu
þær Manúela Wiesler og Helga
Ingólfsdóttir, alveg einsog guðs
eigin englar í stærsta guðshúsi
bæjarins, Akureyrarkirkju. Þær
voru án efa með lang skemmti-
legasta prógrammið á Tónlitft-
ardögunum. Það var samsett af
verkum eftir gömlu Barrokk-
meistarana Bach, Hándel og
Quants, í mjög smekklegu ívafi
við nýrri verk eftir þá, Hovland,
Jolivet, Atla Heimi og Leif
Þórarinsson. Þær skutlurnar
voru oft á tíðum ekki feimnar
við að venda sér úti dramatíska
tjáningu, sem gaman var að
heyra í jafn hefðbundinni tón-
list og Barrokkinu. Þær fluttu
sitthvort sóló verkið, Helga
„Frumskóga“ fyrir sembal eftir
Atla Heimi, snoturt og skema-
tískt verk, þótt oft hafi borið á
meiri brillíjans hjá Atla. Manú-
ela flutti Meinlæti Jolivets fyrir
sóló flautu, sem verður fallegra
og fallegra við hverja áheyrn.
Þær stöllur fluttu einnig verk
eftir einn staðarbúa Leif Þórar-
insson. Mjögfallegt verkfluttaf
mikilli list.
Tónlistardögunum lauk svo á
tónleikum með Passíjukórnum
og Sinfóníjunni, þar sem fluttar
voru Árstíðir Haydns fyrir kór,
hljómsveit og einsöngvara (fleir
tala). Og hvergi sást vorið.
Vissulega hefði margt viðfangs-
Manúela Wiesler.
Helga Ingólfsdóttir.
Framhald á bls. 4.
Hneykslaðir á skaparanum
Að sögn Hjartar E. Þórarins-
sonar á Tjörn í Svarfaðardal,
eru bændur þar orðnir hneyksl-
aðir á skaparanaum. Sauðburð-
ur er hafinn og gengur vel, nema
hvað gífurlegir erfiðleikar fylgja
því að þurfa að hafa allt fé í
húsum.
Bændur búa sig undir lang-
varandi basl og að þurfa að
gefa að minnsta kosti fram í
miðjanjúní, þarsemengarlíkur
eru á að neinn gróður verði
kominn fyrir þann tíma. Menn
eru þó æðrulausir og treysta því
að með miðlun verði nóg hey
fram til þess tíma. Augljóst er
að heyskapur mun byrja seint
og lítil hey verða, þó mun reynt
að bæta það eitthvað upp með
áburði. Virðist sem æðri mátt-
arvöld hafi hér tekið mið af
samþykktum bændafunda og
vilja stjórnvalda, því óneitan-
lega boðar slíkt vor samdrátt í
haust. Að sögn Hjartar er þetta
óvenju hart vor og þögult, því
lítið heyrist í vorfuglum enn sem
komið er, og menn leita allt
aftur til 1949 til að finna
hliðstæðu. En þó kvað hann of
snemmt að spá endanlega um
vorið, því ef fljótlega kæmu
hlýindi mundi allt breytast til
betri vegar.
Svanfr.
Hjörtur E. Þórarinsson.
Mjólkurframleiðendum fcekkar
Aðalfundur Mjólkursamlags
KEA var haldinn í Samkomu-
húsinu á Akureyri mánudaginn
7, maí 1979 og hófst hann kl. 13.
Formaður kaupfélagsstjórnar,
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn,
setti fundinn, en fundarstjórar
voru kjörnir Birgir Þórðarson,
Öngulsstöðum, og Þóroddur
Svo sem kunnugt er, ber
kaupmönnum að verðmerkja
vöru, sem höfð er til sýnis í
búðargluggum verslana. Kveð-
ið er þannig á um þetta í
reglugerð með lögum, að nierk-
ingin skuli vera skýr og greini-
leg, svo auðvelt sé fyrir viðskifta-
menn að lesa á verðmiðana. I
nýútkomnu fréttabréfi Neyt-
endasamtakanna á Akureyri
segir frá könnun þeirra á þessu
atriði:
„Neytendasamtökin könn-
uðu nýverið verðmerkingu í
gluggum 30 verslana í miðbæn-
um.
Af þeim 30 höfðu 14 mjög
Hermannsson, Kambsstöðum,
og fundarritarar Halldór Jóns-
son, Jarðbrú, og Árni Her-
mannsson, Ytri-Bægisá. - Á
fundinn mættu um 150
mjólkurframleiðendur.
Innlagt mjólkurmagn var
24,887.285 lítrar og hafði aukist
um 974.611 lítra eða 4,07% frá
góða verðmerkingu (90-100%),
6 höfðu nokkuð góða (60-90%),
2 höfðu sæmilega (um 50%), en
8 höfðu litla eða enga verð-
merkingu. Mjög voru merking-
ar þessar misjafnar, sumar voru
mjög skýrar og með stóru letri,
aðrar voru smáar og jafnvel
upplitaðar eða svo illa komið
fyrir að þær urðu ekki greindar,
nema skoðandinn viðhefði fett-
ur og brettur.
Það má kallast merkilegt, að
nærri þriðjungur búðareigenda
í framangreindu úrtaki skuli
hafa ákvæði um verðmerkingu
að engu, því hún hlýtur að vera
báðum til hægðarauka, kaup-
anda og seljanda.“
fyrra ári. 97,65% mjólkurinnar
fór í I. fl. Meðalfitumagn
mjólkurinnar var 4,075%.
Mjólkurframleiðendur 1978
voru 293 að tölu og hafði
fækkað um 10. Meðalinnlegg á
mjólkurframleiðanda var 84.
939 lítrar. 20% mjólkurinnar
var seld sem neyslumjólk en
80% fór til framleiðslu á ýmsum
mjólkurvörum. Á árinu 1978
var framleitt:
605 tonn smjör
934 tonn ostur af ýmsum
tegundum
61 tonn mysuostur og mysingur
158 tonn skyr
193 tonn kasein
30 tonn youghurt
Birgðir smjörsins um síðustu
áramót voru 494 tonn.
Fram kom af reikningsyfir-
liti, að heildarverð til framleið-
enda varð kr. 136,11 fyrir hvern
lítra af innlagðri mjólk, að
frádregnum kr. 4,28 í verðmiðl-
unargjald. Náðist þannig stað-
argrundvallarverð.
Haraldur Hannesson, Víði-
gerði, var endurkosinn í sam-
lagsráð og sem varamenn þeir
Haukur Steindórsson, Þríhyrn-
ingi, og Arnsteinn Stefánsson,
Stóra-Dunhaga.
Hundsa reglur
Allt
heekkar
Gjaldskrá Rafveitu Akur-
eyrar hækkaði um 23% frá
og með 8. maí sl. Ekki er
um neina tilfærslu á milli
liða að ræða þannig að allir
liðir rafmagnssölunnar
hækka um sömu prósentu-
tölu.
Hækkun þessi er bein af-
leiðing þeirrar 30% hækk-
unar sem iðnaðarráðuneyt-
ið heimilaði raforkufram-
leiðendum frá og með 1.
maí.
Laugaskóli
Kennarar við Héraðsskól-
ann að Laugum í Suður-
Þingeyjarsýslu hafa samið
kynningarrrit um nám og
félagsstarfsemi innan skól-
ans. Bæklingurinn er hinn
ítarlegasti. Að Laugum er
starfræktur grunnskóli og
framhaldsdeildir. I bækl-
inginum er birt yfirlit yfir
skiptingu kennslustunda
milli námsgreina á fyrsta
ári framhaldsskóla og getið
um þær námsbrautir sem
verða starfræktar, fáist
næg þátttaka. Umsóknir
um skólavist þurfa að ber-
ast fyrir 10. júní.
Þröstur
skrifar í
Danmörku
Þröstur Haraldsson, sem
ritstýrði NORÐUR-
LANDI í fyrra er nú blaða-
maður við danskt vikublað
á vinstra væng. Það heitir
Arhus Folkeblad og er gef-
ið út í Árósum eins og nafn-
ið gefur til kynna. I síðasta
tölublaði þess er ítarleg
grein eftir Þröst um þrjátíu
ára Nato kvöð íslenskrar
þjóðar, ágrip af sögu and-
ófsins gegn hernáminu og
lýsing á ástandinu í dag.
Grein félaga Þrastar lýkur
með þessum orðum: „Um
það er nú rætt að Sha
(Samtök herstöðvand-
stæðinga) eigi að setja fram
kröfu um þjóðaratkvæða-
greiðslu um framtíð her-
stöðvarinnar. Sú krafa er
komin frá vinstri armi
hreyfingarinnar, en hæg-
fara öfl innan Alþýðu-
bandalagsins (arftaka
sósialistaílokksins) óttast
að ósigur 1 þjóðaratkvæða-
greiðslu muni þoka andófs-
mönnum úr pólitísku sviðs-
ljósi svo árum skipti.“
Neytenda-
samtökin
Neytendasamtökin Akur-
eyri og nágrenni.
Skrifstofan, Skipagötu
18, 2. hæð, er opin á
þriðjudögum og miðviku-
dögum kl. 4.00-6.00 e.h.
Sími 24402.
Ferðafélag
Akureyrar
Möðrufellshraun. Göngu-
ferð sunnudaginn 13. maí
kl. 1 e.h. Þátttaka tilkynn-
ist milli kl. 6 og 7 á laugar-
dag í síma 22720.