Norðurland - 17.05.1979, Síða 5
Til minningar
um Júlíus
Bogason
Nýlokið er skákmóti til minning-
ar um Júlíus Bogason. Keppend-
ur voru 12 og tefldu þeir 7 umf.
Úrslit urðu þau að sigurvegari
varð Margeir Steingrímsson,
sem vann allar sínar skákir og
hlaut 7 vinn.
Annar varð Þór Valtýsson
með 5‘/2 vinn. og þriðji Níels
Ragnarsson með 4'á vinn. Einn-
ig var keppt í unglingaflokki og
voru þar 8 keppendur. Bogi
Eymundsson varð efstur með 7
vinn., annar Hörður Guðmunds
son með 6 vinn. og þriðji Ey-
mundur Eymundsson með 4
vinn.
Nú er að mestu lokið 1. deild-
arkeppninni í skák. Taflfélag
Reykjavíkur sigraði, hlaut 42
vinn., nr. 2-3 Skákfélag Akur-
eyrar og Mjölnir Reykjavík með
32 vinn. en Skákfélag Akureyr-
PISTILL
VIKUNNAR
Helgi
Ólafsson
Síðasta laugardag var knetti
fyrst spyrnt í 1. deild á þessu ári.
Þá áttust við Knattspyrnufélag
Akureyrar og Haukar frá Hafn-
arfirði. En sem kunnugt er lædd-
ust Haukarnir fram úr Þórsurum
á lokaspretti annarar deildarinn-
ar í fyrra.
Leikurinn fór fram á hinum
margrómaða knattspyrnuvelli
sem stendur við gosdrykkja-
verksmiðjuna SANA. Þegar
leikur þessi hófst, blés ekki byr-
lega til knattspyrnuiðkunar.
Þrútið var loft og þungur sjór og
allt hafði það auðvitað áhrif á
keppendur jafnt sem áhorfend-
ur. KA strákarnir léku í fyrri
hálfleik á móti sterkri suðaustan
golu sem bar með sér ljúfa
sjávarangan enda stendur völl-
urinn eigi alllangt frá flæðar-
málinu. KA drengirnir léku af
skynsemi í fyrri hálfleik og
Ncestu leikir
Fyrsta leik Þórs í annari deild
íslandsmótsins í knattspyrnu sem
átti að vera gegn Þrótti Neskaup-
stað var frestað. Var það einkum
vegna tregra flugsamgangna og
vafasamt er hvort veðurguðirnir
hefðu gefíð sitt leyfí til að leika
þennan leik hér fyrir norðan.
Leikur þessi verður sennilega
á dagskrá á þriðjudag eða mið-
vikudag (þ.e. þegar blaðið fer í
prentun). KA liðið fær nú smá
pásu og veitir sennilega ekkert
af henni til að brynja menn sína
enn frekar til baráttu. Þeirra
næsti leikur fer fram á Akranesi
þann 26. þessa mánaðar. Með
sigri í þeim leik halda þeir von-
andi sínum sess sem efsta lið
deildarinnar.
Áhorfendastæðin á leikvanginum við SANA. Þetta frumlega áhorfendaskýli
gaf góða raun á laugardaginn.
reyndu að halda boltanum niðri
og léku þeir mun betri knatt-
spyrnu heldur en Haukarnir.
Sérstaklega var vörnin traust
með Einar Þórhallsson sem
besta mánn. Einar er mikill
varnarstólpi og einnig hættu-
legur upp við mark andstæðing-
anna og mun það örugglega
koma betur í ljós eftir því sem á
líður.
Þégar u.þ.b. 10 mín voru til
loka fyrri hálfleiks opnaðist
stórt gat i varnarvegg Hauk-
anna. Hinn ungi og efnilegi
Njáll Eiðsson var fljótur að átta
sig, fékk boltann á markteig og
spyrnti viðstöðulaust í markið.
Stuttu seinna eða á 42. mín fékk
Gunnar Blöndal boltann á vall-
arhelmingi andstæðinganna en
skammt frá vallarmiðju. Hann
hóf mikinn einleik og prjónaði
sig skemmtilega í gegn og bætti
öðru markinu við. Á síðustu
mín hálfleiksins fengu KA
menn á sig klaufalegt mark.
Guðmundur Sigmarsson í liði
Hauka spyrnti að því er virtist
hættulitlum bolta að marki KA
sem Aðalsteinn missti á ein-
hvern óskiljanlegan hátt út úr
höpdunum á sér.
I seinni hálfleik snéru Haukar
við blaðinu. Eftir tedrykkjuna í
hléinu voru þeir grimmir og
sýndu nú mun betri leik. KA
menn voru heldur daufir og
virtust frekar áhugalausir. Þeir
sóttu þó nokkuð í sig veðrið er á
leið hálfleikinn og náðu að bæta
við marki á lokamínútunum.
Var þar að verki öðru sinni Sigl
firðingurinn eitilharði Gunnar
Blöndal. Þá nikkaði hann inn
eftir fyrirgjöf eða líkt því sem
Tjallinn kallar „touch“.
Eftir á að hyggja var leikurinn
lítt merkilegur knattspyrnulega
séð og var við því að búast ef
litið er á allar aðstæður eins og
áður segir. Bestu menn KA í
þessum leik voru þeir Gunnar
Blöndal og Elmar Geirsson.
Júlíus Bogason.
ar hefur hagstæðara stigahlut-
fall og telst því í 2. sæti.
Nýlega tefldu þeir Gylfi Þór-
hallsson og Kári Elísson einvígi
um titilinn Skákmeistari Akur-
eyrar 1979, en þeir urðu efstir og
jafnir á Skákþingi Akureyrar.
Úrslit urðu þau að Gylfí sigraði
með 4 vinn. gegn 2 vinn.
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
□ □
Auglýsing
um nafnbreytingu
□ ÁÐUR: □
□ Björn Steffensen & Ari Ó. Thorlacius □
□ Endurskoðunarskrifstofa á Akureyri sf.
□ □
E NÝTT FIRMANAFN:
bókeAcP/f|
□ BÓKHALD O G ENDURSKOÐUN □
□ □
Hermann Árnason, löggiltur endurskoðandi
□ Tryggvabraut 1, (Olís-hús) □
§ Akureyri, sími 21838 q
S Sömu starfsmenn - Sama þjónusta j=j
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
ÍPRÖTTIR
Umsión:
Einar
Björns-
son
KA-kappamir efstir
í l.-deildinni
Þankar um frelsi
og svoleiðis
Ógn og skelfing held ég að hlutirnir séu stundum
nefndir skrýtilegum nöfnum í tilverunni. Tökum til að
mynda þetta með frelsið. Allir styðja frelsi - frelsi hér
og frelsi þar - frjálsir menn í frjálsu landi - og þaðallt. Á
jólunum, 17. júní og sjómannadaginn tala forsetar og
biskupar og minna okkur rækilega á hið dásamlega
frelsi, sem íslensk þjóð á við að búa, - og sem okkur ber
að þakka fyrir með krossi á réttan stað í hverjum kosn-
ingum. Það frelsi, sem hérer um að ræða og við njótum
svo ríkulega, er hið svokallaða „vestræna frelsi", sem
ku að margra áliti bera af öðrum frelsum. Það era.m.k.
skárra en „austræna frelsið", þar sem enginn má
græða á öðrum, og þeir sem ekki deyja úr hungri hljóta
að drepast úr leiðindum á einhverju geðveikrahælanna.
Sumir segja jafnvel, að fyrir austan, sé bannað að
drekka kók og jórtra amerískt tyggjó. Það finnst manni
óneitanlega furðuleg smásmygli, ef ekki hrein og bein
meinsemi hjá valdhöfunum.
En hvernig er svo frelsið okkar? - í hverju er það nú
fólgið? Jú, við megum rífa kjaft á torgum og gatna-
mótum og jafnvel yrkja níð um forsetann og biskupinn,
án þess að eiga það beinlínis á hættu að vera sett á geð-
veikrahæli. Við megum vera (NATO - varnarbandalagi
vestrænna þjóða - og njóta NATÓ-friðar í 30 ár - og það
er nú enginn smáræðis friður.
Ætli það sé ekki hann, sem prestarnir eiga við, þegar
þeir segja: Friður sé með yður?
Svo fáum við að hafa „frjálsa samkeppni", sem er í
því fólgin, að hver sem er nógu frjáls, má skríða upp
eftir bakinu á náunga sínum og bæta sinni byrði við
hans. Það er al veg ótrúlegur munur. Oft á tíðum
getum við líka valið um það, hverja við tökum á bakið,
þ.e.a.s. við fáum að „velja okkur ræningja" eins og
Bjartur í Sumarhúsum, af því að við erum nefnilega
„sjálfstætt fólk" eins og hann.
Sumir öfuguggar og leiðindakurfar líkja stundum
„hinni frjálsu samkeppni" við það sem þeir kalla „lög-
mál frumskógarins" en við önsum náttúrulega ekki
svoleiðis þvælu og vitleysu.
Páll heitinn postulón var býsna glöggur karl. Ég held,
að það hafi verið hann, sem sagði einhvern tímann á
fundi í trésmiðafélaginu ( Nasaret: „Sannleikurinn
mun gera yður frjálsa".
Þessi spámannlegu orð reyndust víst því miður ekki
orð að sönnu. Ég man ekki betur en það standi í biflíu-
sögunum, að þeir sem boðuðu fagnaðarerindið og
sannleikann hafi flestir verið krossfestir - og sumir
meira að segja með höfuðið niður.
Hræddur er ég um, að það sama sé enn uppi á ten-
ingnum um víða veröld.
En ef við hins vegar tækjum orðið „sannleikurinn" út
úr spakmælinu og settum orðið „peningarnir" í stað-
inn, hygg ég að komin væri kenning, sem stæðist
glettilega vel í hinum „vestræna, frjálsa heimi".
Ljúkum svo pistli þessum með einu „grúkki" eftir
Piet Hein:
Lög og róttur llkjast því
listaneti með kork og blý,
sem hornsílin smóu hafna í,
en hákarlarnir sleppa frí.
Skákþrautin
Lausn síðustu þrautar Norður-
lands er á þessa leið:
1. Kf6 g4
2. Kg6 g3
3. h7 g2
4. Kh6
- Jafntefli.
Og svo var það þrautin sem fór
úrskeiðis. Lausn hennarereftir-
farandi:
1. Hf4
Eftir það er þrautin auðleyst.
- Og þá er það þraut vikunnar:
- Hvítur mátar í 3. leik.
NORÐURLAND - 5