Norðurland - 17.05.1979, Síða 6
NORÐURLAND
Fimmtudagur 17. maí 1979
MÁLGAGN SÓSÍALISTA GERIST
í NORÐURLANDSKJÖR- ÁSKRIFENDUR
DÆMI EYSTRA - Síminn er 2-18-75 -
AUGLYSIÐ I
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
Tumi Leifs
skrifar
Pirringslegar og fremur þreyt-
andi raddir útaf skrifum mínum
um tónieika Passíukórsins, hafa
lamið á sérlega viðkvæmri og
ómenntaðri hljóðhimnu minni
svo, að ég sé ekki annað fært, en
að skrifa um tónleikana eins og
hvern annan menningarviðburð,
„hágöfugan“.
Tónleikarnir voru haldnir í
íþróttaskemmu bæjarins; Verk-
efni kórsins voru Árstíðir
Haydns, sem hann flutti ásamt
félögum úr Sinfóníuhljómsveit
íslands. Einsöngvarar voru þau
Olöf Harðardóttir, Jón Þor-
steinsson og Halldór Vilhelms-
son, en stjórnandi Róar Kvam.
Tónleikarnir voru langir,
þrjár klukkustundir, og hvein í
viftunni undan vindgnauði
óveðursins, en úti var norðan
skafrenningur í skítakulda.
Það eru vissulega ekki nema
snillingar sem geta búið svo um
hnútana, að spenna og leiðsla
haldist í jafnlöngu verki og
Árstíðunum. Sumir stjórnendur
grípa oft til þess ráðs, að velja
sér einhvern einn hraða (eða
tempi), sem þeir nota sem
einskonar hrynjandi í gegnum
allan flutninginn. Nota þessir
Vor á Akureyri
stjórnendur þá hrynjandina eins
og skáld myndi nota „rauða
þráðinn“ í skáldsögu, og „fanta
sísera" inn á milli með
„tempín“. Þegarsvo erfariðað,
fær hlustandi á tilfinninguna að
sífelld þróun eigi sér stað. Aðrir
stjórnendur sem snillingar telj-
ast, fara gjarnan aðrar leiðir.
Leita þeir þá gjarnan útfyrir
þennan ramma, en halda þó
öllum hraðabreytingum í full-
komnu jafnvægi, þannig að ef
eitthvert „stærðfræðiidjótið“
tæki sig til og reiknaði út
samnefnara hraðabreyting-
anna, væri útkoman „rauði
þráðurinn“ þetta er ekki ólíkt
því að hjóla. Það er hægt að
hjóla eftir striki og beint í mark,
en það er líka hægt að hjóla sikk
sakk og komast samt í mark.
Hraðabreytingar Róar Kvams
(stjórnandans), virtust mjög úr
lausu lofti gripnar, þannig að
flutningurinn varð formlaus og
án sjáanlegs markmiðs. Blæ-
brigðaskipti á milli árstíða lituðu
ekki flutninginn, en tíðarfars-
breytingar á okkar ísaköldu
landi ættu þó. að gefa tilefni til
slíkrar sköpunar. Það sem
r--t, •i- OS o.
| . j !*•«
í- sff | J
^ i r,-! ýw
Passíukórinn á Akureyri.
Landað í Hrísey:
Grálúða og karfi
Landað var úr Snæfellinu um sl.
helgi um 130 tonnum. Undir-
staða aflans var grálúða og karfi,
eða 70 tonn karfi og 40 tonn
grálúða. Karfanum var landað til
vinnslu á Dalvík en í staðinn kom
grálúðan frá Dalvíkingum hing-
að.
Grálúðan er flökuð og sett í
flakablokk á Rússlandsmarkað.
Einnig er hún heilfryst til að fá
betri nýtingu á frystitækjum.
Frystihúsið er ekki reiðubúið að
vinn’a þann fisk, sem að berst
um þessar mundir vegna þorsk-
veiðitakmarkananna, - og svo
er einnig um fólkið. Þarna
vantar aðlögun að breyttum
aðstæðum. Þegar Snæfell fór
héðan að lokinni löndun, fór
það með um 30 tonn af
karfabemum í Krossanesverk-
smiðjuna. Beinamjölsverksmiðj
an hér á orðið tæki til að vinna
feit bein, en þau eru enn
óuppsett. Vinnuaflsskortur er
mjög tilfinnanlegur og eru allir
tiltækir uppteknir við það eitt að
bjarga hráefni undan skemmd-
um. T. d. er mjög erfitt um vik
við að fá saltfisk metinn, sem þó
eru taldar miklar líkur á að
auðvelt sé að losna við. Þetta er
niðurstaða fréttaritara blaðsins
af stuttu viðtali við Gunnlaug
Ingvarsson verkstjóra Fisk-
vinnslustöðvarinnar i Hrísey.
Guðjón.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Akureyri verður þriðju-
daginn 29. maí kl. 20.00 í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18.
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins.
3. Lagabreytingar.
4. Kosningar.
5. Önnur mál.
Félagar - Fjölmennum.
STJÚRN ABA.
óhreinkaði hvað mest litaspjald
stjórnandans, var ónákvæmni í
meðförum tónsprotans, þannig
að spilamennska hljómsveitar-
innar varð oft á tíðum út og
suður, þó sérstaklega í byrjun
hvers kafla.
Einsöngvararnir stóðu sig
Roar Kvam.
dægilega, og er alltaf gaman að
heyra vel þjálfaðar raddir svona
í alvörunni. Það sem helst bar
skugga á túlkun þeirra var
blaðlesturskeimur, sem kom
áþrifanlega í veg fyrir náttúru-
legt og eðlilegt útstreymi
„músikkalskra“ tilfinninga, en
það má kannski afsaka með
tímaskorti og slæmu tíðarfari.
Það sem mesta ánægju vakti á
tónleikunum, var kórinn. Hann
átti greiriilega vinninginn, hvað
snertir vinnu og öryggi. Því ber
að sjálfsögðu að þakka dug og
áræði stjórnanda hans, Róari
Kvam, sem hefur alið kórinn nú
í sex ár, og árangurinn leyndi sér
alls ekki. Megi vegur kórsins
lengjast útum alla eilífð, með
áningum við hina mestu og
gildustu bautasteina heims-
menninarinnar. Jafnvægi á milli
radda var kannski veikasti
punktur kórsins, en hann var
varla umtalsverður.
Árstíðir Haydns er langt verk
og hefði verið mjög hugsanlegt
að stytta það eitthvað. Verkið er
kannski ekki það stórkostleg-
asta sem Haydn skrifaði, enda
var hann afkastasamur maður,
en það eru ýmsir möguleikar í
flutningi þess. Löng „barrokk-
kennd“ „rezitativ", (yfirleitt ein
söngvari, semball og bassi),
þreyttu áheyrendur augljóslega
talsvert. En þau eru engu að
síður nauðsynleg, vegna þess
hvursu kammerleg og hljóðlát
þau eru. Eru þau sem einskonar
hvíld frá hávaða og gelli kórs
og hljómsveitar. Texti verksins
varð alls ekki iil þess að lyfta
mér uppúr skýjunum, en hann
fjallar um sveitasælu og fegurð
náttúrunnar, og dýrkun á iðju-
semi með sífelldu þakkarkvaki
til hæðstu hæða.
Þessir tónleikar voru að vissu
leyti framlag staðarbúa til tón-
listardaganna. Egersannfærður
um, að betur hefði farið á því, ef
kórinn hefði flutt snotrara -og
styttra verk, mér og öðrum til
huglyftingar. Einnig hefði verið
vel hugsanlegt að sjóða litlar
„kammergrúppur“ úr Sinfóníju
hljómsveitinni og flytja tónlist
sem aldrei hefur heyrst hvorki í
glymskröttum né í öðrum stöð-
um bæjarins. Má þar telja verk
eftir kalla eins og Varése,
Webern og Kurt Veil, svo ekki
séu nefndir neinir aukvisar.
Með von um eilíft vor í
tónlistarlífl Akureyrarbæjar.
Tumi.
Iðja á engan
þátt í
verkfalli
I jilefni mjólkurleysisins undan-
farna daga hefur orðið vart við
misskilning um tilurð verkfalls-
ins. Jón Ingimarsson vill því taka
fram eftirfarandi:
„Að gefnu tilefni vill formað-
ur Iðju, félags verksmiðufólks,
Jón Ingimarsson, láta þessgetið
að Iðja á engan þátt í því verk-
falli sem nú er í mjólkursamlagi
KEA. Iðja hefur allt frá því 1936
jafnan barist gegn því að verk-
fall yrði gert í mjólkuriðnaðin-
um, þar sem með því er verið að
loka fyrir neysluvöru almenn-
ings, auk þess að verkalýðsstétt-
in á ekki í stríði við bændur eða
aðra sem vinna að fæðuöflun
handa almenningi"
Enn er Réttur settur
Alltaf fylgir því þægileg kennd að
fá tímaritið Rétt í hendur, því að
auk þess sem hann er áhugavert
og læsilegt rit, er hann okkur
vottur þess að okkar aldni, skel-
eggi og athafnasami stjórnmála-
foringi, Einar Olgeirsson, tekur
enn til hendinni baráttufús og
heldur vöku sinni nú sem áður.
Nú nýlega barst okkur 1. hefti
62. árg. vandað að innihaldi og
útliti. Ritstjórinn skrifar þar
merkilega og sérstæða grein er
hann nefnir, Átök aldanna um
félaga Jesús og frumkristn-
innar boðskap. Asmundur Sig-
urðsson skrifar greinina, Þrjá-
tíu ár í hernaðarbandalagi, og
fjallar hún um áróðurseitrun
Nató í okkar þjóðfélagi. Olafur
Ragnar Grímsson skrifar, Víg-
staða vinstri stjórnar, og er það
tímabær hugvekja. Margt fleira
er í heftinu. Nú þegar 62. árg.
hefur göngu sína, mættum við
minnast þess að langt er liðið
síðan hann Þórólfur bóndi i
Baldursheimi „hljóp frá búinu,
heitur og léttur, með hugsjón í
nesti, og Réttur var settur“.
Frá þeim degi hefur tímaritið
Réttur alltaf verið i góðum
höndum, sem hafa gert hann að
traustu og ómetanlegu mál-
gagni í þágu verkalýðs og
sósíalisma. Um hans daga hafa
unnist margir og mikilsverðir
sigrar í verkalýðsbaráttunni, og
ekki þarf að efast um að margir
þeirra, sem í stríði stóðu hafa
sótt þekkingu og baráttuhug í
þau skrif, sem þar birtust.
Mörg málgögn hafa lagt lið
málstað alþýðunnar á þessum
árum, en vissulega hefur verið
séð vel fyrir því, að hlutur Réttar
kæmi að góðu liði, og þar á
Einar Olgeirsson langsamlega
bestan hlut að máli.
Nú er það mannleg og félags-
leg skylda okkar í Alþýðu-
bandalaginu að veita þessu
ágæta riti okkar stuðning, með
því að hver og einn sé að því
áskrifandi, og geri siít til að út-
vega nýja áskrifendur í stað
þeirra, gömlu og traustu, sem
eru að hverfa af sjónarsviðinu,
smátt og smátt.
Við skulum reyna að halda
okkar Rétti, því að Réttlausir
megum við aldrei verða.
ek.
Hvar er rækju-
togarinn?
í stuttu viðtali við Jóhann
Antonsson framkvæmdastj.
Rækjuvinnslustöðvarinnar
kom fram ótti hans um að
þingsályktunartillaga þing-
mannanna tíu um kaup Dai-
víkinga á rækjutogara, yrði
ekki afgreidd fyrir þing-
lausnir. >
Nú nýverið varð að hafna
samningstilboði Japana
um rækjukaup, en þetta til-
boð var á grundvelli til-
raunasendinga í fyrravor.
Sagði Jóhann að ætlunin
hefði verið að ná þessum
samningi í framhaldi af því,
en þeir ekki treyst sér til
þess, þar sem útbúnaðurinn
um borð í Dalborgu væri
allur hannaður með tilliti til
Evrópumarkaðs en fyrir-
hugaður rækjutogari væri
hins vegar hentugur fyrir
framleiðslu á Japansrækju.
Á grundvelli reynslunnar
frá í fyrra treystum við
okkur ekki til að fram-
leiða upp í Japanssamn-
inga um borð i Dalborgu,
sagði Jóhann að lokum.
Vinnsla á
grálúðu
Dalvík 16/5. Togararnir
hafa veitt sæmilega undan-
farið. Þeir eru nú í þriðju
veiðiferðinni eftir þorsk-
veiðibann og veiða grálúðu
og karfa. Vinnsla á aflan-
um hefur gengið vel. Björg-
vin er væntaniegur eftir
helgina og Björgólfur um
miðja viku. Brynja.
Fiskað á línu
Hrísey 15/5. Einn maður á
trillu, Baldur Hjörleifsson,
hefur fiskað mjög vel á línu
í vor. Má þar til dæmis
nefna, að síðustu þrjá daga
hefur afli hjá honum verið
allt að 2 tonnum. Þetta
smitar, - fiskurinn tekur
ekki á færi, - og trillukarlar
búa sig nú sem óðast út á
línu. Guðjón.
2gja daga
sýning
Sýning á verkum nemenda
Myndlistarskólans verður
opnuð kl. 16.00 á laugar-
daginn í Gallery Háhóli og
verður opin þá til kl. 22.00.
Á sunnudaginn verður sýn-
ingin opin frá kl. 15.00 til
22.00. Vakin skal athygli á,
að aðeins eru möguleikar á
að sjá sýningu nemenda
þessa tvo daga.
Neytenda-
samtökin
Neytendasamtökin Akur-
eyri og nágrenni.
Skrifstofan, Skipagötu
18, 2. hæð, er opin á
þriðjudögum og miðviku-
dögum kl. 4.00-6.00 e.h.
Sími 24402.
Ferðafélag
Akureyrar
Fjöruferð frestað. Súlur,
aukaferð sunnudaginn 20.
maí kl. 9.00 f.h. Fararstj.
Jón Ingi. Þátttaka tilkynn-
ist kl. 6-7 laugardag, sími
22720.