Norðurland - 31.05.1979, Page 3
Þcer klofuðu maísnjóinn:
Meðan íshengjur huldu sjávarhamra
Klassisk mynd af Hríseyjarþorpi. Hún er tekin 20. maí eins og hinar
myndirnar. (Ijósm. Guðjón)
Til hægri svonefnd Borgarbrík og rúma 2 metra frá henni jafnhár klettur.
Meðan fréttaritari mundaði myndavélina með sting í maga, stýrði Ottó
trillunni sinni, henni Dísu, - af öryggi gegnum þetta þrönga sund þrátt fyrir
svlitla ólgu. Isaðir klettaveggirnir bera köldum maí vitni.
Skólaslit í Hrísey:
og kálfamir
„Þegar bömin losna úr skólanum
á vorin og hlaupa út í frelsið þá
eru þau eins og kálfarnir þegar
þeim er hleypt út í fyrsta sinn.
Kálfarnir hafa bara fjórar fætur
og hala, en tilfinningin fyrir
frelsinu er sú sama“.
Þetta voru orð Birgis Sigurðs-
sonar skólastjóra (skrifað eftir
minni) við skólaslit Grunnskóla
Hríseyjar 12. maí. 49 nemendur
hófu nám í skólanum sl. haust
en 47 luku prófi nú í vor. Tveir
kennarar, hjónin Sandra May
Ericson og Gunnar Bergmann
sem kennt hafa hér í tvö ár,
hætta nú störfum. Hyggur
Sandra á listfræðinám erlendis.
Nemendur söfnuðu í ferðasjóð í
vetur með kvöldvökum og
fleiru', fóru síðan í ferðalag til
höfuðborgarinna og kynntu sé
þar menningu ýmissa.
í skólaslitaræðu sinni gat
Birgir þess að skólinn, sem er
nær fimmtugu, væri ekki lengur
í takt við tímann. Það þyrfti hið
fyrsta að gera núverandi hús-
næði ýmislegt til góða og ekki
síst að auka kennslurými: Svo
þyrfti að hefja þegar í stað
undirbúning nýrrar skólabygg-
ingar. Jafn miklvægir hlutirsem
þessir geta haft mikil áhrif á
búsetuvilja mann á stöðum eins
og .Hrísey, sagði Birgir.
Akveðið hefur verið að reisa
íþróttahús sem jafnvel verður
hægt að byrja á nú í sumar. Ekki
mun það þó auka kennslurýmið
sem Birgir óskar eftir. Frá
Hrísey voru 7 nemendur á
Dalvík að ljúka skyldunámi
sínu, en 8. bekkurerstarfræktur
í Hrísey. Þá voru einnig 7
nemendur í 9. bekk Grunnskóla
Dalvíkur. Mun meirihluti þess-
ara nemenda hyggja á lengra
nám. Trausti Þorsteinsson
skólastjóri á Dalvík var hinn
hressasti í viðtali við fréttaritara
Norðurlands. Skólastarfið
hefur gengið vel, og átti Trausti
von á að nokkuð margir nem-
endur hyggðu á menntaskóla-
nám. Skólaslit á Dalvík voru 26.
maí. Þrenn verðlaun, sem veitt
voru fyrir frammistöðu í Dal-
víkurskóla, lentu til nemenda
frá Hrísey. Guðjón.
Hann Ottó vitavörður í Hrísey
þurfti eitthvað að huga að
vitanum sínum þann 20. maí og
bauð fréttaritara Norðurlands að
vera með í ferðinni. Ottó fór á
trillunni sinni, brýndi henni upp í
fjöru þaðan sem styst var að
ganga til vitans, - en ferðinni var
þó heitið umhverfis eyna.
Svona ferð er algengt að fara
og ætti því ekki að vera til
frásagnar. En með góðum vilja
er hægt að taka eftir ýmsu, sem
hæglega getur farið framhjá
mönnum. Og í kaldasta maí á
heilli öld er ekki ólíklegt að
eitthvað í ríki náttúrunnar sé
öðruvísi en vant er.
Spóinn, þessi fugl sem virðist
fjölga ár frá ári og er farinn að
vera í stórum hópum eins og
lóurnar, - orðinn syo ótrúlega
nærgöngull við fjörurnar. Mýr-
arnar hans og móarnir eru undir
snjó eða þá i klakaböndum og
hætt er við, að langa nefið nái
skammt til fæðuöflunar við
þessar aðstæður. Lóan lætur
lítið yfir sér. Annað hvort hefur
hún flúið eitthvað, eða þá að
hún kúrir einhvers staðar hníp-
in þar sem lítið ber á. Æðarfugl-
inn er eitthvað farinn að verpa
og það skrítna kemur í ljós, að
hann flýgur ekki til sjávar til
fæðuöflunar, heldur vappar
með sínu vaggandi göngulagi
frá hreiðrum sínum og klofast í
gegnum skaflana, mjúka í sól-
bráðinni, sláandi niður væng af
og til svo jafnvægi haldist.
Sporin eru svo áberandi, að þau
sjást vel þótt siglt sé nokkuð
undan landi. Rjúpan kúrir í
sköflum hingað og þangað, -
ekki síst þar sem örlar á trjá- eða
runnagróðri. Hún er enn mjög
hvít. Ætli náttúran sé svona
tillitsöm eftir allt saman, á
snjóvori, að leyfa rjúpunni að
halda hvíta litnum lengur.
Gengið er á land þar sem von er
á varpi svartbaks og fýls. Það er
áliðið dags og þar sem hreiður
þeirra eru í forsælu á auðum
grastóm, er komið frost. „Betra
að vera ekki með kæruleysi
þar“. Sjávarhamar eru klaka-
brynjaðir á stórum svæðum.
Ætli frumlegir listamenn geti
ekki fundíð góð mótív fyrir
Bjartsýnis-
menn fá
bát
58 tonna bátur, Eyborg EA 59
bættist í flotann í Hríseyjarhöfn
aðfaranótt sl. sunnudags. Eig-
endur eru Birgir Sigurjónsson í
Hrísey og Smári Thorarensen frá
Akureyri.
Eyborg var áður Gullþórir
frá Stykkishólmi. Þettaereikar-
bátur smíðaður í Svíþjóð árið
1959. Framhlutinn var endur-
byggður eftir bruna árið 1974.
Aðalvél er Catepilar 350 h. frá
árinu 1970. Ljósavél er 6 h.
Lister frá 1974. Mesta lengd
23.03 m. breidd 5,24 og dýpt
2,47 m. Árið 1975 voru keyptir 2
nýir Simrad dýptarmælar í
bátinn, sjálfstýring er ný. Hún
var fyrst notuð í heimsiglingu
frá Stykkishólmi en ferðin tók
28 tíma. Þá eru í bátnum öll
venjuleg siglingatæki, svo sem
örbylgjustöð ásamt „njósnara".
Fyrirhugað er að fara á rækju í
sumar og leggja upp hjá
Kristjáni Jónssyni á Ákureyri
með löndun á Dalvík. Heima-
höfn Eyborgar er Hrísey, kaup-
verð 70 millj. króna og eigend-
urnir eru 27 og 31 árs bjartsýnis-
menn. Birgir er skiptjóri en vél
er undir verndarvæng Smára.
Guðjón.
Sýnishorn af listavcrkum nemenda Hríseyjarskóla.
Ottó vitavörður og nokkuð veðraður Hríseyjarviti. (Ijósm. Guðjón)
pensil sinn og striga við þessar
aðstæður? Fjörur eru næsta
hreinar nema hvar víða eru afar
þykkir þarabúnkar. Á þeim
kúrir æðarfuglinn mikið, - senni
lega myndast ylur í þaranum.
Það er liðið á daginn og sólin
farin að lækka á vesturhimni.
Við erum enn austan við eyna og
afstaða sólar kemur í veg fyrir
myndatöku. En í staðinn fær
lágklettótt austurströnd eyjar-
innar á sig svolítinn ævintýra-
blæ, sem auðgar ímyndunar-
aflið. Þessi ferð umhverfís
Hrísey gerir ferðalangana a.m.
k. ekki að verri mönnum.
Hinsvegar koma þeir fullseint
heim í mat, þar sem þeir eru 4
tíma á ferðalagi í stað tveggja
tima samkvæmt áætlun.
í maí. ’79 Guðjón.
Hríseyjarviti er norðan til á eynni þar sem hún er hæst um 110 m. Á þessari
mynd sér út og niður af þessum hæsta stað, - niður svonefndan Bratta sem er
laus og nokkuð illeng móhella. Yst á myndinni sést svolitill tangi skaga út i sjó.
Það er svonefndur Laugakambur. Herna megin við hann eru heitar laugar
+62°, sem koma upp úr á fjöru. (ljósm. Guðjón)
NORÐURLAND - 3