Norðurland - 31.05.1979, Qupperneq 4
Qdda Margrét
IMORÐURLAND
Málgagn sósíalista í Norðuriandskjördæmi eystra
Ritnefnd: Erlingur Siguröarson, Páll Hiöövesson,
Guörún Aöalsteinsdóttir og Kristín Á. Ólafsdóttir.
Ritstjóri: Óskar Guðmundsson (ábm.).
Dreifing og auglýsingar: Tryggvi Jakobsson.
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Eiösvallagata 18, sími 21875.
Póstfang: Box 492, 602 Akureyri.
Offsetprentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Gefið út af kjördæmisráði Alþýðubandalagsins.
Mættum við leyfa
okkur að verða
óþolinmóð?
Veðrið er fínt, það er fallegt á Bakka
og fasisminn ríður í hlað.
Velgreiddur maður í vönduðum jakka,
í vasanum morgunblað.
(Þór. Eldjárn: Góður gestur á Bakka)
Það er ekki gott veðurfarið né fagurt um að litast á
Bakka burgeisanna nyrðra og syðra þessa dagana. Bar-
lómur atvinnurekenda svokallaðra keyrir nú svo úr hófi að
hann er farinn að skreyta gafla sósíalistanna í gamalgrón-
um málgögnum okkar. Það heitir að bera fjanda sinn á
gullstól. Annars þurfum við ekki að hampa óánægju
burgeisanna einna, - því verkalýður landsins er ekki of
haldinn í mat og drykk heldur, þrátt fyrir félagsmála-
pakka og fögur fyrirheit. Það árar illa til landbúnaðar og
manneldis. Kapitalisminn þekkir ekki önnur ráð vænni en
niðurskurð og samdrátt, - og nú eru gerðar áætlanir um
framtíðina sem hljóða einmitt upp á niðurskurð og
samdrátt. Hvað er orðið um stórhuga framkvæmdamenn-
ina sem íslandssagan segir frá í sælutíð uppvaxandi borg-
arastéttar á íslandi?
Við skulum láta vísis- og morgunblaðsófétinu eftir að
rúlla með atvinnurekendabauli niður velferðarbrekkurn-
ar á síðum sínum, - en staldra heldur við og athuga
skyggnið til markmiða þeirra, sem heyja stéttabaráttu til
fegurra og betra mannlífs í sósíalismanum. Við erum
yfirleitt alltof vön því að vera í svokallaðri varnarstöðu,
sem þýðir nánast það, að halda sér sarnan meðan ekkert
gerist sem breytir vígstöðunni. Það er máske ein ástæðna
þess, hve lítið vinnst frjótt og árangursríkt í sósíaliskri
baráttu. Við þykjumst vera að feta leiðina ströngu
þumlung fyrir þumlung á málþingum borgaranna. Það
hefur m.a. þýtt að við höfum tekið upp starfshætti and-
stæðinga okkar í sveitarstjórnar- og þingræðispólitík, að
meira og minna Ieyti. Margra ára reynsla krataflokka á
síðustu áratugum í nágrannalöndunum sýnir að þessi leið
ein þokar okkur lítt eða ekkert í átt til markmiðsins.
Hjálpi okkur allar góðar rauðar vættir til að forðast það
fúla forkratafen, sem Alþýðuflokkurinn dagar nú uppi í.
Við ættum að leyfa okkur þann munað nú þegar við höf-
um verið í þeirri aðstöðu að lappa upp á kapitaliska sam-
félagið íslenska, að gera það upp við okkur, hvort við vilj-
um vinna með þessum hætti, hvort við þekkjum ekki aðrar
aðferðir til að nálgast ætlunarverk okkar heldur en núver-
andi dapurlega hlutskipti.
íslensku þjóðfélagi ráða burgeisar í krafti auðsins.
Stórfyrirtækin „íslensku“ eru að meira og minna leyti
fjölþjóðleg og samansúrruð innbyrðis og kámug og klístr-
uð út í alla enda við ameríska hersetu. Þarf ekki að nefna
mörg þjóðleg firmu til að átta sig á þessu: Aðalverktakar,
Eimskip, Flugleiðir, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
(Icelandic seafood Corporation), Árvakur Morgunblaðs-
ins og svona áfram nær endalaus runa af stórfyrirtækjum
sem eru tengd riieð ofangreindum hætti. Þessi fyrirtæki
ráða mestu um gerð samfélagsins eins og stendur. Við
þurfum ekki að fara í bræðravíg til þess, að sjá að ísl.
ríkisvald er samofið hagsmunum þessara auðfyrirtækja, -
þessa auðhrings þarsem Bilderberg Geir trónir hátt, hátt.
Við ættum að kryfja þetta þokkagengi, kanna hagsmuni
þeirra og ameríska hersins, þjóðarsmánarinnar. Mættum
við leyfa okkur að verða óþolinmóð og biðja um sósíaliska
starfshætti, sósíaliska byltingu?
óg
gaman-
LEIKLIST
Skrítmr fuglar
Leikfélag Akureyrar
Skrýtinn fugl - ég sjálfur: Alan
Aycbourn.
Þýðandi Kristrún Eymunds-
dóttir..
Leikstjórn: Jill Brook Arnason.
Leikmynd: Hallmundur Kristins-
son.
Búningar: Freygerður Magnús-
dóttir.
Leikári L.A. er að ljúka. Þrátt
fyrir óánægju ýmissa með verk-
efnaval og annað, má segja að
vertíðin hafi verið einstök, að
minnsta kosti hvað aðsókn
snertir. Það er langt síðan
verkefni félagsins hafa náð slíkri
hylli, hverju eða hverjum sem
ber að þakka hana. Og nú
höfum við eignast leikhúsráð,
sem vonandi leggur sitt að
mörkum til vaxandi velgengni.
Síðasta verkefnið er enskur
gamanleikur Skrýtinn fugl - ég
sjálfur, eftir englendinginn
Álan Aycbourn, sem mun hafa
eytt mestum hluta æfi sinnar
innan veggja enskra leikhúsa,
sem leikari, leikstjóri, leikhús-
stjóri og leikritahöfundur, og er
því ekki um neinn viðvaning að
ræða. Og þeir í Lundúnaborg
eru svo hrifnir af honum (enda
húmorinn fullkomlega enskur),
að þeir hafa sýnt að minnsta
kosti 13 leikrit eftir hann á
síðustu 15 árum. Og til marks
um vinsældir hans sá ég ein-
hversstaðar, að verk hans hafa
verið þýdd á 24tungumál og eru
nú sýnd um allan heim. Skrýt-
inn fugl sýnir okkur þrenn hjón
í þremur eldhúsum um þrenn
jól. Þetta þrennt ætti að geta
sýnt fram á fyrringuna í þjóð-
félaginu (hvort sem er ensku eða
íslensku), eða hvað? Undir-
gefnar eiginkonur, taugaveikl- dóttur tókst líka allvel upp í
aðar, drykkjusjúkar eða með hreingerningaræði sínu og
hreingerningaræði. Drottnandi undirgefni. (Og virtist gera sér
eiginmenn á upp eða niðurleið fulla grein fyrir að um gaman-
til bissness. Þetta er jú það sem leik er að ræða.) Þvi miður hafði
blasir við allsstaðar (minnir maður á tilfinningunni að aðrir
jafnvel örlítið á fyrsta verkefnið leikarar hefðu ekki áttað sig á
á leikárinu). því, væru jafnvel stundum í allt
Sem sagt kjörið efni í gaman- öðru leikriti, sem lítið ætti skylt
leik. En eitthvað hefur farið við gamanleik, og leiddi til
úrskeiðis í uppsetningu Jill áðurnefnds misræmis.
Gestur, Þórey og Svanhildur aö heimilisstörfum.
leikurinn verður langdreginn og mjög góð, ná vel að undirstrika
næstum hátíðlegur á köflum. Ef stéttar-mismun hjónanna og
til vill er það helst að kenna lífsstíl.
misræmis í leik, hvernig sem á Þýðing Kristrúnar Eymunds-
því stendur. Viðar Eggertsson dóttur er ágæt, þó bókmáli
dró upp bráðfyndna mynd af bregði fyrir á stökum stað.
smáborgara á uppleið í þjóð- Og þrátt fyrir allt ættuallirað
félaginu, sýndi ágætan farsaleik drífa sig í leikhúsið, því að
með fasi og framgöngu allri. Skrýna fuglinum tekst að laða
Sama er að segja um Sigurveigu fram bros og hlátra, og ekki
Jónsdóttur, sem var stórkostleg veitir af smáupplyftingu í þess-
í hlutverki hinnar drykkfelldu . ari tíð.
bankastjórafrúar. Og er óhætt Hafi L A þökk f ir veturinn
að segja að þau tyo hafi att:með ósk
um vaxandi getu og
stærstan þatt í glensinu ogj • 6 6
gríninu. Svanhildi Jóhannes-I8 8 Odda Margret.
Borinn
Jötunn
í kartöflugarði
sjáanlega suður undir Garð og
niður fyrir Nesvallatanga. Víða
við austanvert vatnið eru sker
sem örlaði á áður, en farið að
sjást á kolla þeirrá núna. T.d.
framan við Hótel Reykjahlíð
var sker sem heitir Birgissker
(Nafnið mun dregið af fiskbirgi
á skerinu), - það er orðið
landfastur tangi. Jarðfræðingar
segja að hins vegar hafi botn
Grænavatns sigið um 20 cm, -
þannig að þar er sig á móti.
fréttaritarans
Varp virðist aðeins vera byrj-
að við Mývatn, en hætt er við að
frjósi um nætur. Til marks um
að varp sé hafið, hef ég, að það
fór maður frá Grímsstöðum á
vélsleða í Syðri Neslönd, - og þá
sá hann að endur voru að fljúga
upp af þúfnakollum og runn-
um, þar sem að auðir blettir
voru. Það er óvenjulegt að sjáist
fyrstu merki varps af vélsleða.
Sig./óg.
Bátafloti
Á Þistilfirði
Mývatnssveit 29/5. Það má segja
að við njótum góðs af umbrotun-
um og jarðhitanum hér. Við erum
aðeins byrjuð að plægja fyrir
kartöflugörðum. Við Krumma-
gjársprungu er jörðin volg og
líkleg til góðrar uppskeru. Sumir
hafa þegar sett niður. Borinn
Jötunn er staðsettur í kartöflu-
garðinum mínum, og er verið að
reisa mastrið í dag. Það fór góður
garður fyrir þarft verk, - og hef
ég orðið mér úti um nýjan
kartöfiugarð og Jötunn sér von-
andi fyrir meira gufuafli fyrir
Kísiliðjuna í gamla garðinum
mínum.
Menn eru orðnir leiðir á
veðrinu, - en það hefur skánað
mikið síðustu daga. Sauðburður
er víðast hvar svo til búinn.
Hann hefur gengið all sæmilega
þar sem þrengsli há ekki um of.
Óvenju mikið hefur verið um
það að það þyrfti að hjálpa ám
við burð. Héraðsdýralæknirinn
á Húsavik hefur haft þann
háttinn á, að hafa opna skurð-
stofu í bílskúrnum hjá sér, - og
gerir keisaraskurði á þeim ám
sem bændur koma með til hans.
Honum mun hafa farnast vel
fæðingarhjálpin oghafa bændur
notfært sér það óspart með ær
sem eiga í erfiðleikum með burð.
Botn Mývatns hefur risið
mjög síðan umbrotin hófust
fyrir nokkrum árum. Mest er
það við Reykjahlíð og tilsvar-
andi í Stórugjá og Grjótagjá en
þaðan er risið minna eftir því
sem fjær dregur, en gætir þó
Þórshöfn 29/5. Hér hafa bátarn-
ir landað um 250 tonnum síðan
að ísinn fór, í kringum 20. maí.
Þórshafnarbátarnir höfðu Iandað
á Bakkafirði, Vopnafirði og
Raufarhöfn meðan að ísinn
bannaði samgöngur hingað á sjó.
Geisilegur fioti aðkomubáta er á
Þistilfirði eða um 30 talsins.
Heimamenn eru ekkert alltof
hrifnir, því þeir telja fiskinn hörfa
undan ásókninni auk þess sem
aflanum er öllum landað annars
staðar.
í gær söng sumarið í hugum
fólks, því það var sunnan gola
og glaðlegt sólskin. Smá íshrafl
er þó ennþá hér vestur í víkum
sem er enn að gera sjómönnum
sitthvað til bölvunar, - en hann
er á undanhaldi. Eftir að ísinn
fór að mestu tók dálítinn tíma
að gera bátana klára til veiða
aftur, - því veiðafæratjónið af
völdum íssins var töluvert.
Bátarnir eru allir á netum.
Hreppsfélagið mun láta verða af
byggingu 3 íbúða raðhúss nú í
sumar. Hér hefur verið unnið
alla daga vikunnar í aflahrot-
unni. Nokkrir bændur munu
vera orðnir heylausir, en þeir
sem best búa eiga hey út júní.
Úttekt var gerð á heyforðanum
hér í nærsveitum, - og með
miðlunum munu hey nægja
fram í miðjan júnímánuð. Sauð-
burður hefur gengið vel þrátt
fyrir þrengsli.
Arnþór.
4 - NORÐURLAND