Norðurland - 31.05.1979, Side 8
NORÐURLAND
Fimmtudagur 31. maí 1979
MÁLGAGN SÖSÍALISTA
í NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Súninn er 2-18-75 -
AUGLÝSIÐ í
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
Frá Dalvík.
Kosningaloforð að rcetast
Nýr leikskólí á
Nú nýverið lagði bæjarstjórn
Dalvíkur fram fjárhagsáætlun
fyrir árið 1979. Þar kemur fram
að áætlaðar tekjur bæjarins eru
352.8 milljónir, þar af eru útsvör
183.4 millj. Gjöld eru samtals
296.468 millj. og tekjuafgangur
því 56.332 millj. Á eignabreyt-
ingareikningi eru innborganir
120.2 millj., útborganir 176.532
millj.
Framlög til félags- og menn-
ingarmála eru 43.595 millj., þar
af 37 millj. til Dvalarheimilis
aldraðra en þar er um að ræða
bæði stofn- og rekstrarkostnað.
Byggingu fyrsta áfanga dvalar-
heimilisins er senn að ljúka og
Mál- og tónverk
opin frá kl. 21.00 til 23.00, - en
aðra daga frá 15.00 til 22.00.
Örn Ingi sýnir þarna 59 verk,
akrílmálverk, vatnslitamyndir,
olíkrítarmyndir, pastelmyndir og
fleira. Þetta er fjórða einkasýn-
ing Arnar.
Þau menningartíðindi verða
til upplyftingar annan í hvíta-
sunnu ícl. 20.30, að tónleikar
verða haldnir á sýningunni.
Flytjendur eru: Örn Arason
gítar, Oliver Kentish selló,
Tómas Jackman píanó, Anna
Málfríður Sigurðardóttir píanó,
Catherine Campell fiðla og
Guðrún Kristjánsdóttir söngur.
Þau flytja verk eftir: Bartok,
Bach, Mark Frith, Dvorak,
Strauss og ísl. þjóðlög. Verk
Marks Frith er frumsamið
vegna áhifa af verkum Arnar
Inga og í lok tónleikanna verður
improsviserað undir áhrifum
sýningarinnar.
Örn Ingi.
Örn Ingi myndlistarmaður opnar
myndiistarsýningu föstudaginn
1. júní. Sýningin verður í Iðn-
skólanum á Akureyri frá 1. til 10.
júní. Á föstudaginn verður hún
Rósberg G. Snædal.
anna. Rósberg kennir nú að
Hólum í Hjaltadal og þeir
félagar og ljóðavinir sem áhuga
hafa á að nálgast Gagnvegi -
ljóðasafn og lausar vísur - geta
fengið bókina senda áritaða af
höfundi á sextugsafmælinu 8.
ágúst nk. Heimilisfang Rós-
bergs er eins og áður sagði
Hólar Hjaltadal, 551 Sauðár-
krókur.
Dalvík
áætlað er að það taki til starfa
ah eg á næstunni.
Heildarkostnaður við íþrótta-
og æskulýðsmál er 13.6 millj. og
fræðslumál 35.078 millj. Til
almennra trygginga, félagshjálp-
ar, barnaheimilis og leikvalla
fara 34.460 millj. Þar af er fram-
lag til sjúkrasamlags 18.3 millj.
Aðalmetnaðarmál sérhvers
bæjarfélags eru jafnan gatna-
gerðarmál og eru þau gjarnan
metin eftir malbikuðum lengd-
armetrum. Til hinna ýmsu þátta
gatnagerðar fara 77.2 millj. og
má af því sjá að Dalvíkingar
vilja engir eftirbátar vera.
Á eignabreytingareikningi er
eftirtektarverðust upphæð 21
millj. sem er framlag til bygg-
ingar nýs leikskóla. Barna-
heimili Dalvíkurbæjar hefur frá
upphafi búið við mjög slæma
aðstöðu hvað varðar húsnæði.
Skátarnir hafa leigt því hús sitt í
þau þrjú ár sem heimilið hefur
verið rekið. Nú hefur að vísu
Rækjubátar
r
a
þorskveiðum
Kópasker 29/5. Tíðin hefur verið
slæm undanfarið. Engu líkara en
um hávetur. Jörðin er svo
gjörsamlega steindauð, - eins og í
febrúar - mars. Það er þungt
hljóð í bændum í nágrenninu.
Þrengslin í fjárhúsunum eru
ógnarleg og allur sauðburður
erfiður við þessar aðstæður.
Heybirgðir munu nægja fram í
fyrstu viku júní. Annars er
veðrið að skána þannig að hægt
er að hleypa fé út á daginn. Það
hefur hins vegar verið frost á
næturnar en sólarglenningur á
daginn. Það er mestafurða hvað
snjóinn hefur tekið síðustu
daga. Rækjubátarnir eru farnir
á þorskveiðar austur á Þistil-
fjörð og aflað sæmilega. I lokin
er rétt að geta þess að hér er sami
söngur út í ríkisstjórnina og
annars staðar. Ragnar.
Myndhópurinn
og
leikfélagið
Samvinna hefur nú tekist með
Myndhópnum á Akureyri og
Leikfélagi Akureyrar á þann veg,
að Myndhópurinn mun sjá um
myndlistarsýningar í leikhúsinu á
þeim tíma sem leiksýningar fara
þar fram. Við hverja frumsýn-
ingu LA mun verða sett upp ný
myndlistarsýning sem standa
mun svo lengi sem viðkomandi
leikrit er sýnt. Er það von
Myndhópsfélaga að samvinna
þessi megi verða báðum aðilum
til góðs og menningarlífi bæjarins
til ábata.
Nú um stundir er verið að sýna
leikritið „Skrítinn fugl ég
sjálfur“ í leikhúsinu og jafnframt
eru þar til sýnis málverk sex
Myndhópsfélaga, en þeir eru
þessir: Álice Sigurðsson, Guð-
mundur Ármann, Iðunn Ágúst-
dóttir, Lýður Sigurðsson, Ulfur
Ragnarsson og Valgarður
Stefánsson.
Auk þessarar samvinnu hefur
Myndhópnum verið boðið að
sýna að staðaldri nokkrar myndir
í anddyri Fjórðungssjúkrahússins
og mun Aðalsteinn Vestmann
ríða á vaðið og sýna þar fyrstur
Myndhópsfélaga. Verða myndir
hans væntanlega hengdar upp á
fyrrnefndum stað nú fyrir Hvíta-
sunnuna.
komið til tals að barnaheimilið
fengi inni í kjallara Dvalar-
heimilis aldraðra í haust, en
bæjarstjórn tók þáskynsamlegu
ákvörðun að hefja heldur bygg-
ingu nýs leikskóla og hefur þeg-
ar verið leitað eftir lauslegum
tilboðum í bygginguna með til-
liti til að jafnvel verði hægt að
flytja inn um áramót nk. Það má
teljast verðugt verkefni á barna-
ári.
Stefán, Brynja.
ALÞÝÐUBAMDALAGIÐ
Bæjarmálaráð ABA
Fimmtudaginn 31. maí (í kvöld).
1) Uppstilling til nefnda bæjarins fyrir aðalfund bæj-
arstjórnar.
2) Kosning formanns og ritara bæjarmálaráðs ABA.
3) Önnur mál.
Kópasker
í tilefni sextugsafmcelis Rósbergs í ágúst
Gagnvegir
- Ijóðasafn og lausar vísur
Rósberg Snædal skáld kempa úr
sósialiskri stétta og menningar-
baráttu er á góðri leið með að
fylla sjötta áratug ævi sinnar.
Það er vel til fundið hjá bóka-
útgáfunni Skjaldborg, að heiðra
skáldið með því að gefa út
Ijóðabók í tilefni sextugsafmælis-
ins þann 8. ágúst nk.
Rósberg hefur áður gefið út
tvær ljóðabækur; Á annarra
grjóti 1949 og í Tjarnarskarði
1957. Ljóðabókin nýja verður
með úrvali úr þessum tveim
fyrri auk þess sem þar birtast
ljóð ort á síðustu tveim áratug-
um. Annars er þetta 14. bók
höfundar, - hann hefur auk
kveðskaparins sent frá sér
bækur um margvísleg efni;
smásögur, sagnaþætti, vísna-
kver, þjóðlegan fróðleik hvers
konar og gamanmál. I bókinni
er margs konar ljóðræna létt og
þung, gamansöm og alvöru-
þrungin. Undir gáskafullu yfir-
bragði sumra ljóðanna sýður
bálreiðin. Svo sem eins og af
tilviljun rakst maður á þetta
erindi í handriti bókarinnar sem
bíður prentunar í Skjaldborg:
Skríddu fyrir föntum, þjófum,
frímúrurum, oddfellóvum.
Þefaðu’ uppi þeirra bein.
Krjúptu að fótum Keavaldsins,
kysstu vendi afturhaldsins.
Þannig ertu á grænni grein. -
Rósberg hefur komið víða við
á þessum sex áratugum. Hann
hefur verið rauður verkamaður,
ritstjóri málgagna sósíalista hér
nyrðra, var í stjórn Einingar í 25
ár og verið kennari auk ritstarf-
Bruni á
Pórshöfn
Þórshöfn 29/5. Um 2 leitið í
dag varð vart við eld í
húsnæði Trésmiðju Þórs-
hafnar og byggingafyrir-
tækisins Haka sf. Slökkvi-
liðið var kallað á staðinn og
gekk vel að ráða að niður-
lögum eldsins, sem var
mikill. Tókst að slökkva
eldinn eftir u.þ.b. 2 tíma.
Slökkviliðsmenn björguðu
ma. gas og súrefnisflöskum
út úr brennandi húsinu, -
og komu þar með í veg fyrir
sprengingar. Steypubíll
sem var inni á verkstæðinu
gjöreyðilagðist í eldinum og
margt fleira. Ekki er vitað
um tjón vegna eldsins, en
víst er að nemur milljónum.
Talið er að kviknað hafi í
þegar neisti hljóp úr slípi-
rokk í eldfima málningu á
verkstæðinu. Arnþór.
Félagsmála-
námskeið
Um sl. helgi stóðu Sveina-
félag jámiðnaðarmanna á
Akureyri og MFA fyrir
félagsmálanámskeiði. Þetta
ágæta framtak var tilraun í
þá átt að reyna glæða
félagsstarfsemina. En eins
og allir vita eru flestir
félagsmanna í verkalýðs-
félugunum óvanir funda og
félagsstöðum. Hákon
Hákonarson setti námskeið-
ið en síðan voru undirstöðu-
atriði ræðumennsku á dag-
skrá. Þá voru ræðuæfingar,
félags og fundarstörf, kynn-
ing á ASÍ, hópvinna og að
lokum var haldinn mál-
fundur. Leiðbeinendur voru
Þorbjörn Guðmundsson og
Sigrún D. Elíasdóttir. Þátt-
takendur voru aðeins 12
talsins, - en þeir voru hinir
ánægðustu, albúnir í félags-
störfin á næstunni.
Vor '79
Laugardaginn 2. júní kl.
15.00. verður opnuð fjöl-
breytt og vönduð samsýn-
ing 5 þekktra listmálara í
Gallery Háhól. Þeir sem
sýna eru Alfreð Flóki sem
sýnir rauð- og svartkrítar-
myndir svo og tússteikn-
ingar. Baltasar sem sýnir
olíumálverk. Eiríkur Smith
sýnir vatnslitamyndir og
olíumálverk. Kjartan Guð-
jónsson sýnir vatnslita-
myndir og litógraíiur og
Oli G. Jóhannsson sýnir
akrylmálverk og túss og
vatnslitamyndir. Á sýning-
unni verða um 60 verk og
allt sölumyndir. Syningin
stendur dagana 2.-10. júní.
Opin um helgar kl. 15.00-
22.00 og virka daga kl.
20.00 til 22.00.
Neytenda
samtökin
Neytendasamtökin Akur-
eyri og nágrenni.
Skrifstofan, Skipagötu
18, 2. hæð, er opin á
þriðjudögum og miðviku-
dögum kl. 4.00-6.00 e.h.
Sími 24402.
Ferðafélag
Akureyrar
Skagafjörður. Skoðunar-
ferð 2. hvítasunnudag 3.
júni kl. 8 f.h. Farseðlar á
skrifstofunni kl. 18.30 til
20.00 fimmtudaginn 31.
maí. Ferð á Langanes frest-
að vegna ófærðar.