Norðurland - 04.10.1979, Qupperneq 2
... ......... —
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Paff sníðanámskeið
verður haldið á vegum Námsflokka Akureyrar.
Innritun og upplýsingar í síma 22505 fyrir hádegi
fram á föstudag.
Námsflokkar Akureyrar
Frá Húsavík.
Snurvoðabátar á veiðum erui
um sinn á Skjálfanda
Norðurland hafði samband við
sjávarútvegsráðuneytið til að fá
fram sjónarmið þess í sambandi
við veiðar snurvoðarbáta i
Skjálfandaflóa sem greint var
frá í síðasta blaði. Fyrir svörum
í ráðuneytinu varð Jón B. Jóns-
son og sagði ann að þetta væri
gert til að býta kolann í flóanum
eins og reyndar kom fram í
fréttinni á dögunum. Við fram-
kvæmdina væri farið í einu og
öllu eftir ábendingum útibús
Hafrannsóknarstofnunar á
staðnum. Enda hefðu komið
fram eindregnar óskir í þessa
veru frá heimamönnum. Það
virðist vera hálfgert trúaratriði
að vera á móti botnvörpunni hjá
sumum mönnum sagði Jón
þegar bornar voru undir hann
kvartanir trillusjómanna á
Húsavík vegna þessara veiða.
Jón taldi að svæðið mundi verða
opið fram í miðjan októberfyrir
snurvoðarbátana. Ekki hvað
hann nein mótmæli hafa borist
frá Húsavík til ráðuneytisins
vegna þessa máls.
t
Ragnar Lár
sýnir í
Gallerý
Háhól
Laugardaginn 6. október
opnar Ragnar Lár málverka-
sýningu í Gallerý Háhól á
Akureyri.
Sýninguna nefnirlistamað
urinn „Land og fólk“, og
ætti sú nafngift að gefa til
kynna innihald hennar.
Á sýningunni verða fjöl-
mörg myndverk, unnin í
olíu, akríl, vatnslit, svart-
krít o.fl.
Þetta er fyrsta einkasýn-
ing Ragnars Lár á Akur-
eyri, en hann er félagi í
„Myndhópnum", sem stofn-
aður var sl. vetur.
Ragnar Lár hefur haldið
margar einkasýningar áður,
heima og erlendis og tekið
þátt í samsýningum.
Sýningunni lýkur um aðra
helgi.
(Fréttatilk.)
\_____________________
Ályktun
Bæjarstjómar
framh. af baksíðu.
uði á ári hverju. Og vill
bæjarstjórnin í því sambandi
beina því til sjávarútvegsráðu-
neytisins og þingmanna kjör-
dæmisins að þessir aðilar ásamt
heimamönnum reyni að finna
þessum verksmiðjum né verk-
efni í úrvinnslu sjávarafurða og
mætti þar vel hugsa sér að sú
starfsemi væri byggð upp i
einhvers konar samvinnu milli
þessara staða.
Samþykkt 20. september 1979.
2 - NORÐURLAND
Auglýsið
r
i
Norðurlandi
íbúð
til
leigu
Tveggja herbergja íbúð
í Tjarnarlundi til leigu.
Uppl. í síma 24699.
SAMBANO ÍSIfNZKRA SANIVINNUFÉLAEA
*
lónaðardeild ■ Akureyri
Atvinna
Verkstjóri óskast á kvöldvakt þarf að vera
vanur saumaskap og sníðamennsku. Upp-
lýsingar gefur starfsmannastjóri í síma
21900 (23).
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Sími (96)21900
Fulltrúakjör
Auglýst er eftir framboðslistum vegna kjörs fulltrúa
félagsins á 12. þing Landssambands islenskra versl-
unarmanna og 16. þing Alþýðusambands Norður-
lands. Framboðslisti til þings Landssambands ís-
lenskra verslunarmanna skal skipaður 9 mönnum og
jafnmörgum til vara.
Þá skulu fylgja hverjum lista meðmæli 100 fullgildra
félagsmanna.
Framboðslistum skal skila á skrifstofu félagsins að
Brekkugötu 4, eigl síðar en kl. 12 á hádegi miðviku-
daginn 10. október n.k.
Allsherjaratkvæðagreiðsla verðurauglýstsíðarkomi
fram fleiri en einn listi vegna fulltrúakjörs til hvors
þings.
Stjórn félags Verslunar- og skrifstofufólks
á Akureyri og nágrenni.
-----------■!..-
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Frá Leikvallanefnd
Eins og undanfarna vetur verða leikvellirnir við
Vanabyggð og Lönguhlíðoþnirfrá 1. okt. kl. 10-12og
14-16. Ennfremur er ákveðið að leikvöllurinn við
Hlíðarlund verði oþinn frá kl. 12.45-15.45, einnig frá
1. okt. Við minnum á að börnin séu vel klædd og
yngstu börnin sé ekki höfð of lengi á völlunum íeinu.
Þá viljum við beina þeim tilmælum til aðstandenda,
að þeir hafi samráð við gæslufólk um allt er varðar
dvöl barnanna á leikvöllunum.
Leikvallanefnd.
Barnavagnar, tvíburavagnar,
kerrur, leikgrindur,
þvottaborð, hókus pókus,
o.m.fl.