Norðurland - 04.10.1979, Qupperneq 5
ntun í Hrísey
Nýja Hríseyjarferjan.
Ékki á brauðinu einu
saman
Grunnskóli Hríseyjar var settur
sunnud. 16. september. Þessi
kafli er ef til vill ekki samhljóða
yfirskriftinni, þar sem nem-
endum er gjarnan kennt að
skólinn sé inngangur brauðstrit-
sins. En andleg mennt er líka í
dæminu. Skólastjóri er eins og á
fyrra ári Birgir sigurðsson en
kennarar Elsa Stefánsdóttir og
nýir kennarar Ingibjörg Step-
henssen, Sigurlaugur Brynleifs-
son og Arnar Óskarsson.
- Gleymum ekki honum séra
Kára. Hann messar yfir okkur
sem vera ber og er hvers manns
hugljúfi. Hann sér líka oft um
einhveri fræði grunnskólans, er
með meiri málamönnum lands-
ins, dáir fögur blóm og er
líklega eini Hríseyingurinn sem
tímir sveppi til átu.
Hríseyingar eiga sína daga
sem þeir taka fram yfir aðra og
síðan Norðurland kom út í
síðasta sinn fyrir sumarfrí eru
þessir dagar svona hér um bil
tveir, sem eitthvað að kveður,
en það eru sjómannadagurinn
og 17. júní. Þá gera menn sér
ýmiskonar dagamun sem geta
jafnvel talist menningarlegs
eðlis. En sem víðast annars-
staðar fylgja þeim líka ein-
hverjir timburmenn.
En byrjum á sjómannadeg-
inum. Þá er gjanan farið í
hópsiglingu og þá fara þeir sem
finna svolitla rómantík með
slíkri hópferð. Einnig er dans-
leikur að kvöldi sjómannadags
fastur liður. En lítum til síðasta
sjómannadags. Tvö atriði verða
í fyrirrúmi. Báti var lagt við
festar nokkuð undan bryggju og
þangað skotið línu. Siðan voru
tveir menn dregnir í land í
björgunarstóli og komust báðir
lífs af. Þá fengu tveir menn
heiðursmerki fyrir langa og
giftusaman sjómannsferil. Þetta
voru þeir Vilhjálmur Kristinn
Vilhjálmsson og Jóhann Árna-
son. Vonandi lánast Norður-
landi að gera þessum öldnu
görpum betri skil síðar.
Þá er Lomið að 17. júní. Þá er
á ýmsan hátt reynt að gera
dagamun, svo sem með full-
veldissræðu og eða helgiathöfn.
Þá er reynt að tefla fram
íþróttum, einkum í sundlaug-
inni. Með þessari grein er mynd
sem talar sínu máli. Þá er
dansleikur að kvöldi sem
gjarnan byrjar á dansleik fyrir
börn á skólaaldri. Fyrir
nokkrum árum var skrúðganga
17. júní, en sú ágæta fram-
kvæmd hefur blundað í ein-
hverri. lognmollu síðustu árin.
Skrúðgönguna leiddi vitanlega
einhver snotur heimamær sem
svo flutti ávarp Qallkonunnar.
Slíku fylgdi vitalega eftirmáli:
- var hún snotur, var hún
frambærileg o.s.frv.
Séra Kári
að gera nú jafnvel venjulegt
átak í þessum málum.
Skólastjóri og skólanefnd
hafa sent hreppsnefnd álitsgerð
um endurbætur og stækkun
skólamannvirkja. í athugun er
að fá bráðabigðarkennslustofu
við skólann, en þær munu vera í
notkun á nokkrum stöðum.
Jafnframt verði farið að vinna
að undirbúningi nýs skóla.
Undirbúningur íþróttahúss er
lítillega á veg kominn.
Almennur fundur um málefni
sveitarfélagsins var haldinn
fyrir skömmu. Fundurinn sem
var haldinn að áeggjan kjós-
enda fór friðsamlega fram og
lýstu menn almennt ánægju
sinni yfir að hann skyldi vera
haldinn.
Almennur fundur.
Af opinberum vetfangi
Af opinberum málefnum bernú
einna hæst í hugum manna
borunin eftir heitu vatni sem
getið var í síðasta blaði Norður-
lands. Ekki örlar enn á hinu
dýrmæta vatni.
v í sumar var steypt 50 m. löng
gata og 70 m. eru í undirbygg-
ingu. Hugmyndir eru uppi um
Og enn um nýju ferjuna
Og svo er það ferjan sem átti
að koma í vor. Hún er enn
ókomin. Þótt staðan sé svo sem
ekki nógu góð efast menn ekki
um að hún komi, en þessi töf er
bæði búin að vera til tjóns og
leiðinda. ísumarferðuðustmeð
gömlu Hríseyjarferjunni mánuð
ina júlí og ágúst 2185 og 2045
farþegar. Er það talsverð
fjölgun frá fyrri árum. Ferða-
skrifstofa Akureyrar hafði
skipulagt allnokkrar ferðir
hingað í sumar, en þar sem
dráttur varð á k^jnu nýju
ferjunnar voru þær felldar
niður. Svo mun einnig hafa
verið með ferðaskrifstofu Úlfars
Jakobsen. Ætli Hríseyingar að
taka á móti vaxandi ferðafólki
verður að endurskoða alla
aðstöðu til þess.
Eftir ræðuhöld og viðeigandi
þanka tengda þjóðhátíðardeg-
inum hugðu menn á létta leiki.
Þar á meðal var reiptog og
þannig að staðið að þeir sem
töpuðu skyldu í sundlaugina og
þar þvegið af þeim slenið. Sá
sem hér sést synda svo vasklega
á herðablöðunum bjó til þessar Ykkur sem að alltaf syndið,
vísur í tilefni atburðarins og öllum nú ég segja vil,
óumdeilanlegs virðuleiks stell- þessi stelling eykur yndið,
inga sinna. á því myndin gerir skil.
Úti vildi aðra toga,
ekki sleppti hann takinu, Sigtryggur Steindórsson.
hetjan svo í hálfum boga,
hafnaði á bakinu.
NORÐURLAND - 5