Norðurland - 04.10.1979, Page 6
Stjórnmálaályktun kjördæmisþings AB
í Norðurlandi vestra
Frá kjördæmisþinginu sem haldið var á Sauðárkróki um helgina.
1 stjórnarmyndunartilraunum
flokkanna eftir síðustu kosn-
ingar kom það skýrt í ljós, að
Alþýðubandalagið er eini stjórn
málaflokkurinn sem vill gera
eðlisbreytingar á núverandi
þjóðfclagskerfi, og á þvíströnd-
uðu viðræður þess við hina
flokkana hvað eftir annað.
Stjórnin var síðan að verulegu
leyti mynduð fyrir atbeina
launþegasamtakanna, sem sáu
fram á kreppu og atvinnuleysi
innan fárra daga eða vikna, er
stefnu hægri stjórnarinnar væri
fylgt lengur.
Stefnumálin, sem mest köll-
uðu að í upphafi stjórnar-
samstarfsins voru: -
a) að halda uppi fullri at-
vinnu. Þetta hefur tekist.
b) að halda irppi og bæta
kaupmátt launa. hetta hefur
einnig tekist í höfuðdráttum.
c) að draga úr verðbólgunni.
Þetta verkefni hefur ekki verið
leyst.
Að sumu leyti á sú mikla
verðbólga, sem nú er í landinu,
rætur sínar í olíukreppunni og
þeim miklu verðbólgusveiflum,
sem hún hefur valdið í mörgum
helstu viðskiptalöndum okkar,
en að verulegu leyti er hún
afleiðing þess sjálfvirka verð-
bólgukerfis, sem hefur verið við
líði í landinu og sífellt verið að
festa sig betur í sessi allt frá
stríðsárum, og samstarfsflokk-
ar Alþýðubandalagsins hafa
ekki fengist til að hrófla við.
Kjördæmisráðstefnan lítur svo
á, að orsakir verðbólgunnar sé
að verulegu leyti hægt að rekja
til myndunar þess gífulega
bákns illa skipulagðrar og sum-
part óþarfrar verslunar-, og því
milliliða- og braskkerfi, sem
viðgengist hefur í landinu um
langt skeið. Þannig var á árinu
1977 meira vinnuafl bundið í
verslun og viðskiptum en fisk-
veiðum og fiskverkun, þar af
batt banka- og lánasjóðakerfið
Léreftstuskur
4 Léreftstuskur 4
2 Léreftstuskur y
Z Léreftstuskur 7
7 Kaupum hreinar 4
1 léreftstuskur 7
4 á hœsta verði 4
TSkjaldborg hf.J
4 Hafnarstræti 67 Z
4 Sími 24-0-24 2
eitt næstum eins margt starfs-
fólk og fiskiflotinn.
Þá bendir ráðstefnan á að
hávaxtastefnan ýtir mjög undir
verðbólguna og leggur óbæri-
legar byrgðar á fyrirtæki og
einstaklinga.
Kjördæmisráðstefnan telur,
að við endurskoðun samstarfs-
samnings stjórnarflokkanna,
sem nú stendur fyrir dyrum,
verði Alþýðubandalagið að
knýja á um að fleiri af helstu
baráttumálum flokksins komist
í framkvæmd, þar á meðal eftir-
talin málefni:
1. Launajöfnun. Vísitöluþak
verði sett á hálaun, en lægstu
laun verði hækkuð, þ.á.m. elli-
lífeyrir, örorkubætur og aðrar
tryggingabætur. Stefnt verði að
því í framtíðinni að hámark
hæstu launa verði eigi hærra,en
sem nemur tvöföldum lægstu
launum.
2. Hersetunni verði aflétt.
3. Unnið verði gegn verð-
bólgu með stöðvun verðhækk-
ana, endurskipulagningu inn-
flutningsverslunar, samdrætti í
hinu fyrirferðarmikla banka-
kerfi, aukinni hagkvæmni í
framleiðslustarfseminni og
fleiru, sem miðar í sömu átt.
4. Komið verið í veg fyrir
nýjar innrásir erlends fjármagns
í íslenskt atvinnulíf. En í þess
stað verði lögð áhersla á upp-
byggingu íslenskra atvinnu-
vega, því tilvist byggðar í
landinu mun í framtíðinni sem
hingað grundvallast á fisk-
veiðum, landbúnaði og full-
vinnslu íslenskra hráefna og
orku í iðnaðarvarning.
5. opinberum framkvæmdum
verði haldið áfram af fullum
krafti. Sérstök áhersla verði
lögð á orkumálin í því skyni að
draga sem mest úr orkuinn-
flutningi.
6. Ríkisstjórnin beiti sér fyrir
aukinni hagkvæmni og fram-
leiðni atvinnufyrirtækja. Lögð
verði áhersla á að bæta vinnu-
aðstöðu og að gera vinnustaði
vistlega, t.d. í fiskverkunar-
stöðvum og hjá iðnfyrirtækjum.
7. Sá hluti efnahagslífsins,
sem lýtur félagslegum yfir-
ráðum, verði aukinn, en dregið
úr opinberum stuðningi við illa
rekin, fjárvana og sumpart
óþörf einkafyrirtæki. Eftirlit
með skattheimtu og framtölum
fyrirtækja og einstaklinga verði
stórlega aukið, og þannig að
greiðslur í sameiginlega sjóði
deilist á þegnana samkvæmt
efnum og afkomu.
8. Áhrif launþega á rekstur
atvinnufyrirtækja verði aukin.
9. Aðstaða landshlutanna að
því er snertir ýmiskonar þjón-
ustu og verslun verði jöfnuð
meir en nú er, þar með talinn
hitunarkostnaður, orkugjöld,
símaþjónustu o.fl. Jöfnun þess-
ara kostnaðarliða er í eðli sínu
eins sjálfsögð og t.d. jöfn
útvarpsgjöld og jafnt bensín-
verð um land allt.
Ráðstefnan telur það ekki
Viljum kaupa
svart/hvítt sjónvarpstæki, einnig borðstofu-
borð og stóla og e.t.v. fleiri húsgögn. Ef einhver
á veggskáp með hvítu harðplasti úr gömlu
eldhúsinnréttingunni sinni vildum við gjarnan
sjá hann líka.
Til sölu á sama stað gömul Rafha eldavél og
Suithun barnavagn.
Upþlýsingar í síma 25520.
NORÐURLAND
óskar að ráða mann til að taka að sér aug-
lýsingaöflun fyrir blaðið, gegn prósentum.
Upplýsingar á skrifstofu NORÐURLANDS,
Eiðsvallagötu 18, sími 21875.
hlutverk Alþýðubandalagsins
að halda hinu frumstæða þjóð-
félagskerfi auðvaldsins á floti
þegar auðvaldið sjálft er búið að
sigla því í strand, eins og gerðist
á s.l. ári, heldur að knýja fram
breytingar, sem miði að sósíal-
isku jafnrétti og þjóðlegri reisn.
Fáist samstarfsflokkarnir ekki
til neinna slíka ráðstafanna,
hljóti þessu stjórnarsamstarfi
að verða slitið af hálfu Alþýðu-
bandalagsins áður en langt
líður, og þá beri að efna til
kosninga, þar sem tekist verði á
um skýra og afdráttarlausa
sósíaliska stefnu AB annars-
vegar en hinsvegar þá sameigin-
legu stefnu allra hinna flokk -
anna, sem í höfðudráttum hefur
verið ríkjandi í þjóðfélaginu.
Kjördæmisráðstefnan fagnar
því átaki sem framundan er í
vegagerð í kjördæminu saman-
ber nýsamþykkta vegaáætlun,
en bendir jafnframt á að gerð
varanlegra gatna í þéttbýli er
verkefni, sem verður að leysa á
næstu árum og að ríkisvaldinu
beri að efla slíka gatnagerð, t.d.
með aukningu þéttbýlisvega-
fjár, sérstökum lánaveitingum í
þessu skyni og aukinni tækni-
legri ráðgjafarstarfsemi. Sýnt
virðist, að sveitarfélögin ráða
ekki ein við þetta verkefni, m.a.
vegna verðbólgunnar, sem
brennir upp tekjur þeirra um
allt að 30% árlega.
Stjórn kjördæmisráðs A.B. á
N.L.V. er nú þannig skipuð:
Aðalmenn:
Jón Torfason, Torfalæk, Form.
Guðm. H. Sigurðs. Skagaströnd.
Sturla Þórðarson Blönduós.
Varamenn:
Eðvard Hallgríms. Skagaströnd.
Guðm. Theodórs. Blönduós.
Björn Friðriksson Blönduós.
3ja-4ra herb. íbúð
óskast til leigu.
Uppl. á skrifstofu Norðurlands,
sími 21875.
Auglýsið í
NORÐURLANDI
N0RÐUR1AND
MÁLGAGN SÓSlALISTA
LANÐS-
EYSTRA
Fréttir af Norð-
urlandi.
Hressileg póli-
tísk umræða.
Skrif um listir og
menningarmál.
Skákþáttur Helga
Ólafssonar.
Krossgátan.
íþróttir.
Norðurland
er 8 síður og
kemur út
vikulega.
Áskriftargjald inn-
heimtist tvisvar á ári.
Áskriftargjald fyrir
hálft árið er kr. 3.500.
Sími21875
Eiðsvallagata 18
Pósthólf 492
Akureyri
Ég undirritaður óska eftir að gerast áskrifandi að
NORÐURLANDI:
Nafn:______
Heimili:___
Póstnúmer:
llll
6 - NORÐURLAND