Norðurland - 04.10.1979, Qupperneq 7
MINNING
Jóhanna Sigríður Árnadóttir
frá Hrísey
SKÁK
Helgi Ólafsson
Akureyringar efstir
í deildarkeppni S.í.
Skákmenn frá Akureyri hafa
verið ansi iðnir við kolann upp á
síðkastið. Um síðustu helgi tók
sveit frá Skákfélagi Akureyrar
þátt í miklu „Skákfestivali" á
vegum Flugleiða og helgina þar
á undan hófst Deildarkeppni
Skáksambands íslands og tekur
Skákfélag Akureyrar að sjálf-
sögðu þátt í þeirri keppni.
Deildarkeppni Skáksambands-
ins fer nú fram í 6. skipti og er
teflt í tveimur deildum, 1. og 2.
deild. í 1. deild eru 8 sveitir og
voru fyrstu 4 umferðirnar tefld-
ar í Munaðarnesi áðurnefnda
helgi.
Skákfélagi Akureyrar hefur
bæst nokkur liðsaukj, en við
sveitina hafa bæst Áskell ö.
Kárason og sá sem þessar línur
skrifar.
Alls fóru 10 Norðanmenn til
keppni í Munaðarnes, en 8
teíldu hverju sinni. Úrslit í viður
eignum Skákfélags Akureyrar
urðu sem hér segir:
1. umf.: Akureyri - Keflavík 6^:1 !ó
2. umf. Akureyri - Seltjarnarn. 5:3
3. umf. Akureyri - Kópavogur 6:2
4. umf.: Akureyri - Austurland 5:3
Reyndar fór aðeins fram ein
viðureign í 4. umferð, þannig að
Skákfélag Akureyrar og Skák-
samband Austurlands hafa lok-
ið einni keppni umfram hinar
sveitirnar. Staðan í 1. deild er
þessi:
1. Akureyri 22!ó v. (4)
2. Reykjavík 20 v. (3)
3. Mjölnir 14 v. (3)
4. Austurland 14 v. (4)
5. Hafnarfjörður 10 v. (3)
6. Kópavogur 9'/ v. (3)
7. Seltjarnarnes 9 v. (3)
8. Keflavík 5 v. (3)
Jafnvel þó Taflfélag Reykja-
víkur eigi eina keppni til góða er
frammistaða Akureyrarsveitar-
innar mjög góð og ekki ætti að
vera fráleitt að veita Reykja-
vík einhverja keppni. Það er
t.a.m. athyglisvert að ýmsa
sterka skákmenn vantaði i
Munaðarnes, svo sem Halldór
Jónsson, Jón Björgvinsson,
Guðmund Búason og Kára
Elísson. Með besta liðið inná
ætti sigur yfir TR alls ekki að
vera svo fjarlægur svo framar-
lega sem Sunnanmenn mæti
ekki norður með báða stór-
meistarana, en aldrei er að vita
nema að til þess örþrifaúrræðis
verði gripið, sé veldi Taflfélags
Reykjavíkur verulega ógnað.
Ef haldið er áfram með statis-
tikina þá skiptust vinningar
sveitarmeðlima þannig:
1. b.: Helgi Ólafsson 3 v. af 4
2. b.: Gylfl Þórhallsson 3 v. af 4
3. b.: Áskell ö. Kárason 2 v. af 4
4. b.: Ólafur Kristjánsson 3 v af 4
5. b.: Þór Valtýsson 2 v. af 4
6. b.: Jóhann Snorrason 2 v. af 3
7. b.: Margeir St.grímss. V/i v. af 3
8. b.: Pálmi Pétursson V/i v. af 2
1. varam.: Guðlaugur Guðmundss.
1 Vi v. af 2
2. varam.: Jakob Kristinsson
2 v. af 2
Af meðlimum sveitarinnar
var það áberandi hversu örugg-
lega og vandvirknislega þeir
ólafur Kristjánsson og Margeir
Steingrímsson tefldu. Þá börð-
ust þeir Gylfi Þórhallsson og
Jakob Kristinsson af miklum
eldmóði.
Annars má segja að allir hafi
staðið svona nokkurn veginn
fyrir sínu, nema ef vera skyldu
nýliðarnir!
Nokkur bið verður á að
Akureyringar tefli aftur þar sem
4. umferð er enn ólokið. Þó
skilst mér að 5. umferð eigi að
fara fram fyrir áramót, en þá
tefla m.a. saman Skákfélag
Akureyrar og Mjölnir.
— o —
Eins og lauslega var drepið á,
þá tók sveit frá Skákfélagi
Akureyrar þátt í „Skákfesti-
vali“ Flugleiða. Sveitin endaði í
9. sæti af 24, en fyrirkomulag
keppninnar var þannig að fyrir
hverja sveit tefldu 3 skákmenn
og tefldu allar sveitimar inn-
byrðis 15 mínútna skákir. Fyrir
Akureyringa tefldu Halldór
Jónsson (11'á v. af 21), Ólafur
Kristjánsson (7‘á v. af 16), Gylfi
Þórhallsson (18'/2 v. af 22) og
varamenn Þór Valtýsson (2 v af
5) og Haraldur Ólafsson (4 v. af
5. ).
Veitt voru verðlaun bæði
fyrir efstu sveitir og einstakl-
ingsverðlaun. Akureyringar
unnu ekki til verðlauna þó Gylfi
Þórhallsson hafi ekki verið
fjarri verðlaunum fyrir frammi-
stöðu sína á 3. borði.
Húsið heitir Bakki. Það er
snyrtilegt járnklætt timburhús.
Á vesturenda hússins er útihurð
og trétröppur. Tröppurnar eru
slitnar af umgangi fólks í
áratugi. Á góðviðrisdögum
mátti oft sjá konu á bláum slopp
standa á þessum tröppum og
halla sér fram á handriðið.
Þetta var hún Jóhanna Sigríður
Árnadóttir, oft kölluð Jóa. Hún
Jóa er nú dáinn og sagan sem
tröppurnar skráðu um fóta-
takið hennar er á enda. Jóhanna
dó laugardaginn 22. september.
Dauða hennar bar allsnöggt að
og aldurinn ekki ýkja hár. En
Jóa átti skilið að þurfa ekki að
heyja langt og þjáningarfullt
dauðastríð. Líf, hennar hafði
ekki verið neinn dans á rósum,
en æviferill hennar verður ekki
rakinn hér. Hins vegar má geta
þess að sorgin og sár lífsreynsla
knúðu dyra hjá henni eins og
svo mörgum öðrum. Þá hluti
ræddi Jóa aldrei. Hins vegar gat
hún vel sagt það sem hún
meinti, en hún tróð ekki á
neinum með skoðunum sínum
eða sjálfri sér. Jóhönnu var
nefnilega nær alltaf að fmna
heima hjá sér. Þar hugsaði hún
vel um sína og þar gátu gamlir
nágrannar leitað góðra ráða
sem látin voru i té af heilum
huga.
En nú er hún Jóa öll og
kannar þær víddir sem við ekki
þekkjum en eigum öll eftir að
reyna. Megi það verða henni
einhver styrkur, þá á hún vísan
góðan hug gömlu grannanna á
Bjargi, sem trúlega eiga leið
fram hjá Bakka og sjá í
huganum konuna á bláa slopp-
num standa á tröppunum og
halla sér fram á handriðið.
Vottum systrunum Ebbu og
Ásu samúð okkar svo og
honum Mikka og barnabörn-
unum hennar Jóu.
Valdís og Guðjón.
Fulltrúakjör
Kjör fulltrúa Sjómannafélags Eyjafjarðar á 16. þing
Alþýðusamband Norðurlands fer fram að viðhafðri
alsherjaratkvæðagreiðslu.
Framboðslistum með nöfnum 3 aðalfulltrúa og 3 til
vara skal skila til skrifstofu félagsins, Skipagötu 12,
Akureyri, eigi síðaren kl. 17 föstudaginn 26. október
þ.m.
Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 26
fullgildra félaga. ,
Akureyri 1. október 1979.
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.
Vaffellingaspeki
„Útvarpsráð
Skúlagötu 4
Rey kjavík “
í tllefnl þess að ég opnaði fyrlr útvarp í blfreið
minni kl. 13.25 í gær og heyrði þá óma stjórn-
málaslagorð sértrúarflokksins, sem vill ísland
úr Nato, krefst ég þess af útvarpsráðl að það
sjái þegar til þess, að slík hrosshausaljóðagerð
verði tafarlaust tekin af dagskrá hljóðvarps og
sjónvarps.
Það er krafa hiris almenna borgara, að
útvarpsmenn sjál sóma sinn í því, að múgæs-
ingasöngvar stjórnmálalegra sértrúarsöfnuða
séu ekki sffelit á dagskrá, enda brot á hlutleysis-
reglu ríkisfjölmiðla.
I þessu sambandl óska ég eftlr að gerð verði
könnun á þvi, hve oft áður nefnd skffa hafi verlð
spiluð f útvarpi eftir útkomu hennar. Er þessi
ósk gerð, vegna þess að mér hefur verið tjáð af
fjölda fólks að hún muni hafa verið leikln óeðli-
lega oft f hljóðvarpinu.
Eg vll að lokum vara útvarpsráð við að sofna
ekkl á vöku slnni f þessum efnum til að sefa
fólk til fylgis við ákveðlð sértrúartema, gæti
auðveldlega leitt tll svipaðra múgæslnga og
voru samfara t.d. valdatöku Hitlers og
Komeinis. Elnnlg má minna á nýlega sýnda
þætti i sjónvarpinu, þar sem glögglega sést
hvernig múgæsing kommúnista verður að einu
alsherjar hneggi á fundum þeirra.
íslenskt stjórnarfar er byggt á lýðræði, frjálsri
hugsun og andlegri reisn, en ekki andlegu
ofbeldi og lágkúrulegu gubbi stjórnmálasöngva
sem hellt er viðstöðulaust yfir fólk án vilja þess.
Ég vil að síðustu minna á það að þorrl þjóðar-
innar vill fá að vera f friði fyrir slíkum heila-
þvotti f ríkisfjölmiðlum, hrosshausarnir geta
látið sér nægja að lesa „bænablað" sitt og haft
vlðtöl við hrosshausa sfna þar, mín og annara
vegna.
Virðingarfyllst Hreggviður Jónsson.
Morgunblaðlð hefur nýlega fyrir satt að framan-
ritað snilldarverk hafi verlð sent útvarpsráði.
„Morgunblaðið sér ástæðu tll að birta bréf
Hreggviðs" segir f blaðinu.
Ég er algerlega sammála Morgunblaðinu.
Ástæða er til að birta svo stórgáfulegar rit-
smíðar Vaffelllnga sem oftast. Séu einhverjir
búnir að gleyma þvi þá er rétt að minna á að
bréfritarinn var í hópi þeirra frægu tólfmenn-
inga sem stóðu að undirskriftasöfnun Varins
lands.
Vaffellingar hafa reynst öðrum mönnum
frjálsbornari eins og alkunna er. þeim hefur
verið svo annt um hið frjálsa orð meðal þjóðar
slnnar að þeim hefur þótt vissara að standa f
langvinnum málaferlum við þá menn sem
skildu tjáningarfrelsið á þann veg að því mætti
beita til að mótmæla hernáminu og aðlld i
NATO. Að svo miklu leyti sem hið meistaralega
tilskrlf tll útvarpsráðs er skiljanlegt fólki er
mælir á fslenska tungu þá er Ijóst að hugmynd-
ir Vaffelllnga eru enn á þann veg að segja:
Lýðræði frjáls hugsun og relsn krefst þess að
þaggað verði niður f þeim listamönnum í rfkis-
fjölmiölunum sem eru á móti amerfska hernum.
Beitf pólitíkusar í Austur-Evrópu, Asíu eða
Afriku þeim aðferðum að vilja þagga niður i
andstæðingum með þvi að hefta tjáningarfrelsi
þeirra eru slíkar aðgerðir réttilega harðlega for-
dæmdar af fjölmörgum mönnum víða um helm.
Meðal þeirra sem hæst hafa hér á landi eru
þeir sem ákafast biðla til Bandarfkjamanna um
áframhaldandi varaniegt hernám. Heilindi
þeirra verður að vísu að skoða í Ijósi þess að
ummæll Hreggviðs Jónssonar eru ekki einasta
persónulegar skoðanir hans sjálfs heldur
afstaða þeirra sem harðast berjast fyrir
hernáminu.
_ Bréfsendingar þessa fræga Vaffelllngs tll
Útvarpsráðs geta vlssulega geflð tilefnl til
nokkurrar umfjöllunar þegar gætt er að þeim
endæmis mótsögnum sem eru á milli orða hans
um frelsi, reisn og lýðræði annars vegar og
þeirrar kröfu sem hann gerir til útvarpsráðs um
að slökkva á tónlist Heimavarnarliösins hins
vegar. Það verður þó ekki gert að slnni og látið
nægja að benda þessum hugumstóra frjáls-
hyggjumanni á að viljl hann láta taka mark á sér
ættl hann að sneiða hjá spakmælum fslenskrar
tungu. Þannig halda menn vöku slnnl, og sofna
ekki á verðlnum f baráttunni við andstæð öfl.
Hernámsandstæðlngar munu áreiðanlega gera
það nú sem hingað tll ekki sfst ef það fer svo
að málatilbúnaður Vaffelllnga verður f þá veru
að vara hvem annan viö að sófna ekki á vöku
sinni. Herstöðvaandstæðingar munu hlns vegar
minna hvern annan á að ástæðulaust sé að
varast það að sofna ekki á verðinum, heldur
hið gagnstæða.
NORÐURLAND - 7