Norðurland - 04.10.1979, Síða 8
NORÐURLAND
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
í NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
AUGLÝSIÐ I'
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Súninn er 2-18-75
Kópasker vill aukið hlutfall rækjunnar
en Húsavík vill halda sínum hlut
Frá Húsavík.
Okkar mið frá fornu fari
segir Tryggvi
Deila er enn á ný risin á milli
Kópaskersbúa annars vegar og
Húsavíkur hins vegar um nýt-
ingu rækjustofnsins í öxar-
firði. Rækjuveiði hefur verið
stunduð þar í 3-4 ár og hefur
verið við lýði helmingaskipta-
regla milli staðanna varðandi
veiðarnar. Nú hafa Kópaskers-
búar skrifað bréf til forsætis-
ráðherra þar sem þeir fara fram
á að hann taki málið upp í ríkis-
stjórninni, þar eð þeir telja að
ekki tjói lengur að reka málið
við sjávarútvegsráðherra.
NORÐURLAND hafði sam-
Þetta er auðvitað gamalt deilu-
mál eða síðan rækjuveiðar
hófust á öxarfirði, sagði
Kristján. Við hér á öxarfirði
höfum álitið að okkur bæri
sami réttur og öðrum, en alls
annars staðar en á öxarfirði
hafa leyfisveitingar til veiða og
vinnslu á rækju verið bundnar
við heimaaðila. Þannig hefur
þetta verið á Húnaflóa, Vest-
fjörðum og yfirleitt hvar sem er.
Hvaða ástæður eru fyrir því a?
þetta gildir ekki fyrir ykkur?
Ástæðurnar eru nú í raun
og veru þær að á Húsavík eru
tíu sinnum fleiri atkvæði í kosn-
ingum en hér.
Hvað eruð þið með marga
rækjubáta?
Við erum með sex, Húsvík-
ingar held ég hins vegar að hafi
sótt um 10.
Útiloka Húsvíkingar ykkur af
rækjumiðunum?
Nei, nei málið er hins vegar það
að fyrir vertíð í fyrra var leyft að
veiða þúsund lestir en nú er
Bæjarstjórn Húsavíkur beinir
þeim eindregnu tilmælum til
sjávarútvegsráðuneytis að
skipting rækjuveiða í öxarfirði
verði hér eftir sem hingað til
jöfn milli Húsavíkur og Kópa-
skers og minnir á að uppbygg-
ing veiða og vinnslu hefur átt sér
stað í þeirri vissu að þessi
skipting veiðanna verði ávallt í
heiðri höfð. Hins vegar verða
allir að sætta sig við minnkandi
veiðar þegar ytri aðstæður
skapa þá stöðu og verður að
dreifa þeirri byrði og báðir
aðilar að taka á sig jafna
skerðingu. Minnt er á að
atvinnuástand á Húsavík er
Kópaskersbúar
beiðast frum-
kvæðis forsœtis
ráðherra
í málinu
band við nokkra aðila þessa
máls og fara svör þeirra á eftir
hér á síðunni.
ákveðið að leyfa 540 lestir.
Það eru sem sagt 270 lestir
sem koma í okkar hlut, hitt
taka Húsvíkingar og þetta
getur þýtt mjög alvarlegt ástand
hjá okkur strax eftir áramótin.
Er rækjan ykkar aðal sjó-
fang?
Það er svona 90-95%. Við
höfum litla möguleika á ann-
arri útgerð eins og er.
Það var fundur á Húsavík á
dögunum þar sem við óskuðum
eftir könnun á þýðingu þess-
arar atvinnugreinar fyrir við-
komandi staði. Það segir sig
sjálft að þetta skiptir mun
minna máli fyrir Húsvíkinga en
okkur. Bæjarstjórn Húsavíkur
gerði reyndar samþykkt þar
sem þeir bera saman hækkun
útsvara hjá sér og okkur, en það
er reyndar þar við að bæta að
meðaltekjur Húsvíkinga eru um
13% hærri hjá þeim heldur en í
Presthólahreppi. Þeir eru hvern
ig sem á málið er litið miklu
betur staddir en við.
ekki með þeim hætti í dag að
þar megi neinn hlekkur bresta
hvorki í sjávarútvegi né öðrum
atvinnugreinum og má í því
sambandi minna á tekjur Húsa-
víkurkaupstaðar af útsvörum
hækka aðeins um 48.1% milli
áranna 1978 og 1979. Á sama
tíma er landsmeðaltalsaukning
52-53%. Hins vegar mun tekju-
aukning Presthólahrepps vera
nær 90% milli þessara sömu ára.
Þá vill bæjarstjórn Húsavíkur
benda á að jafnvel við bestu
skilyrði er fyrirsjáanlegt að
rækjuverksmiðjurnar verða
ávallt verkefnalausar 5-6 mán-
framh. á bls. 2.
Tryggvi Finnsson fram-
kvæmdastjóri fiskiðjusamlags-
ins á Húsavík sagði að þegar
skiptingin milli Húsavíkur og
Kópaskers á sínum tíma hefði
það verið nokkuð umdeilt mál.
„þá var ekkert um að vera á
Kópaskeri sem hét sjávar-
útvegur. Menn hérna voru nú
kannske ekkert hressir með það
að láta þá hafa helminginn, þar
sem þeir áttu ekki nema einn bát
á þeim tíma en þó fannst okkur
kannske ekki ósanngjarnt að
þeir fengju sinn hlut í trausti
þess að það yrði ekki farið að
hróíla við því meira. Nú síðan
byggðu þeir upp sína rækju-
vinnslu og við okkar.
Nú líta þeir á þessi mið sem sín
heimamið.
Já, þeir vilja halda því fram en
við segjum nú að þetta séu frá
fornu fari okkar heimamið en
ekki þeirra. Þeirra útgerð hefur
ekki verið meiri en svo að þeir
hafa verið hingað til okkar
stærsti kúnni í fiski. Kópa-
sker er staður í líkingu við
Blönduós hann hefur fyrst og
fremst byggst upp á þjónustu
við landbúnaðinn. Enda kom
það upp á sínum tíma þegar
Blönduós fékk aðild að rækj-
unni á Húnaflóa þá var það
mjög umdeilt mál vegna þess að
þeir voru þar nýir aðilar eins og
Kópasker var á sínum tíma. En
okkur finnst þetta vera ósköp.
leiðinlegt mál og við viljum
helst ekki vera að hafa okkur
mikið í frammi í því.
Hvað er margt fólk hjá ykkur
Blaðið hafði samband við
Unni Skúladóttur hjá Hafrann-
sóknarstofnun og spurðist fyrir
um þær rannsóknir sem stofn-
unin hefði gert á rækjustofnin-
um í öxarfirði. Hún sagði niður
stöðurnar vera þær að ástandið
væri gott og naumast ástæða til
að óttast um rækjustofninn. Hún
sagði að það væri misskilningur
að tala um niðurskurð á veið-
unum úr þúsund tonnum. Sú
tala hefði verið áætluð í upp-
hafi þegar ekki var vitað hvað
stofninn væri sterkur. „f fyrra-
vetur var kvótinn 700 tonn og
sem hefur framfæri af rækjunni?
Við erum með yfir tuttugu
manns sem hefur sitt framfæri
af rækjunni. Við höfum sótt
svolítið af rækju á djúpmið í
sumar það' hafa komið um
hundrað tonn þannig. Við
reynum að halda þessu gang-
andi þannig. Þessi vinnsla á
innfjarðarrækju stendur aldrei
nema um 5-6 mánuði á ári
og það verður að finna eitt-
hvað handa þessu fólki að gera
hinn helming ársins og þannig
leysir það ekki þeirra atvinnu-
mál allt árið.
Verða ekki staðirnir að leysa
þessi mál með verkaskiptingu af
einhverju tagi sín á milli?
Þessi mál verða aldrei leyst
nema með því að verksmiðj-
unum verði fengin önnur verk-
efni, önnur hráefni til að vinna
þann tíma ársins sem engin
rækja er og það höfum við bent
á að þyrfti að gera.
En þið eruð ekki til viðtals um
að láta þeim eftir rækjuna og
beina ykkar sókn annað?
Nei vegna þess að þeir bátar sem
eru í rækjunni nýtast okkur lang
best þannig á þessum tíma árs.
Það sem þarf að gera er að nýta
verksmiðjurnar betur, þær geta
unnið önnur hráefni en rækjuna,
í mesta lagi þyrfti einhvern
viðbótabúnað til að gera það
kleyft. Þó að Kópasker fengi
alla rækjuna þá mundi það ekki
leysa neitt því að þeir yrðu þá að
stækka verksmiðjuna sem yrði
svo eftir sem áður verkefnalaus
hálft árið.
þar áður 850 tonn, og við
höldum að jafnstöðuaflinn sé í
kringum 700 tonn. Rækjan
núna er stærri en í fyrra, þá var
mest áberandi tveggja og
þriggja ára rækja en núna
þriggja og fjögra ára. Núna
reynum við að ná betrajafnvægi
og fá upp yngri rækjuna. Þessi
kvóti sem nú var ákveðinn
verður svo endurskoðaður um
áramótin, en við reynum að
hafa þetta eins nákvæmt í
upphafi og okkur er mögulegt“
- sagði Unnur.
Esperanto hjá
Námsflokkum
Akureyrar
Svo sem nokkra síðastliðna
vetur verður á vetri kom-
anda haldið námskeið fyrir
byrjendur í Esperanto á
vegum Námsflokka Akur-
eyrar og Félags Esper-
antista. Próf sem hægt er
að taka að loknu þessu
námskeiði í byrjun maí,
gildir sem valgreinarpróf
við Menntaskólann.
Þeir sem gerast vilja
þátttakendur í þessu nám-
skeiði, gefi sig fram við
Bárð Halldórsson (sími
21792) eða Jón Hafstein
Jónsson (sími 24270).
Þátttakendur verða kall-
aðir saman mánudaginn 8.
okt. kl. 17 í húsi Mennta-
skólans, Möðruvöllum, og
verður þá gengið frá stunda
skrá.
Frá Námsflokkum Akur-
eyrar og Norda Stelo.
Heitt vatn og
sósíalisminn
Menntamálaráðuneytið hef-
ur samþykkt teikningar frá
Húseiningum á Siglufirði, af
leikskóla sem reistur verður
á Dalvík í haust. Ef veður og
vindar leyfa mun Þórir Páls-
son húsasmíðam. sjá um
fyrsta hluta verksins, sem er
grunnur. Húseiningarmenn
eru eldsnöggir að raða ein-
ingunum saman, skella milli-
veggjum upp og slá hurðum í
síðan munu bæjarbúar sjá
um að fínpússa allt innan-
dyra. Vonast er til að hús-
næðið komist í gagnið sem
fyrst, þar sem leigusamn-
ingur við skáta er runninn út.
Bæjarstjórn hefur rætt
óformlega við skáta um að
Skátahúsið megi enn um
sinn kallast Krílakot, eða þar
til nýja húsið verður tilbúið.
Húsið er 160 fm. og all-
nokkru stærra en Skáta-
húsið. Þar sem Ríkið greiðir
50% af kostnaði, mun
Menntamálaráðun. mæla
með að leikskólinn verði á
fjárlögum ársins 1980
þ.e.a.s. ári trésins.
Búið er að leggja hita-
veituæð út í Kotin, að
nokkrum bæjum undan-
skildum.
Stefnan er, að allir íbúar
Dalvíkurbæjar njóti heita
vatnsins, sem fyrst ef tækni-
lega reynist mögulegt, og ber
það vott um merkilegt skref i
átt til jafnréttis (- sósíalism-
ans).
Fyrir u.þ.b. mánuði síðan
var fjárhagsáætlun Dalvíkur
bæjar endurskoðuð og
athuguð, séð var að miklu
meira færi í laun, vextir
meiri, og framkvæmdir urðu
stærri í sniðum við elli-
heimilið en áætlað var, sér-
staklega voru tækjakaup
stórvægilegri. Ljóst varð að
tekjuafgangur yrði mun
minni en þegar fjárhags-
áætlun var samin. Eitthvað
varð að skera niður. Á
bæjarstjórnarfundi snemma
4 september var því sam-
þykkt að fresta kaupum á
hjólaskófiu til næsta árs.
Stefán.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Starfið framundan
OPIÐ HÚS
í Eiðsvallagötu 18, Lárusarhúsi, sunnudaginn 18.
október kl. 15-17.
| STYÐJUM NORÐURLANdI
Kópasker:
90-95% sjávarfangs rækja
Ályktun bœjar8tjórnar Húsavíkur:
Enginn hlekkur má bresta
Sjá viðtal við sjávarútvegsráðherra
á forsíðu.
Hafranns8Óknarstofnun:
Jafnstöðuafl inn um 700 t.