Norðurland - 11.10.1979, Side 2
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Ráðstefha um þjónustu og við-
skiptastarfsemi á Norðurlandi
Fyrir forgöngu Fjórðungssam-
bands Norðlendinga erákveðið
að efna til ráðstefnu um þjón-
ustu- og viðskiptastarfsemi á
Norðurlandi. Ráðstefna þessier
liður í þeirri stefnu sambands-
ins að kynna, bæði fyrir sveitar-
stjórnarmönnum og því fólki
sem vinnur í viðkomandi at-
vinnugrein, tiltekna þætti í at-
vinnustarfsemi og byggðaþró-
un á Norðurlandi. Aður hafa
verið haldnar ráðstefnur um
landbúnað, sjávarútveg, iðnað,
landnýtingu, æskulýðsmál, fé-
lagsheimilamál, húsnæðismál
og almenn atvinnumál. Á síð-
asta fjórðungsþingi, sem haldið
var á dalvík 2.-4. september var
vakin athygli á vaxandi mikil-
vægi viðskipta og þjónustu-
greina til eflingar búsetu úti um
landið og með skýrskotun til
þessa var ákveðið að efna til
ráðstefnu um þennan mála-
flokk, sem ákveðið var að halda
12. og 13. október n.k. á Akur-
eyri. Ráðstefnan verður haldin í
Gagnfræðaskólanum á Akur-
eyri og hefst kl. 8 e.h. föstudag-
inn 12. október. Á föstudags-
kvöld munu þeir Sigurður Guð-
mundsson og Sigfús Jónsson
hjá Byggðadeild Framkvæmda-
stofnupar ríkisins kynna stöðu
viðskipta- og þjónustugreina á
Norðurlandi í samræmi við
niðurstöður könnunar um þessi
efni, sem unnið hefur verið að á
vegum deildarinnar og Fjórð-
ungssambands Norðlendinga.
Gunnar Kárason mun ræða um
stöðu innflutnings og heild-
verslunar á Norðurlandi. Um
framleiðslu og gildi heima-
markaðar mun Þórgnýr Þór-
hallsson ræða. Jóhann Antons-
son mun ræða um bókhalds-
þjónustu og samræmingu henn-
ar og uppbyggingu stjórnsýslu-
miðstöðva. Ráðstefnunni verð-
urframhaldiðálaugardagkl. 10
f.h. Þá mun Tómas Sveinsson
ræða um samgöngumiðstöðvar
og samgönguþjónustu. Tryggvi
Pálsson mun ræða um upp-
byggingu verslunar- og þjón-
ustumiðstöðva. Ennfremur
mun Árni Árnason fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs ís-
lands ræða um nýjar leiðir í
verslunarþjónustu. Eftir hádegi
á laugardag mun Kjartan P.
Kjartansson flytja erindi um
stöðu samvinnuverslunar í dreif
býli, ennfremur mun fulltrúi
kaupmannasamtakanna skýra
frá niðurstöðum samtakanna á
stöðu dreifbýlisverslunar. I
framhaldi af þessum framsögu-
erindum verða almennar um-
ræður um verkefni ráðstefn-
unnar. Ráðstefnan er opin öll-
um með málfrelsi og tillögu-
rétti. Þetta er ekki ályktunar-
ráðstefna. Framkomnum til-
lögum og ábendingum verður
vísað til þjónustumálanefndar
Fjórðungssambandsins. Efni
ráðstefnunnar verðúr tekið upp
á segulband til frekari úr-
vinnslu. Tilgangurráðstefnunn-
ar er undirbúningur að frekari
málsmeðferð hjá Fjórðungs-
sambandi Norðlendinga við
undirbúning að mótun atvinnu-
málastefnu á þessu sviði.
(Fréttatilkynning.)
Rekstrarhagræðing hjá KEA
Ákveðið hefur verið að loka úti-
búum KEA að Ránargötu,
Grænumýri, Hlíðargötu og
Brekkugötu, í hádeginu. Nánar
tiltekið milli 12.30 og 14.00.
Þetta fyrirkomulag byrjar frá
og með 15. október.
Ástæðan fyrir þessum breyt-
ingum er minnkandi sala í litlu
útibúunum, og aukin sala í
stærri verslunum KEA. Sem
dæmi má nefna að Kjörmark-
aðurinn Hrísalundi 5 hefur 29%
af heildarsölu útibúanna, en
Nýtt í
Leðurvörum
• Loðfóðruðu fótlaga-
skómir komnir,
allar stærðir
• Nýjar tegundir af
karlmannagötuskóm
• Tréklossar, hvítir og
brúnir,
flestar stærðir
Leðurvörur
fjögur minnstu útibúin ná
12.8% til samans.
Rekstrarkostnaður hefur
aukist og sú hækkun álagning-
ar sem fékkst 5. apríl dugar ekki
til að brúa það bil. Þessvegna
verður að hagræðarekstrinum.
Þessar upplýsingar komu
fram hjá Birni Baldurssyni
verslunarfulltrúa KEA. Sagðist
hann vona að þessi hádegis-
lokun ylli ekki óánægju. Benti
hann á að þetta fyrirkomulag
hafi tíðkast í byggingavöru-
verslunum KEA, einnigaðsams
konar verslanir í Reykjavík
hafa þetta fyrirkomulag. Mikil
lúgusala er hjá útibúunum eða
14% af heildarsölunni. Lúgu-
salan fer fram utan venjulegs
verslunartíma og eykur því enn
á reksturskostnaðinn sem aftur
kallar á meiri hagræðingu.
Stefnt er að því að byggja
stórmarkað á miðbæjarsvæð-
inu sem mun leysa af hólmi 3-4
útibú.
NORÐURLAND
óskar að ráða mann til að taka að sér aug-
lýsingaöflun fyrir blaðið, gegn prósentum.
Upplýsingar á skrifstofu NORÐURLANDS,
Eiðsvallagötu 18, sími 21875.
Heitir þú Salka Valka (túss).
Mikil aðsókn er
hjá Ragnari Lár
Mikil aðsókn hefur verið á sýn-
ingu Ragnars Lár listmálara í
Gallerí Háhól og hafa nokkrar
myndir selst. Hér er um að ræða
fyrstu einkasýningu Ragnars á
Ákureyri en þar hefur hann
verið búsettur um hríð. Fólk er
hvatt til að missa ekki af sýn-
ingu Ragnars, en henni lýkur á
sunnudagskvöld. Erlingur Sig-
urðarson tók þessar myndir af
tveim verkum Raganrs og gefa
þær vonandi einhverja hug-
mynd um hvað þarerboðiðupp
á.
Bláfjall (akryl).
Ný fatagerð stofn-
sett á Dalvík
Fyrir nokkru frétti blm. að nýtt
fyrirtæki hefði verið stofnað hér
á Dalvík. Að athuguðu máli
kom í ljós að við Ásveg 5 er
Fatagerðin PRÍMA til húsa.
Þar voru eigendurnir Hugrún
Marinósdóttir og Jónína Ketils-
dóttir við störf. Blm. spurði um
aðdraganda að stofnun fyrir-
tækisins.
- Ja, við höfum oft talað um
þetta en ekkert orðið af fram-
kvæmdum fyrr en nú. Þegar við
ákváðum báðar að hætta störf-
um á Saumastofunni Ýli sl. vor
drifum við bara í þessu. Fata-
gerðin var formlega stofnuð 12.
júní. Nokkur tími fór í undir-
búning, kaupa efni o.fl. svo
byrjuðum við að sauma um
mánaðamótin ág.-sept. Véla-
kostur er þrjár heimili'ssauma-
vélar, þar af keyptum við eina
nýja ásamt földunarvél. Svo
eigum við von á einhverskonar
verksmiðjuvél sem afkastar
meiru en þessar. Þá leggjum við
einni af þeim sem við höfum,
því plássið leyfir ekki fleiri
vélar.
- Starfið þið einungis tvær að
framleiðslunni?
- Vigdís Sævaldsdóttir vinnur
hálfan daginn hjá okkur, en
þetta fyrirtæki er sameignafélag
og við erum s/f-ið, segja þær
stöllur og hlægja dátt.
- Fyrir hvaða markað fram-
leiðið þið?
- Við saumum kven- og
barnafatnað og höfum hingað
til selt almenningi hér á Dalvík
og í næsta nágrenni, Verslunin
Parið á Akureyri tók nokkur
kvenpils, eitthvað fór til Hrís-
eyjar og kunningjar út um land
hafa tekið sýnishorn. Við erum
mjög ánægðar með hve vel
hefur selst. Nú höfum við varla
undan að sauma það sem fólk
hefur pantað hjá okkur.
- Saumið þið eftir máli?
- Já, en bara úr okkar efnum.
- Hvað þarf maður að kunna til
að reka svona fatagerð?
- Sauma, segja þær og hlægja
að fávíslegri spurningu. Svona
án gamans, þá höfum við engin
próf, heldur byggjum á reynslu.
Það má segja að við höfum
saumað frá „alda öðli“, bæði
fyrir fólk heima og svo unnum
við á Saumastofunni Ýli, þó
það sé að vísu nokkuð frá-
brugðið þessum saumaskap.
- Hvernig er fyrirtækið Qár-
magnað?
- Við fengum lán hjá Spari-
sjóði Svarfdæla og svo veltur
þetta áfram. Við höfum ekki
reiknað okkur laun ennþá.
Þá var þessu spjalli lokið og
blm. vatt sér í að skoða
framleiðsluna. Þar gaf að líta
ýmiskonar kvenfatnað, pils,
„mussur", kjóla allt upp í stærð
52, barnafatnað svo sem buxur,
pils, kjóla, allt úr vönduðum og
fallegum efnum. Sýndist blm.
framleiðsla þeirra Hugrúnar og
Jónínu bera nafn með rentu og
vera „alveg PRÍMA“.
Sólveig H.
Esperantist-
ar fimda
Félagsfundur verður haldinn
í Norda Stelo sunnudaginn
14. okt. kl. 15 í Lárusarhúsi
að Eiðsvallagötu 18. Þar
verður sagt frá 4. landsþingi
fslenska Esperantosam-
bandsins á síðastliðnu sumri
og rætt um vetrarstarfið.
Einnig verður kynnt nýút-
komin hljómplata með vel-
þekktum íslenskum ljóðum
þýddum á Esperanto í flutn-
ingi hljómsveitarinnar
Hljómeyki. Þá verður hlýtt á
á varp frá H. Tonkin forseta
UEA til landsfundarins, en
þetta ávarp sendi hann á
segulbandi (kasettu). Síðast
en ekki síst eru nýir félagar
og stuðningsmenn velkomn-
ir.
2 - NORÐURLAND