Norðurland - 11.10.1979, Side 7
Leikfélag
Akureyrar
Galdrakarlinn
í Oz
Leikstjórl:
Gestur E. Jónasson.
Leikmynd: Ragnar Lár.
Frumsýning laugardag 13.
október kl. 17.00.
2. sýning sunnudag kl. 14.
3. sýning sunnudag kl. 17.
Aögöngumiöasalan er opin
frá og með fimmtudegi frá
17-19 og sýningardagana
klukkustund fyrir sýningu.
Sala frumsýningarkorta og
afsláttarkorta stendur yfir.
Simi 24073.
Leikfélag Akureyrar.
Sveinar kátir
syngið
í tilefni af 50 ára afmæli Karla-
kórs Akureyrar, hefir verið
ákveðið að safna saman eldri og
yngri kórfélöguna, sem nú starfa
ekki með kórnum, og æfa nokk-
ur lög til að syngja á fyrirhuguð-
um afmælissamsöng kórsins í
janúar eða febrúar n.k. Söng-
stjóri verður Áskell Jónsson.
Er hér með skorað á alla
fyrrverandi kórfélaga að koma
á æfingu í Laxagötu 5, sunnu-
daginn 14. október kl. 10.30.
Einnig má tilkynna þátttöku til
eftirgreindra manna: Jóhanns
Konráðssonar, sími 24974,
Ingva Rafns Jóhannsonar,
sími 23072, Sverris Pálssonar,
sími 23957, Ármanns Helga-
sonar, sími 24460, og Páls
Helgasonar, sími 24460.
Frá opnu húsi
Frá kjördæmisþinginu í fyrra.
Kjördæmisráðið þingar
um aðra helgi
Tehin verður ákvörðun um forval
Opið hús var að Eiðsvallagötu
18, sunnudaginn 7. október
(ekki 18. október eins og
misritaðist). Fáir mættu eða 15-
20 manns. Dagskráin var ekki
auglýst og hefðu sjálfsagt fleiri
látið sjá sig ef svo hefði verið
gert. Magnús Kristjánsson
menntaskólakennari flutti er-
indi um Ferðafélag Akureyrar
og sýndi skuggamyndir úr ferð-
um félaga þess.
Magnús rakti fyrst sögu
félagsins og síðan hvað væri
helst á döfinni hjá þeim Ferða-
Rauði kross fslands - Akur-
eyrardeild. Skrifstofa deildar-
innar er til húsa að Skólastíg 5,
gengið inn að austanverðu.
Síminn er 24803 og skrifstofan
er opin fyrir hádegi alla virka
daga.
félagsmönnum. Er þar fyrst að
nefna gerð korta yfir gönguleið-
ir. í öðru lagi var skipuð nefnd í
sumar til að kanna og stika
gönguleiðir. Því verkefni er
ólokið. í þriðjalagi gerð ferða-
áætlunnar fyrir næsta ár. Það
kom fram í máli Magnúsar að
mikil áhersla er lögð á göngu
ferðir. Máíþvísambandinefna,
auk þess sem þegar er talið, að í
tvo að skálum félagsins er ekki
hægt að komast nema gang-
andi.
Um 300 manns eru í Ferða-
félagi Akurreyrar þar af 100
virkir og verður að teljast gott.
Unglingar undir tvítugu fá auka
aðild en fá sjálfkrafa fulla aðild
þegar þeim aldri er náð. Fyrir
utan að hlusta á erindi Magnús-
ar rabbaði fólk saman og drakk
kaffi og var stundin hin ánægju-
legasta.
PISTIL.L
VIKUNNAR
Þing kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlands-
kjördæmi eystra verður háð í
Lárusarhúsi á Akureyri um
aðra helgi og mun hefjast laug-
ardaginn 20. október kl. 14.
Mörg mál liggja fyrir þinginu.
Að sögn Páls Hlöðverssonar
formanns kjördæmisráðsins
verður ljallað ítarlega um for-
valsmál og ákvörðun tekin um
hvort stefna skuli að forvali í
kjördæminu fyrir næstu kosn-
ingar. Páll sagði að gögn varð-
andi þetta mál hefðu verið send
öllum Alþýðubandalagsfélög-
um í kjördæminu til athugunar
og hafa vonandi allir tekið af-
stöðu til þess þegar þingið kem-
ur saman.
Þá munu útgáfumál taka
drjúgan hluta þingsins, einkum
málefni aðalmálgagnsins,
NORÐURLANDS. Þvíerekki
að leyna að blaðið stendur höll-
um fæti fjárhagslega eins og
stundum fyrr og á allt sitt undir
áhuga lesenda sinna og stuðn-
ingsmanna. Kjördæmisþingið
mun fjalla um með hvaða hætti
framtíð þess verði best tryggð.
Að auki verða atvinnu- og
kjaramál til umræðu og þess má
einnig vænta að hið óvissa
ástand í landsinálum almennt
eftir riftun stjórnarsamstarfsins
verði mjög til umræðu manna í
meðal. Þinginu lýkur á sunnu-
dag með umræðum um álit
starfshópa og kosningum. Milli
30 og 40 fulltrúar hafa rétt til
þingsetu.
Erfitt að spá -
Sérstaklega um framtíðina
Þar kom að því. Nú er pólitíkin í landinu
orðin eitt allsherjar bommsara bomms og
kratarnir komnir í eina fýluna enn. Verð-
bólguþunglyndið hefur lagst svo á sálina á
blessuðu fólkinu að allt er að lenda í einni
íhaldskássu á Alþingi íslendinga. Fram-
sókn og kommar vita bara ekkert hvaðan á
þá stendur veðrið og Óli Jó ætiar víst að
segja við íhaldssnillingana: Hirðiði allt
draslið, ég er farinn. Hittumst á Bessa-
stöðum að ári.
Sumir eru fúlir út af öllu þessu uppi-
standi en vafalaust miklu fleiri í sjöunda
himni. Meðal hinna síðarnefndu er Jón
Baldvin, Karvel og síðdegiSpressan. Síð-
degispressan vegna þess að nú verður
engin agúrkutíð meira og leikur einn að
framleiða slúður og hálfan sannleika eins
og hver vill hafa. Það verður hreint ævin-
týri að fylgjast með því öllu saman. Áður en
öll kurl verða komin til grafar verður búið
að mynda margar ríkisstjórnir á Islandi,
nokkrir þingmenn verða fallnir sínum
kjördæmum og aðrir orðnir stórpó tíkusar
á einni nóttu, þar verður makkað og teknar
gáfulegar ákvarðanir fyrir hina og þessa.
Allt gerist þetta löngu fyrir hugsanlegar
kosningar og flest af því hvergi nema á síð-
um síðdegisblaðanna. Lítum til dæmis á
hvernig síðdegispressan myndi leysa fram-
boðsvandamál Alþýðuflokksins og ekki er
að efa að heimildirnar verða taldar afar
ábyggilegar.
JÓN BALDVIN GEGN GRÖNDAL
KARVEL GEGN SIGHVATI
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum
Dagvísis mun Jón Baldvin Hannibalsson
vera ráðinn í að fara í prófkjör um fyrsta
sæti á lista kratanna í Reykjavík og reyna
þannig að fella flokksformanninn út af
þingi. Formaður þingflokksins kemst líka í
hann krappan því að Karvel ætlar í próf-
kjör á móti honum á Vestfjörðum að því er
haft var eftir manni á ísafirði í gær. Sig-
hvatur mun hafa hætt við að fara í próf-
kjör í Reykjavík eftir að Ijóst varð að Jón
Baldvin ætlaði fram í höfuðborginni. Segir
sagan að Sighvatur geti ekki hugsað sér að
mæta Jóni Baldvin aftur í prófkjöri og eiga
á hættu að tapa fyrir honum í það sinn.
Miklu skárra sé að tapa fyrir Karvel ekki síst
þar sem Benedikt hafi lofað Sighvati
kommisarsplássi frá Framkvæmdastofnun
ríkisins í þeirri ríkisstjórn sem Sjálfstæðis-
flokkurinn og Alþýðuflokkurinn munu
mynda eftir væntanlegan kosningasigur.
Samkvæmt sömu heimild (húsmóður í
vesturbænum) þá er Benedikt hvergi
smeykur við Jón og sagði í símtali við mann
inn í Laugarnesi í gær að Nonni væri best
geymdur á fjórblöðungnum. Af þessu sést
að kjósendur í Reykjavík mega eiga von á
spennandi prófkjöri þar sem Ijóst er að
margir hugsa sér að koma Benedikt á kald-
an klaka í pólitíkinni. Seinnipartinn í gær
hitti blaðamaður DAGVÍSIS mann niður á
Laugavegi sem talinn er hafa góð tengsl í
flokksstjórn Alþýðufiokksins. Hann sagði:
„Sko. Benni fellur í þessu prófkjöri. Fyrir
hverjum er ekki gott að segja því að þessir
gefa kost á sér í 1. sætið eftir því sem ég
frétti í patíi upp í Árbæ í gærkvöldi: Bene-
dikt, Vilmundur, Jón Baldvin, Jóhanna,
Jón Ármann, Siggi Gúm, einhver náungi út
á Seltjarnarnesi, sem ég man ekki hvað
heitir, Björn, Karl Steinar, Kjartan, Gunn-
laugur, Eiður, tveir Bragar, Finnur Torfi,
Árni Gunnars, Bjarni Guðna og kona ein-
hvers manns á Suðureyri, sem ég veit ekki
hvað heitir. Magnús H. ætlar víst ekkert að
skipta sér af þessu og ekki heldur strákur-
inn hans Einars ríka. Það er náttúrulega
ekki víst að Bensi falli eða þannig og
kannski best að segja sem minnst, því að
það er alltaf erfitt að spá og sérstaklega um
framtíðina. Það er líka rétt, sem Hermann
segir: „Allt getur gerst í sandkassaleik."
H. G.
NORÐURLAND - 7