Norðurland - 08.11.1979, Page 2
LANDS-
HORNIÐ
Frá frysti-
húsakerlingu
útá landi
Eftir farandi bréf birtist í
Neista 23. september síðast-
liðinn. Okkur hér á NORÐ-
URLANDI finnst full
ástæða að það komi fyrir
augu lesenda NORÐUR-
LANDS. Bréfið er óstytt.
Ég var að lesa grein um streitu
í síðasta tbl. Neista og fór að
hugsa um stöðu okkar frysti-
húsakvenna.
Af hverju látum við fara með
okkur eins og gert er?
Af hverju fara frystihúsakon-
urnar til vinnu á hverjum
einasta degi og vinna eins og
skepnur, en ekki á venjulegum
vinnuhraða, til þess eina ,,að
bjarga fiskinum frá skemmd-
um“, en hafa samt ekki undan. í
Kaup fá þær 1200 kr. á tímann.
Þær vinna frá 7-7 sex daga vik-
unnar, nema núna í sumar hef-
ur verið helgarvinnubann, en þá
hafa þær byrjað klukkan 4 tvo
morgna (nætur) í viku og fengið
greitt næturvinnukaup frá 4-8,
en dagvinnukaup eftir það.
Þetta er gert til þess að atvinnu-
rekandinn þurfí ekki að greiða
næturvinnukaup í kvöldmatar-
tímanum frá 7-8, sem náttúru-
lega er ekki unninn. Finnst hon-
um því betra - fyrir sig - að kon-
urnar hætti klukkan 7 á kvöldin
og byrji aftur klukkan 4 á nótt-
unni. Þá hafa þær fengið nægi-
iega langa hvíld til þess að ekki
þarf að greiða þeim nætur-
vinnukaup eftir klukkan 8
næsta morgun. Atvinnurekand-
anum kemur ekki til hugar að
yfirborga okkur, og við lútum
vilja ASÍ-forystunnar; sálina
skiljum við eftir fyrir utan
dyrnar og heilinn er inni í
ísskáp.
Héðan eru gerðir út 3 skut-
togarar og nokkrir smábátar og
það má sjá á vinnutímanum
okkar, að selja mætti einn skut-
togarann og hafa hér eðlilegan
vinnutíma. En ef einhver heyrir
mig minnast á þetta, er eins og
ég hafi sagt eitthvað mjög
ókristilegt. Nei, hér skulu vera 3
skuttogarar sem koma með afla,
sem ekki má liggja undir
skemmdum, og við sem yfirleitt
erum húsmæður líka, eigum að
vinna 60 tíma á viku - og oft
lengur - í fiskinum, svo að
þjóðarbúið fari ekki á hausinn.
Svona er nú velferðarþjóð-
félagið ísland, með tvo verka-
lýðsflokka í ríkisstjórn.
í síðustu viku vann ég 50 tíma
og kaupið sem ég fékk var 61
þúsund krónur. Hugsið ykkur,
61 þúsund krónur! Ég keypti í
matinn fyrir helgina fyrir 10
þúsund kr., rafmagnsreikning-
ur beið mín sem var 13 þúsund
kr., og svo er það sjónvarps-
afnotagjaldið sem er yfir 20
þúsund kr., og eftir er að borga
barnagæslu. Mikið á ég gott að
vera ekki einstæð móðir.
f sumar hefur verið í gildi
helgarvinnubann, eins og ég
sagði áður, þannig að við hús-
mæðurnar höfum haft tvo daga
frl til þess að undirbúa heimilið
undir næstu viku. Þetta bann
hefur æst upp sjómennina það
mikíð, að nú álíta þeir löndun-
arkallana og okkur í frystihús-
unum stéttaróvin nr. 1,2 og 3,
því að nú fá þeir ekki löndun á
laugardögum og sunnudögum.
. Utgerðarmennirnir segja við
þá að þetta sé okkur að kenna.
Svona geta kapítalistarnir æst
upp verkalýðshópa hvern gegn
öðrum.
Og að lokum, hvar er svo
gróðinn sem við sköpum, hann
hef ég ekki séð ennþá.
Baráttukveðjur.
Frystihúsakerling útá landi.
Aðalfundur
GOLFKLÚBBS AKUREYRAR
verður haldinn í golfskálanum Jaðri fimmtudaginn
15. nóvember kl. 21.00.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kvikmyndasýning.
Félagar fjölmennið.
STJÓRNIN.
Auglýsing
um bólusetningu gegn lömunarveiki:
Almenn bólusetning gegn lömunarveiki (mænusótt)
ferfram í Heilsuverndarstöð Akureyrar, Hafnarstræti
104, 2. hæð, dagana 12. og 13. nóvember n.k., kl.
17-19 (5-7).
Fólk er minnt á, að til þess að bólusetningin nái tak-
marki sínu, þarf að viðhalda ónæminu með bólu-
setningu á 5 ára fresti og eindregið hvatt til þess að
nota þetta tækifæri.
HEILSUVERNDARSTÖÐ AKUREYRAR.
.....—.........—
AKUREYRARÐÆR
AUGLÝSIR
KJÖRSKRÁ
til Alþingiskosninga á Akureyri
sem fram eiga að fara 2. og 3. desember 1979 liggur
frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunni á
Akureyri frá 3. nóvember til 17. nóvember 1979 kl.
10.00 til 15.00 mánudaga til föstudaga.
Kærur vegna kjörskrár skulu berast skrifstofu bæjar-
stjóra eigi síðar en 17. nóvember 1979.
n □
Tökum á móti lopa- peysum í öllum stærðum og litum. HÆKKAÐ VERÐ. Tökum ekki á móti T.V. vettlingum að sinni. Iðnaðardeild SÍS
□ HBS u
-----------------------------------------\
Félagar í Vélstjóra-
félagi íslands
Þann 1. nóvember sl. var opnuð skrifstofa Vél-
stjórafélags íslands á Akureyri. Henni er ætlað að
þjóna félagsmönnum á Norðurlandi, allt frá Skaga-
strönd til Vopnafjarðar. - Skrifstofan er opin alla
virka daga frá kl. 9-5, er til húsa í Brekkugötu 4.
Sími þar er 96-21870. Á skrifstofunni mun meðal
annars ávallt vera til afhendingar nýjustu samn-
ingar V.S.F.Í. auk kaupskráa gegn framvísun félags-
skírteinis. Félagsmenn á Norðurlandi eru hvattir
til að notfæra sér þessa auknu þjónustu.
Vélstjórafélag íslands.
Fundur á Dalvík
um jafnréttismál
Bæjarstjórinn á Akureyri,
1. nóvember 1979.
Fundur um jafnréttismál var á
Dalvík 2. nóv. Tilefni fundar-
ins var að sjálfsögðu misréttið.
Fundurinn var auglýstur þann-
MEÐ GRACE FROÐUHREINSUN
er leikur einn aÖ þrífa frystihúsií, sláturhúsiti,
og fiskibátinn. GRACE ÞRÍFUR ALLT.
Hringdu og vit5 komum og sýnum hva'S auí-
veld öll þrif vería.
- Froduhreinsun tr framtíðin. -■
EinkaumboÖ á Islandi.
r jð' fr
■ttB1 m @
■- r f ©1 * j!
K. JÓNSSON & CO. HF.
HVERFISGATA 72 - R E Y K) AVIK - ICELAND - PHONE 1 2452 - P.OBOX 5189
ig að einungis konur voru hvatt-
ar til að mæta. Þótti aðstand-
endum fundarins (sem voru 4
konur sem áhuga hafa á efninu)
ekki nema sjálfsagt að konur
einar ræddu saman, svona rétt
til að ná áttum, áður en þeir sem
jafnari eru færu að leggja orð í
belg.
Soffía Guðmundsdóttir var
gestur fundarins. f upphafi reif-
aði hún þróun jafnréttisbarátt-
unnar undan farin ár. Að erindi
hennar loknu voru frjálsar um-
ræður. Beindust þær fljótlega á
þann veg að segja má að kjör
kvenna í verkalýðsstétt hafi
orðiðaðalmálfundarins. Málið
var nokkuð brennandi því að l.
nóv. hófst vinna í frystihúsi
KEA á Dalvík eftir 3 mánaða
stöðvun vegna breytinga. Kon-
urnar voru sendar heim og bent
á atvinnuleysisbætur, en körl-
um veitt vinna við breytingarn-
ar. Þetta ér bæði gömul saga og
ný, (samanber frétt frá Raufar-
höfn í síðasta tölubl. Norður-
lands). Konan er nefnilega ekki
fyrirvinna. (Hvað skyldi hún
gera við kaupið sitt?) Þá er
furðulegur mismunur á bóta-
rétti karla og kvenna, þar sem
karlar eru ávallt taldir fyrir-
vinnur en konur ekki nema eig-
inmaðurinn sé nánast aumingi.
Lítill tími gafst til umræðna
um önnur mál og sýndist
flestum að ýmislegt væri lítt eða
ekki rætt sem þó væri þess vert
að skoða nánar. Ef marka má
áhuga þeirra tæplega 20 kvenna
er fundinn sátu verður þetta
tæpast síðasti fundurinn hér um
jafnréttismál, því eins og áður
sagði, er af nógu að taka.
SJ
2 -NORÐURLAND