Norðurland - 29.11.1979, Síða 2
Bylting í samgöngumálum Hríseyinga
Nýja ferjan, Sævar, komin til eyjarinnar
Gamli Sævar á siglingu við Hrísey.
Á sunnudaginn var lagðist að
bryggju í Hrísey ný ferja 30 tonn
að stærð. Eyjarskeggjar fjöl-
menntu niður á bryggju og
fögnuðu hinum nýja farkosti.
Ingveldur Gunnarsdóttir gaf
ferjunni nafn og skírði hana
með sjó úr álum Eyjaíjarðar.
Ber nýja ferjan nafnið Sævar
eins og hin gamla sem senn
kveður Hrísey eftir langa og
giftudrjúga þjónustu. Séra Kári
Valsson prestur í eyjunni flutti
bæn og blessunarorð og síðan
gengu hinir fullorðnu til kaffi-
drykkju í samkomuhúsinu Sæ-
borg meðan börnunum var
boðið í stutta siglingu með
Sævari hinum nýja. Þar fluttu
ávörp fyrrverandi þingmenn
kjördæmisins sem þar voru
staddir, Björgvin Pálsson odd-
viti Hríseyinga ásamt fleirum.
Eftir kaffidrykkju sigldu flestir
viðstaddra með ferjunni fyrstu
áætlunarferðina upp á Árskógs-
sand.
Það var þann 11. apríl 1976
að kosin var af hálfu hrepps-
nefndar Hríseyjarhrepps
Ik.
þriggja manna nefnd til að
vinna að ferjumálum eyjarinn-
ar. Rúmum tveim árum síðar
eðaa 12. júlí 1978varsvo undir-
ritaður samningur milli Hrís-
eyjarhrepps og vélsmiðjunnar
Stál h/f á Seyðisfirði um smíði
ferjunnar sem nú er að hefja
feril sinn í þjónustu Hríseyjar.
Að öðrum ólöstuðum hefur
framgangur allur hvílt mest á
Björgvin Jónssyni fyrrum odd-
vita Hríseyjar.
Ferjur frá fyrri tíð.
í maí 1941 var sjósettur í
Hrísey lítill fiskibátur sem hlaut
nafnið Júlíus. Árið 1943 var
Júlíus gerður að fyrstu raun-
verulegu Hríseyjarferjunni.
Báturinn var gerður út af
bræðrunum Birni og Garðari
Ólasonum og Sigurði Gíslasyni.
Alljr eru þessir menn enn í lífi
og Björn býr enn í Hrísey og
vinnur fullan vinnudag hjá
Fiskvinnslustöð K.E.A. íeynni.
Það er aftur um Júlíus að segja
að svo skemmtilega vill til að
hann kemur ennþá á hverju
sumri til Hríseyjar og leggur
upp fist.
Þegar Júlíus hætti sem ferja
koma ýmsir við sögu. Árið 1958
var langt komið smíði nýrrar
Hríseyjarferju í lítilli skipa-
smíðastöð í eynni. Sú ferja
brann ófullgerð ásamt tilheyr-
andi húsakynnum..
En sama ár komst í gagnið
ferja sú sem fram til þessa dags
hefur þjónað Hríseyingum ötul-
lega. Sævar eldri er trébátur, 7
tonn að stærð. Eigandi hans
fyrstu 13 árin og jafnframt
ferjumaður var Hilmar heitinr
Símonarson. Samfellt vai
Hilmar feijumaður í hartnæi
aldarfjórðung. Hann fórst
ferjuferð 27. maí 1972.
Sævar hinn nýi.
Nýja ferjan Sævar, er 30 tonn
að stærð, tekur 35-40 farþega í
sæti og lest er fyrir 3-4 tonn.
Skipið er búið 359 hestafla
Caterpilar aðalvél. Þess má geta
að Sævar hinn nýi sér sennilega
minnsta skip á íslandi sem hefur
bógskrúfu. Einn bill kemst á
dekk. Skipið er 17 metrar að
lengd og 5 metrar á breidd og
það er búið öllum helstu öryggis
og siglingatækjum. Þrír menn
eru ráðnir til starfa við ferjuna,
þeir Alfreð Konráðsson, Gunn-
ar Jóhannesson og Sigurbjörn
ögmundsson. Guðjón/JGK
Það var þoka í grennd er nýi Sævar sigldi upp til bryggju og þeytti flautuna
og heilsaði heimamönnum. Engum dylst að gnoðin er hin fríðasta sýnum.
Gestir þyrpast að hlöðnu veisluborði. Veitingarnar sem kvenfélagið í Hrísey bauð upp á sviku engan.
2 - NORÐURLAND
Björgvin Pálsson oddviti Hríseyinga sýnir skjöld sem sveitarfélagið hefur
látið gera til minningar um Hilmar heitinn Símonarson sem var ferjumað-
ur Hríseyinga í 13 ár. Skildinum hefur verið komið fyrir í hinni nýju ferju og
hangir þar enda minnast Hríseyingar Hilmars ferjumanns sem eins af
frumherjunum í samgöngumálum eyjarinnar.
Hjörleifur Jóhannsson er einn af þeim Hríseyingum sem mikið hafa komið
við sögu ferjumála í Hrísey. Sú saga verður e.t.v. rakin nánar á næstunni
hér í blaðinu. Hér er Hjörleifur við stýrið á Sævari hinum nýja.
MYNDIR: GUÐJÓN
i