Norðurland - 29.11.1979, Blaðsíða 4
NORÐURIAND
NORÐLENSKT VIKUBLAÐ
Málgagn sósíalista í Norðurlandskjördæmi eystra
Ritnefnd: Böðvar Guðmundsson, Erlingur Sigurðarson,
Helgi Guðmundsson, Soffia Guðmundsdóttir, Tryggvi Jakobsson.
Ritstjóri: Jón Guðni Kristjánsson (ábm.).
Framkvæmdastjóri: Loftur H. Jónsson.
Ritstjórn: Sími 21875. Dreifing og afgreiðsla: Simi 25875.
Póstfang: Box 492, 602 Akiyeyrl.
Offsetprentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Gefið út af kjördæmisráði Alþýðubandalagsins
í Norðurlandskjördæmi eystra.
EIN LEIÐ
TIL VINSTRI
f þessum kosningum ei u mörkin milli hægri og vinstri
eins ljós og framast verður á kosið. Annars vegar stefna
Sjálfstæðisflokksins, afnám verðbóta á laun samtímis
því sem verðlagseftirlit verður afnumið, frjálst vaxta-
okur, lækkun skatta á stóreignamönnum samtímis
niðurskurði á fjárveitingum til almannaþarfa og loks
erlend stóriðja. Hinsvegar er stefna Alþýðubandalags-
ins með fyrirheiti um tryggðan kaupmátt launa í sam-
starfí verkalýðssamtaka og ríkisvalds, jöfnun launa-
tekna með réttlátri beitingu vísitölu, sköttun stórgróða-
fyrirtækja til þess að standa straum af verðstöðvun og
framkvæmdum, eflingu þjóðlegra bjargræðisvega svo
að þjóðinni megi auðnast að vinna sig fram úr efna-
hagsvandanum.
Annqrra kosta völ en þessara tveggja á fólkið ekki í
þessum kosningum. Á milli standa að vísu Alþýðu-
flokkur og Framsóknarflokkur, en það ræðst algjör-
lega af kjörfylgi Alþýðubandalagsins í kosningunum
hvort þeir flokkar snúast til samstarfs við stefnu Sjálf-
stæðisflokksins eða ekki.
Alþýðuflokkurinn hafði raunar í sjálfu þingrofinu
gefið Sjálfstæðisflokknum sitt fyrirheit. Á sameigin-
legum framboðsfundum flokkanna í þessu kjördæmi
hafa frambjóðendur Alþýðuflokksins síðan lýst yflr
stuðningi við meginatriðin í fyrrgreindri stefnuskrá
'Sjálfstæðisflokksins'og því með að þeir muni ganga til
stjórnarmyndunar með þeim flokki ef kjósendur veiti
þeim brautargengi. Frambjóðendur Framsóknar-
flokksins hafa biðlað ákaft til þeirra vinstrisinna sem
yflrgáfu þá í síðustu kosningum vegna samstarfsins við
íhaldið - án þess þó að vinna þess nokkurn eið að ganga
ekki til samskonar samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn að
loknum þessum kosningum.
Alþýðuflokkurinn leitar umboðs kjósenda opinskátt
til þess að fara með atkvæði þeirra í samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn um niðurskurð á lífskjörum alþýðu.
Framsóknarforystan mun sem fyrr túlka aukið kjör-
fylgi flokki sínum til handa sem heimild til stjórnar-
myndunar með Sjálfstæðisflokknum að lokinni mála-
myndartilraun til vinstri svo sem eftir kosningarnar
1974.
Þeir sem hafna vilja þeirri hægristefnu sem nú er
boðuð með Ijósum fyrirheitum um pólitísk óhæfuverk,
og eins þótt til kæmi einhverskonar ívaf krata- eða
framsóknarglapræða, geta aðeins látið í ljós marktæka
andstöðu sína með því að kjósa Alþýðubandalagið.
Stefna þess er andstæð stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Hvert einasta atkvæði sem greitt er Framsóknar-
flokknum eða Alþýðuflokknum verður að kosningum
loknum túlkað sem heimild kjósandans til forystu-
manna þessara flokka til þess að vinna að framkvæmd
hægristefnunnar undir forsæti Sjálfstæðisflokksins.
Hér í Norðurlandskjördæmi eystra eiga kjósendur
nákvæmlega sömu kosta völ og í öðrum landshlutum.
Vegna sérstakra aðstæðna er þó æskilegt að gera sér
grein fyrir persónugerfíngum þessara tveggja kosta í
kjördæmi okkar: Annarsvegar og sömu megin standa
Halldór Blöndal, annar maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í fallhættu, sjálfur boðberi kjaraskerðingar og
blóðugra stéttaátaka, Árni Gunnarsson, frambjóðandi
Alþýðuflokksins, sem heitir fylgi við stefnu Halldórs og
loks Guðmundur Bjarnason Framsóknarmaður, sem
eflaust hlýtur að fylgja flokki sínum til samstarfs við
Sjálfstæðisflokkinn með þeirri afsökun að ekki sé ann-
arra kosta völ. Við þessa frambjóðendur keppir Soffía
Guðmundsdóttir, annar maður á lista Alþýðubanda-
lagsins, sem berst einarðlega gegn stefnu Sjálfstæðis-
flokksins, beinlínis vegna þess að sú stefna er algjör
andstæða við stefnu flokks okkar og henni ósættan-
leg.
Úrslitin geta oltið á einu atkvæði, og hvert atkvæði
sem G-Iistinn fær í þessari baráttu er afdráttarlaus krafa
um vinstristefnu.
Stefán Jónsson.
Ágæt baráttusamkor
-------------------------—-----,
I fyrrakvöld hélt Alþýðu-
bandalagið á Akureyri bar-
áttusamkomu í Alþýðuhús-
inu. Stefán Jónsson setti
samkomuna með hvassri
brýningu til félaganna oghét
á þá að slaka ekki á í þeirri
baráttu sem enn væri til
kosninga. Setti hann síðan
Steingrím Sigfússon fundar-
stjóra og gegndi Steingrímur
því starfi af mikilli röggsemi.
María Kristjánsdóttir og
Soffía Guðmundsdóttir
fluttu ræður þær sem birtast
hér á síðunni. Síðan voru al-
mennar umræður og svör-
uðu Helgi Guðmundsson og
Stefán Jónsson fyrirspurn-
um fundarmanna. Húsfyllir
var í Alþýðuhúsinu og ríkti
góð stemning meðal fundar-
manna.
- ^
María Kristjánsdóttir.
ÉG TRÚIEKKIÁ HETJUR
HELDUR VANDAÐ OG
VINNUSAMT FÓLK
RæÖa Maríu Kristjánsdóttur
Félagar, sú saga er sögð af ein-
um forseta Bandaríkjanna, að
hann hafi eitt sinn farið til
kirkju og á eftir verið spurður,
um hvað predikunin hafi íjall-
að:
- Um syndina, svaraði for-
seti.
- Og hvað sagði nú prestur-
inn um syndina?
- Hann var á móti henni.
Mér dettur þessi saga oft í
hug, nú í kosningahríðinni, þeg-
ar ég les blöð, hlusta á útvarj:
eða horfi á sjónvarp. Þar tala
allir um verðbólguna og allii
eru á móti henni. Enda hefui
stóra orðið verðbólga sama
hlutverki að gegna og stóra
orðið syndin, hér áður fyrr.
Hún á að leiða okkur af vegi
skynseminnar og hindra okkur
innsýn í þann veruleika, sem við
erum að glíma við. Lama at-
hafnir okkar.
En það er fleira, en afvega-
leiðandi slagorð og þrælslegir
fordómar, sem smíðaðir eru til
þess að draga úr okkur aflið í
þeirri kosningabaráttu, sem nú
er háð, að amerískri fyrirmynd
og eftir leikreglum auðvaldsins.
Stór flokksapparöt og fjársterk-
ir aðilar hafa ungað út upp-
trekktum dúkkulísum og öskr-
andi köllum til að bjarga þjóð-
inni frá málefnalegri umræðu
og áhyggjum af þjóðmálum. Og
til þess að þjóðin skilji, að mál-
um hennar sé best borgið í
höndum þessara manna, eru
þeir þjálfaðir í að horfa ábyrgð-
armiklu augnaráði í sjónvarps-
skerminn, brosa alþýðlega á
vinnustöðum, og borða kaffi og
rjómatertur í heimahúsum.
Við sósíalistar höfum ekkert
íjármagn til að taka þátt í þessu
auglýsingastríði. Og fæst okkar
hafa atvinnu af að stunda póli-
tík. Við erum vinnandi fólk, og
getum einungis boðið fram þær
stundir, sem aflögu verða þegar
vinnutíma, barnapössun og lífs-
nauðsynlegum svefni sleppir, til
þess að leggja málstað okkar
lið. Þar við bætist, að það er í
algerri andstöðu við hugmynda
fræði okkar að taka þátt í skrípa
leik hinna flokkanna. Margir
eru því uggandi um hvernig
okkur'muni reiða af í kosning-
unum á sunnudaginn kemur.
Og ég er ein þeirra. Ekki vegna
þess að okkur skortir íjármagn,
ekki vegna þess að okkur skort-
ir tima - því við erum mörg, og
margar vinnandi hendur er það
sem alþýðuhreyfingar allra
tíma, hafa byggt styrk sinn á. Ég
er uggandi, vegna þess að við
höfum byggt flokksstarf okkar
þannig upp, að við eigum engin
nógu sterk vopn til að beita
gegn skrípaleik sýndarmennsk-
unnar. Og þá á ég ekki við að
framboðslisti okkar sé ekki
nógu vel skipaður. Ég trúi ekki
á hetjur, eða poppstjörnur, -
heldur vandað og vinnusamt
fólk. Og það eru þingmannsefni
okkar tvö. Ég á við það að við
höfum afsalað okkur of miklum
hluta ábyrgðar í hendur forystu
liðs okkar, þingmanna og
forystumanna í stéttarfélög-
unum.
En þess vegna erum við
sósíalistar, að við vitum að
þessu þjóðfélagi verður ekki
breytt af nokkrum þar til kosn-
um hetjum, er hafa forsjá fyrir
okkur hinum, - heldur einungis
með samstöðu og samstilltri
baráttu allrar alþýðu manna.
Og við vitum líka að þessi sam-
staða næst ekki, fyrr en alþýða
manna hefur aflað sér þekk-
ingar á þeim lögmálum, sem
stýra þessu þjóðfélagi, því að-
eins úr slíkri þekkingu getur
hún smíðað sér vopn sem bíta á
innviði þess - og duga til lang-
tíma sigra.
Og hvernig öflum við okkur
þessarar þekkingar. Auðvitað
að nokkru leyti í baráttunni um
þingsæti, sé slík barátta ekki
slitin úr tengslum við loka-
markmið okkar, en þó mest í
starfi í verkalýðsfélögum, í
starfi á vinnustað, - þar sem við
verðum að læra að tengja hvern
atburð í stærra þjóðfélagslegu
samhengi, - og í félagslegu starfi
innan hreyfmgarinnar, þar sem
við verðum að leggja höfuð-
áherslu á að efla fræðilega
þekkingu okkar, að allir félagar
séu virkir og að oft sé skipt um
menn í ábyrgðarstöðum.
Ég er því hingað komin til að
hvetja menn til að leggja allt sitt
að mörkum í þessari viku - til
að árangur okkar verði sem
mestur í kosningunum á sunnu-
daginn kemur.
En einnig - og það er aðal-
atriðið - að hvetja til þess að við
að sigri loknum setjumst niður
og endurskipuleggjum starf-
semi hreyfingar okkar með það
fyrir augum, að gera hvert og
eitt okkar virkara og ábyrgara í
þeirri baráttu sem daglega er
háð í þjóðfélaginu.
Stefán Jónsson brýnir fundarmenn í byrjun.
4 -NORÐURLAND