Norðurland - 29.11.1979, Síða 7
Leikfélag
Akureyrar
„Öngstrætið“
Sýning í kvöld kl. 20.30.
Og föstudag kl. 20.30.
Síðustu sýningar í bili.
Miðasalan er opin frá
kl. 16-20.30.
Sími 24073.
é
Auglýsið
r
i
Norðurlandi
Erlingur Sigurðarson,
kennari.
Fjöldi þingmanna '78-79 Spa
Alþýðubandalag 14 15
Alþýðuflokkur 14 7
Framsóknarflokkur 12 !5
Sjálfstæðisflokkur 20 n
Aðrir flokkar og utanflokka 0 /
Samtals 60 60
ÉG SPÁI:
Svona einfalt er að vera með. Klippið þessa
spá út og berið saman við aðrar sem birtast.
ALLIR MEÐ!
Þann 9. nóvember s.l. afhentu félagar úr Lionsklúbbnum Fonti á
Þórshöfn Heilsugæsiustöðinni veglega gjöf. Er þar um að ræða
sérhannaða tösku til notkunar á slysstað til aðhlynningar slasaðra.
Allvíðtækar endurbætur standa nú yfir við heilsugæslustöðina
bæði á húsnæði og tækjum og sýna gjafirnar hug íbúanna til þeirra.
KOSNINGAGETRAUN
RAUÐA KROSSINS
NORÐURLAND
MÁLGAGN SÓSlAUSTA
I NORÐURLANDS-
KJÖRDÆMI EYSTRA
Fréttir af Norö-
urlandi.
Hressileg póli-
tísk umræða.
Skrif um listir og
menningarmál.
Skákþraut Helga
Ólafssonar.
Krossgátan.
Iþróttir.
Norfiurland
kemur út
vikulega.
Áskriftargjald inn-
heimtist tvisvar á ári
Áskriftargjald fyrir
hálft árifi er kr. 3.500
Slmi21876
EiSavallagata 18
Pósthólf 492
Akureyri
Rauði krossinn
- Akur-
eyrardeild. Skrifstofa deildar-
innar er til húsa að Skólastíg 5,
gengið inn að austanverðu.
Síminn er 24803 og skrifstofan
er opin fyrir hádegi alla virka
daga.
Heimsóknartímar
Almennir heimsóknartímar
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri eru frá kl. 15-16 og 19-20
alla daga. - Hjúkrunarforstjóri.
Neytendasamtökun á Akur-
eyri og nágrenni:
Skrifstofan er opin þriðju-
daga og miðvikudaga kl. 4-6.
Sími 24402.
RAUÐI KROSSISLANDS
HJÁLPARSJÓÐUR
PISTILL
VIKUNNAR'
Hjálparbeiðni
í september sl. lenti Örn Arason sjómaður, Hamarsstig 3,
Akureyri, í alvarlegu bílslysi og hefir legið meðvitundar-
laus á gjörgœzludeild í Reykjavík síðan. Kona hans, Ás-
dís Jóhannsdóttir, slasaðist einnig og er enn undir lœkn-
ishöndum.
Þau voru nýlega flutt í eigin íbúð ásamt tveimur börn-
um sinum. Eru fjárhagsörðugleikar þeirra miklir og
fyllsta þörf að þeim sé rétt hjálparhönd. Hver sá, sem vill
vera svo góður að sinna beiðni þessari getur komið
framlagi sínu á skrifstofu blaðsins, eða til undirritaðra.
Með þakklæti fyrir væntanlegar undirtektir.
Bjami Hólmgrímsson, Svalbarði,
Bjartmar Kristjánsson, Syðra-Laugalandi.
Allir eru góðir
Framboðsræða, full af sósíaldemókratískri umhyggju fyrir
háttvirtum atkvæðum.
Kæru kjósendur og aðrir. Þegar ég var ungur
kjósandi eins og sum ykkar eru núna þá kom ég
í þetta byggðarlag í góöu veðri eins og í dag. Þá
voru engir vegir og ég kom með bát sem mörg
ykkar kannast kannski við og hét Hafrafell. Það
var mikið skip og formaðurinn hann Runólfur í
Betri Bæ var öndvegismaður og snilldar
sjósóknari eins og ég veit að þið vitið öll.
Blessuð sé minning hans. En þó að veðrið væri
gott þegar ég kom þá gat nú brugðist tii beggja
vona með veðrið þá eins og núna. Það er
nefnilega svo skrýtið með snjóinn að hann bara
kemur kannski allt í einu og er svo farinn bara
strax þegar hlýnar. Mér hefur alltaf fundist
náttúran svo merkileg og mér finnst að við
ættum að reyna eftir því sem kostur er á
hverjum tíma að gæta okkar á að skemma ekki
blessaða náttúruna. Við vorum sem sagt tveir
vinir sem réðum okkur í skiprúm til hans
Runólfs í Betri-Bæ. Það voru náttúrulega fleiri
menn en við og Runólfur, en sá sem kom með
mér var hann Dóri bróðir hennar mömmu.
Indælispiltur eins og þiö munið. Hann var því
miður alltaf sjóveikur hann Dóri en Runólfur
taldi í hann kjark svo hann hélt áfram á sjónum
eins og sönnum sjómanni sæmir enda steig
hann sín fyrstu spor sem sjómaður einmitt hér í
þessu piássi.
Ég var með Hafrafellinu í sinni hinstu ferð.
Við lensuðum undan norðanveðrinu hér inn á
fjörðinn. Ég veit að hann Magnús minn sem
situr hér á fremsta bekknum man eftir því að
Haf rafellið var alveg sjóborg á lensinu „Magnús
(grípur fram í): O, Hafrafellið var nú alla tíð
helvítis hlandbolli sem gleypti báruna á horninu
bakborðsmegin á lensinu".
Já, þetta er auðvita alveg rétt hjá Magnúsi. Ég
stýrði sem sagt Hafrafellinu í sinni síðustu ferð
og við lentum farsællega í urðinni hér norðan
undir plássinu. Runólfi mislíkaði þetta sem von
var kanski. Hann var skapmaður hann Runólfur
en ég man það eins og það hefði gerst i gær
þegar drengirnir hennar Sigríðar á Næsta-Bæ
komu og hentu til okkar bandi svo við komumst
í land blautir og hraktir. Ég verð að segja það að
mér hlýnar um hjartaræturnar þegar ég sé að
hún Sigríður á Næsta-Bæ er hér hjá okkur í
kvöld og ég vil nota þetta tækifæri til aö þakka
þér enn einu sinni fyrir móttökurnar þaö kvöld
Sigríður mín.
Annars vil ég segja það við ykkur kæru
Marvíkingar að ég óska ykkur innilega til
hamingju með það hvað þið hafið verið dugleg
að byggja upp plássið ykkar. Það er reglulega
skemmtifegt að ganga hér um fiskiðjuverin og
sjá hvað allt er hreint og gott og vel um gengið
vel stjórnað og vel unnið. Það er gæfa hverrar
þjóðar að eiga svo dugmikið fólk eins og ykkur
hamingjusamt og vinnufúst og vinnusamt, að
ég nú ekki tali um þá dugmiklu sjómenn sem
hér búa. Til hamingju með það. Það á að kjósa
eins og þið vitið á sunnudaginn kemur. Svóna
er nú lífið. Menn kjósa milli flokka og manna
með ólík viðhorf eins og gengur. Við bjóðum
ykkur að kjósa okkur. Við bjóðum okkur fram til
að gera okkar besta við munum allir reyna eftir
því sem hægt er og að stæðurnar leyfa á
hverjum tíma að gera. Við í okkar flokki erum á
móti verðbólgunni og viljum gera okkar besta til
að ná henni niður en það er ekki auðvelt.
Hann Sóldal hérna sem eins og þið vitið er í
framboði fyrir Sjálfstæðislistann sagði á fundi í
gær að hann væri líka á móti verðbólgunni og
ég veit að hann og hans félagar reyna líka að
gera sitt besta og líka hinir sem sitja hérna fyrir
aftan mig. Auðvitað greinir okkur á um eitt og
annað. Það er ekki annað en eólilegt í
lýðræðisþjóðfélagi en við viljum allir vel þó við
séum kanski ekki alveg sammála um leiðirnar
að markinu.
Já góðir Marvíkingar það er nefnilega kjarni
málsins að ykkar er valið. Þið veljið og hafnið á
milli manna og málefna. Ég veit að þið veljið
rétt. Þið látið ekki blekkjast af neinum
skröksögum eða gylliboðum. Ég vil taka það
skýrt fram að með þessu er ég ekki að segja að
þeir góðu menn á hinum listunum sem héreru
með mér beiti svo leiðis aðferðum í kosninga-
baráttunni. Nei, þeir eru þvert á móti drengir
góðir og vilja vel.
Ég fer nú að Ijúka máli mínu ég hefði kanski
viljað segja margt við ykkur meira um flokkinn
okkar en tíminn er því miður á þrotum. Ég vil
bara bæta því við að við viljum upp byggingu og
framfarir á öllum sviðum. Við viljum að öllum
líði vel og á okkar góða landi eru svo miklir
möguleikar sem við viljum nýta að öllum getur
iiöiö fjarska vel. Ekki síst gamla fólkinu sem mér
finnst við ekki gera nógu mikið fyrir en það
hefur eins og ég veit að þið vitið unnið langan
og strangan vinnudag um langa æví.
Ég hef nú lokið við að segja ykkur frá því
helsta sem við í okkar flokki viljum gera en að
síðustu vil ég bara óska ykkur til hamingju með
kosningarnar því að ég veit að þið munið kjósa
rétt um næstu helgi. Til hamingju Marvíkingar.
P.S.
Norðurland fékk einskonar leyfi hjá háttvirtum
frambjóðanda flokks nokkurs hér í kjördæminu
til að birta framboðsræðuna hans sem haldin
hefur verið 36 sinnum í þessari kosninga-
baráttu. Blaðið hefur engu við þessa ágætu
ræðu sjálfstæðisjafnarmannsins að bæta.
Ritstj.
NORÐURLAND- 7