Norðurland - 13.12.1979, Qupperneq 7
Ávextir
Epli, frönsk, rauð - V2 ks. kr. 3.500.
EPLI, amerísk, rauð, kr. 577 kg. - 1/1 ks. kr. 7.500.
EPLI, kanadísk, gul, kr. 564 kg. -1/1 ks. kr. 7.000.
APPELSÍNUR JAFFA, kr. 597 kg. -1/1 ks. kr. 8.000
AUK ÞESSA HÖFUM VIÐ:
Melónur - Sítrónur - Banana
Perur - Vínber, græn og blá - Klementínur
KJQRBUDIR
Frá Póststofunni
á Akureyri
Opið verður á bréfa- og bögglapóststofunni lengur
en venjulega eftirtalda daga:
Laugardaginn 15. desember til kl. 16.00.
Mánudaginn 17. desember til kl. 21.00.
Síðasti skiladagur fyrir jólapóst út á land, til Reykja-
víkur, til Akureyrar og nágrennis er mánudaginn
17. desember.
Frímerki verða til sölu í bókabúðinni Huld, útibúi
KEA við Hrísarlund og Kjörbúð Bjarna við Mýrarveg.
STÖÐVARSTJÓRI.
Gisting í Reykjavík
-sérstakt vetrarverð
Og innan veggja hótelsins er verslun,
snyrti-, rakara- og hárgreiðslustofa.
Strætisvagnaferðir að Lækjartorgi.
Hótel Loftleiðir býður sérstakt verð á
gistingu að vetri til. Þar gefast fleiri kostir
á að njóta hvíldar og hressingar en
annars staðar: allar veitingar, hægt að
snæða í veitingasal eða veitingabúð
- fara í sauna bað og sund.
Njótið þægilegrar dvalar og hagkvæmra
kjara. „
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Sími 22322
Avarp til atkvæðanna
flutt á kosningahátíð Marvíkinga með sósíaidemókratísku þakklæti
Elskulegu Marvíkingar og aðrir kjósendur.
Þá er nú búið að kjósa og það fór eins og það
fór. Ekki geta allir unnið. Flokkurinn okkar fékk
nú færri atkvæði en við vorum búnir að telja hjá
okkur á kjörskránni. Ekkert skil ég í hvað hinir
hafa kosið en þeir hafa áreiðanlega kosið rétt
eins og við hin. Til hamingju með það.
Ég víl nota þetta tækifæri til að þakka öllum
þeim sem með fádæma dugnaði og ósérplægni
unnu að því að koma okkur á þing. Það yljar
manni um hjartaræturnar að finna hversu
margir vilja koma okkur inn á Alþingi. Slíkar
hugsjónir eru því miður allt of sjaldgæfar hjá
fólki nú til dags ekki síst hjá unga fólkinu. Með
þessu er ég ekki að segja að unga fólkið hafi
ekki hugsjónir. Nei þvert á móti þá hef ég trölla-
trú á okkar efnilegu, ungu og glæsilegu kyn-
slóð sem á að erfa landið og það veit ég að hún
gerir af þrótti og myndarskap. Þetta gerðum við
á sínum tíma og ég vona að við höfum skilað
landinu af okkur betur í stakkinn búið til að taka
vlð dugandi fólki.
Flokkurinn okkar fékk ekki eins mörg
atkvæði og æskilegt hefði verið. En þannig er
lífið. Stundum er gott veður og stundum vont.
Stundum er farið niður brekku og oftast verða
menn að fara upp aðra brekku. Lýðræðið er
eins og veðrið, stundum gott og stundum vont,
en alltaf verðum við samt að hafa það í huga að
fjöregg þjóðar okkar er að finna í lýðræðinu. Ég
vona bara að þið, kæru atkvæði, hafið ekki tekið
neina áhættu með fjöreggið með því að kjósa
svona eins og þið gerðuð. Það er vissulega
áhættusamt að kjósa aðra en okkur. Það eru til
öfl í þjóðfélaginu sem vilja lýðræðið feigt og
koma á þjóðskipulagi að erlendri fyrirmynd,
sem ekki passar við hina íslensku þjóðarsál,
sem við eigum öll, þrátt fyrir úrslit kosninganna
að vera stolt af. Ég vil taka það skýrt fram að
með þessu er ég ekki að segja að þeir sem voru í
framboði á móti mér í þessu kjördæmi vilji
koma á þjóðskipulagi að erlendri fyrirmynd.
Það er allt saman mesta heiðursfólk eins og
ýmsir vita.
Ekki veit ég hvað nú tekur við en hitt er víst að
ekki er útlitið bjart. Veðurspáin ekki góð og
verðbólgan geysar eins og sjálfur íshafsstorm-
urinn. Ég verð að segja það að réttast hefði
áreiðanlega verið að kjósa okkur því að hinir, þó
þeir vilji allir vel eins og við, vilja fara aðra leið
sem ég er ansi hræddur um að verði torsótt. Ég
hef oft sagt það áður að auðvitað greini menn
á um leiðir en ekki markmið því allir vilja jú í
raun þjóð siríni allt hið besta. Það eru náttúru-
lega vonbrigði að fá ekki að vera með og ein-
hver var að segja að atkvæðin segðu við okkur:
„Étiði það sem úti frýs.“ Þetta finnst mér
kannski dálítið ósanngjarnt gagnvart kjósend-
um en hinu er ekki að leyna að það hefði verið
betra fyrir okkur og lika suma kjósendur ef
fleiri hefðu kosið okkur. Þá væri útlitið strax
skárra. Nú en við þessu er ekkert að gera annað
en að taka öllu með stakri karlmennsku og
æðruleysi. Það verða að vísu allir að gera sér
Ijóst að vel getur farið svo að maður sé ekkert að
slíta sér út fyrir þjóð sína úr því að hún skilur
ekki hvað henni er fyrir bestu og kýs bara hina
flokkana en ekki okkur svo ég verð að fara í
meiraprófkjör næst. Ég er ekkert viss um að ég
sé upp á það kominn að bjóða ykkur að kjósa mig
aftur, já ég verð bara að segja það eins og er að
þið eruð vanþakklát helvítis gerpi að vilja ekki
koma mér á þing. Hirðið þið bara ykkar helvítis
verðbólgu fyrst þið viljið ekki gera eins og al-
mennilegt fólk og kjósa flokkinn okkar. Ég er
farinn Marvíkingar og fraið þið norður og niður
eins og Hafrafellið forðum. Andskotinn launi
ykkur eins og maklegt er fyrir ráðsmennskuna,
járnmann.
Spæjari frá „Norðurlandi" komst inn á
„sigurhátíð" Flokksins, þar sem frambjóðandi
nokkur kvaddi stuðningsmenn sína með fram-
anskráðu ávarpi. Fékk blaðið góðfúslega
bessaleyfi til að birta það orðrétt að öðru leyti
en því að niðurlagi formælingakaflansersleppt
af umhyggju fyrir atkvæðunum.
ritstj.
NORÐURLAND- 7