Norðurland - 07.10.1987, Blaðsíða 2

Norðurland - 07.10.1987, Blaðsíða 2
2 - NORÐURLAND Steingrímur J. Sigfússon. Leikmannsþankar um gróðureyöingu á Islandi Ræða flutt á ráðstefnu Lífs og lands um gróðureyðingu og landgræðslu í Odda 27. september 1987 Þeim mun meir sem undir- ritaður veltir ofannefndu viðfangsefni fyrir sér, þeim mun fleiri spurningar vakna og þeim mun fátæklegri virð- ast þau svör sem ég hef komið höndum yfir. Af þessum sök- um og fleirum verður að segj- ast eins og er að mikill hluti þeirrar fjölmiðlaumfjöllunar og umræðu sem verið hefur í gangi um þessi mál undanfar- ið hefur farið ákafiega í taug- arnar á mér. Mér finnst gæta háskalega mikillar tilhneig- ingar til einföldunar á flóknu og að mörgu leyti lítt rann- sökuðu máli, það er jú alltaf hægt að finna einn stóran alls- herjar sökudólg í málunum og vegna þess að forfeður okkar í 20. eða 30. lið, hitastigs- eða úrkomubreytingar og margt, margt fleira eru í raun handan lögsögu fjölmiðlaréttvísinnar og virðist mér íslenska sauð- kindin ærið oft gjalda þess hversu handhægt er að grípa til hennar. Til að fyrirbyggja strax allan misskilning er þessu rabbi langt í frá ætlað að verða allsherjar varnar- ræða og aflausn hvað þátt sauðkindarinnar og annarra grasbíta í gróðureyðingu á ís- landi varðar. Varla dettur nokkrum heilvita manni í hug að neita þeim áhrifum sem ágangur grasbíta getur haft á gróður. en megin niðurstaða mín er hins vegar sú að varast beri að einblína á einn þátt af mörgum sem þarna koma til greina. Það er hið flókna samspil margra ólíkra þátta. sem við verðum að reyna að skilja ef við ætlum að fjalla um þessi mál af einhverju viti og það eins þó slíkt henti eitthvað miður í hraða nútíma fjölmiðlunar. Að síðustu vil ég biðja menn að hafa í huga að hér eru leikmannsþankar á ferð. Það er síst af öllu ætlun mín að hylja þá fræðilegu yfir- bragði sem þeir stæðu ekki undir. 1. Helstu orsakir gróður- eyðingar á íslandi Þrír meginorsakavaldar eru gjarnan taldir fram undir þessari fyrirsögn. Þaö er loftslags- eða veðurfarsbreytingar, áhrif búsetu og eldvirkni. Ef við lítum nánar á þessa þætti, þá er lítill vafi á að á seinni hluta þjóðveldisaldar kóln- ar verulega á íslandi og verður kaldast á ofanverðri 13. og fram á 14. öld, nálega eins kalt og á kuldatímabilinu á 18. og 19. öld. Þessi kólnun er án efa afdrifa- rík vegna þess að hún kemur ofaní það álag sem búsetan er tekin að hafa. Byggðin hafði á þjóðveldisöldinni þéttst og teygt sig langt inn til landsins. Inn á þau viðkvæmu jarðsvæði, þar sem sennilega hafa verið eðlileg og náttúrleg mörk skóglendis, kjarr- og kvistlendis og hálendis- gróðurs eins og hann var í jafn- vægi áður en ágangur vegna búsetu hófst og loftslag versnaði. Jafnvægið sem var fyrir viðkvæmt, hin sígilda barátta uppbyggingar og eyðingar, mátti við litlu. f þessu sambandi er vert að athuga að það var ekki aðeins beit búpenings þeirrar byggðar sem teygði sig til landsins, sem hafði áhrif. Þau svæði sem í dag eru afréttir, meira og minna blásnar, voru í þá daga heima- lönd viðkomandi bæja með til- heyrandi eldiviðarhöggi, vetrar- beit og öðrum þeim ágangi sem heimalönd verða fyrir öðru fremur. Það seig því fljótt á ógæfuhliðina. Um þriðja orsakavaldinn, eld- virknina og samspil þess þáttar við aðra er erfiðara að fjalla í almennum orðum. Ljóst er að í stórgosum hafa einstök héruð og jafnvel heilir landshlutar orðið illa úti og landsspjöll af þeim sök- um bæst við önnur. Einnig er augljóst að þar sem beit var orðin mikil og gróður átti auk þess í vök að verjast vegna kólnandi loftslags þá var allt endurreisnar- starf í kjölfar gosa erfiðara en ella. Ég tel þó að eldvirknin sé fremur léttvæg sem frumorsaka- valdur gróðureyðingar, enda er engin sérstök ástæða til að ætla að eldvirkni hafi verið meiri á því tímabili sem gróðureyðing hefur staðið en áður var. Gerð berggrunnsins Það er hins vegar annar þáttur jarðfræðinnar, gerð berggrunns- ins sem ég held að hafi of lítill gaumur verið gefinn í þessu sambandi. Þar er aftur rétt að greina á milli frumorsaka og þátta sem haft geta mikil áhrif þegar gróðureyðing er komin af stað. Enginn sem staðið hefur t.d. á móbergshryggnum, sem skilur að Búrfellsheiði og Hóls- sand í Norður-Þingeyjarsýslu, þar sem mætást ungur og gropinn berggrunnur gosbeltisins og hinn gamli tertieri botn Þistilfjarðarins getur efast um hversu afgerandi þessi þáttur er fyrir gróðurinn. Það er sem risvaxin reglustika hafi verið lögð í landið. Vestan- við eru urðir og brunasandar, austanvið grónar Þistilfjarðar- heiðarnar. Hvoru tveggja svæðin austan og vestan við hrygginn eru í svipaðri hæð yfir sjó, á sömu afrétt, á einu samfelldu beitar- svæði, en hin háa grunnvatns- staða gerir flatlendi Búrfellsheið- arinnar að einhverjum mesta ljósalykkjuakri heimsins meðan Hólssandur nálgast eyðimörk. Auðvitað eru uppblásturssvæði utan gosbeltisins og engar sann- anir fyrir því að gróður hafi þar verið nokkuð að ráði minni en annars staðar fyrir tilkomu búset- unnar. Hitt sýnist mér næsta sjálfgefið að eftir því sem gróður- eyðingin óx og áfok varð meira hafi gróðri á móbergs- og grá- grýtissvæðunum orðið hlutfalls- lega hættara þar sem jarðvegs- þykknunin er við þær aðstæður til muna skaðlegri en þar sem grunnvatnsstaðan er há. Það er rétt að velta tvennu fyr- ir sér í þessu sambandi. í fyrra lagi að einhver hringrás, gróður- þekju, jarðvegsþykknunar, eyð- ingar og svo gróðurþekju að nýju getur að vissu marki verið full- komlega náttúruleg og eðlileg. Hið síðara er þegar að gróður- eyðing, áfok og umtalsvérð jarð- vegsþykknun er á annað borð komin af stað, hvort gróðurþekj- an við vissar aðstæður geti þá hreinlega komist úr jafnvægi ef svo má að orði komast (eins kon- ar vítahringur jarðvegsþykknun- ar og þornunar). Að síðustu má svo bæta við í sambandi við þennan þátt og samspil við aðra, svo sem loftlagsbreytingar, að úrkoma, magn og dreifing eftir árstímum og vindáttum er hér afgerandi þáttur enn frekar en hitastig. Nokkur orð um áhrif búsetu fyrr og nú! Mér finnst líka nauðsynlegt að menn reyni að glöggva sig á þess- um þætti gagnvart því hvar við stöndum í dag og með tilliti til framtíðar. Ég á hér við það t.d. hvernig breyttir búskaparhættir og dreifing búsetu hefur breytt beitarálagi. Enginn vafi er á því í mínum huga að gróðureyðing hefur f.o.f. átt sér stað í rykkjun eða stökkum á þeim árum eða tímabilum sem allt lagðist á eitt, í harðindunum. Þegar komu köld ár eða tímabil, gróður varð veik- ur fyrir, heyfengur varð minni en gjafaþörfin meiri, beitin var fast- ar sótt o.s.frv. Eðlilega var það heimalandið sem fór sérlega illa út úr slíkri viðureign. Það er ekkt fyrirbrigði í Mývatnssveit og víð- ar að heimalönd séu af þessum sökum blásnari en land fjær. Gamlir þistlar segja sögur af harðindavorum þegar hjarðir fjallabæjabændanna voru reknar út á sjávarjarðirnar og haldið þar til beitar vikum saman á móum og á sjvarbökkum sem uppúr stóðu og voru svartir eftir árum saman. En þetta er sem betur fer liðin tíð, ég held ég hljóti mega segja algjörlega. Sá mikli heyfengur, sem nú er aflað, innifóðrun, vetrarrúning, gott ástand bú- fjárins þegar því er sleppt af ræktuðu landi oftast á góðan gróður o.s.frv., allt hefur þetta sín áhrif. Ekki síst á gróður í heimalöndum sem vetrarbeitin lék löngum grátt og hér skal því haldið fram að glettilega víða á láglendi í heimalöndum og afrétt- um næst bæjum sé gróður í framför, þ.e.a.s. þarsem vaxandi hrossabeit hefur þá ekki fyllt í skarðið. Þessi vinnutilgáta mín styðst m.a. við það sem ég hef hér að framan sagt um líkleg áhrif breyttra búskaparhátta, en ég hvet menn einnig til þess að huga að því á ferðum sínum hvernig vinsælum bitjurtum sauðkindarinnar eins og t.d. Gul- víðinum miðar fram. Athygli mín hefur þó verið vakin á því, af glöggum bændum í Hrafnkelsdal og víðar, að lík- lega sæki kindur aldar á mjúk- fóðri nútímans hlutfallslega meira í við eða grófefni en áður var og gæti það komið á móti í þeirri takmörkuðu vetrarbeit eða viðrun fjárins sem enn tíðkast. En sem sagt, horfum ekki framhjá því að harðæri fortíðar- innar bitnuðu með margföldum þunga á gróðrinum, en það sjálf- virka samhengi er nú rofið og hjarðmennska fyrri tíma og búskaparlag nútímans eru lítt sambærilegir hlutir. Tvífættir grasbítar! Umferð og átroðningur manna sjálfra verður varla með réttu flokkuð undir frumorsök gróður- eyðingar þó forfeður vorir hafi vissulega riðið til þings og farið um í flokkum á ófriðartímum. En nú er hins vegar svo komið að erfitt er að fjalla um þetta við- fangsefni án þess að nefna þenn- an þátt og þar er allt í senn áhyggjuefni áhrif ökutækja, mannsfóts, tjaldbotna, hrosshófa og tanna o.s.frv. Vonandi skilst hvað ég er að fara og þarf ekki fleiri orð til. Fyrir veturinn Úrval af fóðruðum stökkum, kuldaúlpum og fóðruðum samfestingum. Einnig ullarleistar, hufur, treflar og vettlingar. Lapp og Daiwa kuldafatnaður: Peysur, buxur, samfestingar, hettur og sokkar. Dæmi um verð: Fóðraðir stakkar Verð frá 1.640.- Kapp hettur 541.- Úlpur 3.398.- Daiwa sokkar 441.- Fóðraðir samfestingar 4.974.- Kapp sokkar 534.- Daiwa samfestingar 2.760.- Daiwa jakki 1.420.- Kapp samfestingar 2.800.- Kapp jakki 1.997.- Daiwa hettur 388.- Opið laugardaga 9-12. m l.lCKiJti Eyfjörð Hjalteyrargötu 4 ■ sími 22275

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.