Organistablaðið - 01.12.1982, Qupperneq 4
Priit Kinisk:
Konunglegir
yfirburðir Kapp
tónskáldanna
í eistlensleri
tónlist
Menning Eistlendinga er vel þekkt. Oft er talið að kórsöngshefðin sé aðalástæðan
fyrir frægð eistlenskrar tónlistar. Frægð söngmóta þessa litla lands, þar sem 30 þús.
manna kór hefur sungið, hefur farið langt úr fyrir landamæri Eistlands. Eistlenskar
nútíma sinfóníur og kammermúsik er oft flutt á sovéskum tónlistarhátíðum, þingum og
ráðstenfum í Moskvu og víðar. Einnig á hátíðum nútímatónlistar sem haldnar eru
annaðhvort ár í Zagreb og Feneyjum. Og hvað eftir annað á tónlistarhátíðum í Varsjá
(Haust í Varsjá), Prag (Vor í Prag), Bratislava, Debrecem, Flavanna, Berlín, Helsinki,
Arezzo og eins á sovéskum músikdögum í Frakklandi, Svíþjóð og víðar. Verk
eistlenskra tónskálda eru á verkefnaskrá frægra sovéthljómsveita og flutt af þeim um
víða veröld.
Saga nútímatónlistar í Eistlandi er stutt, það er við lok síðustu aldar að fyrstu
eistlensku tónskáldin útskrifast frá tónlistarháskólanum í St. Pétursborg. Þrátt fyrir þetta
er hlutfall atvinnutónlistarmanna hátt í Eistlandi (af einni milljón 50 tónlístarmenn og 20
tónlistargagnrýnendur í félagi tónskálda í Eistlandi).
Framlag Kapp fjölskyldunnar í þróun tónlistarmála Eistlands verður varla ofmetið.
Framlag þeirra er sérstaklega áþreifanlegt þar sem fjölskyldan hefur haft afskipti af
tónlistarmálum í yfir 80 ár. — Einsöngslagið „Á skógarstíg" er orðið hefðbundið á
efnisskrá eistlenskra söngvara. Það samdi Arthur Kapp er hann nam við tónlistarháskól-
ann í St. Pétursborg. í árslok 1977 lauk sonur hans við óratoríuna Ernst Thálmann.
Eistlendingar helguðu árið 1978 Kapp tónskáldunum. Þeir minntust aldarafmælis
Arthurs Kapp (1878-1952), sjötugsafrnælis sonar hans 26. maí — tónskáldsins,
stjórnandans, organistans og prófessors í tónsmíðum Eugens Kapp og Villems Kapp
(1913-1964) sem lést fyrir aldur fram en hefði orðið 65 ára þá 7. sept.
í smábænum Suure-Jaani sunnantil í Eistlandi eru heimkynni Kapp-fjölskyldunnar.
Ættfaðirinn Joosep Kapp (1833-1894) var kennari og tónlistarunnandi. Hann hlúði að
tónlistarlífi í bænum, sérstaklega kórsöng. Þegar fyrsta tónlistarhátíð Eistlands var
Arthur Kapp
4 ORGANISTAHLAÐIÐ