Morgunblaðið

Dato
  • forrige månednovember 2009næste måned
    mationtofr
    2627282930311
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    23242526272829
    30123456

Morgunblaðið - 21.11.2009, Side 1

Morgunblaðið - 21.11.2009, Side 1
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2009 íþróttir Allt eftir bókinni Snæfell tók ÍR í kennslustund í Kennaraháskólanum. Njarðvíkingar með fullt hús stiga eftir sjö umferðir. Fjölnir lagði botnlið FSu sem hefur enn ekki unnið leik. 3 Íþróttir mbl.is SAMKVÆMT heimildum Morg- unblaðsins vill skoska úrvals- deildarliðið Hib- ernian semja við Keflvíkinginn Harald Frey Guð- mundsson en eins og Morgunblaðið greindi frá í vik- unni var Haraldi boðið til reynslu til Edinborgarliðs- ins. Settur var upp æfingaleikur fyr- ir hann og voru forráðamenn Hib- erninan mjög ánægðir með frammistöðu hans í þeim leik. Samningaviðræður milli Hib- ernian og Guðlaugs Tómassonar, umboðsmanns Haraldar, eru í gangi en samkvæmt heimildum blaðsins við skoska liðið gera þriggja ára samning við miðvörðinn stóra og stæðilega, sem er laus allra mála hjá Keflavík. gummih@mbl.is Haraldur Guðmundsson Haraldur ræðir við Hibernian Morgunblaðið/hag Methafi Ragnheiður Ragnarsdóttir úr KR var ánægð rétt eftir að hún bætti eigið met í 100 metra skriðsundi í gær. Fjögur Íslandsmet féllu í Laug- ardalnum FJÖGUR Íslandsmet voru sett á öðrum keppnisdegi á Íslandsmótinu í 25 metra laug í Laugardalslaug í gær. Erla Dögg Haraldsdóttir bætti eigið met í 100 m fjórsundi og kom í mark á 1.01,77 mínútum. Ragnheiður Ragnarsdóttir úr KR bætti eigið Íslandsmet í 100 m skriðsundi um fjórðung úr sek- úndu, 54,76 sek. Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, SH, setti stúlknamet í þessari grein og varð hún önnur á 55,93 sek. Inga Elín Cryer, ÍA, var hálfri sekúndu frá Íslandsmetinu í 200 m flugsundi en hún sigraði á 2.18,71 mínútum og er það stúlknamet. Salóme Jónsdóttir, ÍA, varð önn- ur í þessu sundi og setti hún meyja- met, 2.18,77 mínútur. Jakob Jóhann Sveinsson setti Ís- landsmet í 200 m bringusundi, og bætti hann eigið met um tæplega þrjár sekúndur, 2.07,74 mínútur. Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi setti telpnamet í 50 metra bak- sundi, 30,19 sek., en hún sigraði í greininni. Í þessu sundi setti Rannveig Rögn Leifsdóttir, KR, meyjamet, 32,39 sek. Kvennasveit Ægis setti Íslandsmet í 4x50 m skriðsundi og bætti sveitin metið um tvær sek- úndur, 1.46,11 mínútur. Sveitina skipuðu þær Sigrún Brá Sverr- isdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir, Karen Sif Vilhjálmsdóttir og Jó- hanna Gerða Gústafsdóttir. seth@mbl.is Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is HIN efnilega frjálsíþróttakona, Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni, hefur fengið boð um að taka þátt sjöþraut á alþjóðlega fjöl- þrautarmótinu í Götzis í Austurríki í júníbyrjun. Boðið er mikil við- urkenning á hæfileikum þessarar 18 ára frjálsíþróttakonu sem stimplaði sig inn sem ein efnilegasta sjöþrautarkona heims á síðasta ári. Á fjölþrautarmótinu í Götzis er keppt í tugþraut karla og í sjöþraut kvenna og er það talið stærsta fjölþraut- armót sem haldið er ár hvert að und- anskildum álfu- og heimsmeist- aramótum. Öllum þátttakendum er boðið til mótsins. Afar sjaldgæft er að keppendum í sjöþraut kvenna sé boðin þátttaka hafi þær ekki náð 6.000 stigum í samanlögðum árangri. Íslandsmet Helgu Margrétar er 5.878 stig. Mótshaldarar tiltaka sér- staklega í boði sínu til Helgu Mar- grétar að þeir geri undantekningu í ljósi þess hversu efnileg hún sé. Boð- ið er alveg að undirlagi mótshaldara í Austurríki og kom Helgu Margréti og þjálfara hennar, Stefáni Jóhanns- syni, á óvart þegar þeim barst það í hendur. Helga Margrét er fyrst íslenskra kvenna til þess að vera boðin þátt- taka í mótinu í Götzis. Jón Arnar Magnússon keppti þar í nærri ára- tug, þegar hann var upp á sitt besta og setti m.a. Íslandsmet sitt í tug- þraut þar fyrir 12 árum. „Þetta er mjög spennandi. Þarna fæ ég að glíma við þær allra bestu í sjöþrautinni,“ sagði Helga Mar- grét og var eðli- lega í sjöunda himni yfir boðinu þegar Morg- unblaðið sló á þráðinn til hennar í gær. „Hér er um rosalega flott tækifæri að ræða,“ sagði Helga Margrét sem ætlar vitanlega að þekkjast boðið. Helga Margrét segist æfa af mikl- um krafti og hafa gert það alveg frá því að hún jafnaði sig á slæmum meiðslum sem bundu enda á þátt- töku hennar á Evrópumeistaramóti unglinga í sumar í miðri þraut þegar verðlaunasæti blasti við henni. „Ég vonast til að geta bætt Ís- landsmetið mitt í fimmtarþraut inn- anhúss á næsta ári og síðan verður stefnan sett á utanhússtímabilið. Auk mótsins í Götzis hef ég sett stefnuna á heimsmeistaramót 19 ára og yngri sem fram fer í Moncton í Kanada eftir miðjan júlí,“ svarar Helga Margrét, spurð um stefnu næsta árs. Óvíst er hvort hún tekur þátt í Evrópumeistaramóti fullorð- inna í Barcelona þar sem það hefst helgina eftir að heimsmeist- aramótinu lýkur. Spurð hvort hún ætli sér ekki að bæta Íslandsmetið í sjöþraut í sumar og fara yfir 6.000 stig svaraði þessi hæverska frjálsíþróttakona: „Jú, auðvitað langar mig til þess en aðal- málið er að komast meiðslalaus í gegnum tímabilið.“ Helga Margrét til Götzis  Boðið á stærsta sjöþrautarmót Evrópu  Undanþága gerð vegna hæfileika Helga Margrét Þorsteinsdóttir VIGGÓ Sigurðs- syni var í gær sagt upp starfi sem þjálfari karlaliðs Fram í handknattleik. Fram situr á botni N1-deildar karla með tvö stig að loknum sex leikjum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur þjálfarinn nú þegar fengið fyr- irspurn frá liði í Þýskalandi. „Ég virði þess ákvörðun stjórn- ar handknattleiksdeildar og óska liðinu alls hins besta með þeirri ósk að sá sem tekur við af mér takist að snúa gengi liðsins til betri vegar,“sagði Viggó í gær. „Það fóru fimm leikmenn frá lið- inu s.l. sumar og liðið var of veikt þegar keppnistímabilið hófst. Ég lagði til við stjórnina að við myndum fá 3-4 leikmenn í janúar en þeir höfðu aðra sýn á liðið en ég. Það var því rétt að leiðir skildu,“ sagði Viggó. Liðið leikur bikarleik gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í dag og mun Einar Jónsson sem var aðstoð- arþjálfari Viggós stýra liðinu í þeim leik. iben@mbl.is Viggó Sigurðsson Viggó sagt upp hjá Fram MIKLAR líkur eru á því að Íslands- mótið í höggleik fari fram á Kiðja- bergsvelli á næsta ári samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Ís- landsmótið átti að fara fram á Jað- arsvelli á Akureyri en GA hefur beðist undan því vegna fram- kvæmda á vellinum. Ákvörðun verður tekin á golfþingi GSÍ í dag. Höggleikur í Kiðjabergi?

x

Morgunblaðið

Publication Type:
Collection:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Language:
Volumes:
111
Issues:
55740
Registered Articles:
3
Published:
1913-present
Available till:
30.09.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Locations:
Editor:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-present)
Haraldur Johannessen (2009-present)
Publisher:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-present)
Keyword:
Description:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Sponsor:
Supplements:

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar: Morgunblaðið E (21.11.2009)
https://timarit.is/issue/335457

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

Morgunblaðið E (21.11.2009)

Handlinger: