Morgunblaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 2
2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2009 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla: Selfoss – ÍR............................................32:28 Víkingur – Afturelding .........................23:23 Staðan: Afturelding 6 5 1 0 166:132 11 Selfoss 6 5 0 1 171:133 10 Víkingur R. 6 3 1 2 160:131 7 ÍR 6 3 0 3 166:166 6 ÍBV 5 2 0 3 140:136 4 Fjölnir 6 1 0 5 113:184 2 Þróttur 5 0 0 5 108:142 0 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Skallagrímur – Þór Akureyri .............103:95 Haukar – Þór Þorlákshöfn ...................92:68 KFÍ – Höttur .........................................93:78 Hrunamenn – Ármann........................68:101 Valur – ÍA.............................................113:76 Staðan: Haukar 7 6 1 572:450 12 Skallagrímur 6 5 1 473:430 10 KFÍ 6 5 1 521:447 10 Þór Þ. 7 5 2 578:558 10 Höttur 7 3 4 529:575 6 Valur 6 3 3 444:423 6 Ármann 6 3 3 479:435 6 Þór A. 7 1 6 516:611 2 ÍA 6 1 5 454:531 2 Hrunamenn 6 0 6 450:556 0 NBA New Orleans – Phoenix ....................110:103 San Antonio – Utah...............................83:90 LA Lakers – Chicago..........................108:93 um helgina HANDKNATTLEIKUR Eimskipsbikar kvenna, 16 liða úrslit: Vestmannaeyjar: ÍBV – Fram ..........L13.00 Eimskipsbikar karla, 16 liða úrslit: Vestmannaeyjar: ÍBV – Fram ..........L15.00 Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin: Mýrin: Stjarnan – Víkingur...............L14.00 Digranes: HK – KA/Þór ....................L14.00 Ásvellir: Haukar – FH........................S14.00 Úrvalsdeild karla, N1-deildin: Mýrin: Stjarnan – FH........................L16.00 Ásvellir: Haukar – Grótta ..................S16.00 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla: Laugardalur: SR – SA ..........................18.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, IE-deildin: Keflavík: Keflavík – Grindavík ..........S19.15 Iða: FSu – ÍR.......................................S19.15 Grafarvogur: Fjölnir – Hamar ..........S19.15 SUND Íslandsmótið í 25 metra laug heldur áfram í Laugardalslauginni. Undanrásir hefjast kl. 9.30 bæði á laugardag og sunnudag. Úr- slitasundin hefjast kl. 16.30 báða dagana og áætluð mótslok á sunnudag eru kl. 18. BLAK Mikasa-deild kvenna: Neskaupstaður: Þróttur N. – Ýmir ..L13.30 Fagrilundur: HK – Þróttur R............S14.00 Mikasa-deild karla: KA-heimilið: KA – Þróttur R.............S17.00 Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is ,,ÉG mun hjálpa til með þjálfunina í U17 ára liðinu og hjá svokölluðum af- rekshópi en í honum eru stelpur sem eru við það að komast í aðalliðið. Þetta er mjög spennandi og ég verð að vinna með Janne Mattson, fyrr- verandi markakóngi í Þýskalandi og Svíþjóð, sem sá um að þjálfa fram- herjana þegar ég spilaði með Malmö,“ sagði Ásthildur við Morg- unblaðið í gær. Ásthildur segir að markviss þjálfun efnilegustu leikmanna félagsins og stofnun sérstaks afrekshóps sé nýtt verkefni hjá Malmö. ,,Það er verið að breyta uppbyggingunni og for- ráðamenn félagsins vonast til að það verði leiðin til að betri leikmenn skili sér upp í aðalliðið,“ segir Ásthildur. Ásthildur eignast dreng í maí- mánuði og er fæðingarorlofi frá störf- um sínum í Landsbankanum og bæj- arstjórn Kópavogs en hún og eiginmaður hennar fluttu út til Malmö í september. ,,Maðurinn minn er arkitekt en hann missti vinnuna heima á Íslandi og við ákváðum að flytja út. Stefnan er reyna að fá vinnu hér sem verk- fræðingur og starfa við það ásamt þjálfuninni,“ sagði Ásthildur sem kann vel við sig í móðurhlutverkinu. ,,Það gengur rosalega vel. Strákurinn braggast vel og er orðinn risastór.“ Ásthildur segist afar ánægð með að fá systur sína Þóru til liðs við Malmö en landsliðsmarkvörðurinn, sem nýlega hlaut kosingu sem besti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar, gerði þriggja ára samning við LdB Malmö. Fyrir hjá liðinu var landsliðs- konan Dóra Stefánsdóttir. Þóra styrkir liðið heilmikið ,,Það er rosalega fínt að fá Þóru. Hún styrkir liðið auðvitað heilmikið og nú verður auðveldara fyrir fjöl- skylduna heima á Íslandi að heim- sækja okkur. Það er betra að hafa okkur á sama stað en við erum búnar að vera út um allt. Malmö er búið að vera á höttunum eftir Þóru í tvö ár en nú er hún loks komin og ég held að með hana innborðs þá eigi Malmö betri möguleika á að vinna titla sem félagið hefur sett stefnuna á,“ segir Ásthildur, sem hefur haft auga með leikmönnum á Íslandi fyrir sitt gamla félag. ,,Ég veit að Malmö er að fylgj- ast með nokkrum leikmönnum frá Ís- landi. Gengi landsliðsins hefur vakið áhuga á leikmönnunum og það er al- veg inni í myndinni að einhverjar þeirra komi hingað í framtíðinni.“ Orðin of gömul til að byrja aftur Ásthildur, sem er 33 ára gömul, ákvað að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla í lok árs 2007 en hún átti frábæru gengi að fagna með liði Malmö. Hún skoraði 46 mörk í 58 deildaleikjum fyrir Malmö. Árið 2006 varð hún þriðja marka- hæst í deildinni með 19 mörk og var tilnefnd sem einn af þremur bestu sóknarmönnum deildarinnar. En skyldi hún ætla að taka fram skóna á nýjan leik? ,,Ég hef nú verið að mæta aðeins á æfingar og leika mér en helmingur leikmanna sem spiluðu með mér eru ennþá í liðinu. Ég held að ég sé ekk- ert að gæla við það að byrja aftur. Ég er orðin allt of gömul og ég vil bara vera heima með stráknum og vera svo í þjálfuninni,“ sagði Ást- hildur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Systur Ásthildur og Þóra Helgadætur verða „samherjar“ á næstu leiktíð hjá Malmö í Svíþjóð. Ásthildur Helgadóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, hefur verið ráðin í þjálfarateymi sænska úr- valsdeildarliðsins LdB Malmö, sem hún lék með á árunum 2003 til 2007 og systir hennar Þóra B. Helgadóttir gekk nýlega til liðs við frá norska liðinu Kol- botn. „Orðin of gömul til að byrja aftur“  Ásthildur Helgadóttir ráðin í þjálfarateymi LdB Malmö ÍR – Snæfell 72:92 Kennaraháskólinn, úrvalsdeild karla, Ice- land Express-deildin, föstudaginn 20. nóv- ember 2009. Gangur leiksins: 4:13, 13:25, 22:28, 31:35, 32:39, 41:48, 48:71, 55:79, 72:92. Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 18, Eirík- ur Önundarson 9, Nemanja Sovic 9, Steinar Arason 8, Gunnlaugur Elsuson 8, Kristinn Jónasson 7, Davíð Fritzson 4, Ólafur Þór- isson 3, Vilhjálmur Steinarsson 3, Ásgeir Hlöðversson 2, Björgvin Jónsson 1. Fráköst: 22 í vörn – 8 í sókn. Stig Snæfells: Jón Ólafur Jónsson 24, Emil Þór Jóhannsson 18, Sean Burton 15, Hlyn- ur Bæringsson 14, Sveinn Davíðsson 6, Páll Helgason 6, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 5, Kristján Andrésson 4. Fráköst: 28 í vörn – 9 í sókn. Villur: ÍR 21 – Snæfell 21. Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Sig- mundur Herbertsson. Höfðu góð tök á leiknum. Áhorfendur: Um 100. FSu – Fjölnir 77:98 Iða, úrvalsdeild karla, Iceland Express- deildin, fimmtudaginn 20. nóvember 2009.  Engar upplýsingar um tölfræði leiksins eða stigaskor var að finna á vef Körfuknatt- leikssambandsins í gærkvöldi. Njarðvík – Breiðablik 78:64 Njarðvík, úrvalsdeild karla, Iceland Ex- press-deildin, fimmtudaginn 20. nóv. 2009. Gangur leiksins: 11:3, 14:7, 14:10, 18:16, 24:18, 27:22, 37:22, 43:32, 49:38, 53:43, 64:46, 68:48, 78:64. Stig Njarðvíkur: Magnús Þór Gunnarsson 18, Jóhann Á Ólafsson 18, Guðmundur Jónsson 11, Friðrik Stefánsson 9, Páll Kristinsson 9, Kristján Sigurðsson 5, Hjörtur Einarsson 4, Friðrik Óskarsson 2, Rúnar Ingi Erlingsson 2. Stig Breiðabliks: Hjalti Friðriksson 18, Arnar Pétursson 12, Daníel Guðmundsson 10, Ágúst Angantýsson 7, Gylfi Geirsson 5, Jonathan Smith 5, Þorsteinn Gunnlaugsson 4, Rúnar Pálmarsson 2, Trausti Jóhanns- son 1. Dómarar: Erlingur Snær Erlingsson og Steinar Orri Sigurðsson. Áhorfendur: 170. KRISTINN Jakobsson hefur fengið úthlutað enn einum leiknum í Evr- ópudeild UEFA í knattspyrnu en hann mun dæma viðureign franska liðsins Toulouse og Partizan Bel- grad frá Serbíu á heimavelli Tou- louse þann 3. desember í fjórðu um- ferð riðlakeppninnar. Sigurður Óli Þórleifsson og Ingv- ar Guðfinnsson verða aðstoðardóm- arar, Magnús Þórisson og Þorvaldur Árnason verða í hlutverki línudóm- ara sem staðsettir eru við enda- mörkin og Jóhannes Valgeirsson verður fjórði dómari. ,,Það er ekkert frí hjá okkur og sem betur fer höfum við fengið að dæma fullt af æfinga- leikjum hér heima. Það er bara hið besta mál,“ sagði Kristinn við Morg- unblaðið. gummih@mbl.is Kristinn dæmir í Frakklandi ÍSLENSKA karlalandsliðið í knatt- spyrnu sígur niður um fimm sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins, FIFA. Ísland er í 92. sæti af 207 þjóðum á listan- um en stendur í stað í Evrópu og er þar áfram í 40. sæti af 53 þjóðum. Spánverjar eru efstir á listanum. Þeir hafa sætaskipti við Bras- ilíumenn sem voru efstir á listanum í október. Niður um fimm sæti Eftir Skúla Sigurðsson sport@mbl.is Á SÍÐASTA keppnistímabili var heimav víkinga komin með viðurnefnið „Kisuka hefur hann svo sannarlega endurheimt urnefni sitt, „Ljónagryfjan“. Í gærkvöld Breiðabliksmenn sem var hent fyrir Ljó vík og fór fyrir þeim líkt og öðrum sem mætt í vetur, Njarðvík hafði betur, 78:6 gestirnir úr Kópavogi ekki möguleika a Njarðvíkingar eru því enn ósigraðir eft ir í Iceland Express-deildinni og tróna á Ekki er hægt að segja að fyrri hálflei mikið fyrir augað fyrir utan ævintýrale stiga körfur undir lok hálfleiksins þega Gunnarsson setti eina niður spjaldið ofa færi. Það voru svo Blikar sem gerðu slík lengstu tveimur sekúndum sem undirri „Kisukassi“ KNUT Tørum, þjálfari norska úrvalsdeildarlið Start í Kristianstad, segir á vef félagsins að FH ingurinn Atli Guðnson hafi staðið sig vel á æfin ins í vikunni en Atli kom til landsins í gær eftir daga dvöl hjá félaginu. Tørum segir að Svein Mathisen, yfirmaður k spyrnumála hjá félaginu, muni setja sig í samb umboðsmann Atla en það er Norðmaðurinn St Haaland sem lék með Breiðabliki fyrir nokkru ,,Við þurfum að skoða málið í heild, þar á me hagslegu hliðina, áður en við tökum ákvörðun við reynum að fá Atla Guðnason,“ sagði Tørum er samningsbundinn Íslandsmeisturum FH út árið 2011. gummih@mbl.is Tørum ánægður með A Atli Guðnason Úrvalsdeild karla, IE-deildin: Njarðvík 7 7 0 597:503 14 Keflavík 7 6 1 625:497 12 KR 7 6 1 637:560 12 Stjarnan 7 5 2 617:562 10 Snæfell 7 5 2 637:517 10 Grindavík 7 4 3 608:549 8 Hamar 7 3 4 584:595 6 ÍR 7 2 5 579:614 4 Tindastóll 7 2 5 550:630 4 Breiðablik 7 1 6 504:599 2 Fjölnir 7 1 6 518:636 2 FSu 7 0 7 488:682 0 Staðan VERIÐ er rannsaka úrslit um 200 knatt- spyrnuleikja í níu Evrópuríkjum að sögn sak- sóknara í Bochum í Þýskalandi. Þar á meðal er um að ræða úrslita þriggja leikja í meist- aradeild Evrópu og tólf í Evrópudeildinni. Mál- ið er afar umfangsmikið og teygir anga sína víða um Evrópu, m.a. til Belgíu, Sviss, Króatíu, Slóveníu, Tyrklands, Ungverjalands, Bosníu, Austurríkis auk Þýskalands. Talið er hagnaður- inn af þessu máli, sem snýst m.a. um að leik- menn hafi tekið þátt í hagræða úrslitum, nemi nokkrum milljónum evra. Auk leikja í forkeppni meistaradeildar og í Evrópudeildinni er verið að rannsaka einn leik í riðlakeppni Evrópukeppni 21 árs liða og marga leiki í þýsku 2., 3. og jafnvel úr 4. deildinni. Þá hafa fimmtán verið handteknir í Þýskalandi og tveir í Sviss í tengslum við rannsókn málsins. Meðal hinna handteknu í Þýskalandi eru bræð- ur sem búa í Berlín en þeir tengdust svipuðu máli sem kom upp í Þýskalandi fyrir fimm ár- um. Málið tengist veðmöngurum í Evrópu og einnig í Asíu. Saksóknari telur víst að gerð hafi verið að minnsta kosti tilraun til að bera fé á leikmenn, þjálfara, dómara og eftirlitsmenn til þess að fá úrslitum hagrætt. iben@mbl.is Maðkur í mysunni í 200 leikjum?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.