Morgunblaðið - 26.11.2009, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 26.11.2009, Qupperneq 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2009 Minningar á mbl.is Brynja Ingibjörg Brynleifsdóttir Mallios Höfundur: Fríða Bergmann Hreggviðsdóttir Bylgja Matthíasdóttir Höfundar: Starfsfólk Varmárskóla Guðleif Helgadóttir Höfundar: Guðbjörg Ester Einarsdóttir Sigríður Kristjánsdóttir (Silla) frá Felli Rögnvaldur Óðinsson Höfundar: Pétur Jónsson Jón Hlöðver Áskelsson Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Kristbjörgu eða Kittý eins og hún var kölluð, þegar börn okkar urðu ástfangin fyrir rúmu ári. Hún var þá búin að vera veik í nokkurn tíma og háði harða baráttu við sjúk- dóm sem að endingu hafði yfirhönd- ina. Tara talaði mikið um móður sína við mig og eftir samtöl okkar hugsaði ég oft um það þvílík baráttukona hún væri. Stundin með henni á spítalanum fyrir stuttu með Árna og Töru er ógleymanleg. Mér fannst ég detta inn í fjölskyldu sem ég hafði þekkt mjög lengi. Ég og fjölskylda mín erum afar þakklát þeim skiptum sem við feng- um tækifæri til að hitta hana. Ég mun geyma minninguna um hana á góðum stað í hjarta mínu þaðan sem hún fer aldrei. Ég bið engla guðs að vaka yfir henni. Elsku Elías, Tara og Mar- teinn, megi guð styrkja ykkur í þess- ari miklu sorg. Minning hennar mun lifa sem ljós að eilífu. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Eva Guðrún Ægisdóttir. Mín besta vinkona, Kittý, er farin. Hún sem ætíð horfði svo björtum augum á lífið og tilveruna allt fram til síðasta dags þrátt fyrir veikindi sín. Við Kittý kynntumst á Siglufirði og áttum þar ógleymanleg æskuár sam- an. Við lékum okkur mikið, í fjörunni, uppi í fjalli eða heima við. Á veturna lékum við löngum stundum í snjón- um. Á eftir þótti okkur oft gott að þiggja hlýju og góða köku hvor heima hjá annarri. Eftir því sem við eltumst voru okk- ur falin ýmis ábyrgðarhlutverk. Það fyrsta var líklega að passa heimaln- inga. Svo uppteknar vorum við í alls kyns ímyndunarleikjum að heimaln- ingarnir voru löngu horfnir áður en við tókum eftir því. Þegar við ætluð- um á skíði vissi ég að Kittý var tilbúin þegar amma hennar var búin að setja Kristbjörg Marteinsdóttir ✝ Kristbjörg Mar-teinsdóttir fædd- ist á Siglufirði þann 12. desember árið 1964. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 11. nóv- ember síðastliðinn. Útför Kristbjargar fór fram frá Háteigs- kirkju 19. nóvember 2009. skíðin út fyrir dyrnar. Kittý var ótrúlega skemmtilegur leik- félagi svo hugmynda- rík, ráðagóð, ákveðin og staðföst í því sem hún ætlaði sér. Ekki vorum við alltaf sam- mála í leik, en ef hann var skemmtilegur gleymdist allur ágrein- ingur og við ákváðum hvor okkar fengi að ráða í það skiptið. Við Kittý vorum einu stelpurnar sem keppt- um á gönguskíðum á okkar aldri. Alltaf vorum við jafn ánægðar að vera í fyrsta og öðru sæti. Það var mikill missir fyrir mig þeg- ar Kittý flutti burt. Enginn gat fyllt hennar skarð. Eftir það skrifuðumst við á og hittumst nokkur sumur. Eftir fermingu fórum við saman í Kerling- arfjöll á skíði. Það varð síðar okkar sameiginlega áhugamál með börnum okkar og mökum. Eftir að ég kynntist Tóta komu Kittý og Elli eitt sinn í heimsókn með Töru nýfædda. Upp frá því mynduðust sterk vinabönd á milli fjölskyldna okkar. Með þeim átt- um við margar ógleymanlegar ánægjustundir. Ævinlega geislaði af Kittý mikil gleði og kraftur hvar sem við vorum samankomin. Hún kom alltaf auga á spaugilegu hliðarnar á hlutunum. Við minnumst hennar sem mikils lífs- og gleðigjafa. Elsku vinkona, við kveðj- um þig með trega. Þitt hlutverk hlýt- ur að vera æðra fyrst þú ert tekin svo snemma frá okkur. Það er okkar sannfæring að við munum hittast aft- ur þótt síðar verði. Þangað til lifir þú ætíð í huga okkar og hjarta. Elsku Elli, Tara, Marteinn, Silla, Maddi og fjölskylda, megi Guð veita ykkur styrk á erfiðri stundu. Þóra og Þórarinn Víkingur. Elsku Kittý. Mig langar að þakka þér fyrir fal- legu textana þína sem þú samdir við lögin mín. Þakka þér líka fyrir alla þína elsku í minn garð. Ég læt fylgja með texta er þú samdir fyrir rúmum tuttugu árum. Í dag er ég hugsa til þín finnst mér hann eiga einstaklega vel við. Ég kveð í húmi nætur frelsis til Hið fagra lif mitt litar dökkan hyl Farinn er ég enn á ný ég finn mig kallar á Einhver kraftur sem enginn skilja má Í huga mínum myrkrið tekur völd Í huga mínum verður sál mín köld Í garði lífs míns tré er fölt með tárum felli blóm Dagur frelsis nú hefur fengið dóm Spyrjandi augunum lít ég á lífið Hvað varðar það mína sál Óttinn mig grípur um sjálfan mig hnýt Finn nú hve brautin er hál Er ríki óttans ber á mínar dyr Á tíma flóttans reyni að snúa við Hvar ertu ljós, hvar ertu líf, hvar er hin rétta leið Hvar er fegurðin sem ég eftir beið Ég hrópa á hjálp um leið á rétta braut Hin djúpu sár í fagra framtíð hlaut Í draumum mínum gef ég gaum Ég gæfuleysið flý Ég finn löngun í lífið enn á ný Ég vil lifa á ný, lifa á ný Hvíl í friði, elsku frænka mín, ég tek undir með þér: Lifa á ný. Þinn frændi, Haraldur Gunnar (Halli Gunni). Það er svo óraunverulegt að hugsa til þess að hún Kittý okkar sé dáin. Það er aðeins rúm vika síðan við fór- um til hennar upp á spítala, fullar til- hlökkunar því að við ætluðum að gera okkur glaðan dag og koma Kittý á óvart sem við og gerðum. Mættum með uppáhaldsmatinn hennar, sushi, dekkuðum upp borð, blóm í vasa, kertaljós og konfekt í eftirrétt. Al- vöru kvöldverður eins og á fínasta veitingahúsi. En við vissum ekki að bannað væri að vera með logandi kerti og máttum víst þakka fyrir að hafa ekki sprengt upp 11-E á Land- spítalanum því Kittý okkar var tengd við súrefni. Að þessu var mikið flissað eftir að hjúkkurnar voru búnar að lesa okkur pistilinn. Seinna um kvöld- ið sendi Kittý okkur símaskilaboð þar sem hún sagði okkur vera eftirlýstar á 11-E sem sprengjuvarga, þessi dýr- mætu skilaboð geymum við í dag eins og gullmola. Að vísu var Kittý mjög veik þetta kvöld en það hvarflaði ekki að okkur að þetta yrði okkar síðasta stund með henni. Við vinkonurnar vorum allar í kringum tvítugt þegar við byrjuðum að vinna saman í Pharmaco og tókust með okkur mjög góð kynni sem og mökum okkar. Á öllum skemmtunum var Kittý hrókur alls fagnaðar og tróð upp með ýmsum uppákomum og oft- ar en ekki fékk hún okkur í lið með sér. Hún var einnig snillingur að setja saman texta og kveða vísur. Kittý hafði þann einstaka hæfileika að sjá tækifæri í öllu, nánast sama hversu ómögulegir okkur fundust hlutirnir vera þá fann Kittý lausn á málinu. Hún virtist alltaf sjá leið út úr öllu, því að ef einar dyr lokast þá opn- ast alltaf aðrar, það var hennar við- kvæði. Það voru aldrei nein vanda- mál, bara verkefni. Kittý var yndisleg vinkona sem alltaf var hægt að leita til og hafði ein- staklega góða nærveru. Hún fylgdist með öllu því sem var að gerast í lífi okkar og fjölskyldna okkar. Hún dæmdi aldrei aðra en gerði óspart grín að sjálfri sér. Hún var í okkar augum baráttukona sem gafst aldrei upp. Okkar eftirlætisstundir með Kittý voru vikulegu göngutúrarnir okkar þriggja saman, mikið spjallað og hlegið. Þar skipulögðum við allt sem við ætluðum að gera saman eins og t.d. sælkeraferðina til Ítalíu. Þar ætl- aði hún að kynna fyrir okkur matar- og drykkjarmenningu Ítala. Í sumar standsettu Kittý og fjöl- skylda bústaðinn sinn. Við vinkon- urnar þrjár vorum mikið búnar að hlakka til allra góðu stundanna sem við ætluðum að eiga saman í sveitinni því að stutt var á milli bústaðanna okkar sem við kölluðum stundum þríeykið. Úr þessu verður því miður ekki, en við trúum því að Kittý verði með okkur þar í anda. Elsku Tara og Marteinn, hún mamma ykkar var svo stolt af ykkur enda mátti hún líka vera það, þið eruð gullmolarnir hennar og við vitum að hún vakir yfir ykkur. Elsku Elli, Tara, Marteinn, Silla, Marteinn, Guðrún, Birkir, Birna og Kári, megi algóður Guð styrkja ykk- ur og vernda. Við kveðjum einstaka vinkonu og geymum í hjörtum okkar ótal minn- ingar sem aldrei gleymast. Arna og Anna Bjarna. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Ég varðveiti minningu um elsku- lega vinkonu og frábæran félaga um ókomna tíð. Elsku Elli, Tara og Mar- teinn, megi algóður Guð styrkja ykk- ur í þessari miklu sorg. Katrín Sveinsdóttir. Hún heitir Kristbjörg eins og ég! Þetta tilkynnti ég bekkjarfélögum mínum, mjög montin af nafni nýju stúlkunnar, á meðan Kittý var uppi við kennaraborðið að láta einhverjar upplýsingar í té, nýkomin í bekkinn. Við höfðum verið samferða í skólann og var ég mjög upp með mér að fá það hlutverk að vísa henni þangað. Hún var þá nýlega flutt til Hvera- gerðis með fjölskyldu sinni og bjuggu þau fyrst hjá afa hennar og ömmu hinum megin við götuna við húsið okkar. Ætli við höfum verið meira en ellefu ára. Ekki nóg með að nýja stúlkan héti það sama og ég heldur áttum við báðar afmæli í desember og var stutt á milli afmælisdaga okk- ar. Þetta var upphafið að kynnum okkar Kittýjar. Kittý var alla tíð vin- sæl, enda lífsglöð, sæt og skemmtileg stelpa. Það var gott að koma heim til hennar og líka til ömmu hennar og afa sem hún var mikið hjá. Kittý hafði einstakt lag á að sjá húmorinn og gleðina í nánast öllu. Hún hafði mikinn húmor fyrir sjálfri sér og sagði oft frá hinum ýmsu uppákom- um sem hún hafði lent í og var ótrú- lega fyndin. Hún var bjartsýn og uppörvandi og var mjög gott að hitta hana og spjalla um daginn og veginn. Við vorum farnar að hittast fimm bekkjarsystur úr Hveragerði a.m.k. einu sinni á ári og oftar ef svo bar við. Stundum fórum við og fengum okkur að borða á veitingastað eða þá við hittumst í heimahúsi. Þessar stundir voru ómetanlegar því að við skemmt- um okkur svo konunglega. Við rifj- uðum upp gamla tíma, lásum úr gömlum bréfum og hlógum út í eitt. Seinast í vor hittumst við allar fimm: ég, Kittý, Ragnheiður, Steinunn og Bogey. Við fórum austur á Eyrar- bakka til Ragnheiðar sem þá bjó þar. Við áttum frábæran dag saman. Við hittumst líka tvær saman reglulega, a.m.k. einu sinni í mánuði. Síðasta veitingahúsið sem við fórum á var úti á Granda. Við fengum sæti við glugga og horfðum út á spegilsléttan sjóinn og sátum lengi og spjölluðum. Við ætluðum svo að fara á kaffihús um daginn en þá treysti hún sér ekki, þannig að ég fór í bakarí og keypti smávegis handa okkur að gæða okk- ur á heima hjá henni. Við spjölluðum um daginn og veginn og hlógum mik- ið saman að vanda. Ég sá þá að henni hafði farið aftur frá því við hittumst síðast en það vantaði ekki hún væri að hugsa fram í tímann. Kittý talaði mikið um sumarbú- staðinn þeirra sem fjölskyldan var að koma í stand og það var svo gott að vera þar. Allt bar þess merki að hún átti margt eftir ógert og ætlaði að leggja allt undir til að ljúka því. Mér fannst gaman að frétta af hennar fólki og talaði hún alltaf af svo mikl- um hlýhug um sína fjölskyldu, ætt- ingja og vini. Kallið kom alltof snemma, elsku vinkona. Þakka þér fyrir yndislegan og frábæran vinskap gegnum árin. Þú verður alltaf ofarlega í huga mér. Elsku Elli, Sigurlaug Tara og Marteinn Högni, Silla, Marteinn, Birkir og fjölskylda og Guðrún og tengdafjölskylda. Hugur minn er hjá ykkur öllum þessa dagana. Höggvið er stórt skarð í fjölskylduna ykkar. En minningin um yndislega Kittý mun alltaf lifa, ég veit það. Bestu kveðjur, Kristbjörg P. og fjölskylda. Fegurð er það fyrsta sem kemur upp í hugann er ég minnist Kittýjar. Hún var ekki bara glæsileg í útliti, heldur hafði hún einnig einstaklega fallega og góða nærveru. Kynni okk- ar spanna 35 ár. Tíu ára gömul flutti hún til Hvera- gerðis og urðum við óaðskiljanlegar upp frá því. Fjölskyldusamkomur voru tíðar heima hjá Kittý, enda samheldið og skemmtilegt fólk. Ég hef örugglega mætt á flestar þeirra hérna á árum áður, enda búin að fóstra mig við fjöl- skylduna. Unglingsárin eru ógleymanleg og spilar hugmyndabanki Kittýjar þar stórt hlutverk. Það var sungið, samið, leikið og dansað á hverri árshátíð og skemmtun í unglingaskólanum. Við höfum, fimm vinkonur úr Hveragerði, hist einu sinni á ári og síðast nú í vor sem leið. Þá borðuðum við saman, hlógum og lásum upp úr gömlum bréfum, sem væri gott efni í gamanleikrit. Okkur fannst eins og við hefðum hist í gær. Þessar stundir eru ómetanlegar. Við munum halda áfram að hittast, rifja upp, hlæja og brosa í gegnum tárin með Kittý í huga og hjarta. Elsku vinkona, Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku Elli, Tara, Marteinn Högni, Silla, Marteinn, Birkir og aðrir ást- vinir, Guð gefi ykkur styrk. Bogey. Kittý mín, bara fáeinar línur. Já, nú ert þú flutt yfir landamærin. Ég var nú ekki tilbúin í að þú myndir flytja, meira að segja datt mér í hug að kannski gæti ég flutt í staðinn fyrir þig. En spurningin er: hvað ræður maður miklu? Lífskeðjan er svo óútreiknanleg. Þegar ég hugsa til þín þá kemur þetta í hugann. Hugprýði, kraftur, kærleikur og stálvilji. Börnin þín eru lánsöm að þú ert móðir þeirra; það er þetta með genin eins og þú sagðir, þau skila sér. Ég er ekki að kveðja þig, við mun- um hittast aftur og kannski hefur þú þá tíma til að taka á móti mér. Svo bless bless í bili. Munið, lífið er eins og hafið. Óút- reiknanlegt en stórkostlegt í sjálfu sér. Þín Þórunn Maggý. Kittý mætti fyrst í mánudags- göngu hjá styrktarfélaginu Göngum saman vorið 2008, þá hafði brjósta- krabbameinið sem hún hafði greinst með rúmum fjórum árum áður tekið sig upp. Hún var ákveðin í að vinna bug á því og fann að göngur höfðu góð áhrif á hana, bæði á líkama og sál. Hún fann sig í Göngum saman og mætti með glöðum hópi vinkvenna sinna og gekk með okkur vikulega á meðan hún gat. Kittý ákvað að fara í Avon-göng- una í New York í október fyrir ári. Þar gekk hún eitt og hálft maraþon og safnaði áheitum í styrktarsjóð Göngum saman. Þessi mikla ganga var mikið afrek fyrir hana sem var í erfiðri lyfjameðferð. Á árlegri styrk- veitingu Göngum saman síðar um haustið afhenti hún okkur stolt háa upphæð sem vinir og velunnarar höfðu heitið á hana, en það sem skipti félagið ekki minna máli var að hún ákvað að vera virkur félagi. Kittý vildi hafa áhrif og kom með hug- myndir og nýjar víddir inn í félagið. Hún vildi leggja sitt af mörkum til að styrkja grunnrannsóknir á brjósta- krabbameini á Íslandi og gerði það svo sannarlega. Hún var formaður fjáröflunarnefndar Göngum saman og hugmyndir hennar voru óþrjót- andi. Að hennar frumkvæði mun fé- lagið standa fyrir kvöldgöngu á safnanótt á vetrarhátíð Reykjavíkur í febrúar nk. Kittý var falleg, hlý, skemmtileg og með góðan húmor. Það voru forrétt- indi að kynnast henni og við vinkonur hennar í Göngum saman færum fjöl- skyldu hennar innilegar samúðar- kveðjur og þökkum fyrir samfylgd- ina. F.h. Göngum saman, Gunnhildur Óskarsdóttir og Ragnhildur Vigfúsdóttir. Elsku Kittý, takk fyrir allar góðu og glöðu stundirnar sem við áttum saman. Við stelpunar í Tepokunum söknum þín sárt, því þó þú prjónaðir ekki í saumaklúbbnum varstu ómiss- andi með skemmtilegu sögurnar þín- ar og framleiðslu skartgripanna þinna. Þitt sólskinsbjarta viðmót og góði húmor bætti okkur allar og er okkur heiður að hafa fengið að kynn- ast þér. Kæra fjölskylda, guð verið með ykkur og blessi á þessum erfiðu stundum. Stelpurnar í Te og kaffi, Ásta Gunna, Berglind, Elín, Kristín María, Sigrún, Sigurlaug og Þórey.  Fleiri minningargreinar um Krist- björgu Marteinsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.