Morgunblaðið - 26.11.2009, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2009
Nia Vardalos, stelpan úr "My big fat greek wedding" er
loksins komin til Grikklands í frábærri rómantískri gamanmynd.
HVERNIG STÖÐVARÐU
MORÐINGJA SEM ER NÚ
ÞEGAR Í FANGELSI?
SÝND Í KRINGLUNNI
GERRARD BUTLER OG JAMIE
FOXX Í EINHVERRI MÖGNUÐUSTU
HASARMYND Á ÞESSU ÁRI!
FRÁ LEIKSTJÓRA THE ITALIAN JOB
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
ÞRIÐJA STÆRSTA
FRUMSÝNINGARHELGI
ALLRA TÍMA Í USA
BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER
ÞETTA SÖGÐU LESENDUR Á
KVIKMYNDIR.IS
„ÆÐISLEG“
„HÚN VAR ÆÐI“
„ÉG VILDI SJÁ MEIRA“
„HÚN VAR ÓLÝSANLEGA
GEGGJUГ
„GEÐVEIKT SKEMMTILEG“
Robert Pattinson og
Kristen Stewart eru
mætt í einni stærstu
kvikmyndaseríu
allra tíma!
STÆRSTA BÍÓOPNUN Í USA Í ÁR!
/ KRINGLUNNI
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl.5:30D -8D -10:10D -10:50D 12 DIGITAL
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl.5:503D 7 3D-DIGITAL
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl.83D ótextuð 7 3D-DIGITAL
MY LIFE IN RUINS kl.5:50-8 L
LAW ABIDING CITIZEN kl.10:10 16
/ ÁLFABAKKA
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:20 - 8 - 8:10 - 10:10D - 10:50 12 DIGITAL PANDORUM kl. 8 - 10:20 16
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 10:10 LÚXUS VIP LAW ABIDING CITIZEN kl. 5:50 - 8 LÚXUS VIP
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl. 5:503D 7 3D DIGITAL LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:50 16
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 83D ótextuð 7 3D DIGITAL COUPLES RETREAT kl. 5:50 12
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl. 5:50 7 ALGJÖR SVEPPI.. kl. 6 L
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 - 10:10 7
www.noatun.is
Útsala
á folalda-
kjöti!
40%
afsláttur
Allt að
Dikta er sannfærandi áþriðju breiðskífu sinni.Einn helsti styrkur sveit-arinnar eru metnaðar-
fullar útsetningar auk þéttleika
bandsins og samspils. Greinilegt er
að menn hafa legið yfir hlutunum og
pælt. Þrátt fyrir enga textasnilld er
þar allt með felldu rétt eins og í
lagasmíðum sem eru misjafnar og
kemur fyrir að manni finnst maður
hafa heyrt þetta áður. Lögin eiga
það til að taka óvænta stefnu engu
að síður. Þéttur trommuleikurinn er
til fyrirmyndar
ásamt ríkum
hljóðheimi hljóð-
gervla, strengja
og trompets sem
smekklega er
blandað inn í lög-
in og lyftir þeim upp hér og þar.
Hljómur plötunnar er yfrið góður og
hugmyndaauðgi fjórmenninganna
er mikil auk þess sem þeir hugsa
stórt og afreka eftir því. Samt vant-
ar einhvern brodd í tónlistina til að
gera hana skarpari og ákveðnari.
Eins og að hugmyndirnar verði
stundum klisjum að bráð.
Með meiri áhættu í tilurðinni
hefði þessi plata skarað fram úr, en
henni tekst ekki að virka á nógu
mörgum sviðum til að gera hana ein-
staka. Heildarsvipur er fínn og vel
mótaður og út kemur fín poppplata
og frjó.
Meiri áhætta óskast
Geisladiskur
Dikta – Get It Together bbbnn
ARNLJÓTUR
SIGURÐSSON
TÓNLIST
TWILIGHT-leikarinn Robert Patt-
inson vill verða poppstjarna en hann
syngur lagið „Never Think“ sem er á
plötu sem var gefin út með lögum úr
fyrstu Twilight-myndinni. Pattinson
segir að hann vilji gjarnan koma tón-
listarferlinum af stað en sé hræddur
um að hlutverk hans sem vampíran
Edward Cullen muni koma í veg fyr-
ir velgengni.
„Ég sem lög og ég mun taka upp
nokkur lög um leið og ég lýk kynn-
ingum fyrir myndina, en ég sendi
ekkert frá mér fyrr. Ég vil ekki gefa
út plötu sem hefur stimpilinn; „eftir
vampíruna í Twilight“. Ef platan
kemur út einn daginn vil ég ekki hafa
nafn mitt eða mynd á plötuumslag-
inu,“ segir Pattinson. Fyrir frægðina
dreymdi Pattinson um að hefja tón-
listarferil sinn á því að leika á börum
en nú hefur heimsfrægð hans komið í
veg fyrir þau plön.
Poppstjörnu-
draumar
Pattinson Er góður í að veifa.
Í GREIN í Morgunblaðinu í gær kom
fram að Megas ætlaði að flytja Jesú-
rímur eftir Tryggva Magnússon og að
Helgi Hóseasson hefði gefið rímurnar
út á sínum tíma. Áréttað skal að Meg-
as mun flytja upprunalega útgáfu
Tryggva af rímunum, en ekki þær
sem Helgi gaf út, á aðventutónleikum
í Bústaðakirkju 4. og 5. desember.
Jesúrímur gaf Tryggvi út fyrir vanda-
menn um miðja síðustu öld, ekki til al-
mennrar útgáfu.
Athugasemd
Frumútgáfa Jesúrímna flutt
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn