Einherji


Einherji - 27.07.1932, Qupperneq 3

Einherji - 27.07.1932, Qupperneq 3
EINHERJÍ $ Fossarnir sungu sín alda-gömlu Ijóð og áin raulaði undir, annars var allt hljótt. Kyrrðin féll á okkur eins cg ljú'ur höfgi, það var eins og við hefðum drukkið pminnisöl, áhyggjur og erfiðleikar gleymduí t og um stund vorum við í fullu samræmi við náttúruna, vorum snklaus, lítil börn, laus við allar erfðir og spillandi kenningar misviturra manna. llcim varð að fara. Við stóðum á fætur og héldum af stað. Eftir litla síund vorum við kominn upp á Saurbæjarásinn, fjörðurinn, bær- inn og dalurinn blöstu við — við vorum komin i mannheima. — Pokan var að koma sígandi fyrir Nesnúpinn. Hægt og hægt seig hún inn fjailshlíðina, breiddi sig svo yfir fjörðinn, teygði armana inn beggja megin bæjarins og var sem hún ætlaði að taka bæinn í faðm sinn. Pessi þoka var ekki skaðleg. Pað er til önnur þoka, þoka skamm- sýni og heimsku, sem fyllir vit manna svo þeir sjá ekki skil á neinu, sem er utan við útréttan armlegg þeirra. \ Ferðin gekk fljótt heim. Við mættum örfáum hræðum á Hafnar- veginum á leið inn í fjörðinn. Peg- ar kom ofan í bæinn fjölgaði þeim er á ferli voru. Pá var klukkan að byrja að ganga eilt. I einum dans- skálanum var ball. Fulit mun hafa verið inni fyrir því troðfullt var á tröppunum. Dansskálarnir eru eins og dáuðra manna reitir að því leyii, að þar hverfur allt manngreiaarálit. Par hittist og faðmast fólk af marg- víslegum stéttum og margvíslegum skapgerðum, fátækt fólk og ríkt, silkiskreytt og fágað og fátækt og illa búið. Dansinn og dauðinn fylgja jafnaðarstefnunni. Og þokan tók bæinn þétt i faðm sinn og svæfði hann. — s.m. F r j e 11 i r Höfnin. 56síldveiðaskip lágu hér yfir helgina, Finnar Norðmenn og Sví- ar. Öll þessi skip stunda veiðar ut- an landhelgi. Nokkur tunnuskip hafa verið hér síðustu daga. Mest- allt voru þetta reknetaskip. Finnar hafa nú sent heim einn farminn 3: 4000 tn. og Eistur álílca rnikið. hjögur norsk gufuskip munu einnig farin heim með fyrstu hleðsiu 3; 800 tn. hvert. Annars eraflinn held- ur tregur og tíðin stirð fyrir veið- ina i:tan landhelginnar. Síldin er mjög grunnt ennþá og torfurner þuns.ar, fitumagn síldarinnar lítið og y irleitt er síldin sem berst nú að, iila lallin til útflutnings. Tíðin hefir verið stirð undanfar- ið, norðaustan golur og súld og rign- ing öðru hvoru. I gær birti til og hves^ti um ieið. Síldveiðin hefir geng.ð treglega að þessu vegna storma og kalsaveðurs. I nótt komu aðeins örfá skip inn með síld, sum til rík- isverksmiðjunnar og af öðrum var lítilsháttar saltað. Nýtt veitingahús, „Dettifoss“ «r Pétur Jónsson frá Brúnastöðum að setja á stofn í Aðalgötu 31. Húsa- kynni eru þar góö, ný máluð og veggfóðruð og að öllu leyti hin við- kynnilegustu. Einherjablöðin með kauptöxtun- um og síldarréttauppskriftum Jónas- arLárussonar fást euiiþá á afgreiðsln blaðsins, Bókabúð Hannesar Jónas- sonar. Menn ættu að ná í þessi blöð sem fyrst, þau eru alveg aö verða uppseld. Á Ingólfsfirði var þegar síðast fréttist búið að salta um 2000 tn. Hefir sildin haldið sig mikið þarn i vestur frá. Kveldúlfstogararnir fyllt.i sig innundir Blönduósi í gær. Ágætur heyþurkur er í dag. Mun hann mörgum kærkominn. Talsvert af heyum er hér flatt og hálfskemmt orðið, Fjöldi Svía er nú kominn hér svo sem vanalega. Auk þess ýmsir íslendingar er munu ætla að fa ipa hér síld. Um verðlag á saltaðri síld heyrist ekkert ennþá. 22. þ. m. andaðist hér ásjúkrah., Hilde Ostberg, 21 ára gömul. Hún kom hingað til Siglufjarðar haustið 1930, ásamt mörgum öðrum norsk- um stúlkum er þá réðust hingað. Stúika þessi var rösk og myndarleg og hefirkynt sig velþennan tima sem hún hefir dvalið hér. Samkvæmt umsögn Fiskifélags lslands var síldveiðin á öllu land- inu, föstudagskvöldið 22. þ. m. kl. 12 á miðnætti, svo sem hér segir: Grófsöltuð sild 927 tn. Oðruvísu verkuð 4769 Lagt í bragðslu 74062 hektol. Morgunn bóndans. Pótt um nætur eg þrátt sé aumur, þrekstolinn keyrður í vonleysis-hnút, þáier um mig strax einhver fagnaðar- straumur fyrsFá morgnana er kem eg út. Morgun-andvarinn ljóð sín leikur, ljómandi sól yfir fjöllin rís, þrek og£starfsgleði eflir, eykur ilmur úr jarðgróðurs-paradís. Berast að eyrum unaðshljómar, ei verður rödd nein þar sérstök skýrð, svo eru samstiltir allir ómar í einróma gleði yfir lífsins dýrð. s. m. S t ú 1 k a vön almennum húsVerk- um, óskast í vetrarvist frá 15. sept. n.k. til 14. maí. HANNES JÓNASSON. Vinnuföt Strigavetlingar Gúmmívetlingar nýkomid. Kaupíél.agið. Danskir rómanar spennandi og skemtileéir, fást hjá Hannesi Jónassyni, Arni Friðriksson, náttúrufræðing- ur dvelur hér nú um tíma við síld- arrannsóknii. Kannsakar hann stærð, aldur, fitumagn, kynþroska ogþunga síldarinnar ásamt mælingum á sjáv- arhita. Sérstaka aherzlu kveður hann að þessu sinni verða lagða á »ð finna meðalþunga síldar eftir stærð og fitumagni. Ein 8 eða 9 skip verða látin mæla sjávarhitann þar sem aíldÍR fæst og skila þau skýrslum um það efni til Árna eltir hverja ferð. Rann- sóknir Árna hafa tvírnælalaust afar mikla þýðingu fyrir síldveiðar Isér við land og þekking manna á göngu og lit'naðarnáttum síldarinnar, því Arni er allra manna Iærðastur á þessa hluti og áhugasamastur. Harm hefir bækistöð sína í efnarannsókk- arstofu Dr. Paul’s verksmiðjunnar. Eigendur og dbyrgöann.: Sig. tij örgótfsson. Hannes Jónasson,

x

Einherji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.