Einherji - 28.03.1934, Page 2
2
EINHERJI
inga til umhugsunar um þetta nauð-
synjamál. Góð prentsmiðja hér á
staðnum, er fullnægir þörfum og
kröfum bæjarbúa er stórt spor í
menningaráttina og okkur er ekki
vanþörf á, að stíga stór spor í þá
átt, þau eru fá stigin ennþá og
og þeim þarf að fjölga ef við eig-
um ekki að verða eftirbátar annara
bæja er líkt standa að vígi.
Hannes Jónassen.
Líkkista,
dauði, dómur.
Svo er að sjá á síðasta Siglfirð-
ing, sem honum hafi orðið illa við
er Einherji minntist á líkkistu Sjálf-
stæðisflokksins. Rað fer svo -fyrir
rnörgum, þeim er illa hafa lifað, að
þeir vilja sem minnst heyra talað
um það er minnt getur á dauða og
dóm, og er Sjálfstæðisflokknum það
ekki láandi, lífernið hefir ekki verið
svo fagurt. En kistan er til og ekki
rekin gullnöglum heldur afglöpum,
ofsóknum, yfirhylmingum, lagabrot-
um og margskonar meinsemdum,
sem flokkurinn hefir jafnan verið
ríkur af og spýtt inn í þjóðarlíkam-
ann.
Siglfirðingur ætlar að bíða dóms-
ins í árásarmálinu á Hermann Jó-
nasson. Sú bið mun verða löng, því
síðustu fregnir herma, að Arnljótur
Jónsson, sem hafði málið til með-
ferðar, hafi nú þvegið hendur sínar,
afhent málið til stjórnarráðsins og
neitað að kveða upp dóm í málinu.
Svo fór um sjóferð þá! Ekki er ó-
sennilegt að reynt verði að finna
upp nýar sakir á Hermann Jónas-
son, fyrst þessi síðasta brást, því
Sjálfstæðisflokkurinn hefir jafnan
verið fundvísari á ósannar sakir á
andstæðinga sína en á bjargráð fyrir
þjóðina, en ætla mætti þó, að flokk-
urinn væri búinn að fá nóg afrass-
skellum þeim, er hann hefir gefið
sjálfum sér með þessum árásum
sínum, er alltaf hafa mistekist.
Siglfirðingur segir að Sjálfstæðis-
flokkurinn muni blómgast og vaxa.
Ojæja. Líklega ætlar hann sér að
skjóta fegurstum blómknöppum í
kviðj Nazistaflokksins, þangað iigg.
ur leiðin eins og stendur. Ekki er
ósennilegt, að Siglfirðingur og sum-
ir aðstandendur hans fagni því að
komast í þá vistarveru.
Magnús Guðrnundss.
og fjáreydsla fram yfir fjárlög.
Til minnis ' ið næstu kosningar.
Samkvæmt skýrslu um fjárhag
ríkisins á árinu 1933, sem fjármála-
ráðherra las í útvarpinu fyrir nokkr-
um dögum, hefir kostnaðurinn við
þá grein stjórnarframkvæmdanna sem
Magnús Guðmundsson sérstaklega
ræður yfir, þ. e. dómsmálin, farið
rúmlega 72 ptc. framúr áætlun fjár-
laganna fyrir árið 1933.
Rað er eftirtektarvert í því sam-
bandi að landhelgisgæslan ein út af
fyrir sig hefir farið 216 þús. kr fram
úr áætlun. Og þó htfir á árinu 1933
verið sú lang aumasta og gagnlaus-
asta landhelgisgæzla, sem þelckzt
hefir um langt ára bii. Hvað hefir
verið gert við alla þessa peninga?
Til varalögreglunnar, sem starf-
rækt var allt árið í fullu heimildar-
leysi og vafalaust í beinni óþökk
meirihluta landsbúa, hefir verið var-
ið hvorki meira né minna en 340
þús. króna.
Tollgæzlan, sem íhaldsblöðin ó-
sköpuðust mest yör fyrir nokkrum
árum, hefir farið 18 þús. kr. fram
úr fjárlagaheimild. Og þessi umfram
greiðsla liggur þó síður en svo í
því, að tollvörðum hafi verið fjölg-
að og hert þannig ágæzlunni. Um-
frameyðslan fer öll í skrifstofukostn-
að tollstjórans í Reykjavík, eftirþví
sem talið er í skýrslunni.
(Eftir Nýja Dagblaðinu.)
Nær og fjær.
Friðbjörn Jónsson,
son Jóns Friðrikssonar hér, tók út
af fiskiskipinu „Nanna1' fyrra þriðju-
dag. Friðbjörn heitinn var dugnað-
armaður og vel látinn. Um þann
mund er slys þetta vildi til voru ó-
veður mikil fyrir Suður- og Vestur-
urlandi. Mannskaði varð þó eigi
annar en þessi, en í ísafjarðardjúpi
sökk vélbátur, Helga frá Hnífsdal.
Hávarður ísfirðingur bjargaði sltips-
höfninni.
Verkið,
við útbúnað fyrir gagnfræðaskóla og
bókasafn á kirkjuloftinu, var boðið
út. Lægsta tilboð kom frá Ólafi
Reykaals, var honum veitt verkið
Um hátíðina
verða brauðbúðir mínar opnar
sern hér segir:
Skírdag frá 10 til 7
Föstud. langa 10 —12 og 6—7
Páskadaginn 10—12 og 6—7
2. páskadag frá 10—8.
O. Hertervig.
r a k j á r n
No. 24 og 26.
Slétt járn og þakhryggur,
kom nú með Gullfoss.
Einar Jóhannsson & Co.
Peir, sem hafa í hyggju að læra
á bíl í vor, ættu að tal við mig sem
fyrst. — Kennslugjald lækkað frá
því sem verið hefur.
/
Kristján Arnason.
og er hann þegar byrjaður. Á kór-
loftinu verður útbúin geymslu fyrir
skjalasafn bæjarins, sem að þessu
hefir haft fremur þröngt og óvist-
legt húsrúm á barnaskólaloftinu.
Barnaskólabörnin
héldu skemmtun í síðastliðinni viku.
Var skemmtiskrá þeirra fjölbreytt og
var aðsókn góð. Ágóðinn af skemmt-
uninni rennur í ferðasjóð barnanna
og er honum varið til skemmti-
ferðar fyrir fullnaðarprófsbörn á vori
hverju. Börnin leystu hlutverk sín
vel af hendi, þótt ung og lítil væru,
og hafi þau þökk fyrir skemmtun-
ina.
Unglingaskólinn
hélt skemmtun fyrra þriðjudag og
átti ágóðinn af skemmtuninni að
ganga til áhaldakaupa til skólans og
þá helst til kaupa á bókum, er nem-
endur gætu haft gagn af að lesa
með náminu.
Til skemmtunar var söngur, upp-
lestur, leikfimi kvenna og smáleik-
ur. Skemmtunin var hin prýðileg-
legasta, og öll skemmtiatriðin vel
af hendi leyst, en aðsókn var frem-
ur slæm. Mun því ágóðinn hafa
orðið lítill þegar frá var dreginn
kostnaður er var aðallega leigan á
Bíóhúsinu, kr. 62,50. Kemur það