Einherji


Einherji - 10.05.1935, Page 2

Einherji - 10.05.1935, Page 2
2 EINHERJI PAKKARÁV ARP, Innilega þökk'um við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlut- tekningu við andlát og jarðarför Samúels sál. Olafssonar. Sérstaklega viljum við þakka félögum hans í Framsóknarfélagi Siglufjarðar, er veittu okkur vinsemd, hjálp 0.4 aðstoð í sorg okkar. Aðstandeudur. as Jónsson langa og yfirgripsmikla ræðu. Indriði Porkelsson frá Fjalli fiutti Jónasi langt og snjallt kvæði. Auk þeirra ræða er áður er getið fiuttu milli 10 og 20 manns stuttarræður. Eftir að matast hafði verið var dansað til kl. 4 um morguninn og skemmtu meun sér hið bezta. Pennán- dag kom Tíminn út í 12 síðum og fiutti mynd af.Jónasi Jóns- syni og greinar um hann eftir ýmsa menn. Ails höfðu skrifað í blaðið 48 menn. Voru það vinir Jónasar í Reykjavík og víðsvegar um land er þær greinar skrifuðu. Um 300 heillaóskaskeyti bárust afmælisbarn- inu um daginn. Skerr.mtanirnar kaffihúsin o£ kvikmyndahúsið. Nú er því svo varið, að samstilt þriggja manna hljómsveit er þess fullkomlega umkomin að dómi þeirra er vit hafa á, að spila fyrir öllum þeim fjölda samanlögðum, sem sátu kaffihúsin til jafnaðar á hverju kvöldi innan fjögurra veggja. Par sem ekki er fyrir hendi ein- staklingur, sem mundi hafa bolmagn til þess að reisa svo vandað og full- komið kaffihús sem forsvaranlegt' þætti, lægi næst að bærinu léti byggja kaffihús, sem fullnægði með öliu kröfum tímans. Fengju þá bæj- arbúar um leið íhlutunarrétt um hvenær þeir vildu hafa húsið opið og hve dýrt veitingar yrðu seldar. einnig fengju þeir ríkari íhlutunar- rétt með að fullkomnará siðferðis og menningar yrði gætt jafnframt því, sem ráðin yrði bót á öllum ytri umbúnaði. Pað þýðir ekki að neita því, að kaffihúsin eru þegar fyrir löngu farin að hafa verulega spillandi áhrif. Pau eru orðin nokkurskonar upp- eldisstofnanir, sem hljóta að hafa varhugaverð áhrif á ungdóminn. Hér er því verkefni fyrir foreldra og þó einkum kennara að láta til sín taka og heimta þær endurbæt- ur og afskifti frá bæjarins hálfu, sem með þarf. Kennarar og foreldr- ar hljóta að hafa orðið þess varir, að þeirra áhrif, sem miðað hafa í þá átt að sá fræi manndóms og sið- gæðis í hjörtu ungdómsins, hafa dvínað og kaffihúsin hafa átt sinn ríka þátt í því að leiða æskumann- inn inn á braut nautna og gjá- lífis, drykkjuskapar, tóbaksnotkun- ar og annarskonar nautnalífs, og sið- ferðislestir hafa þróast í skjóli þeirra stofnana. Pá er rétt að víkja lítillega að kvikmyndahúsinu hér á Siglufirði. Eins og kunnugt er, eru sýndar myndir á hverju kvöldi að sumar- laginu. Meirihluti þeirra mynda sem hér eru sýndar eru nauða órnerki- legar og hafa blátt áfram spillandi áhrif. Pað er t. d. ekki ósjaldan senr sýndar eru myndir sem leika snilli glæpamanna og það liggur nærri mér að halda að kvikmynda- húsin eigi Jaundrjúgan þátt í því að auka á veilur mótstöðulítilla ung- linga. Athugasemdir mínar eru í stuttu máli þessar: Ytri aðbúnaður er ekki góður, inngangseyrir er seldur við of hátt verð, og myndirnar eru lé- legar. Hér eins og annarstaðar þarf bæj- artélagið að taka 1 taumana og siá um frumkvæmdir rót'ækra endur- bóta, enda virðist aðstaðan til þess að koma á endurbótum vera ákjós- anlega góð, þar sem bæjarbúar eiga stórt og myndarlegt hús, sem gnæf- ir hæst allra húsa hér í bæ og stendur autt mest allt árið að und- anskildum örfáum skiftum. Húsið, sem eg á hér við er kirkjan. Mörg- um finst það kannske hrópleg mis- notkun á guðshúsi að nota þaðsem kvikmyndahús, en eg lít svo á að einmitt mælti gera kirkjuna að enn voldugra og áhrifaríkara guðshúsi með því t. d. að sýna trúfræðileg- ar myndir eins og t. d. myndin „Friður á jörðu“ o. fl. Kirkjan er of stórt og myndarlegt og dýrt hús til þess að standa auð allt árið og storka námfúsum févana verkalýð. Hér þarf ákaflega litlu til að kosta, húsið er til og með því að taka það í sína þjónustu mundi margt ávinn- ast. Ytri aðbúnað væri hægt að hafa ákjósanlega góðan. Inngangseyririnn mundi vera hægt að selja við lægra verði og með því að lækka inngangs- Pappírsvörur allskonar, höfuðhækur, dag- bækur, skjalamöppur, margar tegundir, vasabækur o.m.fl. nýkomið. Hannes Jónasson. eyririnn mundi skapast snöggt um meiri aðsókn og almennari not og skilyrði vera þá um leið fyrir hendi til þess að fá fullkomnari, lærdóms- ríkari og göfgandi myndir. Senni- lega mundi bærinn þéna á því að taka rekslur kvikmyndahússins í sínar hendur. Tilhlýðilegt væri að verja ágóðanum til stofnunar barna- garðs og ræktunar trjáa og blóma. Væri það vel til þess fallið að ein uppeldisstofnunm gæti af sér aðra hægt og hægt með frjálsu framlagi fjölmargra einstaklinga. sem skap- aðist í raun og veru þeim óafvit- andi. Vér íslendingar þörfnumst mynda er sýna þróun í iðnaðat menningu, íþróttamenningu, landbúnaðarmenn- ingu og einnig uppeldisfræðilegra og trúfræðilegra mynda. Taki ráðandi menn bæjarfélags- ins ekki þetta mál til ýtarlegrar yf« irvegunar og rannsóknar, verða bæj- arbúar að taka sig saman um há- værar kröfur á hendur þeim mönn- um sem umgetnar stofnanir reka, því það erum við Siglnrðingar sem btint og óbeint höldum þessum stofnunum uppi og höfum þar af leiðandi fullan rétt til þess að heimta að einh ærju leyti kröfur okkar upp- fylltar. Pað ætti að vera okkur Siglfirð- ingum metnaðarmál að skipa þess- um málum svo að til fremdar mætti þykja. Pessi umgetnu menningarmál, séu þau rækt, eiga laundrjúgan þátt í þvi að móta og skerpa dómgreind manna og veita straum lífsgleði og hamingju í einstaklirigana. A sumri hverju kemur hingað fjöldi útlendinga frá ýmsum þjóð- nm, og þessir útlendingar eiga margir

x

Einherji

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.