Einherji


Einherji - 01.08.1935, Qupperneq 2

Einherji - 01.08.1935, Qupperneq 2
2 EINHERJI ur nokkrum sinnum, en síðan var hann Iagður til hiiðar og sefur nú svefninum langa norðan við barna- skólann hjá öðru minnismerki um vísdóm og framtakssemi bæjar- stjórnar, snjóplógnum. Hér í bænum munu nú vera um 36 bilar. Má geta nærri að þeir slíta götunum mikið og undir hina miklu umferð þarf að vanda göt- urnar sem bezt. Pað sem gera þarf í þessu máli er það, að taka fyrir á hverju ári eina götu, eða part af götu, og gera hana fullkomlega vel úr garði, eftir því sem nú þykir bezt um gatnagerð í bæjum. Væri þá sjálfsagt að byrja á Aðalgötunni því um hana er umferðin mest. Ef þannig er farið að, mundu flestar eða allar fjölförnustu götur bæjarins verða komnar í gott ásig- komulag eftir 10 ár, og mundi ein- mitt við það, að gera göturnar góðar, sparast mikið fé sem nú ferárlega í ónýtar og endingarlausar endurbaétur, sem þó ekki verður hjá komizt, eins og nú standa sakir. Með vaxandi menningu víkkar stöðugt svið fræðslumálanna. Allt þurfa menn að vita, ef vel á að fara og allt vilja menn vita, sem vonlegt er, því að rannsóknarþrá og forvitni er flestum í blóð borin. — En því þá ekki að fara í barna- skólann og líta þar á heilsufræðis- sýningu læknanna? Par ermargtað sjá. Hvernig skyldu axlarvöðvarnir vera í smiðnum. sem hamrar allan daginn? Hvernig ætli vöðvarnir s.éu í .,löppunum“ á Pjóðverjunum sem þeyta knettinum úr „löppum" land- anna í Rvík? Hvernig myndi bak- ið verða á síldarstúlkunu.r., sem salta síldina, ef þær ættu að salta allt árið um kring? Hversvegna er óhollt að sitja kengboginn við að vélrita allan daginn? og svona mætti lengi telja. Komið á sýninguna og þér mun- uð fá svör við ótal spurningum og athygli yðar mun beinast að ýmsu því, sem yður er bráðnauðsynlegt að fá vitneskju um. Hér verður ekkert lagt til um það, hvort göturnar skuli asfalter- aðar, steyptar eða járnlagðar. Bæj- arstjórn verður að fá sér upplýs- ingar um hvað nú þykir hentugast í því efni. En á hitt verður að leggja áherzlu, að bætt sé úr því ásigkomulagi, sem nú er, það verð- ur að vera krafa allra bæjarbúa. Göturnar, eins og þær eru nú, eru óhæfar og óþolandi. Áður en eg skil við þetta mál, vil eg benda á hina brýnu þörf á, að lögð verði gangstétt meðfram Vetrarbraut, að minnsta kosti út að Eyrargötu. Gata þessi er nú orðin með fjölförnustu götum í bænum og bílaumferð frá ríkisverksmiðjun- um feikna mikil, stundum ganga frá ríkisverksmiðjunum allt að 20 bílar í einu. Eins og nú er, má telja að illfarandi sé fyrir gangandi fólk um götu þessa, meðan keyrsla fer fram, og er við enga götu, sem nú er gangstéttarlaus, jafnmikil þörf þeirra og við þessa. Á sýningunni er sýnd byggitit; likamans, eins og hún er undir yzta borðinu, sem vér sjáum daglega. Vélin sem vér notum og ættum að fara vel með, en misnotum svo oft af kæruleysi og þekkingarleysi. — Rá má sjá nokkrar skaðlegar vinnu- stellingar; mjög þörf og góð hug- vekja. Einnig er meðferð ungbarna sýnd með mörgum myndum, og er þar að sjá þarfa og mikla fræðslu, eink- um fyrir mæður; en jafnframt eru myndirnar svo skemmtilegar, að börnin hlæja að þeim og píltarnir geta ekki látið vera að kýma. er þeir sjá mæðurnar vera að hand- leika smábörnin. Petta er eins og í Bíó! En þá tekur alvaran við. Berkla- veikin, sem árlega leggur 200 manns og þar yfir í gröfina, kostar ríkis- sjóð á aðra miljón króna og landið margar miljónir, ef allt er reiknað. Á sýningunni sést hvernig ástandið er, — Pá eru tennurnarí fólkinu. Hvað á að gera við þær? Fá fleiri tann- lækna? Fylla holurnar með gulli? Bursta tennurnar við og við með allskonar tannkréme, þegar mester haft við, en gleyma því þess á milli. Jón Jónsson læknir, sem er um- sjónarmaður sýningarinnar, hefir lofað mér, að hann skuli flytja er- indi fyrir börnin um tennurnar á sunnudaginn kemur, kl. 11 árdegis. Eg hugsa að það verði nógu fróð- legt að heyra hvað hann segir um þetta mál. Hann er fróður um þetta efni. því að hann hefir verið tann- læknir við barnaskólann í Hafnar- firði í fleiri ár. Pá eru kynsjúkdómar. Reir eru að útbreiðast meir og meir, með vexti bæjanna. Um þá er bezt að hafa sem fæst orð, en komið og skoðið og þið fáið heilbrigða og nauðsynlega fræðslu. Loks eru farsóttirnar. Pær eru víðfeðma, margar hættulegar og mannskæðar, en allar til tjóns, og kosta þjóðina ærna fé. Er útbreiðsla {eirra sýnd með línuritum, og eru sum þeirra risavaxin mjög, því að sumar farsóttirnar eru eins og verstu tröll eða forynjur. Pað er vitanlegt að til heilbrigð- ismálanna er lagt mikið fé úr rík- issjóði, en hvað kosta sjúkdómarnir? I sjúkrahúsunum, sem eru mörg, en þó alltaf full, eru legudagarnir um 350 þúsund. Pó dagsverk þeirra, sem þar hindrast frá vinnu væri ekki reiknað nema 10 kr., þá er vinnutapið háll fjórða milljón króna. En hve margir liggja heima? Hve mikið kostar kíghóstinn sem nú gengur um Iandið? Hverjar sóttir eru að aukast, og hverjar að réna? Komið á sýning- una og sjáið sjálf. En hvað er þá um áfengið, sem svo mikið hefir verið rætt og ritað um? Er nokkursstaðar hægt að sjá áhrif þess á sjúkdóma, eða útbreiðslu þeirra? — Og eru þau áhrif ekki ægileg? Jú, vissulega — og á sýningunni er sýnd ein ægilegasta hliðin á vín- nautninni. Pað er aðeins eitt atriði, — ein tala. — En stí tala talar. Sýningin er opin alla daga 1—7 og 8—10 s.d., kostar aðeins 1 krónu fyrir fullorðna en 25 aura fyrir börn. Aðgöngumiða fyrir allan tímann má fá fyrir 5 kr. Getur öll fjölskyldan notaðsama miðann — (5 kr. miða), með því að fara til skiptis. Heilsuíræðissýnin læknaféla£sins.

x

Einherji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.