Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.11.1957, Blaðsíða 13

Skólablaðið - 01.11.1957, Blaðsíða 13
T gær snjóaði á hátind fjallsins. - Við sitjum í gömlu, köldu husi. Husið stendur við breiða götu, nálega í miðju bæjarins. Andspænis husinu okkar standa hrörlegir kofar, fornir mjög. Þannig er okkar hús einnig, fornt eins og vofa gam - als kastala. Eitt sinn var það að vísu stórt og tignarlegt, og gnæfði yfir önnur hús. En langt er nú síðan, óralangt. Við lítum út um gluggann, sjáum fólk ganga hina breiðu götu. Fólk, sem flýtur með flaumi lífsins. Menn og konur, sem ekki gefa gaum að hinu gamla húsi, það er að flýta ser. Allir flýta ser. Enginn skeytir því þanka, hvers vegna það geng- ur þarna, einmitt á þessari stundu. - Við horfum ekki lengur gegnum glerið. Við rennum augum okkar um nakta, napra veggi stofunnar. Við titrum, fingur okkar eru kaldir, freðnir. - Maður er í stof- unni. Mælir hann annarlega tungu. Við hlýðum á rödd hans, ef til vill er honum kalt. Já, hann talar sér til hita. Maðurinn hættir að tala og fer út. Við göngum einnig út. En tilbreytinga- leysi veggjanna, marr trappanna, kuld- inn, fær okkur til að hörfa inn aftur. Við horfum áfram gegnum glerið. Það hefur snjóað í fallega fjallið, hand- an við hafið. Fjallið er fagurt. Blátt og hvítt. Við elskum þetta fjall, þetta er fjallið okkar. - Já, það er fallin fönn, bráðlega skefur snjórinn einnig á gamla húsið og breiðu götuna. Það verður kaldara, kaldara - 13.10. '57. ÞYRNIRÖSA . Embættismannatal.fh.af bls.17 Bekkjarráð : Sólveig Jónsdóttir, 6.-A Styrmir Gunnarsson 6.-B Haukur Hauksson 6.-C Ragnar Stefánsson 6.-X Ragnar Arnalds 6.-Y, form. 5. BEKKUR Ums jónarmenn: Sólveig Einarsdóttir 5.-A Björgúlfur Lúðvíkss. 5.-B Si^ríður Indriðadóttir 5.-C Lúðvíg B. Albertsson 5.-X Þorbergur Þorbergss. 5.-Y Bekkjarráð : Ragnheiður Benediktsd. 5.-A Eiður Guðnason 5.-B Sigurlaug Ó. Guðm. d. 5.-C Albína Thordarson 5.-X Guðni Gíslason 5.-Y, form. 4. BEKKUR Umsjónarmenn: Jona Björg Hjartar 4.-A Einar Guðnason 4.-B Guðr. Drífa Kristinsd. 4.-C Jóhanna Eiríksdóttir 4.-X Guðm. M. Bjarnason 4.-Y Bekkjarráð: Björg Þorsteinsdóttir 4.-A Hilmar Björgvinsson 4.-B Guðrún Matthíasdóttir 4.-C Hannes Hávarðarson 4.-X Steindór Haarde 4.-Y,form. 3. BEKKUR Umsjónarmenn: Ragnheiður Á. Petursd. 3.-A Ásgeir Leifsson 3.-B Málfríður Konráðsd. 3.-C Sverrir Tómasson 3.-D Þorleifur Hauksson 3.-E Þráinn Eggertsson 3.-F Gunnar Gunnarsson 3.-G Bekkjarráð: Þuríður Kvaran 3. -A Stefán Ólafsson 3.-B Agla Marteinsdóttir 3.-C Gísli Árnason 3.-D Gísli Sigurkarlsson 3.-E Eggert Jonsson 3.-F, form. Þorgeir Pálsson 3.-G

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.