Morgunblaðið - 28.11.2009, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.11.2009, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009                                                                                                                                                 ♦      ♦       ♦          ♦   ♦              ♦          ♦    ♦                       ♦            ♦    ♦        ♦        ♦                        ♦         ♦            ♦        ♦         ♦                                 Hagfræðingur á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands Seðlabanki Íslands auglýsir laust til umsóknar starf hagfræðings á hagfræðisviði. Hagfræðisvið annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Hagfræðisvið hefur m.a. umsjón með útgáfu ársfjórðungsritsins Peningamála og ensku útgáfu þess Monetary Bulletin. Verkefni hagfræðingsins verða m.a.:  Almennar rannsóknir, einkum á sviði peninga- og þjóðhagfræði.  Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspáa bankans og framþróun líkana til spágerðar.  Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðarsviðum Seðlabankans.  Að fylgjast með framvindu efnahagsmála, greina gögn og skrifa um niðurstöður. Áskilið er a.m.k. meistarapróf í hagfræði og lögð er áhersla á að umsækjandi hafi gott vald á aðferðum til hagrannsókna og notkun hugbúnaðar til tölfræðigreiningar og hagmælinga. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og ensku, og hæfileika til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt. Umsækjandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika og vera reiðubúinn til hópvinnu af ýmsu tagi. Upplýsingar um starfið veitir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur, í síma 569-9600. Umsóknum skal skilað fyrir 7. des. 2009 til rekstrarstjóra Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík. Héraðsverk ehf er 21 árs gamalt verktakafyrirtæki á Fljótsdalshéraði, stof- nað í marsmánuði árið 1988. 20 jarðvinnuverktakar tóku höndum saman og stofnuðu fyrirtæki sem þeir nefndu Héraðsverk hf til að eiga möguleika á að framkvæma stærri sem smærri verk. Héraðsverk ehf. er alhliða verktakafyrirtæki sem unnið hefur verkefni af öllum gerðum og stærðum, allt frá lagna- og viðhaldsvinnu upp í vega- og jarðgangagerð. Fyrirtækið beitir aðferðum gæðastjórnunar í starfseminni og leggur mjög ríka áherslu á öryggis- og umhverfismál. Héraðsverk hefur á að skipa reyndum hópi tækjastjóra, tæknimanna og verkstjóra auk hæfra starfskrafta til flestra verka. Framkvæmdastjóri Héraðsverk ehf óskar eftir að ráða sjálf- stæðan og metnaðarfullan einstakling sem framkvæmdarstjóra. Starfssvið: · Samræming og áætlanagerð. · Ábyrgð á stjórnun og rekstri. · Öflun nýrra verkefna, tilboðsgerð. · Stefnumótun og markmiðssetning. · Samskipti við hluthafa. · Starfsmannamál o.fl. Hæfniskröfur: · Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði. · Skipulags- og leiðtogahæfni. · Reynsla af rekstri eða stjórnun á jarðvinnusviði. · Frumkvæði. Umsóknir skulu sendar á netfangið hilmar@austurland.is eða í pósti á Héraðsverk, Lyngás 5, 700 EG. Merkt umsókn um framkvæmdastjórastöðu Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði auglýsir eftir framhalds- skólakennurum Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir fram- haldsskólakennurum í eftirfarandi stöður:  Stærðfræði, 100%  Náttúrufræði og jarðfræði, 80-100%  Enska, 80-100%  Margmiðlun, 50% Laun greiðast samkvæmt stofnsamningi skólans. Fjölbrautaskóli Snæfellinga tók til starfa í ágúst 2004. Skólinn er leiðandi í sveigjanlegum kennsluháttum og skipulagi skólastarfs á framhaldsskólastigi, m.a. með hagnýtingu upplýsingatækni í staðbundnu námi, dreifnámi og fjarnámi. Hugmyndafræði skólans gerir ráð fyrir einstaklingsmiðuðu námi í opnum rýmum með áherslu á verkefnavinnu. Leitað er að starfsfólki sem hefur áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og í nýtingu nýrra miðla og upplýsingatækni í skólastarfi. Leitað er eftir kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008). Ráðið verður í stöðurnar frá 1. janúar 2010. Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í viðkomandi grein og kennsluréttindi á fram- haldsskólastigi. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Skúlínu Hlíf Kjartansdóttur, skóla- meistara, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði eða á netfangið skulina@fsn.is í síðasta lagi 7. desember 2009. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veita Skúlína Hlíf Kjartans- dóttir, skólameistari, skulina@fsn.is, s. 693-4967 og Pétur Ingi Guðmundsson, aðstoðarskólameistari, petur@fsn.is, s. 868 3618. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vef FSN www.fsn.is Skólameistari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.