Morgunblaðið - 28.11.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.11.2009, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009 Framkvæmdastjóri GolfklúbbsinsTudda GolfklúbburinnTuddi óskar eftir umsóknum í starf framkvæmdastjóra. Í starfinu felst:  Umsjón með daglegum rekstri og þróun á starfi félagssins í samstarfi við stjórn.  Þjónusta við félagsmenn og viðskiptavini.  Eftirfylgni með rekstraráætlunum, fjárlagagerð sem og skipulagning íþróttastarfs.  Áreiðanleikakönnun, áætlun og undir- búningur fyrir byggingu eða kaup á átján holu golfvelli og rekstri tengdum honum.  Vinna eftir stefnu stjórnar en framkvæmdastjóri starfar náið með for- manni og stjórn félagsins. Menntunar- og hæfniskröfur:  Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, hagfræði eða sambærileg menntun.  Viðkomandi verður að þekkja vel til íþrótta- og markaðsmála og hafa áhuga á að vinna í umhverfi sem tengist golfi. Menntun á sviði íþrótta- og/eða tómstundamála er æskileg.  Hæfni í mannlegum samskiptum og öguð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.  Nauðsynlegt er að viðkomandi tali og skrifi vel íslensku sem og ensku.  Viðkomandi þarf að hafa almenna og góða tölvuþekkingu, bókhaldskunnáttu og reynslu í notkun verkefnisstjórnunarforrita. Allir þeir sem hafa áhuga á að vinna í góðu starfsumhverfi þar sem mikil uppbygging er framundan, eru hvattir til að sækja um. Um er að ræða hlutastarf til að byrja með og eru góð laun í boði fyrir réttan aðila. Vinnutími getur verið breytilegur. Æskilegt er að við- komandi geti hafið störf sem fyrst, ekki síðar en mars 2010. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið. Upplýsingar um starfið veitir formaður GOT í gegnum tölvupóst: golfklubburinn.tuddi@gmail.com Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu sendast á: golfklubburinn.tuddi@gmail.co. Æskilegt er að með umsókn fylgi mynd. Umsóknarfrestur er til 10. desember 2009. Öllum umsóknum verður svarað. Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is. ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 500 manns, víðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór- iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Framkvæmdagleði í fyrirrúmi Virkjanaframkvæmdir Panama Ístak óskar eftir að ráða verkfræðing til starfa við virkjanaframkvæmdir í Panama. Um er að ræða aðstoð við stjórnun á byggingarstað. Framkvæmdir Jamaíka Ístak óskar eftir að ráða verkfræðing til starfa við framkvæmdir á Jamaíka. Viðkomandi þarf að hafa víðtæka reynslu af bygginga- framkvæmdum. Framkvæmdir Noregi Ístak óskar eftir að ráða verkfræðing til starfa við framkvæmdir í Noregi. ÍSTAK ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA VERKFRÆÐINGA TIL STARFA VEGNA FRAMKVÆMDA ERLENDIS ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 Eftir Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is ÞÆR freistingar og tímaþjófar sem fylgja net- inu eru mörgum stjórnendum þyrnir í auga. Hættan er jú sú að í stað þess að verja tíma sín- um í að skapa verðmæti fyrir fyrirtækið falli starfsmenn í þá gildru að dóla á netinu við spjall, vefráp og leiki. Um leið er þó netið iðu- lega nauðsynlegt vinnutæki og tölvupóstur, upplýsingaleit á netinu og samskipti við kollega og vini gegnum netið að margra mati ómissandi. Allur gangur er á hversu langt fyrirtæki ganga í að tryggja afköst starfsmanna. Hér á landi virðist sem nokkuð afslappað viðhorf sé ríkjandi og starfsmönnum sé gefið ágætis svig- rúm til að nota vefinn, á meðan það er t.d. ekki óalgengt vestanhafs að loka fyrir netnotkun að hluta eða öllu leyti og oft heyrast fréttir af starfsmönnum sem vikið var úr starfi fyrir að eyða of miklum tíma á netinu í vinnunni. Að spjalla eða ekki spjalla Mjög algengt er á vinnustöðum vestanhafs að lokað sé fyrir spjallforrit eins og MSN Messen- ger og þá iðulega á þeirri forsendu að forritið noti fólk fyrst og fremst til kumpánlegs spjalls við vinahópinn. Sitt sýnist þó hverjum og eru vísbendingar um að MSN og sambærileg spjall- forrit geti verið verðmætt verkfæri í rekstri sé rétt með það farið. Netspjall hefur það umfram tölvupóst að samskiptin fara fram í rauntíma, hægt er að sjá hvort móttakandinn er á lausu þá stundina og svar berst yfirleitt um hæl. Um leið hefur netsp- jall það umfram símann að viðtakandinn getur svarað skeytinu þegar honum hentar. Ef verk- efni augnabliksins er aðkallandi truflar skeyti gegnum spjallforrit ekki viðtakandann eins og t.d. hringjandi sími en eftir sem áður er von á að svar berist skjótt og vel. Samskipti um netpsjall eru líka iðulega styttri og hnitmiðaðri en t.d. tölvupóstur eða símtal. Minni truflun við vinnu Rannsóknir benda til að vissulega sé ávinn- ingur af notkun spjallforrita á vinnustaðnum, og sýndi t.d. rannsókn á vegum Kaliforníuháskóla árið 2008 fram á að starfsmenn sem nota spjall- forrit verða fyrir minni truflunum við vinnu sína, þar sem spjallið kemur í staðinn fyrir meira truflandi og tímafrek samskipti s.s. í síma, tölvupósti, eða samtöl augliti til auglitis. Spjallið verði til þess að samskipti milli kollega verða styttri og skilvirkari. Önnur rannsókn sýndi fram á að ekki nema lítill hluti, eða 13% samtala starfsmanna á spjallforritum komu inn á persónuleg málefni, og að aðeins rúmlega 6% netspjalla snerust ein- göngu um persónuleg mál starfsmanns. Rennir þetta stoðum undir að spjallforritin séu ekki sá tímaþjófur sem margir óttast. Samskiptareglur og öryggi Fyrirtæki sem taka spjallforrit í sína þjón- ustu þurfa þó að huga að nokkrum atriðum, s.s. hvaða reglur gilda í samskiptum á spjallinu og hvernig gagnaöryggi er tryggt. Sum fyrirtæki velja að nota sérhönnuð spjallforrit en önnur leggja á það áherslu að stillingar spjallforrit- anna séu hárréttar, s.s. hvort forritið geymir af- rit af samtölum. Einnig þarf að hafa í huga að spjallforrit verða æ vinsælla skotmark tölvu- þrjóta og ýmsir vírusar og óværur geta dreift sér með lymskulegum hætti gegnum þennan miðil. Starfsmenn þurfa líka sjálfir að setja sér viðmið út frá því hvernig hver og einn notar for- ritið. Sumum þykir of mikil truflun af skila- boðum frá vinum og ættingjum og velja að hafa slökkt á forritinu á meðan aðrir merkja sig sem „fjarverandi“ eða „ósýnilegan“ á meðan þeir eru við vinnu til að fækka aðsendum skeytum. Einn- ig þarf að fara varlega ef vinnu og einkalífi er blandað saman á sama spjallaðganginum, gæta þess að notendamynd, notendanafn, talsmáti og aðrar upplýsingar séu a.m.k. á hæfilega fagleg- um nótum. Fara vinna og spjallforrit saman? Morgunblaðið/Heiddi Afköst Stjórnendur óttast að spjallforrit trufli starfsfólkið um of við vinnu sína.  Skiptar skoðanir um ágæti spjallforrita á vinnustað  Getur þó reynst verðmætt vinnutæki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.