Morgunblaðið - 28.11.2009, Page 3
Andrés Iniesta, Raúl, Xavi, Thierry
Henry og svona mætti lengi telja
áfram.
Messi og Ibrahimovic hafa verið í
kapphlaupi við tímann að hrista af
sér meiðsli og síðast í gær bárust
þær fregnir úr herbúðum Evrópu- og
Spánarmeistara Barcelona að þeir
væru tæpir. Engum ætti þó að koma
á óvart ef Argentínumaðurinn og
Svíiinn ættu eftir að gera mikinn usla
í vörn Madridarliðsins.
Skærasta stjarna Real Madrid og
dýrasti fótboltamaður heims, Crist-
iano Ronaldo, er klár í slaginn eftir
að jafna sig af meiðslum og hann
mun skeiða um grænar grundir á
Camp Nou í kvöld og valda varn-
armönnum Börsunga vandræðum
með ógnarhraða sínum og knattfimi.
Puyol: Met möguleikana jafna
Carles Puyol fyrirliði Barcelona
metur einvígi liðanna 50:50.
,,Við berum mikla virðingu fyrir
Real Madrid. Liðið er á toppi deildar-
innar. Það hefur unnið næstum alla
leiki sína og það erfitt við að eiga. Ég
met möguleika okkar á sigri til jafns
við Real Madrid. Sigurinn á Inter var
okkur mjög mikilvægur og með hon-
um fengum við gott veganesti í þenn-
an leik og aukið sjálfstraust í mann-
skapinn,“ sagði Puyol á vef félagsins.
Pepe: Hræðumst ekki Barcelona
Varnamaðurinn Pepe í liði Real
Madrid segir að hann og félagar sínir
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
EINN er sá maður sem hefur spilað
með báðum liðum en það er Daninn
Michael Laudrup, einn frægasti og
besti fótboltamaður Dana fyrr og síð-
ar.
,,Ég vonast eftir því að sjá frábær-
an fótboltaleik og ég mjög bjartsýnn
að svo verði niðurstaðan,“ sagði hinn
45 ára gamli Laudrup við breska
ríkisútvarpið, BBC.
,,Þessi leikur hefur allt og jafnvel
þótt þú horfir á hann í sjónvarpinu
þá sérð þú sumt mjög, mjög sér-
stakt. Stuðningsmenn beggja liða
meðhöndla flesta leiki eins og þú
myndir gera á Englandi ef þú værir
að fara í leikhúsið. Þeir reikna með
mikilli skemmtun. En í þessum leik,
haga þeir sé örðuvísi. Þetta er eins
og úrslitaleikur í Meistaradeildinni,
er þó mikilvægari og hávaðinn sem
þeir skapa er ótrúlegur,“ segir Laud-
rup.
Laudrup lék með Barcelona 1989
til 1994 og í búningi Real Madrid
klæddist hann 1994-96. Árið 1999 var
á kjörinn besti erlendi leikmaðurinn í
spænsku deildinni undanfarin 25 ár.
Laudrup er einn fárra fótboltam-
ana á jörðinni sem vita hvaða þýð-
ingu það hefur að spila fyrir bæði
Barcelona og Real Madrid og er að
öllum líkindum sá eini sem er enn
elskaður hjá fólki sem býr í Madrid
og í Barcelona.
Þrír sigrar hjá
Real Madrid í 25 leikjum
Real Madrid trónir á toppi deild-
arinnar. Liðið hefur 28 stig eftir 11
leiki og hefur ekki byrjað betur í
deildinni í 17 ár en fast á hæla liðsins
koma Börsungar með 27 stig. Real
Madrid hefur ekki sótt gull í greipar
Barcelona á Camp Nou en liðið hefur
aðeins náð að landa þar þremur sigr-
um í síðustu 25 leikjum liðanna.
Barcelona niðurlægði Madrid-
arliðið þegar liðin áttust síðan við en
Katalóníuliðið vann stórsigur, 6:2, í
maí í vor og það á heimavelli Real
Madrid, Santiago Bernabeu.
Margir af þeim bestu í heimi
Liðin sem hlaupa inná á Camp
Nou á morgun eru stjörnum prýdd
og margir af fremstu fótboltamönn-
um heims munu leika þar leika listir
sínar. Nægir að nefna leikmenn á
borð við: Lionel Messi, Kaká, Zlatan
Ibrahimovic, Cristiano Ronaldo,
óttist ekki Barcelona; ,,Við hræðumst
ekki Barcelona frekar en neina mót-
herja. Við förum til Barcelona til að
spila okkar leik og til að vinna. Við
ætlum að sýna að við erum færir um
að leggja Barcelona að velli á Camp
Nou,“ sagði hinn portúgalski Pepe
við spænska blaðið Marca.
,,Við verðum að vera skynsamir og
hafa mjög góðar gætur á Iniesta og
Xavi. Þeir eru mikilvægir hlekkir í
liði Barcelona.“
Mikil spenna fyrir risaslaginn á milli Barcelona og Real Madrid, ,,El Clasico“
Leikið á Camp Nou á morgun Síðast niðurlægðu Börsungar lið Madrídinga
Knattspyrnufíklar út um víða veröld
bíða með öndina í hálsinum eftir ,,El
Clasico“ þar sem risarnir Barcelona og
Real Madrid leiða saman hesta sína í
uppgjöri toppliðanna í spænsku 1.
deildinni í knattspyrnu. Leikur liðanna
fer fram á hinum glæsilega Camp Nou
leikvangi í Barcelona á morgun og eins
og jafnan áður hefur um fátt verið um
annað talað á Spáni síðustu daga en
þennan stórveldaslag.
Stjörnustríð á Spáni
Bestur? Lionel Messi er af mörgum talinn besti knattspyrnumaður heims um þessar mundir. Hann er tæpur vegna meiðsla fyrir slaginn á morgun.
Reuters
skrifa
Þór
i að
rs,
ð í
llið
nið
dinni.
ad-
i-
ginu,
ð mér
í unglingaliðinu um skeið. Starfs-
fólkið hér og allir í kringum Read-
ing eru eins og ein stór fjölskylda.
Þetta er fínn bær og frábærlega
staðsettur, stutt frá London og enn
styttra á flugvöllinn á Heathrow ef
maður ætlar að skreppa heim,“
sagði Gylfi við Morgunblaðið í gær-
kvöld.
Hann var þá kominn á hótel í
Derby en Reading mætir heimalið-
inu þar í 1. deildinni í dag. „Okkur
hefur gengið illa í haust, höfum verið að laga okkur
að nýjum stjóra og nýjum leikstíl, en höfum spilað vel
í undanförnum 4-5 leikjum og þetta er allt á réttri
leið,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson.
l hjá Reading“
Gylfi Þór
Sigurðsson
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009
UmboðsmaðurTiger Wo-
ods sagði í gær-
kvöld að banda-
ríski kylfingurinn
væri við góða
heilsu eftir bílslys
fyrir utan heimili
sitt í Flórída.
Mark Steinberg
hjá IMB umboðsskrifstofunni stað-
festi þetta í samtali við bandaríska
dagblaðið USA Today. Woods var
fluttur á spítala í Flórída eftir slysið
í fyrrinótt. Haft var eftir lögreglunni
að Woods hefði bakkað á brunahana
við innkeyrsluna heima hjá sér og
bíll hans síðan hafnað á tré.
Garðar B. Gunnlaugsson og Jó-hannes Harðarson, knatt-
spyrnumenn frá Akranesi, eru í við-
ræðum við Valsmenn um að leika
með þeim á næsta keppnistímabili.
Þetta kom fram í fréttum RÚV í
gærkvöld. Garðar hefur verið á mála
hjá CSKA Sofia í Búlgaríu en er á
leið frá félaginu. Jóhannes hefur
spilað í Noregi undanfarin ár, síðast
með 2. deildarliðinu Flöy.
Finnur Ólafs-son, knatt-
spyrnumaður úr
HK, gekk í gær
til liðs við ÍBV og
samdi við félagið
til þriggja ára.
Eyjamenn náðu
samkomulagi við
HK um fé-
lagaskiptin en Finnur var samnings-
bundinn Kópavogsfélaginu út næsta
tímabil. Finnur er 25 ára gamall
miðjumaður og hefur alla tíð leikið
með HK. Hann missti af stærstum
hluta síðasta tímabils vegna meiðsla
og náði aðeins að spila 6 leiki með
HK í 1. deildinni, og gerði í þeim tvö
mörk. Næstu tvö ár þar á undan lék
Finnur 31 leik með HK í úrvalsdeild-
inni.
Chelsea geturteflt fram
sínu sterkasta liði
í leiknum gegn
Arsenal en liðin
eigast við í ensku
úrvalsdeildinni á
Emirates Stadi-
um á morgun.
Eina spurning-
armerkið var Frank Lampard en
Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri
Chelsea, greindi frá því í gær að
miðjumaðurinn sterki væri búinn að
ná sér af meiðslum og væri klár í
stórslaginn.
Sverre Jakobsson og félagar íGrosswallstadt unnu Magde-
burg, 32:30, í þýsku 1. deildinni í
handknattleik í gærkvöld. Sverre
skoraði ekki en var einu sinni rekinn
af velli. Einar Hólmgeirsson hjá
Grosswallstadt er frá keppni vegna
meiðsla.
Fólk sport@mbl.is
ENSKA 1. deildarliðið Reading vonast til að
geta samið við framherjann Gunnar Heiðar
Þorvaldsson og fengið hann til liðs við sig
þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar.
Gunnar Heiðar, sem er á mála hjá danska
úrvalsdeildarliðinu Esbjerg, var til skoðunar
hjá Reading í tíu daga og náði þar að heilla
forráðamenn liðsins en Eyjamaðurinn skor-
aði tvö mörk í æfingaleik með varaliðinu.
Bæði mörkin í 2:1 sigri á Bristol Rovers.
,,Gunnar er leikmaður sem við höfum
skoðað síðustu vikurnar. Hann er góður leik-
maður sem er hátt skrifaður. Hann gerði tvö
mörk í leik með okkur í vikunni og stóð sig
vel á æfingum. Hann er klókur spilari, hefur
góða tækni og er þroskaður leikmaður. Við
verðum að sjá hvort við
getum ekki gengið frá
samningi um að fá hann á
næstu vikum en við get-
um ekki fengið hann fyrr
en í janúar,“ sagði Brend-
an Rodgers knatt-
spyrnustjóri Reading við
enska blaðið Reading
Chronicle.
Gunnar Heiðar sagði
við Morgunblaðið í vik-
unni að hann sæi fram á að gamall draumur
sinn um að spila með ensku liði væri í þann
veginn að rætast.
gummih@mbl.is
Rodgers vill semja við Gunnar
Gunnar Heiðar
Þorvaldsson
!" ##$
" %$&'$$(
" )#)& ###"
*
+ ,, -
+ ,,
.#" ##$"